Morgunblaðið - 27.01.2006, Qupperneq 44
44 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
á Hellissand
Upplýsingar
gefa Bryndís
og Ólöf
í síma 569 1116
Atvinnuauglýsingar
Kranamaður óskast
Réttindi og reynsla æskileg.
Mikil vinna, góð laun.
Upplýsingar gefur Logi í síma 898 5369.
Hagfræðingur
á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands auglýsir laust til umsóknar starf hagfræðings á hagfræðisviði.
Hagfræðisvið annast rannsóknir og greiningu á þróun efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags-
og verðbólguspár og tekur þátt í mótun stefnunnar í peningamálum. Hagfræðisvið hefur
m.a. umsjón með útgáfu Peningamála og ensku útgáfu þess Monetary Bulletin.
Verkefni hagfræðingsins verða m.a.:
Að fylgjast með framvindu efnahagsmála, greina gögn og skrifa um niðurstöður.
Tilfallandi rannsóknarverkefni og ráðgjöf á sviði þjóðhagfræði.
Þátttaka í öðrum verkefnum hagfræðisviðs eftir atvikum.
Áskilið er a.m.k. meistarapróf í þjóðhagfræði og lögð er áhersla á að umsækjandi hafi þekkingu
og áhuga á efnahagsmálum. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði
íslensku og ensku, og hæfileika til að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt. Auk þekkingar
á hefðbundnum hugbúnaði væri það kostur ef umsækjandi hefði góða þekkingu á notkun
hugbúnaðar til tölfræðigreiningar og hagmælinga. Umsækjandi þarf að hafa góða samskipta-
hæfileika og vera reiðubúinn til hópvinnu af ýmsu tagi.
Upplýsingar um starfið veitir Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur, í síma 569 9600.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. febrúar 2006 til starfsmannastjóra Seðlabanka Íslands.
Seðlabanki Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík, sími 569 9600.
Raðauglýsingar 569 1100
FRÉTTIR
Skagaströnd | Róbert Harðarson,
alþjóðlegur meistari í skák, er
þessa dagana á Skagaströnd til að
kenna nemendum Höfðaskóla að
tefla. Stendur skákátakið vikuna
23.–28. janúar en á þeim tíma fer
Róbert tvisvar til þrisvar inn í
hvern bekk skólans og kennir
skáklistina. Alla dagana er síðan
boðið upp á fjöltefli við Róbert síð-
degis eftir að skóla lýkur. Þar er
öllum velkomið að spreyta sig.
Áhugi krakkanna er það mikill að
Róbert hefur þurft að skipta fjöl-
teflinu í tvo flokka vegna vandræða
með pláss í stofunni þar sem teflt
er.
Fyrirhugað er að Róbert tefli op-
inbert fjöltefli eftir hádegi á föstu-
dag þar sem allir eru velkomnir,
fullorðnir ekki síður en börn. Eftir
helgina er svo von á stórmeist-
aranum Henrik Danielsen úr skák-
félaginu Hróknum til að slá botn-
inn í þessa skákviku með því að
tefla fjöltefli á Skagaströnd við þá
sem það vilja.
Styrktaraðilar skákvikunnar á
Skagaströnd eru Fisk Seafood hf.,
Landsbanki Íslands og Marska ehf.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Áhuginn skein úr andlitum barnanna á Skagaströnd þar sem þau biðu í of-
væni eftir að fá að tefla við Róbert Harðarson skákmeistara.
Skákvika í Höfðaskóla
Mistök við birtingu
verðkönnunar
ÞAU mistök urðu hjá ASÍ við
birtingu á vörukörfu úr verðkönn-
un sl. mánudag að aðeins var
reiknuð inn ein dós af Skyr.is með
bláberjum 170 grömm hjá Kaskó,
en tvær dósir voru í körfunni hjá
öðrum verslunum.
Þetta breytir heildarverði körf-
unnar þannig að vörukarfan er
næstódýrust hjá Krónunni kr.
3.479, þá kemur Kaskó, þar sem
karfan kostar kr. 3.543. Karfan
var ódýrust hjá Bónus, 3.286
krónur.
LEIÐRÉTT UNDANFARNA mánuði hefur
Kraftur, sem er stuðningsfélag fyrir
ungt fólk sem greinst hefur með
krabbamein og aðstandendur selt
armbönd í fjáröflunarskyni.
Hvert armband kostar 500 krónur
og rennur ágóðinn óskiptur til að
efla starfsemi Krafts.
Flugvélar Iceland Express voru
fyrsti sölustaður armbandanna og
23. janúar, var afrakstur af sölu
armbandanna á síðasta ári afhentur.
Á myndinni er Lísa Ólafsdóttir
hjá Iceland Express að afhenda
Steinunni Björk Ragnarsdóttur, for-
manni Krafts söfnunarféð. Með
þeim á myndinni er Brynja Árna-
dóttir, fjögurra ára dóttir Stein-
unnar.
Afrakstur armbandasölu afhentur
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhappi á
gatnamótum Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar þriðjudaginn
24. janúar um kl. 17.
Þar rákust á tveir fólksbílar, rauð-
ur Peugeot og hvítur Suzuki, sem
báðum var ekið austur Miklubraut
og beygt áleiðis norður Kringlumýr-
arbraut. Ökumenn greinir á um að-
draganda óhappsins. Þeir sem upp-
lýsingar geta veitt um mál þetta eru
vinsamlega beðnir um að hafa sam-
band við lögregluna í Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
FRJÁLSLYNDI flokkurinn telur að
ýmsu að hyggja varðandi frekari upp-
byggingu stóriðju hér á landi. Taka
þurfi m.a. tillit til náttúru, landnytja
og mengunar.
„Miðstjórn Frjálslynda flokksins
telur að gaumgæfa beri mjög vel fyr-
irhugaðar virkjanir eða áformaðan
vöxt áliðnaðar á Íslandi. Frekari upp-
bygging stóriðju er vandasamt verk
og taka ber fullt tillit til náttúru, land-
nytja og mengunar þegar virkj-
unarkostir eru skoðaðir og ákveðin
frekari stóriðja. Sérstaklega þarf að
huga að afleiðingum stóriðjustefnu
fyrir aðrar atvinnugreinar,“ segir í
fréttatilkynningu frá Frjálslynda
flokknum.
Að ýmsu að
hyggja í áliðnaði
REYKJAVÍKURAKADEMÍAN í sam-
vinnu við Mannfræðifélag Íslands held-
ur fund á morgun, laugardaginn 28.
janúar, kl. 14, í Reykjavíkurakademí-
unni, Hringbraut 121, 4. hæð.
Magnús Þorkell Bernharðsson,
stjórnmálafræðingur og kennari við
sagnfræðideild Williams College í
Williamstown í Massachussetts í
Bandaríkjunum, heldur erindi um póli-
tísk átök í Mið-Austurlöndum og veltir
fyrir sér afskiptum og/eða af-
skiptaleysi fræðimanna af þeim átök-
um. Erindi sitt byggir Magnús á grein
sinni Er þögn sama og samþykki? sem
birtist í nýjasta hefti tímaritsins Skírn-
is.
Ræðir átök í Mið-
Austurlöndum
STJÓRN 5. svæðadeildar Félags
leikskólakennara á Norðurlandi
vestra lýsir yfir ánægju með nýgerð-
an kjarasamning Reykjavíkurborg-
ar við Starfsmannafélag Reykjavík-
urborgar og Eflingu þar sem
réttindalaust starfsfólk í leikskólum
borgarinnar fékk löngu tímabæra
hækkun á laun sín eins og komist er
að orði. Með þessum samningum sé
leikskólastarf betur metið en áður.
„Stjórnin lýsir aftur á móti yfir
þungum áhyggjum af þeirri alvar-
legu stöðu sem hefur skapast vegna
þessa samnings gagnvart leikskóla-
kennurum og uppsagna í kjölfarið.
Þetta hefur í för með sér að í sumum
tilfellum eru laun leikskólakennara
með háskólanám að baki orðin lægri
en réttindalausra starfsmanna leik-
skóla sem er með öllu óásættanlegt.
Með ofangreindum kjarasamningi er
stórlega vegið að menntun og starfs-
heiðri leikskólakennara og eðlilegt
að þeir spyrji til hvers að mennta sig
og vera á dýrum námslánum. Einnig
telur stjórnin að gert sé verulega lít-
ið úr áralangri baráttu leikskóla-
kennara fyrir hverju prósentustigi
til hækkunar á launum og bættum
kjörum til jafns við sambærilegar
háskólamenntaðar stéttir.“
Tímabær hækkun
launa í leikskólum
SAMFYLKINGIN efnir til opins
fundar á morgun, laugardaginn 28.
janúar, um eitt af hitamálum dags-
ins, styttingu á námstíma til stúd-
entsprófs. Fundurinn er haldinn á
skrifstofu flokksins, Hallveigarstíg
1, 2. hæð kl. 11–13.30. Á fundinum
munu fræðimenn, fagfólk og fulltrú-
ar stjórnvalda ræða tillögur
menntamálaráðherra um styttingu
framhaldsskólans og aðrar leiðir til
að ná settu marki.
Erindi halda: Jón Torfi Jónasson,
prófessor við Háskóla Íslands, Kol-
brún Sigurðardóttir framhalds-
skólakennari., Karl Kristjánsson,
verkefnisstjóri í menntamálaráðu-
neyti, Sigurður Sigursveinsson,
skólameistari FSu og formaður Fé-
lags íslenskra framhaldsskóla, og
Þórunn E. Bogadóttir, forseti Nem-
endafélags Verslunarskóla Íslands.
Pallborðsumræðum stjórnar Helga
Vala Helgadóttir dagskrárgerðar-
maður. Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, formaður Samfylkingarinnar,
verður með samantekt í lok ráð-
stefnunnar. Fundarstjóri er Björg-
vin G. Sigurðsson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar.
Samfylkingin fundar
um styttingu náms