Morgunblaðið - 27.02.2006, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Drífið ykkur norður!
„Leikhópurinn skilar þessu verki af slíkri fagmennsku og list að unun
er á að horfa... Maríubjallan er eitt magnað verk - eiginlega verkið
sem maður hefur beðið eftir frá því að Kæra Jelena var sviðsett í
Þjóðleikhúsinu um árið... Allt gengur upp!...“ S.S. Fréttablaðið
„algjör snilld... þau gera þetta öll rosalega vel... þvílíkur kraftur... ég
gef þessari sýningu fjórar stjörnur plús - þetta er það besta hingað
til. Ofsalega flott sýning.“ +H.V.H. Kastljós, RÚV
„...afar sannfærandi...frábærlega sönn... Umgjörðin er hreint
afbragð... Allur samleikur og sviðsferð er síðan eins og best verður á
kosið, nærvera leikhópsins alger frá fyrsta andartaki þar til ljósin
dofna... útkoman er sýning sem Akureyringar eiga ekki bara að vera
stoltir af heldur ættu umfram allt að drífa sig að sjá.“ Þ.T. Mbl
„Leikrit sem skiptir máli. Leikrit sem ekki aðeins kroppar dulítið utaní
nútímavandann heldur skefur með skítugum nöglum inn í
sárin...mjög sannfærandi... Það er alveg óhætt að mæla með þessari
sýningu. Drífið ykkur norður!“ E.B. DV
„Það er ekki oft sem maður gengur út af leiksýningu og íhugar
tilgang lífsins en hér hefur það tekist... leikurinn hrífandi“ I.S. Kistan.
Aðeins sýnt í febrúar og mars. Tryggið ykkur miða í tíma!
Miðasala allan sólarhringinn á netinu. Miðasalan er opin frá 13-17 virka daga.
Ég sé ekki að þessiþrjú verkefni getigengið upp á
næstu tíu árum,“ segir
Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra um þau þrjú stór-
iðjuverkefni sem nú eru til
skoðunar hér á landi. Hún
nefnir einkum tvær hindr-
anir í þessu sambandi;
orkuöflun og efnahagsmál.
Hún bendir á, varðandi
orkuöflun, að orkumála-
stjóri, Þorkell Helgason,
hafi sagt að erfitt gæti orð-
ið að útvega orku fyrir
bæði stækkun álvers Alcans í
Straumsvík og nýtt álver í Helgu-
vík. „Og eins og efnahagsástandið
er í dag, þá sýnist mér að þessi
þrjú verkefni muni ekki ganga;
þenslan er mikil og krónan er of
sterk. En auðvitað getur það
breyst,“ segir ráðherra.
Tvö álver eru starfrækt hér á
landi: álver Alcans í Straumsvík
og álver Norðuráls á Grundar-
tanga. Auk þeirra er verið að
byggja álver Fjarðaáls í Reyðar-
firði. Þar að auki eru þrjú fyrir-
tæki, þ.e. Alcan, Century Alumini-
um, eigandi Norðuráls, og Alcoa,
eigandi Fjarðaáls, í könnunarvið-
ræðum við orkufyrirtæki, stjórn-
völd og í sumum tilfellum sveitar-
félög um þrjú möguleg verkefni,
eins og ráðherra rakti í umræðum
á Alþingi í lok janúar sl. Alcan er
að skoða stækkun álversins í
Straumsvík, Century Aluminium
að skoða byggingu nýs álvers í
Helguvík á Reykjanesi og Alcoa er
að skoða byggingu nýs álvers á
Norðurlandi.
Valgerður segir að ekki megi
túlka fyrrgreind ummæli sín á
þann hátt að hún sé að breyta af-
stöðu sinni til stóriðjufram-
kvæmda. „Ég er ekki að gera
það,“ segir hún og ítrekar að ekki
megi blanda þessum orðum saman
við ummæli sín um stóriðjufram-
kvæmdir og skuldbindingar Ís-
lands gagnvart Kyoto-bókuninni á
árunum 2008 til 2012. „Þar sagði
ég að þessar ýtrustu hugmyndir
um uppbyggingu myndu rúmast
innan Kyoto-bókunarinnar, sem
er í gildi á tímabilinu 2008 til 2012.
En það þýðir ekki að þær geti
gengið upp af öðrum ástæðum.“
Ráðherra segir aðspurð að
þetta þýði heldur ekki að búið sé
að slá eitthvert af þessum þremur
verkefnum út af borðinu. Hún
bætir því reyndar við að aðkoma
stjórnvalda að þessu málum hafi
breyst mikið á undanförnum ár-
um. Áður hafi allar viðræður um
stóriðju farið fram í gegnum
Markaðsskrifstofu iðnaðarráðu-
neytisins og Landsvirkjunar
(MIL) – sem hafi verið lögð niður í
byrjun árs 2004 vegna samkeppn-
isástæðna – en nú fari slíkar við-
ræður að mestu fram úti á mark-
aðnum. „Því er ekki fyrst og
fremst verið að fjalla um þessi mál
hér í iðnaðarráðuneytinu, heldur á
markaðnum,“ segir hún. Hún
nefnir sem dæmi að forsvarsmenn
Alcans, sem eru að skoða stækkun
álversins í Straumsvík, hafi byrjað
á því að ræða við Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) um mögulega
orkuöflun. Í kjölfarið hafi Alcan og
OR undirritað viljayfirlýsingu um
að OR útvegaði 40% af orkuþörf-
inni. Eftir það ræddu forsvars-
menn Alcans við Landsvirkjun um
mögulega orkuöflun og í kjölfarið
var ákveðið að hefja viðræður.
„Ég er þó ekki að segja að
stjórnvöld hafi ekkert um fram-
kvæmdir sem þessar að segja. Við
berum ábyrgð á efnahagsmálum
og stjórnvöld hafa alltaf sagt að ef
það verði farið í frekari fram-
kvæmdir þá verði að forgangsraða
svo þau hafi ekki of mikil óæskileg
áhrif á hagkerfið. Stjórnvöld kasta
ekki frá sér þeirri ábyrgð þegar
um svo stór verkefni er að ræða.“
Ráðherra kveðst þó vilja halda
því til haga að stjórnvöld hafi kom-
ið mjög mikið að uppbyggingu ál-
versins í Reyðarfirði og mögu-
legum stóriðjuframkvæmdum á
Norðurlandi, ekki síst vegna
byggðasjónarmiða. Stjórnvöld
hafi m.a. tekið þátt í kostnaði
vegna undirbúnings framkvæmda.
„Samkvæmt reglum Eftirlits-
stofnunar EFTA (ESA) eru
byggðastyrkir heimilaðir á lands-
byggðinni, þ.e. á þeim hluta lands-
ins, sem ESA skilgreinir sem
landsbyggð.“ Hún segir að suð-
vesturhornið falli samkvæmt því
ekki undir landsbyggðina. „Að því
leyti er [stjórnvöldum] fullkom-
lega heimilt að koma að málefnum
sem varða landsbyggðina með
fjárframlögum, en eitthvað af því
fé verður endurgreitt ef af fram-
kvæmdum verður, eins og fyrir
norðan.“
Það skýrist hinn 1. mars nk.
hvort Alcoa og stjórnvöld ætli
halda áfram undirbúningi mögu-
legra stóriðjuframkvæmda á
Norðurlandi og þá á hvaða stað.
Þá er ráðgert að viðræður Alcan
og Landsvirkjunar um raforku-
verð vegna hugsanlegrar stækk-
unar álversins í Staumsvík ljúki
fyrir lok þessa árs. Ráðherra segir
að sú stækkun hafi lengi verið í bí-
gerð. „Maður hefur því frekar
reiknað með því að um stækkun
yrði að ræða, þótt málið sé ekki
komið í höfn.“ Hún tekur þó að-
spurð fram að hún sé ekki þar með
að útiloka Helguvík; allir mögu-
leikar séu enn inni í umræðunni.
Fréttaskýring | Taka þarf tillit til stöðu efna-
hagsmála við frekari uppbyggingu álvera
Þrjú stóriðju-
verkefni?
Orkuöflun og ástand efnahagslífsins setja
strik í reikninginn, að mati ráðherra
Mikill áhugi er á að byggja álver á Íslandi.
Ekki þó búið að slá nein
verkefni út af borðinu
Verið er að kanna möguleika á
þremur nýjum stóriðjuverkefn-
um hér á landi; í Straumsvík, í
Helguvík og á Norðurlandi. Ver-
ið er að kanna möguleika á
stækkun álvers Alcans í
Straumsvík í allt að 460 þúsund
tonn. Century Aluminium horfir
til álvers í Helguvík með allt að
250 þúsund tonna framleiðslu-
getu á ári og Alcoa horfir til ál-
vers á Norðurlandi af sömu
stærðargráðu, þ.e. með allt að
250 þúsund tonna framleiðslu-
getu.
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
GRUNNSKÓLINN á Blönduósi hélt árshátíð sína um
helgina. Nú sem fyrr stóðu krakkarnir sig með stakri
prýði og buðu gestum upp á fjölbreytt skemmtiatriði.
Leikritið „Þú ert í blóma lífsins fíflið þitt,“ eftir Davíð
Þór Jónsson var fyrsta dagskráratriðið og síðan rak
hver viðburðurinn annan.
Söngvarakeppnin Blönduvision hefur í gegnum tíð-
ina markað djúp spor í árshátíðarhefð grunnskólans og
var engin breyting þar á. Sjö söngvarar komu fram og
fluttu lög sín við góðar viðtökur árshátíðargesta og
undirleik hljómsveitar þar sem Skarphéðinn H. Einars-
son tónlistarskólastjóri var við stjórnvölinn. Er
skemmst frá því að segja að Grímur Rúnar Lárusson,
nemandi í 8. bekk, bar sigur úr býtum með Sálarlagið
Englar. Það var sem sagt englasöngur sem varð ofan á
í Blönduvision þetta árið.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Grímur Rúnar sigraði í Blönduvision