Morgunblaðið - 10.03.2006, Page 2

Morgunblaðið - 10.03.2006, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍRAN ER ÁSKORUN Condoleezza Rice, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, kallaði Ír- an í gær „seðlabanka hryðjuverka“ en hún sakar þarlend stjórnvöld um að styðja við bak hryðjuverkamönn- um í Írak, Palestínu og Líbanon. Sagði hún Bandaríkjamenn ekki standa frammi fyrir neinni stærri áskorun en þeirri, að bregðast við þeim vanda sem að steðjar vegna áforma Írana að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Gríðarleg ásókn í bújarðir Fjársterkir aðilar sækja í auknum mæli í bújarðir á Íslandi, sér- staklega hlunnindajarðir, og ef fer sem horfir munu kaupin hafa þau áhrif að hefðbundinn búskapur leggst frekar af en ella. Auk þess verða sveitarfélög og ríki af tekjum þar sem nýir jarðeigendur búa margir hverjir aðeins hluta úr ári á jörðum sínum. Utanríkisráðherra í Noregi Geir H. Haarde, utanríkis- ráðherra, hóf opinbera heimsókn sína til Noregs með áheyrn hjá Har- aldi Noregskonungi í gær. Að henni lokinni hélt hann til funda með utan- ríkisráðherra og varnarmálaráð- herra Noregs. Geir sagði fundina hafa einkennst af milli vinsemd í garð Íslands. Samningar undirritaðir Samningar milli Portus-hópsins og Austurhafnar-TR ehf. um bygg- ingu tónlistarhúss og ráðstefnu- miðstöðvar voru undirritaðir við há- tíðlega athöfn í Ráðherrabústaðnum í gær. Portus-hópurinn átti vænleg- asta tilboðið í hönnun, byggingu og rekstur tónlistarhússins, miðstöðv- arinnar og hótels við Reykjavíkur- höfn. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Forystugrein 34 Fréttaskýring 8 Viðhorf 36 Úr verinu 12 Minningar 38/51 Viðskipti 14/15 Myndasögur 54 Erlent 16/18 Dagbók 54/57 Minn staður 20 Víkverji 54 Suðurnes 21 Velvakandi 55 Höfuðborgin 22 Staður og stund 57 Austurland 22 Leikhús 58 Akureyri 23 Bíó 62/65 Daglegt líf 24/25 Ljósvakamiðlar 66 Menning25/27, 58/65 Veður 67 Umræðan 28/36 Staksteinar 67 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %          &         '() * +,,,                  www.expressferdir.is Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Nánar á www.expressferdir.is Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express VERÐDÆMI 53.900 kr. INNIFALI‹: ALICANTE SUMARHÚS Á SPÁNI MAÍ – SEPTEMBER Frá maí til september bjóðum við sumarhúsaferðir til Spánar. Afþreying fyrir alla fjölskylduna og þægileg aðstaða. Gestir dvelja í sumarhúsum og hver hefur sinn háttinn á. Hafðu það gott með vinum og fjölskyldu á verði sem yljar. Flug og flugvallaskattar, sumarhús í 14 daga, þrif í leigulok. Miðað við að fjórir séu saman í sumarhúsi. Fyrir börn yngri en 13 ára í fylgd með fullorðnum kostar ferðin 45.900 kr. VILHJÁLMUR Árna- son hæstaréttarlög- maður er látinn 88 ára að aldri. Vilhjálmur fæddist 15. september 1917 á Skálanesi í Seyð- isfjarðarhreppi. For- eldrar hans voru Árni Vilhjálmsson, bóndi og útgerðarmaður á Há- nefsstöðum, og Guðrún Þorvarðardóttir. Vilhjálmur stundaði nám í siglingafræði og varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1942. Hann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1946. Vilhjálmur stund- aði sjómennsku á yngri árum og var formaður á vélbátnum Magnúsi NS 210 á árunum 1937–1943, en hann var í eigu föður hans. Vilhjálmur var við lögfræðistörf hjá Sambandi íslenskra samvinnu- félaga 1946 til 1948, hann var for- stöðumaður félags- og fræðsludeildar SÍS í nokkur ár og skólastjóri Bréfa- skóla SÍS 1948 til 1960. Þá var hann kennari við Samvinnuskólann 1950– 1954. Vilhjálmur stofnaði lögfræði- skrifstofu í Reykjavík árið 1960 ásamt Tómasi bróður sínum og ráku þeir hana saman til 1972. Vilhjálmur rak stofuna einn á árunum 1972–1978 en eftir það með öðrum. Vil- hjálmur gegndi fjölmörg- um trúnaðarstörfum um ævina. Hann var m.a. for- maður Orators, félags laganema, 1944–1945 og ritari Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi 1947– 1952. Hann sat í stjórn Iðnaðarbanka Íslands 1953–1954, var í stjórn Ís- lenskra aðalverktaka hf. frá 1954 til 1984 og var formaður stjórnar í mörg ár. Vilhjálmur var for- maður stjórnar Kirkjusands hf. 1973– 1979, einnig átti hann sæti í stjórn vistheimilis vangefinna á Skálatúni um árabil. Hann var í stjórn fataverk- smiðjunnar Sportvers hf. og Herra- hússins 1972–1984. Hann var formað- ur stjórnar byggingarfélagsins Breiðabliks hf. 1979–1988 og var í stjórn verksmiðjunnar Vífilfells hf., Björns Ólafssonar og Þórðar Sveins- sonar hf. Vilhjálmur var mikill útivistarmað- ur og stundaði laxveiðar og golf. Eftirlifandi eiginkona Vilhjálms er Sigríður Ingimarsdóttir, húsmóðir og fyrrverandi ritstjóri Húsfreyjunnar. Eignuðust þau sjö börn og eru fimm þeirra á lífi. Barnabörnin eru 10 og barnabarnabörnin tvö. Andlát VILHJÁLMUR ÁRNASON BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær að veita þýsku byggingarvöruversluninni Bauhaus fyrirheit um úthlutun lóðar í svokölluðum Höllum við rætur Úlfarsfells austan Vesturlandsvegar. Fram kemur að borgarráð hafi ákveðið að veita fyrirheitið eftir ítarlega yfirferð yfir athugasemd- ir frá Smáragarði/BYKO og Mosfellsbæ. „Á fundi ráðsins í dag var lögð fram ítarleg greinargerð stjórnsýslu- og starfsmannasviðs Reykjavíkur- borgar, en niðurstaða hennar er sú að framkomn- ar athugasemdir eigi ekki við rök að styðjast og að ekki verði séð að neitt sé því til fyrirstöðu að Reykjavíkurborg úthluti Bauhaus AG umræddri lóð,“ segir ennfremur. Á lóðinni hyggst fyrirtækið reisa um 20 þúsund fermetra verslunarhúsnæði á 5,5–6 hektara lóð. Erindið hafði áður fengið jákvæða umfjöllun í skipulagsráði Reykjavíkur og verður áfram unnið að deiliskipulagi svæðisins í samræmi við fyrir- heitið, en byggingarrétti verður úthlutað þegar deiliskipulagið liggur fyrir. Jafnframt er skrif- stofustjóra byggingarsviðs borgarinnar falið að ganga til viðræðna um söluverð byggingarréttar- ins. Komið á beinu brautina Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs, sagði að næstu skref í þessum efnum væri form- legur samningur um sölu á lóðinni og skipulags- ferlið. Hann sæi ekki nein vandamál í þessum efn- um. „Ég held að ég geti alveg fullyrt að þetta er komið á beinu brautina,“ sagði hann. Dagur bætti við aðspurður að það hefði verið farið ítarlega yfir athugasemdir Mosfellsbæjar og Smáragarðs/ BYKO og þær hefðu ekki verið þess eðlis að þær hefðu breytt afstöðu borgarinnar í þessum efnum né dregið fram rök fyrir því að veita Bauhaus ekki þetta fyrirheit. „Samkeppnissjónarmiðin eru eitt af því sem lit- ið er til og vógu mjög þungt í þessu máli,“ sagði Dagur ennfremur spurður um samkeppnina á sviði byggingarvara. „Það er auðvitað alþekkt að einn af þeim þröskuldum við að komast inn á nýja markaði fyrir fyrirtæki til að örva samkeppni er starfsstaða í formi lóða, sérstaklega þegar um rýmisfrekar verslanir er að ræða. Við vonumst til að þetta greiði fyrir samkeppni á sviði bygging- arvöruverslunar á öllu höfuðborgarsvæðinu.“ Bauhaus fær fyrirheit um lóð í Úlfarsfellslandi Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is HÓPUR ungmenna kom sér fyrir inni í anddyri höfuðstöðva Lands- virkjunar við Háaleitisbraut í Reykjavík í gærdag þar sem mót- mælt var áformum um virkj- unarframkvæmdir og stóriðju. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upp- lýsingafulltrúa Landsvirkjunar, voru mótmælin á friðsömum nótum og ungmennin, sem flest ef ekki öll voru á grunnskólaaldri, þóttu hin prúðustu. Lögregla mætti á svæðið en fór skömmu síðar og segir Þorsteinn að mótmælin hafi verið látin af- skiptalaus. Ungmennin hrópuðu slagorð og léku á hin ýmsu hljóð- færi til að framkalla sem mestan hávaða í rúma klukkustund en yf- irgáfu þá svæðið. Með í för voru einstaklingar með kvikmyndavélar sem Þorsteinn tel- ur að hafi ekki verið á vegum sjón- varpsstöðvanna en hafi frekar ver- ið að taka upp mótmælin til annarra nota. Talið er að mótmælin í gær teng- ist þeim er áttu sér stað hinn 1. mars síðastliðinn þegar lögregla vísaði háværum mótmælendum með valdi út af skrifstofu Alcoa við Suðurlandsbraut. Sá hópur nefnir sig Ungliðar gegn stóriðju og tók hann sér mótmælastöðu vegna ákvörðunar Alcoa um að hefja ít- arlega könnun á hagkvæmni þess að reisa nýtt álver á Bakka við Húsavík. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Friðsamleg mótmæli við Lands- virkjun STARFSMANNI Hressingarskál- ans í Austurstræti brá heldur betur í brún þegar hann leit út í garð um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Þar stóð smyrill í mestu makindum og gæddi sér á fuglshræi. Fuglinn lét það ekki trufla kvöldmatinn þótt áhugasamir gestir staðarins fylgd- ust með og tóku myndir á gsm-síma sína. Hvarf fuglinn þá sjónum þegar að rökkva tók og eru afdrif hans ókunn. Smyrlar eru áræðnir ránfuglar og samanstendur fæða þeirra nánast eingöngu af smáfuglum, aðallega spörfuglum og vaðfuglum. Þykja að- farir hans að bráðinni oftast mikið sjónarspil en smyrillinn þykir fimur. Smyrill í kvöldmat á Hressó

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.