Morgunblaðið - 27.01.2006, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Staða
þýðinga
á morgun
MIKLAR líkur eru á því að barátta
Norður-Atlantshafslaxasjóðsins
gegn reknetaveiðum Íra á laxi sé nú
að skila árangri. Írar hafa tvöfaldað
hlutfall sitt af veiddum laxi í sjó mið-
að við önnur aðildarlönd ESB á síð-
ustu 10 árum og hafa ekki viljað fara
eftir varúðartillögum eigin vísinda-
manna. Vegna þessa hefur vott-
unarfyrirtækið Slow Food dregið til
baka vottun sína á írskum laxi, en
það var gert að tillögu Orra Vigfús-
sonar, formanns NASF.
Þetta mál hefur vakið mikla at-
hygli á Írlandi og hefur töluvert ver-
ið um það fjallað í írskum fjöl-
miðlum, meðal annars í The Irish
Times. Ráðherra sjávarútvegsmála
á Írlandi, Pat Gallagher, hefur með-
al annars veitzt að Orra Vigfússyni
og Laxasjóðnum, sem hafa síðan
svarað fyrir sig, einkum hvað varðar
veiðar á merktum laxi við Írland.
Í frétt The Irish Times í gær kem-
ur svo fram að sjávarútvegsráðherr-
ann sé orðinn valtur í sessi vegna
málsins og verði líklega færður til í
starfi innan ríkisstjórnarinnar.
Veiða 200.000 laxa á ári
Orri Vigfússon segir að Írar veiði
um 200.000 laxa í sjó í reknet á ári.
Írlandi sé skipt upp í 17 laxveiði-
ársvæði og hafi vísindamenn lagt til
að ekki yrði veitt á 9 þeirra vegna
slæmrar stöðu laxins. Þrátt fyrir það
vilji ráðherrann halda áfram veiðum
í sjó. Það vilji hann einnig þrátt fyrir
það að sannað hafi verið að við veið-
arnar sé tekið mikið af laxi sem ann-
ars gengi upp í laxár annars staðar í
Evrópu eins og Englandi, Wales,
Frakklandi, Spáni og Þýskalandi.
Því sé haldið fram af írska sjáv-
arútvegsráðuneytinu að þar sem lít-
ið sé um það að lax merktur í öðrum
Evrópulöndum finnist í afla Íra sé
lítil sem engin hætta á ferðum. Það
sé hins vegar ekki rétt. Á undaförn-
um árum hafi þúsundir merkja frá
öðrum Evrópulöndum fundizt í laxi
veiddum við Írland þrátt fyrir að
merkingar séu orðnar litlar sem
engar. Loks megi nefna það að við
reknetaveiðarnar sé laxinn króaður
af, en það auðveldi sel á þessum
slóðum að éta laxinn. Þar sé að auki
um verulegt afrán að ræða.
Mikill stuðningur
„Ég var á Írlandi í síðustu viku til
að ganga frá kynningu á þessum
málefnum. Nú hafa allir stjórn-
arflokkar á Írlandi lýst yfir stuðn-
ingi við það markmið NASF að
stöðva reknetaveiðar á laxi við Ír-
land gegn sanngjörnum bótum til
netaveiðimanna þar í landi. Ég hef
mikinn stuðning frá yfirvöldum í
Evrópu í þessu máli og með mér í
síðustu viku var fulltrúi frá utanrík-
isráðuneyti Bandaríkjanna í Wash-
ington. Sendiráð þeirra í Dublin hélt
okkur veizlu og mættu þar meðal
annars sendiherrar Þýskalands,
Frakklands og Spánar til að sýna
samstöðu. Ég er því orðinn bjart-
sýnni en áður á að árangur náist og
þessum veiðum verði hætt,“ segir
Orri Vigfússon.
Samherjar Þeir styðja hvor annan í laxinum, Orri Vigfússon, formaður
NASF, og John Perry, sem fer með sjávarútvegsmál innan Fianna Gael-
flokksins á Írlandi. Mikill stuðningur er við að stöðva laxveiðar í sjó.
Líkur á að Írar hætti
laxveiðum í sjó
Ráðherra sjávarútvegsmála valtur í sessi vegna málsins
og deilna við Orra Vigfússon, formann NASF
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
SUÐURNES
BANKASTJÓRN Seðlabanka Ís-
lands hækkaði stýrivexti um 0,25
prósent í gærmorgun, í 10,75 pró-
sent. Þetta er tólfta vaxtahækkun
Seðlabankans frá maí 2004 og kemur
í kjölfar 0,75 prósenta hækkunar í
lok september og 0,25 prósenta
hækkunar í byrjun desember 2005.
Davíð Oddsson, formaður banka-
stjórnar Seðlabankans, skýrði frá
ákvörðun bankastjórnar á blaða-
mannafundi í gær. Í máli hans kom
m.a. fram að áhrifa stýrivaxtahækk-
ana Seðlabankans hefði nú loks tekið
að gæta í verðtryggðum vöxtum.
„Eigi að síður væri ótímabært að
fagna sigri í baráttunni við verðbólg-
una. Samkvæmt verðbólguspánni
sem birt var í Peningamálum í des-
ember sl. yrði verðbólga töluvert yfir
markmiði Seðlabankans,“ sagði Dav-
íð.
Endurskoðuð verðbólguspá
Davíð sagði að Selabankinn hefði
endurmetið verðbólguhorfur í ljósi
framvindu efnahagsmála undanfarna
tvo mánuði, en bankinn telur þær
enn óviðunandi. „Í desember og jan-
úar reyndist verðbólgan nokkru
meiri en fólst í desemberspá bank-
ans. Gengi krónunnar hefur einnig
lengst af verið ívið lægra en reiknað
var með í spánni,“ sagði Davíð
Að sögn Davíðs er vöxtur eftir-
spurnar afar hraður og mun meiri en
samrýmst getur jafnvægi í þjóðarbú-
skapnum. Dregið hafi hægar úr
spennu á íbúðamarkaði en vonir
stóðu til og áhrif vaxtahækkana
Seðlabankans komi ekki fram í vöxt-
um fasteignaveðlána eins og tilefni sé
til.
Vísbendingar um launaskrið
„Þróun á vinnumarkaði undan-
farna mánuði er einnig vaxandi
áhyggjuefni. Undanfarna þrjá mán-
uði hafa komið fram skýrar vísbend-
ingar um aukið launaskrið, eins og
oftast gerist þegar atvinnuleysi verð-
ur jafnlítið og um þessar mundir.
Horfur eru á að launakostnaður
hækki töluvert meira á næstu árum
en samrýmist verðbólgumarkmiði
Seðlabankans nema framleiðni aukist
mun hraðar en gert er ráð fyrir í
spám bankans, en það verður að telja
ósennilegt,“ sagði Davíð.
Í máli Davíðs kom fram að hæsta
raungengi frá því á níunda áratugn-
um og meiri viðskiptahalli en áður
hefur mælst benti til þess að umtals-
verður verðbólguþrýstingur kynni að
vera framundan, jafnvel handan þess
sjóndeildarhrings sem spár Seðla-
bankans næðu jafnan til.
„Peningastefnan verður að bregð-
ast tímanlega við þessum aðstæðum
því ella verður að beita enn harka-
legra aðhaldi síðar. Eins og nú horfir
kann Seðlabankinn því að þurfa að
hækka vexti enn frekar síðar á þessu
ári,“ sagði Davíð að endingu.
Í Hálffimm fréttum greiningar-
deildar KB banka segir að í ljósi
þess að Seðlabankinn telur verð-
bólguhorfur enn mjög dökkar megi
velta því upp hvort nægjanlega stór
skref séu stigin til þess að bregðast
við yfirvofandi verðbólguþrýstingi.
Greiningardeildin hefur spáð því að
stýrivextir muni ná hámarki um mið-
bik ársins og hafa aðrir greining-
araðilar gert slíkt hið sama. Hins
vegar segir hún að ljóst sé að ef til
frekari stóriðjuframkvæmda komi
munu forsendur breytast verulega
hvað stýrivaxtaferli bankans snertir.
Sagt var frá því í viðskiptablaði
Morgunblaðsins í gær að greining-
ardeild Íslandsbanka hefur gagnrýnt
það fyrirkomulag Seðlabankans að
tilkynna um vaxtaákvörðun sína
klukkan 9:00, en gera ekki grein fyrir
ákvörðuninni fyrr en rúmlega tveim-
ur tímum síðar. Ingimundur Frið-
riksson, aðstoðarbankastjóri Seðla-
bankans segir þetta fyrirkomulag
ekki frábrugðið starfsháttum seðla-
banka margra ríkja. „Fyrirkomulag
Seðlabankans er hins vegar ekki
höggvið í stein, heldur mun áfram
verða haldið við mótun þess í fram-
tíðinni, eins og gert hefur verið und-
anfarna mánuði,“ segir Ingimundur.
Verðbólga töluvert yfir
markmiði Seðlabankans
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðbólguþrýstingur „Hæsta raungengi frá því á níunda áratuginum og
meiri viðskiptahalli en áður hefur mælst benda til þess að umtalsverður
verðbólguþrýstingur kunni að vera framundan,“ sagði Davíð Oddson, for-
maður bankaráðs Seðlabankans, á blaðamannafundi í gær.
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is