Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 57
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA
MUNICH kl. 5 - 8.30 - 10.15 B.i. 16 ára.
OLIVER TWIST kl. 3:30 - 6 B.i. 12 ára.
CHRONICLES OF NARNIA kl. 3:30 - 8.30
DOMINO kl. 11 B.i. 16 ára.
KING KONG kl. 6 B.i. 12 ára.
SAMBÍÓ KRINGLUNNI
MUNICH kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára.
MUNICH VIP kl. 6 - 10
PRIDE AND PREJUDICEkl. 5 - 8 - 10:40
OLIVER TWIST kl. 5 - 8 B.i. 12 ára.
JARHEAD kl.10:40 B.i. 16 ára.
RUMOR HAS IT kl. 6 - 8
CHRONICLES OF NARNIA kl. 5
KING KONG kl. 10 B.i. 12 ára.
Litli Kjúllin M/- Ísl tal. kl. 4.20
Allur heimurinn fylgdist með árið 1972
þegar 11 ísraelskir íþróttamennvoru myrtir
á ólympíuleikunum í munchen
þetta er sagan af því
sem gerðist næst
frá verðlaunaleikstjóranum sem færði okkur
„saving private ryan" og „schindlers list"
****
„Munich sennilega besta
mynd Spielberg síðan
Schindler’s List. Einvala
leikaralið í frábærum
(70’s) njósnatrylli.”
S. U. S. / XFM 91,9
„Listaverk eins og
Spielberg einum er lagið.”
A.B. BLAÐIÐ.
*****
... „Þrátt fyrir
áhætturnar sem fólust í
gerð myndarinnar hefur
Spielberg skilað frá sér
sinni bestu mynd síðan
„Saving Private Ryan.”
Munich er auðveldlega
hægt að kalla meistaraverk
því hún er mögnuð og
áhrifarík í senn og sýnir
framúrskarandi kvik-
myndagerð uppá sitt besta.”
L. I. B. / Topp5.is
****
„Enn og aftur langbesta
mynd Spielberg í langan tíma
og mikilvæg mynd að mörgu
leiti því hún skoðar báðar
hliðar málsins án þess að
taka afstöðu, aðra en þá að
þetta er vonlaus barátta.”
Ó . Ö. / DV
Hvað segirðu gott?
Allt mjög gott, þakka þér fyrir.
Hefurðu haldið áramótaheitin þín?
(Spurning frá síðasta aðalsmanni,
Karli Tryggvasyni).
Á maður að gera það?
Kanntu þjóðsönginn?
Að sjálfsögðu.
Hvenær fórstu síðast til útlanda og
hvert?
Ég skrapp til London í byrjun des-
ember með kærastanum mínum.
Það var yndislegt. Ég fæ alltaf nett
fráhvarfseinkenni ef ég kem ekki
þangað með reglulegu millibili.
Uppáhalds maturinn?
Carpaccio, sushi, humar, fois gras
… mmm
Bragðbesti skyndibitinn?
Það fer svolítið eftir aðstæðum.
Þessa dagana er það hollustan á
Næstu grösum, en sveittur beik-
onborgari á American Style er fínn
þegar maður er pínu ryðgaður.
Besti barinn?
Mér finnst voða gott að setjast inn á
101 eftir vinnu. Þar er notalegt and-
rúmsloft og ekki mikill hávaði.
Hvaða bók lastu síðast?
Er með svona fjórar á náttborðinu
sem ég á eftir að klára. Það hlýtur að
takast með vorinu, ef það fer eitt-
hvað að róast! Ég les mikið af bókum
sem tengjast vinnunni, en síðast
þegar ég las mér til skemmtunar
varð The Hitchikers Guide to the
Galaxy fyrir valinu. Ég veltist um af
hlátri. Tær snilld.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Ég fór á Glæpur gegn diskóinu í
Borgarleikhúsinu. Skemmti mér
konunglega.
En kvikmynd?
Ég fór á King Kong í bíó, en horfði á
28 Days í sjónvarpinu um helgina.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Vorum að endurnýja græjurnar,
sem voru orðnar vel lúnar, svo það
er verið að renna í gegnum allt safn-
ið. Hreint frábært að hlusta á Ok
Computer í almennilegum tækjum!
En svo maður nefni eitthvað nýtt þá
er ég dálítið að hlusta á Flís þessa
dagana, platan heitir Vottur og við
fengum hana í jólagjöf. Frábær
plata.
Uppáhalds útvarpsstöðin?
Ætli það sé ekki bara gamla góða
Rás 2 … og Gufan …
Besti sjónvarpsþátturinn?
Góðir breskir sakamálaþættir.
Gætirðu hugsað þér að taka þátt í
raunveruleikaþætti í sjónvarpi?
Nei.
G-strengur eða venjulegar nær-
buxur?
Það fer eftir því hver á að vera í
þeim. Mér finnst g-arinn fínn, en ég
myndi reka upp stór augu ef makinn
færi að nota svoleiðis!
Helstu kostir þínir?
Það er nú það …ég er bjartsýn og
jákvæð.
En gallar?
Get verið dálítið þrjósk.
Besta líkamsræktin?
Sund og göngutúrar, ekki spurning.
Hvaða ilmvatn notarðu?
CK One.
Ertu með bloggsíðu?
Nei. Ég opna meira að segja tölvu-
póstinn minn bara einu sinni í
viku …skandall!
Pantar þú þér vörur á netinu?
Nei. Ekki mikill tölvunörd …
Flugvöllinn burt?
Já, ég væri alveg til í það. En mér
líst ekkert á að fara að búa til land-
fyllingar hér og þar til að koma hon-
um fyrir. Landið er alveg nógu stórt.
Þetta er bara spurning um að finna
rétta staðinn.
Að hverju viltu spyrja næsta að-
alsmann?
Hverjum spáirðu sigri á HM í fót-
bolta í sumar?
Íslenskur aðall | Þórunn Lárusdóttir
Ekki mikill
tölvunörd
Aðalskona vikunnar hefur vakið verðskuldaða at-
hygli fyrir frammistöðu sína í sakamálaþættinum
Allir litir hafsins eru kaldir. Þá er hún einnig önn-
um kafin við leik í verkunum Eldhús eftir máli og
barnaleikritinu Klaufar og kóngsdætur.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Bjartsýn og jákvæð en dálítið þrjósk.
Leikarinn Josh Holloway þykir„mesti foli“ allra sjónvarps-
þátta, skv. niðurstöðu könnunar
bandaríska tímaritsins In Touch
Weekly. Holloway leikur hinn ódæla
Sawyer í Lífsháska (Lost).
Leikkonan Evangeline Lilly, sem
leikur Kate í sömu þáttum, segist
skilja vel að Holloway sé orðinn kyn-
tákn. Hann opni dyr fyrir konur,
beri poka fyrir þær og veiti þeim ör-
yggistilfinningu. Holloway bar sig-
urorð í folavalinu af mótleikara sín-
um í Lífsháska, Matthew Fox, sem
leikur lækninn Jack.
Fólk folk@mbl.is
Orðrómur er á kreiki um aðJennifer Aniston ætli að skrifa
bók um hjónaband sitt og Brads Pitt
– og ekki draga neitt undan. Aniston
mun hafa haldið dagbók á meðan
hún var gift Pitt
og nú vill hún
segja allan sann-
leikann um líf sitt
með Brad.
Samkvæmt
fréttum breska
blaðsins Daily
Mirror telur An-
iston einnig að
með því að skrifa bók geti hún betur
náð sér niðri á Brad fyrir að hafa
tekið saman við Angelinu Jolie.
Fyrir skömmu sagði Aniston frá
því að hún sjái alls ekki eftir því að
hafa skilið við Pitt. Hún sagði að
2005 hafi verið „frábært ár“ – þrátt
fyrir skilnaðinn – og hún væri hæst-
ánægð með það hvernig allt hefði
farið.