Morgunblaðið - 27.01.2006, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRAMKVÆMDUM við stækkun Kringlunnar í Reykja-
vík miðar vel. Verið er að steypa útveggi hússins. Und-
anfarna daga hefur verið frostlaust í Reykjavík og því
góðar aðstæður til að steypa. Viðbyggingin er um 1.500
fermetrar á tveimur hæðum og er áætlað að fram-
kvæmdum ljúki í vor.
Morgunblaðið/Ásdís
Framkvæmdir við Kringluna ganga vel
SÍMINN áformar að hætta beinum
verslunarrekstri á Sauðárkróki, Sel-
fossi, Akranesi, í Vestmannaeyjum
og í Reykjanesbæ á næstunni, auk
þess sem loka á verslun fyrirtækis-
ins á Laugavegi, en í gær voru til-
kynntar fyrirhugaðar breytingar á
verslunarrekstri og skipulagi Sím-
ans. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Símans, segir breytingarnar snerta
29 starfsmenn fyrirtækisins og rætt
hafi verið við þá í gær. Hluta hópsins
hafi verið boðið að halda sínu starfi
eða taka við öðrum störfum innan
fyrirtækisins og um 10 þeirra hafi
þegar þekkst slíkt boð. Brynjólfur
segir að gengið hafi verið frá vilja-
yfirlýsingu við Pennann um sölu-
samstarf sem
mun fela í sér að
Penninn verður
einn endursölu-
aðila Símans.
„Samningurinn
við Pennann mun
hafa í för með sér
að Penninn ræður
eitthvað af fólk-
inu til sín. Þeir
munu ásamt okk-
ur ræða við starfsfólk á viðeigandi
stöðum um störf,“ segir Brynjólfur
og bætir við að eins og er sé ekki
hægt að segja til um hversu margir
missa vinnuna. Áformað sé að Penn-
inn taki að sér endursölu fyrir Sím-
ann á þeim stöðum sem fyrirtækið
hyggst hætta verslunarrekstri. Þar
sem Penninn er ekki með verslun,
svo sem á Sauðárkróki, verði leitað
til annarra endursöluaðila. Tryggt
verði að þjónusta á vegum Símans
verði áfram í boði á þessum stöðum.
Breyttir verslunarhættir
Breytingarnar eiga að ganga í
gegn fljótlega að sögn Brynjólfs.
Fyrirtækið reki þær verslanir sem
til stendur að loka ýmist í eigin hús-
næði eða í leiguhúsnæði og frá þess-
um málum þurfi að ganga. Þá taki
tíma fyrir Pennann og aðra endur-
söluaðila að koma upp aðstöðu hjá
sér fyrir vörur Símans.
Spurður hvort Síminn sé að bregð-
ast samfélagslegum skyldum sínum
með því að loka verslunum á lands-
byggðinni segist Brynjólfur ekki
telja svo vera. Breytingar hafi orðið
á verslunarháttum, til að mynda með
aukinni vefverslun. Þá hafi það sýnt
sig að fólk leiti í stærri verslanir á
höfuðborgarsvæðinu þegar það vilji
geta haft meira vöruúrval. Um eðli-
lega þróun sé því að ræða.
Síminn mun áfram reka verslanir í
Ármúla, Kringlunni og Smáralind og
á Ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum.
Starfsmenn fyrirtækisins eru um
1100 talsins.
Rafræn viðskipti auðvelduð
Fram kemur í fréttatilkynningu
Símans vegna breytinganna að
áformað sé að sameina undir eitt
tæknisvið rekstur talsíma-, farsíma-
og gagnasviðs. Þannig hyggist fyr-
irtækið „samþætta mismunandi
tæknilausnir til að auðvelda við-
skiptavinum hvers kyns rafræn við-
skipti“.
Síminn hættir beinum verslunarrekstri á fimm stöðum á landsbyggðinni
Breytingarnar snerta 29
starfsmenn Símans
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
Brynjólfur
Bjarnason
MEÐFERÐ fanga í fangelsinu að
Litla-Hrauni og ofbeldi þeirra í mill-
um er áhyggjuefni Evrópunefndar
til varnar gegn pyntingum og
ómannúðlegri og niðurlægjandi
meðferð og refsingum (CPT) sem
skilað hefur skýrslu um ástandið í
íslenskum fangelsum og fleira.
Nefndin var hér á ferð sumarið
2004 og kynnti sér íslensk fangelsi
og fangageymslur og ræðir í skýrsl-
unni um meðferð fanga. Nefndin
sagðist ekki hafa heyrt neinar ásak-
anir um illa meðferð í Kópavogs-
fangelsinu, Kvíabryggju og Hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustíg, en
öðru máli gegndi um Litla-Hraun.
Þar var kvartað undan harkalegri
meðferð og munnsöfnuði í garð
fanga við klefaleitir. Nefndin gerir
einnig athugasemdir við formleg og
fjarlæg samskipti fangavarða við
fanga. Jafnframt sker Litla-Hraun
sig úr hvaða varðar ofbeldi milli
fanganna sjálfra. Við þessu hefðu yf-
irvöld ekki brugðist nægilega vel og
þyrftu að bæta sig. Fangelsið sjálft
væri hins vegar vel búið þótt fang-
arnir mættu hafa meira við að vera.
Kópavogsfangelsi verði
alfarið kvennafangelsi
Að mati nefndarinnar er Kópa-
vogsfangelsi of þröngt, en ráðstaf-
anir til að útvega föngum dægra-
styttingu fellur nefndinni í geð. Þá
leggur nefndin til að Kópavogsfang-
elsi verði alfarið breytt í kvenna-
fangelsi en þar eru nú bæði kynin.
Þrátt fyrir að ekki hafi verið kvartað
undan kynbundnu ofbeldi milli
fanga, sem vel að merkja eru ekki
aðskildir, telur nefndin að þessar
aðstæður bjóði upp á slíka hættu
þar sem fangar af báðum kynjum
verði að umgangast hver aðra á dag-
inn.
Hvað Kvíabryggju snertir er
nefndin ánægð með dægrastyttingu
sem föngum er boðið upp á og enn-
fremur er fangelsið talið vel búið.
Hins vegar þarf að bæta möguleika
fanga til atvinnu sem eru of fábrotn-
ir.
Heilsugæsla í fangelsum er al-
mennt góð að mati nefndarinnar en
þó skortir betri stjórnun á henni og
sérhæfða þjónustu s.s. hjúkrunar-
fræðinga til að útbýta lyfjum til
fanga.
Fangageymslur lögreglunnar á
landsbyggðinni eru almennt viðun-
andi þó með undantekningum á borð
við fangageymslu lögreglunnar á
Búðardal. Þar sá nefndin járnstöng
við rúm í fangaklefa sem greinilega
var notuð til að handjárna erfiða
fanga við. Nefndin leggur til að
þetta stykki verði fjarlægt og í stað-
inn kallað í lækni til að róa fanga.
Nefndin gerir þá athugasemd að
hugað verði að betri lýsingu í fanga-
klefum hjá lögreglunni á Grundar-
firði, Selfossi og Stykkishólmi auk
þess sem nefndin vekur athygli á því
að enginn bjölluhnappur er fyrir
fanga í geymslu lögreglunnar á
Ólafsvík.
Evrópunefnd kannar málefni fanga á Íslandi
Ofbeldið í fangelsinu á
Litla-Hrauni óviðunandi
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Ís-
lenskan kúfisk ehf. til að greiða
Langanesi hf. 30 milljónir króna í
björgunarlaun fyrir að koma skipi í
eigu félagsins til aðstoðar. Í héraðs-
dómi hafði Íslenskur kúfiskur verið
sýknaður af öllum kröfum Langa-
ness.
Fossá ÞH 362, í eigu Íslensks kú-
fisks, var 1,2 sjómílur frá landi þegar
skelplógsbarki fór í skrúfuna og
skipið varð aflvana. Vindur var 10–
15 m/sek og stóð að landi og allmikill
öldugangur.
Var það mat dómsins að skipið
hefði þegar verið statt í yfirvofandi
hættu og að hættan hefði aukist að
mun þegar stjórnborðsakkerið
slitnaði frá því. Var óumdeilt að
skipið hefði þá rekið um 0,4 sjómílur
í átt til lands þegar bakborðsakker-
ið náði að stöðva rekið. Engin vissa
lá fyrir um að bakborðsakkerið
hefði náð að halda skipinu áfram og
heldur ekki að skelplógurinn hefði
getað náð nægilegri festu til að
halda skipinu, þó að skipverjar
hefðu verið búnir að festa hann við
polla og verið tilbúnir að sleppa hon-
um fyrir borð ef festingin í síðara
akkerið hefði gefið sig.
Aðila greindi ekki á um að skip-
verjar Bjargar Jónsdóttur ÞH 321, í
eigu Langaness, brugðust skjótt við
hjálparbeiðni frá stefnda og undir-
bjuggu aðgerðir sínar vel meðan á
siglingunni að Fossá ÞH 362 stóð.
Vinnubrögð þeirra á staðnum voru
markviss, tóku stuttan tíma og
heppnuðust eins og best varð á kosið.
Þá lögðu þeir skip sitt í nokkra
hættu, einkum er þeir unnu að því að
koma dráttartógi milli skipanna.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg
Benediktsdóttir og Jón Steinar
Gunnlaugsson. Jóhannes Bjarni
Björnsson hrl. flutti málið fyrir
Langanes og Ólafur Haraldsson hrl.
fyrir Kúfisk.
Langanesi dæmd-
ar 30 milljónir í
björgunarlaun
KARLMAÐUR var í gær sýknaður
í Hæstarétti af því að hafa brotið
gegn nálgunarbanni með því að
hafa á almannafæri nálgast eða sett
sig í samband við fyrrverandi sam-
býliskonu sína annars vegar og
sambýlismann hennar hins vegar. Í
héraðsdómi hafði maðurinn verið
dæmdur í fimm mánaða fangelsi.
Var manninum gefið að sök að
hafa í tvö skipti brotið gegn nálg-
unarbanni, með því að hafa á al-
mannafæri nálgast eða sett sig í
samband við fyrrverandi sambýlis-
konu sína og sambýlismann hennar.
Í báðum tilvikum greindi aðila á um
hvernig fundum þeirra bar saman
umrætt sinn og gátu þau vitni sem
til var að dreifa ekki borið um þann
þátt málsins. Gegn neitun mannsins
var talið ósannað með hliðsjón af 1.
mgr. 48. gr. laga um meðferð op-
inberra mála að hann hefði brotið
gegn 232. gr. almennra hegning-
arlaga í umrætt sinn og var hann
sýknaður af þeim ákæruliðum. Þá
var honum einnig gefið að sök brot
gegn 233. gr. almennra hegning-
arlaga, með því að hafa haft í hót-
unum við nágranna sinn. Maðurinn
neitaði sök og stóðu orð hans gegn
orðum nágrannans um það hvort
maðurinn hefði hótað honum á þann
hátt sem lýst var í ákæru. Gegn
neitun mannsins og með hliðsjón af
fyrrnefndu ákvæði var talið ósann-
að að maðurinn hefði gerst sekur
um brotið og var hann því sýkn-
aður.
Mál þetta dæmdu hæstaréttar-
dómararnir Guðrún Erlendsdóttir,
Ingibjörg Benediktsdóttir og Jón
Steinar Gunnlaugsson.
Allur sakarkostnaður málsins í
héraði og fyrir Hæstarétti greiðist
úr ríkissjóði.
Sýknaður af því
að hafa brotið
nálgunarbann
EFTIR góða tíð undanfarið lít-
ur ekki út fyrir að skíðasvæðið í
Bláfjöllum verði opið á næst-
unni, að sögn Grétars Halls
Þórissonar, forstöðumanns
svæðisins.
Mikill og góður snjór var í
Bláfjöllum fyrri hluta janúar en
hann hefur farið minnkandi
undanfarna daga.
Grétar sagði að ennþá væri
snjór á skíðasvæðinu en krapa-
blettir hefðu myndast neðst í
brekkunni og sú þróun héldi
áfram með áframhaldandi hlý-
indum, sem spáð er næstu
daga.
Hingað til hafa Bláfjöllin ver-
ið opin í 11 daga og hafa yfir 20
þúsund gestir sótt svæðið. Ekki
verður opnað aftur nema snjói
duglega.
Búið að
loka í Blá-
fjöllum
í bili