Morgunblaðið - 06.02.2006, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.02.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 36. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Velduþaðbesta Daðrar við stangarstökk Hreyfing fyrir fólk á öllum aldri í Daglegu lífi | 15 Fasteignir | Hús á Spáni raunhæfur draumur  Heimilið er heilagt  Skelfilegt að brjóta upp flísar Íþróttir | Ísland mætir Svíþjóð  Barcelona sýnir Snorra Steini áhuga  Chelsea skrefi nær titlinum Fasteignir og Íþróttir í dag UPP komst um eitt allra stærsta fíkniefnamál sem komið hefur upp í Leifsstöð, þegar tæp fjög- ur kg af amfetamíni voru tekin af ungu pari við komuna frá París á föstudag. Fíkniefnin voru vandlega falin í tösku þeirra og komu pakkningar utan um efnin í ljós við gegnumlýsingu hjá Toll- gæslunni á Keflavíkurflugvelli sem vann að mál- inu í samstarfi við lögregluna á Keflavíkurflug- velli. Fyrstu rannsóknir á hreinleika amfetamínsins benda til að um mjög sterkt efni sé að ræða og hleypur markaðsvirðið á bilinu 40– 60 milljónir króna. Hald var lagt á efnin og var fólkið úrskurðað í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness á laugardag að kröfu sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli. Hin handteknu eru bæði Íslendingar og er konan rétt rúmlega tvítug en maðurinn nokkrum árum eldri. Lögreglan í Reykjavík hefur tekið við rannsókn málsins. Þetta er annað stóra fíkniefnamálið á stuttum tíma sem kemur upp í Leifsstöð en skemmst er að minnast handtöku þriggja 18 ára íslenskra pilta sem teknir voru með hálft kg af kókaíni í Leifsstöð. Ungur aldur sakborninganna í þessum tveim málum vekur ugg að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslumanns á Keflavíkurflug- velli, ekki síst þar sem um mjög stór mál er að ræða. Magn amfetamínsins sem tekið var á föstudag á sér vart hliðstæðu en fyrir réttu ári var Þjóð- verji stöðvaður í Leifsstöð með svipað magn af amfetamíni og hafði annað eins magn þá aldrei sést hjá einum flugfarþega. Til að setja magnið í samhengi við magntölur undanfarin misseri má nefna að 15 kg voru tekin af amfetamíni sam- anlagt á landsvísu árið 2004. Tekin með fjögur kg af amfetamíni í Leifsstöð Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is RÚMLEGA 50 þúsund æðarfuglar voru taldir í árlegri vetrarfuglatalningu Náttúrufræðistofn- unar Íslands og er æðurin algengari en aðrar fuglategundir hér á landi yfir vetrartímann. Hvítmávurinn var næstalgengastur og voru tald- ir rúmlega 10 þúsund en alls fannst 81 tegund fugla að þessu sinni og rúmlega 132 þúsund ein- staklingar. Hér elta gráðugir mávar önd með brauðbita á Reykjavíkurtjörn. Morgunblaðið/Golli Æðurin er algengust LÍTIÐ lát er á múgæsingum og mótmælum gegn Dönum og fleiri Evrópuþjóðum vegna skopmynd- anna af Múhameð. Um helgina var kveikt í sendiráðum Dana og Norð- manna í Damaskus í Sýrlandi og í ræðismannsskrifstofum Dana í Bei- rút í Líbanon. Stjórnvöld í Egypta- landi hafa krafist þess, að danska stjórnin mildi hug múslíma með því að koma böndum á fjölmiðlana. Per Stig Møller, utanríkisráð- herra Danmerkur, hefur skrifað Einingarsamtökum íslamskra ríkja bréf þar sem hann leggur til, að fundur verði haldinn í Sádi-Arabíu um málið og leiðir til sátta. Hefur því að sögn verið vel tekið og und- irbúningur hafinn. Íbúar í mörgum íslömskum ríkj- um hafa verið hvattir til að kaupa ekki danska vöru og nokkur ríki hafa hætt öllum viðskiptum við Danmörk. Varð Íraksstjórn síðust til þess í gær er hún sagði upp samningum við Danmörk og af- þakkaði allan stuðning. Danir eru nú með 530 manna herlið í Írak. Í sumum íslömskum löndum eru þess þó farin að sjást merki, að öldurnar sé að lægja og sem dæmi má nefna, að danskar landbúnaðarvörur eru nú aftur komnar í verslanir í Sam- einuðu arabísku furstadæmunum. Utanríkisráðherra Egyptalands, Ahmed Aboul Gheit, sagði í samtali við Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að til að sefa reiði múslíma yrði danska stjórnin að setja dönskum fjölmiðlum stól- inn fyrir dyrnar í sumum málum. Var það haft eftir talsmanni ráðu- neytisins í gær. Prestur myrtur Kaþólskur prestur, ítalskur að þjóðerni, var skotinn til bana í borginni Trabzon í Tyrklandi í gær. Var ungur maður að verki og er hans nú leitað að sögn tyrkneskra stjórnvalda. Ekki var ljóst í gær hvort skopmyndirnar af Múhameð voru ástæða ódæðisins en bana- maður prestsins hrópaði „Allah er mikill“ um leið og hann skaut af byssunni. Danir vilja fund með íslömskum ríkjum Egyptar vilja að danska stjórnin komi böndum á fjölmiðla Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is  Danir forða sér burt | 14 „MÚSLÍMARNIR verða að skilja, að við lifum í öðrum heimi en þeir og það verða þeir að virða,“ sagði sr. Sigurður Pálsson, sóknar- prestur í Hallgrímskirkju, í pred- ikun við guðsþjónustu í gær en þá gerði hann meðal annars uppnámið meðal múslíma vegna teikninga af Múhameð að umtalsefni. Sigurður sagði, að tjáningar- frelsið væri einn af hornsteinum vestrænnar menningar og því yrði ekki fórnað að kröfu múslíma. Ekk- ert frelsi væri þó án ábyrgðar. „Að taka þá ábyrgð alvarlega er óbrjáluð dómgreind,“ sagði sr. Sig- urður og nefndi, að í fjölmenning- arsamfélagi ætti að sýna skoðunum annarra umburðarlyndi en ekki undirlægjuhátt. Ekki undirlægjuhátt  Tjáningarfrelsi og ábyrgð | 21 Gaza-borg. AFP. | Komið hefur í ljós, að rúmlega 44 milljörðum ísl. kr. hef- ur verið stolið úr sjóðum palestínsku heimastjórnarinnar. Ahmed al-Meghani, dómsmála- ráðherra, skýrði frá þessu í gær og sagði, að á næstu dögum yrði fjöldi manna ákærður. Hafa 25 nú þegar verið handteknir en að minnsta kosti 10 er leitað. Sagði Meghani, að þetta hefði verið orðið ljóst 20. desember en ákveðið hefði verið að bíða með skýrsluna fram yfir kosningar. Ham- as-hreyfingin, sem sigraði í kosning- unum, vann ekki síst vegna ásakana um víðtæka spillingu. Stálu 44 milljörðum Íbúðaverð hækkaði mest í Garðabæ ÍBÚÐAVERÐ í Garðabæ hækkaði mest á höfuðborgarsvæðinu frá árs- byrjun 2004 til ársloka 2005 og eins frá fyrri helmingi nýliðins árs til seinni helmings ársins. Þetta kemur fram í nýjum tölum Fasteignamats ríkisins um þróun íbúðaverðs í fjölbýli á höfuðborg- arsvæðinu. Íbúðaverðið í Garðabæ hækkaði um 52% frá ársbyrjun 2004 til árs- loka 2005 og um rúm 22% árið 2005. Kópavogur sunnan Lækjar kem- ur næst á eftir þegar litið er til breytinganna á milli fyrri og seinni hluta árs 2005. | Fasteignablaðið Morgunblaðið/Þorkell ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.