Morgunblaðið - 27.01.2006, Page 27
Opið lau.: 11:00 - 16:00
1.990-
Verð áður: 2.990-
4.990-
Verð áður: 6.960-
14.980-
Verð áður: 19.970-
1.990-
Verð áður: 2.890-
990-
Verð áður: 1.990-
1.990-
Verð áður: 4.860-
2.990-
Verð áður: 3.890-
11.740-
Verð áður: 18.850-
1.875-
Verð áður: 3.870-
Úrval l jósa á frábæru verði!
Allt að 70 afsláttur%
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 27
UMRÆÐAN
ÞEGAR Kristinn H. Gunnarsson
gekk í Framsóknarflokkinn fyrir um
átta árum vöruðu margir sem starfað
höfðu með Kristni í Alþýðubandalaginu
okkur framsóknarmenn við og sögðu
að við myndum fljótlega óska þess að
þennan liðsauka hefðum við aldrei
fengið.
Við hlustuðum ekki á þessa andstæð-
inga okkar heldur fögnuðum auknum
þingstyrk en þótti vissulega skrýtið að
sjá alþýðubandalagsmenn gráta það
þurrum tárum að þingstyrkur stjórn-
arandstöðunnar skilaði sér af þessum
sökum ekki allur yfir í nýstofnaða
flokka Samfylkingar og Vinstri
grænna.
En nú er það löngu komið á daginn
að hrakspár alþýðubandalagsmanna
áttu við rök að styðjast enda voru þær
byggðar á reynslu af langvarandi erf-
iðleikum í samskiptum og samstarfi við
Kristin.
Í Framsóknarflokknum höfum við
mörg upplifað feril Kristins meðal okk-
ar á þann veg að hann sé stöðugt að
reyna að breyta Framsóknarflokknum
í nýtt Alþýðubandalag; að hann sé
hreinlega rangur maður, í röngu húsi, á
vitlausum tíma, eins og skáldið sagði.
Enginn getur annað sagt en að við
framsóknarmenn höfum tekið rausn-
arlega á móti Kristni H. Gunnarssyni.
Hann var gerður að formanni þing-
flokks meðan hann var nýliði í okkar
hópi. Oft er formennska í þingflokki
upphaf að frekari metorðum hjá stjórn-
málamanni.
Eftir eitt kjörtímabil undir for-
mennsku Kristins taldi þingflokkurinn
ástæðu til þess að kjósa nýjan formann
og setja Kristin til hliðar. Hann átti
sem þingflokksformaður að leiða hóp-
inn til sameiginlegrar niðurstöðu en
reynslan sýndi að honum fórst það
hlutverk illa úr hendi. Honum lét betur
að fara eigin leiðir og gagnrýna ákvarð-
anir sem búið var að taka eftir lýðræð-
islegum leiðum.
Samstarfsmenn hans í Framsókn-
arflokknum eru löngu orðnir vanir því
háttalagi hans að þegja á fundum þar
sem mál eru til meðferðar en tjá sig svo
í fjölmiðlum þegar lýðræðisleg nið-
urstaða er fengin og ákvörðun liggur
fyrir. Telur hann sig jafnan ranglæti
beittan og hefur forystu flokksins sér-
staklega á hornum sér og finnur henni
allt til foráttu. Sumir hafa trúað þeirri
glansmynd sem Kristinn dregur upp af
sjálfum sér sem óhræddum riddara
sannleikans sem þorir þegar aðrir
þegja.
Hvað sögðu starfsmenn
Byggðastofnunar?
Þá datt engum manni í hug að Krist-
inn væri heppilegt ráðherraefni eftir
reynsluna sem fengist hafði af því að
fela honum stjórnarformennsku í
Byggðastofnun. Ástandinu í Byggða-
stofnun undir stjórn Kristins lýstu
starfsmenn stofnunarinnar með þess-
um orðum í bréfi sem birt var í Morg-
unblaðinu 15. maí 2002: „Ítrekað höfum
við þurft að horfa uppá fullkomlega
óásættanleg vinnubrögð og framkomu
frá hendi stjórnarformanns sem virðist
í herför gegn forstjóra stofnunarinnar
og starfsmönnum hans. Teljum við
okkur hafa sýnt mikið langlundargeð
og fórnfýsi að umbera það ástand sem
verið hefur ríkjandi síðustu mánuði. At-
burðir síðustu daga hafa endanlega
fyllt mælinn“
Takið eftir að starfsmennirnir tala
um herför gegn forstjóra stofnunar-
innar og starfsmönnum hans. Margir
framsóknarmenn upplifa ástandið í
flokknum einmitt þannig að Kristinn sé
í herför gegn formanni flokksins og
Framsóknarflokknum sjálfum og að
mælirinn sé löngu fullur.
Er ekki nóg tjáningarfrelsi
til skiptanna?
Síðustu daga hefur Kristinn svo með
ótrúlega ósmekklegum hætti blandað
sér í prófkjörsbaráttu framsókn-
armanna í Reykjavík. Sjálfur er hann
þingmaður NV-kjördæmis og með lög-
heimili í Bolungarvík. Engu að síður
telur hann sér sæma að leggja op-
inberlega til „samherja“ sinna í höf-
uðborginni og væna þá
og flokksforystuna um
óeðlileg vinnubrögð.
Hneykslið er það eitt að
margir þekktir fram-
sóknarmenn hafa op-
inberlega lýst stuðningi
við Björn Inga Hrafns-
son en Björn Ingi var
einmitt framkvæmda-
stjóri þingflokksins hluta
af formannstíð Kristins,
m.a. á þeim tíma þegar
hann var settur af sem
slíkur.
Þetta horfir þannig við mér að að-
eins einn maður úr framvarðar- og for-
ystusveit Framsóknarflokksins hafi
orðið sér til minnkunar í
tengslum við prófkjörið í
Reykjavík. Sá maður er
Kristinn H. Gunnarsson,
sem á ekki aðild að mál-
inu, en reynir að hafa
áhrif á gang mála með
því að vekja tortryggni í
garð flokkssystkina
sinna. Það er alþekkt
meðal allra flokka að
menn lýsi stuðningi við
einstaka frambjóðendur
í prófkjöri. Það er hins
vegar einsdæmi hér á landi að alþing-
ismaður stígi fram með árásir gegn
framboði tiltekins manns úr sama
stjórnmálaflokki eins og Kristinn hefur
gerst sekur um undanfarna daga.
Mér finnst sérkennilegt að Kristinn,
sem virðist annt um eigið skoðanafrelsi
og gefur af sér þá mynd að hann sé
óháður og tali aðeins fyrir sjálfan sig,
talar um aðstoðarmenn ráðherra og
aðra sem lýst hafa stuðningi við Björn
Inga Hrafnsson af fádæma óvirðingu.
Hann virðist gefa sér að þessir ein-
staklingar séu ekkert nema handbendi
eða peð sem skákað er til af hinni al-
vondu forystu Framsóknarflokksins.
Kristinn virðist ekki vilja veita þess-
um stuðningsmönnum Björns Inga hin
minnstu réttindi til tjáningarfrelsis í
eigin nafni. Sjálfur þarf hann á svo
stórum skammti af tjáningarfrelsi að
halda að kannski finnst honum ekki
nóg til skiptanna fyrir aðra framsókn-
armenn.
Rangur maður í röngu húsi á vitlausum tíma
Einar Kristján Jónsson fjallar
um Kristin H. Gunnarsson og
Framsóknarflokkinn ’Kristinn virðist ekkivilja veita þessum stuðn-
ingsmönnum Björns Inga
hin minnstu réttindi til
tjáningarfrelsis í eigin
nafni. ‘
Einar Kristján Jónsson
Höfundur var kosningastjóri
Framsóknarflokksins í Norðvestur-
kjördæmi fyrir alþingiskosningarnar
árið 2003 og núverandi formaður
Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í
Kópavogi.