Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 53
Hátískusýning Chanel ávor- og sumartískunnifór fram í sérlegaglæsilegum sýningarsal
í Grand Palais í París í vikunni.
Kalt var í húsinu og á meðal þeirra
sem skulfu saman voru Viktoría
Beckham og Bernadette Chirac.
Hönnuðurinn Karl Lagerfeld
reyndi að hlýja gestunum með því
að gefa þeim teppi og flösku með
heitu tei. Litirnir í sýningunni
hlýjuðu þó alls ekki gestunum en
hún einkenndist að hætti Chanel af
hvítu og svörtu.
Sýningin hófst á tvíd-drögtunum
sígildu en þær voru sýndar í
nokkrum nýjum útfærslum, sem
fara aldrei of langt frá hefðinni.
Mikil áhersla er á mjótt mitti en
mittið er mikið í tísku núna.
Ennfremur mátti sjá bæði stutta
og síða kjóla og voru blúndur,
fjaðrir og pallíettur áberandi. Mik-
ið skraut er á fötunum að hætti há-
tískunnar en Lagerfeld heldur í
hefðir og hefur margt séhæft
saumafólk á sínum snærum.
Við fötin voru notuð flöt stígvél,
sem voru víð yfir kálfana. Innblást-
urinn kom ekki frá sjöunda ára-
tugnum heldur frá pari sem Coco
Chanel sjálf klæddist á mynd tek-
inni áratugnum á undan en Coco
var ávallt á undan sinni samtíð.
Fyrirsætan Lily Cole kom fram í
brúðarkjól ásamt Lagerfeld í lok-
in.
„Ég vildi sýna léttleika, eitthvað
frjálsara,“ sagði hönnuðurinn eftir
sýninguna.
Beckham, sem er eiginkona fót-
boltakappans Davids Beckhams og
fyrrum kryddpía, var umsetin ljós-
myndurum. Hún lofaði sýninguna
mjög. „Ég elska pallíetturnar, ég
elska blúndurnar,“ sagði hún.
Chanel á fjöldamarga trygga
aðdáendur sem mættir voru á sýn-
inguna og klæddust margir fötum
tískuhússins frá liðnum árum.
Létt og sígilt hjá Chanel
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Tíska | Hátískuvika í París: Vor/sumar 2006
AP FyrirsætanLily Cole komfram í brúð-arkjól ásamtLagerfeld ílokin.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 53
HVAÐ: The Shneedles HVAR: Austurbæjarbíói HVENÆR: Fös. 27. og lau. 28. janúar kl. 20:00 SÖLUSTAÐIR: Reykjavík: Í verslunum Skífunnar, Laugavegi, Kringlunni og Smáralind.
Akureyri: Verslun BT. Selfossi: Verslun BT MIÐAVERÐ: Aðeins 2.800 + miðagjald fyrir fullorðna og aðeins 1.900 + miðagjald fyrir yngri en 16 ára. Ódýrara miðaverð aðeins fáanlegt á
sölustöðum, ekki á interneti. SÍMAAFSLÁTTUR: Til að fá 20% afsláttinn þarftu að fara í eina af verslunum Skífunnar eða BT á Akureyri eða á Selfossi og sýna skjá GSM símans þíns.
Út á hvern síma er að hámarki hægt að kaupa tvo miða með afslætti.
ATH:Aðgöngumiðar fást ekki endurgreiddir. Ölvun ógildirmiðann. Hljóð- ogmyndupptökur óleyfilegarmeð öllu.
ALLRA SÍÐUSTU MIÐARNIR TIL SÖLU Í DAG Í AUSTURBÆ, SKÍFUNNI OG Á EVENT.IS
20% afsláttur til allra með GSM númer hjá Símanum.
í Austurbæjarbíói
�he �hneedl�
HLÁTURINN HEFST
Í KVÖLD KL. 20:00
Þett'er
SHNIIIILLD!