Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 12

Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 12
VEIÐI á línu fyrir utan Vestfirði hefur dottið niður í vikunni eftir gott fiskirí undanfarna tvo mánuði. Skipstjórar segja að töluvert af loðnu sé á miðunum, en þegar svo háttar hefur þorskurinn nægt æti og bítur því síður á króka línunnar. Friðbjörn Elíasson, skipstjóri á Sigga Þorsteins, sem gerður er út með beitningarvél á línu frá Flat- eyri, segir að botninn hafi alveg dottið úr fiskiríinu í byrjun vik- unnar. „Þorskurinn hverfur um leið og lykt fer að finnast af loðnunni. Maður sér eitthvað af fiski með loðnu í maganum fyrstu dagana, en eftir það lítur hann ekki við lín- unni.“ Siggi Þorsteins er nú við veiðar á Eldeyjarbanka og segir Friðbjörn að það eina í stöðunni hafi verið að flýja loðnuna suður eftir. „En við fögnum að sjálfsögðu komu loðn- unnar þrátt fyrir tímabundinn afla- brest. Þorskurinn gefur sig líklega aftur eftir tvær til þrjár vikur og er þá í betri holdum eftir veisluna,“ segir Friðbjörn. Dagróðrabátar með línu hafa fáir farið á sjó sökum brælu í vikunni. Þeir, sem Morgunblaðið náði tali af, sögðu að fiskiríð hefði minnkað, far- ið úr 200 kg á bala niður í 100 kg, en þeir töldu að minna væri af loðnu nær landi en dýpra þar sem beitningarvélabátarnir leggja. Óvíst hvort um vesturgöngu sé að ræða Þorsteinn Sigurðsson, fiskifræð- ingur hjá Hafrannsóknarstofnun, segir óvíst hvort um vesturgöngu sé að ræða og að ekki sé hægt að útiloka að um leifar suðurgöngunn- ar sé nú komin norður fyrir Vest- firði. „Við höfum einhverjar fregnir af loðnutorfum, en eins og sakir standa þá liggja engar mælingar fyrir og engin loðnuskip hafa verið á miðunum, þannig ómöglegt er að meta hvort um eitthvað magn sé að ræða. Nótaskipið Björg Jónsdóttir er væntanlegt á miðin í dag og þá fáum við vonandi frekari upplýs- ingar um magnið og hvaðan loðnan er komin,“ sagði Þorsteinn. Loðna á Vest- fjarðamiðum Gefur sig ekki Veiðar á línu hafa snarminnkað út af Vestfjörðum. Veiði á línu snarminnkað í kjölfarið Eftir Kristján Torfa Einarsson kte@mbl.is 12 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á svörtum vængjum inn í ljósið á morgun ÚR VERINU ÞESSI hressi árgangur úr Gaggó Aust hefur hist mánaðarlega í há- deginu undanfarin ár. Hópurinn skipuleggur nú landsafmælis- fagnað í Súlnasal Hótel Sögu hinn 13. maí nk. sem ætlaður er öllum landsmönnum sem fagna 70 ára af- mæli sínu á árinu. Að sögn Jóns Kristins Óskarsson eru samkvæmt þjóðskrá um 1.800 Íslendingar fæddir árið 1936 og því megi búast við stórfenglegri veislu ef vel takist til með þátttöku og all- ir mæta með maka. Segir hann fólk þegar byrjað að tilkynna þátttöku sína og þannig viti hann af ein- staklingum er búa í Bandaríkjunum og Danmörku sem ætli að skreppa heim til að taka þátt í hátíðahöld- unum. Aðspurður segir Jón rokkið verða í aðalhlutverki á fagnaðinum, enda um að ræða rokk og ról- kynslóðina sem ólst upp við Elvis- sveifluna. Segir hann stefnt að mat- arveislu, skemmtiatriðum og dansi, auk þess sem Ragnar Bjarnason muni skemmta á sinn einstæða hátt. Áhugasömum er bent á að hafa sem fyrst samband annaðhvort við Jón í síma 895 6158 eða við Thelmu Grímsdóttur í síma 897 1487 til þess að tilkynna þátttöku sína. Undirbúa landsafmælisfagnað Morgunblaðið/RAX HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt Landspítala – háskóla- sjúkrahús til að greiða hjúkrunar- fræðingi, konu sem starfaði á Landakotsspítala og Borgarspítal- anum frá árinu 1988 til ársins 1997, eða þar til hún fór í veikindaleyfi, um 6,8 milljónir króna í bætur vegna veikinda sem hlutust af störfum á speglunardeildum spít- alanna. Konan veiktist árið 1997 og segir í dómi héraðsdóms að sannað sé að veikindi hennar megi rekja til notkunar efnisins glútaraldehýð, sem notað er til hreinsunar áhalda. Var spítalanum jafnframt gert að greiða stefnanda þrjár milljónir króna í málskostnað. Konan gaf skýrslu fyrir dómi þar sem hún segist aldrei hafa fengið fyrirmæli um notkun glútaralde- hýðs eða leiðbeiningar. Hún hafi ekki vitað neitt um efnið, en síðar áttað sig á því að það væri ertandi þegar hún sem og aðrir starfsmenn hafi fengi munnþurrk og höfuð- verki. Þá benti hún á að ekki hafi verið sérstök loftræsting á spegl- unardeildinni á Landakoti og að- eins hægt að opna glugga í góðu veðri. Fleiri hjúkrunarfræðingar gáfu skýrslu fyrir dómi og sögðu allir að þeir hefðu aldrei fengið leiðbein- ingar um meðhöndlun efnisins. Báru tveir þeirra við að hafa veikst við störf á speglunardeild, s.s. feng- ið höfuðverki, andþyngsli ásamt þyngslum yfir höfði og andliti. Kröfur um aðgæslu Í greinargerð spítalans segir að ekkert bendi til annars en að að- stæður á Landakoti hafi verið í samræmi við viðurkennd viðmið og venjur. Fullyrt er að loftræsting hafi verið fullnægjandi og sjáist það best á því að magn glútaralde- hýðs hafi aldrei mælst yfir hættu- mörkum. Þá taldi stefndi rangt og ósannað að meðhöndlun efna á deildinni hafi ekki verið nægilega varfærnisleg. Vinnureglum hafi verið fylgt í hvívetna og meðhöndl- unin hafi verið með því besta sem þekkist og í samræmi við viður- kenndar venjur. Bar öðrum fremur að vernda starfsfólk sitt Jafnframt taldi stefndi að konan hafi vanrækt að leita sér lækn- isaðstoðar þegar tók að bera á ein- kennum hjá henni og því verði að gera ríkar kröfur til hennar um að- gæslu. Í niðurstöðu dómsins segir að enginn vafi sé á því að glútaralde- hýð geti valdið astma, snertiexemi og slímhúðarbólgum í nefi auk þess sem efnið valdi ertingu og almenn- um óþægindum þar sem andrúms- loft er mengað af efninu. Áður en konan hóf störf á speglunardeild árið 1988 hafi verið vakin athygli á því í erlendum læknisfræðitímarit- um að efnið gæti valdið astma og því bar að umgangast efnið með mikilli varúð og beita öllum til- tækum ráðum til að komast hjá því að vinnuumhverfi mengaðist af völdum þess. Átti spítalanum að vera þetta sérstaklega ljóst og bar öðrum fremur að vernda starfsfólk sitt gegn áhrifum efnisins. Þá segir að ekki hafi komið fram nein önnur skýring á veikindunum og verði að leggja til grundvallar að orsök þeirra sé notkun um- rædds efnis á vinnustöðum kon- unnar. Dóminn kvað upp héraðsdómar- inn Jón Finnbjörnsson ásamt með- dómendunum Jakobi Kristinssyni dósent og Sigurði Thorlacius dós- ent. Landspítali – háskólasjúkrahús dæmt í Hæstarétti til að greiða hjúkrunarfræðingi 6,8 milljónir króna í bætur Veiktist af störfum sín- um á speglunardeild HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest átta mánaða fangelsisdóm Héraðs- dóms Reykjaness yfir karlmanni á þrítugsaldri fyrir vopnað rán í apríl 2005. Hæstarétti þótti hins vegar ekki koma til álita að skilorðsbinda refsinguna, en sex mánuðir voru skilorðsbundnir í dómi héraðsdóms. Ákærði játaði að hafa framið rán í verslun í Kópavogi í félagi við annan mann og ógnað starfsstúlku með skrúfjárni, skipað henni að opna sjóðsvél og úr henni tekið 35 þúsund krónur. Hurfu mennirnir að því loknu á braut á bifreið. Brot ákærða er talið til þess fallið að vekja verulegan ótta hjá starfs- stúlkunni en í skýrslu frá henni kem- ur fram að skrúfjárninu hafi verið ot- að að maga hennar og ákærði hótað að stinga ef sjóðsvélin yrði ekki opn- uð. Hafi hann endurtekið þetta þrisvar sinnum og hlaut stúlkan roða á maga í gegnum bol og peysu. Hún hafi jafnframt notið sálfræðiaðstoðar þar sem hún var þjökuð af svefn- truflunum eftir atburðinn. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Sigríður J. Friðjóns- dóttir saksóknari hjá ríkissaksókn- ara flutti málið en verjandi ákærða var Hilmar Ingimundarson hrl. Átta mánaða fang- elsi fyrir vopnað rán Um vasabiljard, kvíða og ljóð Gyrðis Elíassonar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.