Morgunblaðið - 27.02.2006, Side 24

Morgunblaðið - 27.02.2006, Side 24
24 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Almennur félagsfundur í Læknafélagi Reykjavíkur verður haldinn þriðju- daginn 28. febrúar í Hlíðasmára 8, Kópavogi og hefst kl. 20:00. Efni fundarins: 1) Nýjar stefnur í uppbyggingu göngudeild- arþjónustu LSH; Er nauðsyn að taka tillit til lækna utan LSH? 2) Tillögur að fulltrúum til setu á aðalfundi LÍ. 3) Tillögur til lagabreytinga. 4) Önnur mál. Stjórnin. Uppboð Nauðungarsala á lausafé Að kröfu Hafnarsamlags Suðurnesja fer fram nauðungarsala mánudaginn 6. mars 2006 kl. 15:00 við höfnina í Njarðvík á Kristbjörgu VE-70 (ekki lengur á aðalskipaskrá). Eigandi: Helgi Friðgeirsson kt. 110744 2349. Greiðsla skal innt af hendi við hamarshögg. Sýslumaðurinn í Keflavík. Félagslíf  MÍMIR 6006022719 I  HEKLA 6006022719 VI  GIMLI 6006022719 III Í kvöld kl. 20 samkoma. Um- sjón Miriam Óskarsdóttir. Mánudag 27. febrúar kl. 15.00. Heimilasamband. Allar konur velkomnar. I.O.O.F. 19  1862278  9.III * I.O.O.F. 10  1862278  II* Raðauglýsingar sími 569 1100 Þessir bekkir heimsóttu Morgunblaðið í tengslum við verkefnið Dagblöð í skólum. Dagblöð í skólum er sam- starfsverkefni á vegum Menntasviðs Reykjavíkur sem Morgunblaðið tekur þátt í á hverju ári. Að lokinni verk- efnaviku þar sem nemendur vinna með dagblöð á marg- víslegan hátt í skólanum koma þeir í kynnisheimsókn á Morgunblaðið og fylgjast með því hvernig nútíma dag- blað er búið til. Nánari upplýsingar umverkefnið gefur Auður í netfangi audur@dagblod.is - Kærar þakkir fyrir komuna, krakkar! Morgunblaðið. Morgunblaðið/Sverrir Melaskóli, 7. A. Morgunblaðið/ÞÖK Setbergsskóli, 7. SE. Morgunblaðið/ÞÖK Setbergsskóli, 7. HG. Morgunblaðið/Ásdís Setbergsskóli. 7. RV. Spurt var sér- staklega um virkj- un á Norðurlandi VEGNA fréttar um Gallup-könnun um álver á Norðurlandi, sem unnin var fyrir hönd iðnaðar- og við- skiptaráðuneytis og birtist í blaðinu í gær er rétt að taka fram að í svari við spurningu um stuðning við virkj- anir var ekki átt við virkanir al- mennt. Í könnuninni var spurt um viðhorf til virkjunar á heimaslóðum fyrir ál- ver annars staðar á Norðurlandi. Spurningin snérist því um hvort menn væru fylgjandi virkjun ef ork- an yrði nýtt til álvers sem ekki væri staðsett í heimabyggð. Engin leið er því að túlka svör við þessari spurn- ingu sem viðhorf fólks til virkjunar almennt á Norðurlandi. Styðja álver í Skagafirði STJÓRN Skagafjarðarhraðlest- arinnar skorar á Alcoa að kanna til hlítar hagkvæmni þess að setja upp álver á Brimnesi í Skagafirði. „Skagafjörður hefur alla þá kosti sem til þarf til að setja upp álver, fjölbreytt og gott mannlíf, hátt menntastig, unnið er að stofnun há- tækniseturs á Sauðárkróki í sam- vinnu við Háskóla Íslands. Há- tæknisetrið á að vera leiðandi á Íslandi í uppbyggingu á þekk- ingar-, rannsókna-, og þróunarstöð í hátæknieðlisfræði, fínsmíði og rafeindartækni. Steinullarverk- smiðja er á Sauðárkróki. Í Skagafirði er góður flugvöllur og hefur aðflug sem er með því allra besta sem gerist á landinu og má geta þess að það stóð val á milli Skagafjarðar og Egilsstaða hins- vegar þegar var verið að velja stað fyrir varaflugvöll, hér er aðaltoll- höfn, og lítið mál að afgreiða flug- vélar hér. Skagafjörður hefur yfir að ráða rólegu og yfirveguðu um- hverfi hvort sem um er að ræða vinnuafl eða náttúruöfl þar sem lítil hætta er á uppþotum þessara afla. Að okkar áliti eiga ekki að vera nein vandamál í sambandi við orku- öflun ef það yrði ákvörðun Alcoa að setja upp álver í Skagafirði, ein- ungis vilji íslenskra stjórnvalda að standa á bakvið þá ákvörðun. Stjórn Skagafjarðarhraðlest- arinnar er tilbúin að vinna með ykkur og leiða þá umræðu sem til þarf til undirbúnings á uppsetningu álvers í Skagafirði og viljum við bjóða ykkur hjá Alcoa velkomin í Skagafjörð.“ FRÉTTIR DREGIÐ hefur verið í konudagaleik Kringlunnar. Nöfn Steinunnar Lilju Gísladóttur, Hafdísar Sigurðardóttur og Hjördísar Bjarkar Ólafsdóttur voru dregin út en þær höfðu skráð sig á póstlista á vefsíðu Kringlunnar á konudögum og hlutu í vinning dekurferðir fyrir tvo með Flugfélagi Íslands í Jarðböðin í Mývatnssveit með gistingu á Sel-Hótel Mývatni. Að auki fengu allir þeir sem skráðu sig á póstlistann ókeypis áskrift að Tískutímariti Kringlunnar sem gefið er út tvisvar á ári, segir í fréttatilkynningu. Á myndinni má sjá þær Hafdísi Sigurðardóttur og Hjördísi Björk Ólafs- dóttur taka á móti vinningum sínum frá Hermanni Guðmundssyni, mark- aðsstjóra Kringlunnar. Sonur Hafdísar, Elvar Smári, tók við vinningnum með mömmu sinni. Unnu dekur Mývatnssveit Lýst eftir vitnum LÖGREGLAN í Reykjavík auglýsir eftir vitnum að árekstri er varð föstudaginn 24. febrúar á Höfða- bakka/Gullinbrú/Stórhöfða kl. 07:58. Þarna var Kia-jeppabifreið grá að lit ekið norður Höfðabakka og beygt áleiðis vestur Stórhöfða, og Terrano-jeppabifreið dökkblá að lit og lentu ökutækin saman á gatnamótunum. Ágreiningur er um afstöðu umferðarljósanna í umrætt sinn. Upplýsingar berist umferð- ardeild lögreglunnar í Rvík. S. 4441130,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.