Morgunblaðið - 27.02.2006, Qupperneq 16
16 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
NÚ HEFUR dýrasta prófkjör Ís-
landssögunnar farið fram. Samfylk-
ingin hefur hafnað konu sem borg-
arstjóra. Núverandi
borgarstjóra, Stein-
unni Valdísi, hent, tal-
in ónothæf sem borg-
arstjóri. Dagur tvö er
hafinn. Þrátt fyrir, eða
öllu heldur vegna þess,
að Steinunn Valdís lét
hækka ákveðin launin
um hundruð milljónir,
hélt hún öðru sætinu.
Loforð Stefán Jó-
hanns um ókeypis leik-
skóla, sem áætlað er
að kosti kjósendur
einn milljarð á ári,
dugði ekki nema í
þriðja sætið. Dagur
tvö í útboði á lóðum í
Úlfarsfelli liggur nú
fyrir. Eins og ég benti
á í grein minni hér í
Morgunblaðinu um
dýrasta prófkjör Ís-
landssögunnar bauð
Samfylkingin lóðir til
sölu fyrir hina ríku,
venjulegt fólk væri
sett hjá. Og að for-
ystumenn VG hefðu
þvegið hendur sínar af
þessu máli, eins og
Pontíus Pílatus gerði
forðum. Á degi tvö í þessu máli hefur
komið í ljós, að einn einasti ein-
staklingur á hæsta boð í allar ein-
býlishúsalóðirnar í Úlfarsfelli nema
eina! Hann býður ekki nema um átta
hundruð milljónir og finnst að þetta
séu ekki miklir peningar. Á þessu
sést að heimskulegar reglur Sam-
fylkingarinnar og ónægt framboð
lóða í Reykjavík hafa orsakað þetta.
Jafnframt hefur þetta sprengt upp
verð á húsum í Reykjavík og gert
venjulegu fólki ókleift að byggja,
sjálft. Samfylkingin hefur nú sannað
að hún er flokkur hinna ríku og
verktaka. Hinn venju-
legi maður er settur
hjá, enda engar vonir til
þess, að óbreytt launa-
fólk í Reykjavík geti
snarað út 20 milljónum
fyrir einbýlishúsalóð.
Siðlausir, hug-
myndasnauðir menn
stjórna Reykjavík-
urborg. Hún er orðin
borg verktaka og ríka
fólksins. Venjulegir
íbúar fá að greiða þetta
með hærri fasteigna-
sköttum og ofurháu
íbúðaverði. Það er liðin
tíð, að venjulegt fólk
geti fengið lóð og byggt
sitt eigið hús. Reykja-
vík hefur undir stjórn
Samfylkingarinnar
þróast frá fólkinu til
verktakanna og hinu
ríku. VG hangir vilja-
laus í skottinu á Sam-
fylkingunni og Fram-
sókn er horfin. Það er
eiginleg spurning,
hvort ekki sé tími kom-
inn til að bjóða fram
lista ótengdan lands-
málaflokkunum, sem
eingöngu legði áherslu á hagsmuni
Reykvíkinga. Ég mundi bjóða Reyk-
víkingum 3.000 lóðir fyrir einbýli í
fyrstu lotu á eðlilegu verði og al-
gjörlega án möguleika á að hægt
væri að braska með þær.
hcjons@gmail.com
Dagur tvö
Hreggviður Jónsson
Hreggviður Jónsson
’Eins og égbenti á í grein
minni hér í
Morgunblaðinu
um dýrasta próf-
kjör Íslandssög-
unnar bauð Sam-
fylkingin lóðir til
sölu fyrir hina
ríku...‘
Höfundur er fv. þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
HÓPUR ungmenna hefur farið til
Danmerkur undanfarin tvö sumur á
dönskunámskeið. Námskeiðin voru
skipulögð af Norrænu upplýs-
ingaskrifstofunni á Akureyri í sam-
starfi við Skóladeild Akureyrarbæjar
og tungumálalýðháskólann (Europa-
højskolen) á Kalø á Jótlandi.
Sumarið 2004 lagði tuttugu og eitt
ungmenni land undir fót ásamt tveim-
ur kennurum og dvöldu á Kalö. Á liðnu
sumri fór þangað þrjátíu og einn nem-
andi með þremur kennurum. Meiri-
hluti nemenda og allir kennarar voru
af Norðurlandi.
Í hálfan mánuð var danskan æfð af
kappi í fjórum kennslustundum fyrir
hádegi og í þremur frítímakennslu-
stundum eftir há-
degi. Í frítíma-
kennslunni voru
náttúruskoðun,
leikir, siglingar,
hjólatúrar og
fleira til gagns og
gamans.
Ekki er hægt að
segja annað en
námskeiðið hafi
skilað sér vel því
allir komu heim með brosið eyrna á
milli og nýja sýn á tungumálið dönsku.
Nú stendur fyrir dyrum þriðja ferð-
in, sem verður farin 6.–20. júní í beinu
flugi frá Akureyri. Námskeið þetta er
styrkt af Nordplus-Sprog-styrkjaáætl-
un norrænu ráðherranefndarinnar og
af ýmsum fyrirtækjum á Akureyri en
kostar samt sitt. Það er ástæða til að
benda fólki á að fermingar eru fram-
undan og kjörin fermingargjöf til
framtíðar er styrkur til fermingar-
barnsins til að gera því kleift að taka
þátt í þroskaför sem þessari. Að fjár-
festa í tungumáli er ekki áhættu-
fjárfesting heldur innlögn á framtíð-
arreikning. Það hefur umræða liðinna
vikna um menntunarmál staðfest svo
ekki verður um villst.
MARÍA JÓNSDÓTTIR,
forstöðumaður Norrænu upplýs-
ingaskrifstofunnar, Akureyri.
mariajons@akureyri.is.
Danska í Danmörku fyrir grunnskólanema
Frá Maríu Jónsdóttur:
María Jóna
Jónsdóttir
TENGLAR
..............................................
www.akmennt.is/nu
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
FYRIR sex árum hélt Verslunarráð
Íslands viðskiptaþing undir yfirskrift-
inni „Íslenskt atvinnulíf – Ísland meðal
10 bestu“. Þar var lögð áhersla á það
metnaðarfulla markmið, að Ísland
skipaði sér í fremstu röð í alþjóðlegum
samanburði þegar litið væri til þátta
eins og starfsumhverfis atvinnulífsins,
reglubyrði, samkeppnishæfni og
frammistöðu bæði
stjórnsýslunnar og fyr-
irtækjanna sjálfra. Trú-
lega hefur ýmsum þótt
Verslunarráð setja
markið hátt með þess-
um áherslum sínum, en
reynslan hefur hins veg-
ar sýnt að markmiðin
voru raunhæf. Fjöl-
margar alþjóðlegar
samanburðarkannanir
hafa að undanförnu
staðfest að íslenskt efna-
hagslíf er frjálsara,
sterkara og samkeppn-
ishæfara en nokkru sinni fyrr. Þessa
jákvæðu þróun er mikilvægt að hafa í
huga þegar rætt er um getu hagkerf-
isins til að takast á við vaxtarverki og
þenslueinkenni, sem vissulega fylgja
hinum hraða vexti efnahagslífsins um
þessar mundir.
Lífskjör með þeim bestu í heimi
Í síðustu viku var greint frá því í
fjölmiðlum að Ísland væri komið í 6.
sæti á lista OECD yfir ríkustu lönd
heims. Þar er borin saman verg lands-
framleiðsla á mann með tilliti til kaup-
máttar. Fyrir ofan Ísland á listanum
eru Lúxemborg, Noregur, Bandaríkin,
Írland og Sviss en miðað við vísitölu
OECD var kaupmáttur hér á landi
23% hærri en meðaltalið í aðildar-
ríkjum stofnunarinnar. Auðvitað eru
stærðir eins og kaupmáttur sem hlut-
fall af landsframleiðslu ekki einhlítur
mælikvarði á lífskjör en staða Íslands
er ekki verri ef litið er til annarra
þátta. Þannig hefur Ísland í þrjú ár
verið í öðru sæti á eftir Noregi sam-
kvæmt könnun Sameinuðu þjóðanna á
lífskjörum þjóða. Fyrir utan þjóðhags-
legar stærðir er þar tekið tillit til fjöl-
margra annarra þátta eins og lífs-
lengdar og læsis.
Með vinsamlegustu
löndum fyrir fjárfesta
Í síðustu viku sýndi úttekt við-
skiptatímaritsins Forbes að Ísland
væri þriðja vinsamlegasta landið fyrir
erlenda fjárfesta. Danmörk og Finn-
land koma betur út hvað þetta varðar
en Bandaríkin, Bretland og Singapúr
fylgja fast á eftir. Meðal atriða sem
dregin eru fram í úttekt-
inni er að Íslendingar
byggi á markaðs-
hagkerfi þótt velferð-
arkerfið sé líka um-
fangsmikið. Vakin er
athygli á því að atvinnu-
leysi sé hér lítið og
tekjudreifing í þjóðfélag-
inu jöfn í alþjóðlegum
samanburði. Þá er horft
til mikils vaxtar í hag-
kerfinu á undanförnum
árum og líklegrar hag-
vaxtarþróunar á næstu
árum, vakin athygli á því
að atvinnulífið sé að verða fjölbreytt-
ara og að með vexti nýrra atvinnu-
greina hafi fleiri stoðum verið skotið
undir efnahagslífið.
Vaxandi viðskiptafrelsi
Samkvæmt niðurstöðum sem
bandaríska rannsóknarstofnunin The
Heritage Foundation og stórblaðið
Wall Street Journal birtu í janúar var
Ísland í 5. sæti á lista yfir þau lönd þar
sem mest viðskiptafrelsi ríkir. Þar er
m.a. horft til þátta eins og hvaða við-
skiptastefnu ríki fylgja, skuldastöðu
ríkisins, ríkisafskipta, peninga-
málastefnu, flæðis fjármagns og er-
lendra fjárfestinga. Er þetta nokkuð
betri niðurstaða en ráða má af svokall-
aðri frelsisvísitölu, sem Fraser-
stofnunin í Kanada gefur út, en sam-
kvæmt skýrslu stofnunarinnar frá síð-
asta ári var Ísland í 13. sæti ríkja
heims þegar efnahagslegt frelsi er
metið. Skýrslan fyrir 2005 er reyndar
byggð á upplýsingum frá 2003 og má
vænta þess að þegar næsta vísitala
verður gefin út í haust hafi staðan
batnað, ekki síst vegna skattalækkana
og niðurgreiðslu erlendra skulda.
Samkeppnishæfni í
fremstu röð
Tvær skýrslur um samkeppn-
ishæfni ríkja, sem út komu á síðasta
ári, gefa líka til kynna sterka stöðu
landsins í alþjóðlegum samanburði.
Samkvæmt niðurstöðum viðskiptahá-
skólans IMD í Sviss fyrir árið 2005
lenti Ísland í 4. sæti af 60 ríkjum, sem
metin voru, og hækkaði um eitt sæti
frá árinu áður. Í rannsókninni var lagt
mat á þætti eins og skilvirkni hins op-
inbera annars vegar og viðskiptalífsins
hins vegar, innviði hagkerfisins, þróun
hagstærða og starfsumhverfi fyrir-
tækja. Samkvæmt niðurstöðum Al-
þjóða efnahagsstofnunarinnar, World
Economic Forum, sem greint var frá í
september, lenti Ísland í 7. sæti þegar
lagt var mat á styrkleika og veikleika
hagkerfa 117 landa. Færðist landið
upp um þrjú sæti frá árinu 2004. Þegar
Ísland var fyrst tekið með í þennan
samanburð árið 1995 lenti það í 25.
sæti en fór lægst í 38. sæti árið 1997. Í
þessari samantekt er annars vegar
lagt mat á forsendur framtíðar-
hagvaxtar í landinu og hins vegar á
grundvöll verðmætasköpunar í at-
vinnulífinu.
Allar eru þessar niðurstöður áhuga-
verðar, enda um að ræða samanburð-
arkannanir sem mark er tekið á í um-
ræðum um stöðu og horfur í
alþjóðlegu efnahagslífi. Það verður
vart um það deilt að niðurstöðurnar
sýna afar jákvæða þróun hér á landi.
Svo geta menn spurt hvort þessi ár-
angur sé tilviljun, hrein heppni eða af-
leiðing árangursríkrar stjórnarstefnu í
einn og hálfan áratug.
Árangur eða hrein heppni?
Birgir Ármannsson fjallar um
samkeppnishæfni Íslands ’Fjölmargar alþjóðlegarsamanburðarkannanir
hafa að undanförnu stað-
fest að íslenskt efnahags-
líf er frjálsara, sterkara
og samkeppnishæfara en
nokkru sinni fyrr.‘
Birgir Ármannsson
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
LEIÐARAHÖFUNDUR Morg-
unblaðsins fagnar sl. laugardag
frumvarpi viðskiptaráðherra til laga
um breytingu á lögum
um Fjármálaeftirlitið.
Höfundurinn skipar
sér þar með á bekk
með þeim Jóhönnu
Sigurðardóttur og
Helga Hjörvar, þing-
mönnum Samfylking-
arinnar, sem kölluðu
eftir auknum vald-
heimildum til handa
Fjármálaeftirlitinu á
alþingi þegar þing
kom loks saman í jan-
úar eftir langt og gott
jólafrí þingmanna.
Í leiðaranum segir
að þegar á heildina sé
litið séu þær breyt-
ingar, sem lagðar eru
til í frumvarpinu allar
til bóta og augljóslega
brýnt að hrinda þeim í
framkvæmd til að
Fjármálaeftirlitið geti
rækt hlutverk sitt sem
skyldi og þannig
tryggt heilbrigða
starfshætti á fjár-
málamarkaði.
Eftir að hafa lesið
frumvarpið, sem lofað
er svo mjög af leið-
arahöfundinum, er ég
á því að hann hafi ekki lesið ein-
stakar greinar þess heldur látið sér
nægja að skoða og endursegja í leið-
aranum athugasemdir þær, sem
fylgja frumvarpinu frá höfundi eða
höfundum þess, sem trúlega eru
starfsmenn Fjármálaeftirlitsins.
Í það minnsta er ljóst að leiðarhöf-
undurinn hefur ekki skoðað efni
þessa lagafrumvarps gagnrýnum
augum og því síður í samhengi við
baráttu Agnesar Bragadóttur,
blaðamanns Morgunblaðsins, við
bankaeftirlitið, forvera Fjármálaeft-
irlitsins, í kjölfar greina hennar í
Morgunblaðinu í mars 1995 um
endalok Sambands ís-
lenskra samvinnu-
félaga. Um þá baráttu
má lesa í dómi Hæsta-
réttar í máli Rannsókn-
arlögreglu ríkisins
gegn Agnesi Braga-
dóttur frá 10. janúar
1996.
Eitt af því, sem lagt
er til í þessu óláns
frumvarpi, er að laga-
ákvæði um þagn-
arskyldu takmarka
ekki skyldu viðkomandi
aðila til þess að veita
Fjármálaeftirlitinu
upplýsingar og aðgang
að gögnum. Með öðrum
orðum er lagt til, að
gagnvart Fjármálaeft-
irlitinu gildi ekki lög-
boðin trúnaðarskylda
t.d. lögmanna gagnvart
skjólstæðingum þeirra.
Vill Morgunblaðið það?
Ef svar Morgunblaðs-
ins við þeirri spurningu
er já, eins og leiðarinn
gefur í það minnsta í
skyn, felur það líka í sér
að blaðamönnum Morg-
unblaðsins og annarra
fjölmiðla kann að vera
lítið hald í þeirri vörn Agnesar
Bragadóttur frá 1996, að rann-
sóknar- og eftirlitsyfirvöld sam-
félagsins verði að virða rétt blaða-
manna til trúnaðar gagnvart
heimildarmönnum. Vill Morg-
unblaðið það?
Morgunblaðið og
Fjármálaeftirlitið
Sigurður G. Guðjónsson fjallar
um leiðara Morgunblaðsins
Sigurður G. Guðjónsson
’...er ég á því aðhann hafi ekki
lesið einstakar
greinar þess
heldur látið sér
nægja að skoða
og endursegja í
leiðaranum at-
hugasemdir þær,
sem fylgja frum-
varpinu...‘
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
SIRKUSINN rúllar áfram.
Um miðjan fjórða áratug síðustu
aldar fóru sænsk samgönguyfirvöld
að undirbúa brúargerð yfir Ånger-
mann-ána, í lok ágúst 1939 var upp-
sláttur tilbúinn, hófst steypuvinna
morguninn 1. september. Um miðjan
morgun hrundi allur uppslátturinn og
tugir manna létu lífið. Þennan sama
morgun réðust nasistar inn í Pólland
og þessir atburðir við Ångermann-á
týndust í öðrum fréttum. Þetta vita
allir alvörufréttamenn. Það er hægt
að kæfa eina frétt með annarri. Sl.
sunnudagskvöld sýndi sjónvarps-
stöðin NFS, sem er í eigu Baugs,
fréttaþátt um kynferðislega misnotk-
un barna, þulur var Þór Jónsson.
Morguninn eftir áttu svo að hefjast
réttarhöld í svokölluðu Baugsmáli. Í
þessum þætti var léleg leikkona látin
lokka eldri mann að grásleppu-
skúrum við Ægisíðu. Úr launsátri
voru maðurinn og stúlkan mynduð og
samtal þeirra tekið upp á band. Ekki
fer á milli mála að maðurinn er veikur
fyrir ungum stúlkum en hver er það
ekki? Ekki voru færðar neinar sönn-
ur á að stúlkan væri þrettán ára eins
og sagt var. Við athugun á þessum
þætti bendir ýmislegt til að hann sé
meira og minna falsaður, líf fyrrver-
andi vinnufélaga míns lagt í rúst, fjöl-
skyldan með.
Ef NFS vill hreinsa einhver mein
úr þjóðarlíkamanum ættu þeir til
dæmis að skoða svokölluð skúffufyr-
irtæki og kennitöluflakkara.
GESTUR GUNNARSSON,
Flókagötu 8, 105 Reykjavík.
Sirkus
Frá Gesti Gunnarssyni
tæknifræðingi: