Morgunblaðið - 10.03.2006, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 9
FRÉTTIR
HRAFNHILDUR Gunnarsdóttir,
formaður Samtakanna ’78, hefur
fyrir hönd félagsins lagt fram
kæru til lögreglu á hendur Gunn-
ari Þorsteinssyni, forstöðumanni
Krossins, fyrir ummæli í grein
hans „Bréf úr Kópavogi“ sem birt-
ist í Morgunblaðinu sunnudaginn
26. febrúar sl. Kæran er borin
fram á grundvelli 233a gr. í al-
mennum hegningarlögum þar sem
m.a. er kveðið á um fjársektir og
fangelsi fyrir að ráðast með háði,
rógi, smánun eða ógnun opinber-
lega á mann eða hóp manna vegna
kynhneigðar þeirra. Í kærunni
minnir formaður félagsins á þá
skýlausu skyldu ríkisvaldsins að
vernda minnihlutahópa lögum
samkvæmt gegn rógi, níði og
smánun hvar sem slíkt er borið
fram á opinberum vettvangi. Þetta
kemur fram í frétt á vef félagsins,
www.samtokin78.is.
Rógur og níð í sjö liðum
Tilefni kærunnar er fyrst og
fremst þær skoðanir hins kærða á
fjölskyldum samkynhneigðra sem
hann telur upp í sjö liðum í grein
sinni. Segir formaður félagins í
kærunni að þar grípi hinn kærði
fordóma úr lausu lofti og tjái sem
óvefengjanlegan sannleika. Einnig
segir hún í kærunni:
„Ekki þarf að fara mörgum orð-
um um það hvílíkan sársauka og
þjáningu það veldur heilum þjóð-
félagshópi, samkynhneigðum og
börnum þeirra, sem skipta hundr-
uðum hér á landi, að mega þola
slíkar staðhæfingar opinberlega,
nema hlutur þeirra verði réttur
með málsókn ákæruvaldsins og
refsingu.“
Samtökin ’78 kæra Gunnar í Krossinum
„ÞAÐ er bæði eðlilegt og sjálfsagt
að íslensk stjórnvöld hugi að svona
viðbragðsáætlun á sambærilegan
hátt og er að
ryðja sér til rúms
í löndum í kring-
um okkur,“ segir
Guðjón Rún-
arsson, fram-
kvæmdastjóri
Sambands banka
og verðbréfafyr-
irtækja, um sam-
komulag ráðu-
neyta, Seðla-
banka og Fjármálaeftirlits um
samráð og viðbúnað við hugsan-
legum áföllum í fjármálakerfinu.
Guðjón tekur fram að honum hafi
ekki gefist færi á að skoða í ein-
stökum atriðum þær tillögur sem
starfshópur hefur sett fram um við-
búnaðinn. Samtökin eigi eftir að
skoða einstaka þætti og útfærsluna
betur áður hægt sé að segja til um
hvort bent verði á einhver atriði
sem betur megi fara.
Eðlilegt að
huga að
viðbragðsáætlun
Guðjón Rúnarsson
MILDI þykir að ekki skuli hafa
farið verr þegar Þórir Tryggva-
son skíðamaður varð undir snjó-
flóði í frönsku ölpunum í Aust-
urríki á miðvikudaginn. Að sögn
Þóris var hann í fimm manna hópi
sem hafði farið á skíðunum út fyr-
ir merkta leið. „Við vorum að fara
á svæði sem ekki hafði verið
skíðað á þegar leiðsögumaðurinn
og ég fórum yfir snjófleka. Fyrr
en varði var flekinn farinn af
stað,“ sagði Þórir sem telur að
flóðið hafi verið um 40 metrar á
breidd og á milli eins og tveggja
metra djúpt.
Þórir segist hafa farið á kaf í
flóðið en fljótlega náð að komast
upp úr því. Honum hafi ekki orðið
meint af og því haldið leið sinni
áfram, en fylgdarfólk hans slapp
allt við flóðið. Spurður hvort at-
vikið hefði dregið úr skíðaáhuga
hans sagði Þórir svo ekki vera,
þetta væri í annað skiptið sem
hann væri á skíðum á þessum stað
og sagðist hiklaust vilja fara aftur
þrátt fyrir þessa reynslu.
Íslenskur skíða-
maður lenti í snjó-
flóði í Ölpunum
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Ný sending
Léttar úlpur og stuttfrakkar
Sportlegir jakkar, pils
og kvartbuxur
Hörbuxur
Hörjakkar
Hörblússur
Laugavegi 84 • sími 551 0756
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
NÝIR LITIR
AÐEINS ÞESSA EINU HELGI!
Perlan - Sími: 562 0200 - Fax: 562 0207 - perlan@perlan.is
9.-12. mars
Sjávarréttahlaðborð
PERLUNNAR
Sjávarréttahlaðborð Perlunnar er einstakt tækifæri til að upplifa nýjungar í
matargerð ólíklegustu skelfisk og fisktegunda. Margverðlaunaðir matreiðslu-
meistarar Perlunnar útbúa yfir 30 tegundir heitra og kaldra fiskrétta. Hér finna
allir eitthvað við sitt hæfi. Verð aðeins: 4.790 kr.
Fyrir mat kynnir Globus gæðavín frá Ítalíu.
Bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is
Sigurstjarnan
Opið virka kl. 11-18 virka dag, kl. 11-15 laugardaga, einnig sunnudaginn 12. mars kl. 13-16
Ekta pelsar og úlpur - Stór númer
50-60% afsláttur
Allir lampar 50% - Gjafavörur 30-50% - Rúmteppi 40% -
Perlujakkar og sjöl 70% - Kjólar 50%
Risaútsalan er hafin
Dagana 6.-11. mars heldur
Skóvinnustofa Sigurbjörns
upp á það að liðin eru 50 ár
frá stofnun fyrirtækisins
Af því tilefni er þessa daga veittur
50% afsláttur af sólningum og hælaviðgerðum og
20% afsláttur af öllum öðrum viðgerðum.
Einnig er gefinn 20% afsláttur af allri söluvöru.
Skóvinnustofa Sigurbjörns
Austurveri, Háaleitisbraut 68.
50
ára
Ath. Við bjóðum upp á 352 tegundir af
skóreimum, 123 liti af skóáburði,
18 tegundum af leppum
og viðhaldsvörur í miklu úrvali.
H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
FULL BÚÐ AF
FALLEGUM VÖRUM
Mörkinni 6, sími 588 5518.
• Stuttkápur
• Leðurjakkar
• Vattjakkar
• Rúskinnsjakkar
• Heilsársúlpur
• Hattar og húfur
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga frá kl. 10-16
Ný sending af flottum
gallabuxum
Frábær buxnasnið
Laugavegur 63 • S: 551 4422