Morgunblaðið - 06.02.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 27
MINNINGAR
in. Haustið 1950 var C-deild bætt við
2. bekk skólans vegna þess að tvær
bekkjardeildir rúmuðu ekki þann
fjölda sem sótti um inngöngu. Nem-
endurnir nýju voru víðs vegar að af
landinu. Kolbrún og Kristinn, bróðir
hennar, komu frá Patreksfirði. Kol-
brún er eftirminnileg skólasystir,
hógvær, prúð og ljúf í framkomu.
Eftir skólagöngu í VÍ giftist hún Jó-
hanni Þorsteinssyni og gerðist
bóndakona og kennari við Breiða-
fjörð og vann þar lungann úr starfs-
ævinni.
Eins og gefur að skilja strjáluðust
samskiptin eftir það vegna fjarlægð-
ar, en á síðari hluta ævinnar fluttust
þau hjón til Reykjavíkur. Eftir það
var hægara um vik að hitta gömlu
skólafélagana, sem hafa hist reglu-
lega óslitið einu sinni á ári í liðlega
hálfa öld, en nú orðið hittist hópurinn
einu sinni í mánuði. Um leið og við
kveðjum Kolbrúnu hinstu kveðju,
þökkum við ljúfar endurminningar
úr skólanum og sendum eiginmanni
og fjölskyldunni allri innilegar sam-
úðarkveðjur.
Skólafélagar VÍ-53.
Við fráfall Kolbrúnar Friðþjófs-
dóttur minnist ég hennar ekki síst
fyrir það hve ljúf, einlæg og þægileg
manneskja hún var í framkomu sinni
við samstarfsfólk og nemendur, en
nemendur sína virti hún og vildi hag
þeirra og framgang ætíð sem mest-
an.
Kolbrún starfaði hjá okkur í Ár-
bæjarskóla sem unglingakennari á
árunum 1985 til 1998 er hún varð að
láta af störfum sökum heilsubrests.
Hugurinn var eigi að síður það
tengdur starfinu, að nokkru áður
hafði hún stefnt á framhaldsmenntun
sér til þekkingarauka.
Ég þakka Kolbrúnu samskiptin
þau ár er við unnum saman og þann
hlýja hug er hún bar til samstarfs-
manna og nemenda. Samúðarkveðj-
ur til eftirlifandi aðstandenda og
vina.
Marinó Þ. Guðmundsson.
Þegar góðir vinir kveðja þessa
jarðvist er manni gjarnan tamt að sjá
fyrir sér hinn látna, hugsa um hvað
er eftirminnilegast í fari hans og
hvað situr sterkast eftir í minning-
unni. Þegar við hugsum þannig um
hana Kollý í Litluhlíð, sem nú hefur
kvatt okkur, stendur upp úr hið ein-
staklega hlýja viðmót, kærleikur,
væntumþykja, gestrisni og notaleg-
heit, sem hún ávallt sýndi okkur og
dætrum okkar.
Bærinn Litlahlíð á Barðaströnd
hefur ætíð leikið stórt hlutverk í til-
veru okkar fjölskyldu enda liggja þar
rætur hennar að nokkru leyti. Bær-
inn hefur beinlínis togað í okkur og
þau eru ekki mörg sumrin undan-
farna tæpa þrjá áratugi, sem leiðin
hefur ekki legið þangað. Ástæða
þessa er ekki síst það einstaka við-
mót og hlýja, sem húsráðendurnir
þar, Kollý og Jói frændi, hafa ávallt
sýnt okkur. Það hefur bara einhvern
veginn alltaf verið svo gott að koma
og dvelja í Litluhlíð – stundum stutt,
stundum lengi og þar átti Kollý hvað
stærstan þátt. Það hefur verið dætr-
um okkar, borgarbörnunum, ómet-
anlegt að fá að koma þar aftur og aft-
ur og upplifa sveitalífið í sinni
fjölbreyttu mynd og finna, hvað við
vorum alltaf innilega velkomin þótt
„innrás“ okkar hljóti að hafa skapað
húsmóðurinni á bænum alls kyns
aukafyrirhöfn og var nú gestagang-
urinn ærinn fyrir.
Minningarnar eru margar. Kvöld-
stundirnar í eldhúsinu í Litluhlíð,
spjall um daginn og veginn, hundarn-
ir á bænum, heyskapurinn, grá-
sleppuútgerðin, sundlaugarferðir inn
á Krossholt svo eitthvað sé nefnt –
allir sátu við sama borð í mannlegum
samskiptum – allir fengu að vera með
– enginn mannamunur hvort sem um
var að ræða börn eða fullorðna. Fyrir
þetta allt þökkum við af heilum hug.
Að leiðarlokun sendum við Jóa
frænda og fjölskyldunni allri okkar
innilegustu samúðarkveðjur. Megi
björt og fögur minning um einstaka
konu verða þeim ljós í myrkrinu.
Guð blessi minningu Kolbrúnar
Friðþjófsdóttur.
Guðmundur Jóelsson.
✝ Kristján Stef-ánsson hús-
gagnasmíðameist-
ari fæddist á
Akureyri 2. ágúst
1920. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Seli á Akureyri 28.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Stefán Jónas-
son, skipstjóri og
útgerðarmaður, f.
13. sept. 1881, d. 22.
jan. 1982, og Guð-
rún Gíslína Frið-
riksdóttir, f. 29. júlí 1881, d. 8.
janúar 1980.
Systkini Kristjáns eru Jónas, f.
3. jan. 1919, d. 8. apríl 1937, Hug-
rún, f. 10. júní 1917, d. 7. apríl
Kristján soninn Kristján Jens.
Barnabarnabörn Kristjáns eru
sex talsins.
Kristján ólst upp í foreldrahús-
um í Strandgötu 43 á Akureyri.
Stundaði nám í Barnaskóla Ak-
ureyrar og Iðnskólanum á Akur-
eyri. Á unglingsárum stundaði
Kristján sjómennsku hjá föður
sínum. Hugur hans stóð þó til
annarra starfa, hann gerði hús-
gagnasmíð að sínu ævistarfi og
nam iðn sína hjá Ólafi Ágústssyni
húsgagnasmíðameistara og lauk
sveinsprófi árið 1940. Kristján og
Kristín byggðu sér heimili við
Hríseyjargötu 10 þar sem þau
bjuggu til ársins 2003 er þau flutt-
ust í Víðilund 24. Kristján var
vandvirkur og hafði næmt auga
fyrir öllu sem var fallegt og vel
gert. Skaplyndi Kristjáns var
rómað og hann hafði unun af því
að gera öðrum greiða.
Útför Kristjáns fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
2005, og Hanna, f. 2.
ágúst 1920.
Eiginkona Krist-
jáns var Kristín
Jensdóttir, f. 29. júní
1921, d. 4. apríl 2004.
Þau gengu í hjóna-
band 8. nóv. 1941.
Börn Kristjáns og
Kristínar eru a) Guð-
rún Gíslína, f. 10.
maí 1944, maki Ant-
onio Orpinell iðnað-
arverkfræðingur.
Þau búa á Spáni,
börn þeirra eru
Christina, Antonio David og Alex-
ander. b) Kristján, f. 11. júlí 1963,
maki Sigrún Guðmundsdóttir.
Þau búa í Frakklandi, börn þeirra
eru Ágústa og Tómas. Fyrir átti
Ein mesta gæfa okkar í lífinu er
að kynnast góði fólki, fólki sem
auðgar umhverfi sitt með hlýju, ást-
úð og heiðarleika. Í dag er til mold-
ar borinn uppáhalds frændinn minn
Kristján Stefánsson. Hann var
þannig maður hann Kiddi móður-
bróðir minn. Það var gæfa að fá að
kynnast honum, njóta samvista við
hann.
Minningar sækja að. Sem dreng-
ur man ég hann sem gáskafullan
fjörkálf sem alltaf var tilbúinn til að
gantast og leika sér við okkur
bræðurna. Grípa okkur á háhest,
bulla við okkur eða hvað annað sem
honum datt í hug. Alltaf var Kiddi
fjörkálfurinn og hrókur alls fagn-
aðar.
Síðar þegar þurfti að smíða sér
leikföng, dót eða eitthvað annað
voru ferðirnar niður á verkstæði til
Kidda býsna margar. Sama hvernig
stóð á hjá honum eða hvaða hug-
myndir voru í gangi í mínum kolli,
alltaf var Kiddi tilbúinn að leysa
málin. Ég mátti fara í afganga safn-
ið hans og finna spýtur, lista eða
plötur og ef það féll ekki að hug-
myndum mínum þá setti hann vél í
gang og sagaði og heflaði eins og til
þurfti. Í minningunni var þetta eins
og fjársjóðsleit, fá að koma með
hugann fullan af hugmyndum, leita
og finna það sem hægt var að nota.
Og fara síðan heim með hugmynd
sem var orðin að veruleika.
Eins og aðrir 17 ára unglingar
tók ég bílpróf þó að enginn bíll væri
til á heimilinu á þeim tíma. Stuttu
eftir að þeim merka áfanga var náð
komu Kiddi og Stína í heimsókn og
buðu okkur mömmu í bíltúr. Þegar
leggja átti af stað rétti Kiddi mér
lykilinn og segir eitthvað á þá leið.
„Jæja, ert þú ekki nýbúinn að taka
bílpróf, er þá ekki best að þú sýnir
okkur hvað þú kannt, kallinn
minn?“
Margar fleiri myndir gæti ég
dregið upp. T.d. þegar ég unglingur
lagaði glerið í Holtagötunni, þakið
endurnýjað, smíðaði nýja glugga-
kappa, alltaf var Kiddi boðinn og
búinn að leggja lið.
Sem fullorðinn maður kynntist ég
enn fleiri eiginleikum frænda míns,
hvað hann var mikill fagmaður í iðn
sinni, fróður og víðsýnn. Og síðar á
hans efri árum þegar Stína hans var
orðin veik og gat ekki án hjálpar
haldið við sínum smekk og glæsileik
sem einkenndi hana alla tíð þá fékk
hún með hans hjálp að vera sú sama
og ætíð áður. Hann setti rúllur í
hárið hennar, klæddi hana eins og
hún hefði gert það sjálf og annaðist
hana af alúð og hlýju allt til enda.
Á síðasta ári greindist hann með
mjög alvarlegan sjúkdóm sem að
lokum lagði hann að velli. Þeim al-
varlegu tíðindum tók hann af miklu
æðruleysi þótt hann vissi að hverju
stemmdi. Þær eru ógleymanlegar
heimsóknirnar til hans á sjúkrahús-
ið. Hugur hann var fullur af þakk-
læti og gleði vegna alls þess sem
hann hafði notið. „Þetta er eins og
að vera á 1. flokks hóteli, þær eru
svo góðar við mig stúlkurnar,“ sagði
hann eitt sinn. Annað sinn benti
hann á mynd af Stínu sinni og
sagði: „Hún bíður eftir mér, þessi
elska, við áttum saman 63 ár af sól-
skini.“
Nú hefur hann skilað sínu lífs-
verki.
Blessuð sé minning hans.
Gullý, Antonío, Kristján, Sigrún
og fjölskyldur, megi Guð blessa
ykkur og styrkja á þessum tíma-
mótum.
Guðmundur Ómar.
Með Kristjáni Stefánssyni er
genginn heilsteyptur maður og mik-
ill öðlingur. Kiddi frændi var ekki
aðeins einstakur fagmaður, sem gat
smíðað nánast hvað sem var. Hann
var ljúfmenni og notalegur í allri
viðkynningu.
Á litla verkstæðinu hans og Stef-
áns ríkti sérstakur andblær. Þar
var rósemd og friður og ætíð tími til
þess að gefa sig að þeim er inn
komu. Þetta fann ég lítill strákpatti
sem oftar en ekki fékk þar góð ráð
og einhverjar spýtur til að smíða úr.
Það var mér alla tíð ráðgáta
hvernig listamublur í heimsklassa
urðu til á þessu litla og snotra verk-
stæði. Margir í fjölskyldunni eiga
hluti frá þessum listasmið, sem ber
fagmennsku hans og alúð gott vitni.
Og þessi sami andi ríkti líka í
Hríseyjagötunni á einstaklega fal-
legu heimili Kidda og Stínu. Það var
ekki leiðinlegt að fá sér hjóltúr á
Eyrina með viðkomu hjá þeim heið-
urshjónum. Þau virtust ætíð hafa
tíma fyrir strákguttann, sem tekið
var sem höfðingja og boðið til stofu.
Svo voru teknar fram myndir sem
sýndu fjölskylduna hér heima og á
Spáni, sem þeim hjónum þóttu
stundum vera full langt í burtu.
Kiddi var mikið snyrtimenni og
veit ég að fáir bílar á Akureyri voru
jafn hreinir yst sem innst og A 31.
En þessi ytri ásýnd frænda var ekki
yfirborð. Þannig var hann í orðum
og anda, hann lagði engum illt til.
Hann sá góðar og bjartar hliðar í
fari allra og trúði á hið góða í fari
manna.
Enda þótt búseta færði okkur
fjær en á uppvaxtarárum mínum,
þá vissi ég að hann fylgdist vel með
hverju spori sinna og oftar en ekki
komu frá honum góðar kveðjur og
hlýjar. Fyrir það allt vil ég þakka
við leiðarlok og flyt Gullý og Krist-
jáni og þeirra fjölskyldum einlægar
kveðjur. Einnig er góð kveðja til
Hönnu tvíburasystur Kristjáns en
þau systkinin voru alla tíð afar sam-
rýnd og náin hvort öðru.
Guð blessi minningu Kristjáns
Stefánssonar.
Pálmi Matthíasson.
Frændi minn, Kristján Stefáns-
son, hefur nú kvatt eftir erfið veik-
indi seinustu mánuðina. Alla ævi
mína hefur Kiddi verið stór hluti af
fjölskyldunni minni. Hann og amma
mín, Hanna Stefánsdóttir, voru tví-
burar, fæddust þann 2. ágúst 1920.
Þegar ég minnist Kidda koma fljótt
upp í huga minn orðin kærleikur og
ástúð. Kiddi var hlýr og notalegur
maður.
Kiddi frændi var mjög handlag-
inn - var listilega góður smiður.
Byggði hann hús sitt af næmleika í
Hríseyjargötu, skammt frá æsku-
heimili sínu að Strandgötu 43, þar
sem langafi minn, Stefán Jónasson
útgerðarmaður, og langamma, Gísl-
ína Friðriksdóttir, bjuggu fyrst og
síðar Huja ömmusystir mín og fjöl-
skylda hennar. Það var alltaf nota-
legt að fara í heimsókn í Hríseyj-
argötuna. Þar bjó Kiddi sér
glæsilegt heimili ásamt eiginkonu
sinni, Kristínu Jensdóttur, og börn-
um þeirra.
Kiddi og Stína voru samhent og
glæsileg hjón. Allir sem kynntust
þeim hugsa til þeirra með hlýhug.
Fannst mér aðdáunarvert hversu
vel hann hlúði að Stínu síðustu árin
sem hún lifði. Kiddi sinnti Stínu í
veikindum hennar af svo miklum
næmleika og ástúð að hún fór aldrei
á stofnun, nema rétt undir lokin.
Þar kynntist ég vel hversu sterk ást
og trú getur verið. Hann hugsaði
um Stínu af sannri ástúð allt til
loka.
Eftir að Stína lést árið 2004 bjó
hann í Víðilundi, rétt eins og Hanna
amma. Var alltaf ánægjulegt að líta
í heimsókn þangað. Síðustu mánuði
hef ég fylgst vel með veikindastríði
Kidda, sem veiktist snögglega í
október, skömmu eftir 85. afmæl-
isdag sinn, nýlega kominn úr utan-
landsferð til barna sinna. Það var
dapurlegt að fylgjast með veikinda-
stríðinu, enda hafði Kiddi alla tíð
verið svo heilsuhraustur.
Að leiðarlokum vil ég þakka
Kidda frænda allt sem hann gerði
fyrir mig og fjölskyldu mína. Ástúð
hans og hlýhugur, rétt eins og um-
hyggja hans fyrir ættingjum sínum
og vinum, verður seint fullþakkað-
ur. Ég vil votta þeim Gullý og
Kristjáni og fjölskyldum þeirra
mína innilegustu samúð.
Guð blessi minningu Kidda
frænda.
Stefán Friðrik Stefánsson.
KRISTJÁN
STEFÁNSSON
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
10-50% afsláttur
TILBOÐ
á legsteinum,
fylgihlutum og
uppsetningu
Minningarkort
Minningar- og
styrktarsjóðs
hjartasjúklinga
Sími 552 5744
Gíró- og kreditkortaþjónusta
LANDSSAMTÖK
HJARTASJÚKLINGA
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
.
1
2
7
0
.9
7
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning