Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 14

Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 14
BRESKAR stórmarkaðskeðj- ur standa frammi fyrir allsherj- ar rannsókn þarlendra sam- keppnisyfirvalda, en þar þykir sumum stóru verslanakeðjurn- ar of áhrifamiklar á breskum matvörumarkaði. Gagnrýnendur stóru keðj- anna hafa sakað þær um að flæma smærri samkeppnisaðila af markaði. Stofnun réttlátrar verslunar (Office of Fair Trading, OFT) hefur lýst því yfir að ákveðin einkenni breska matvælamark- aðarins gæfu tilefni til aðgerða og benti á nokkur atriði sem hugsanlega hefðu samkeppnis- hamlandi áhrif. Skipulagsregl- ur sem takmarka fjölda versl- ana á mörgum svæðum gera nýjum verslunum erfitt fyrir að opna, en á sama tíma hefðu stóru keðjurnar úr miklu land- flæmi að moða. Þetta, ásamt öðru, styrkti stöðu stóru keðj- anna á kostnað heilbrigðrar samkeppni. Verslana- keðjur í Bretlandi undir smásjá 14 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI - . /0        , , 12 3 456      , , 757  896   , , 896 :;' -     , , <736 4#= >#       , ,                     %& ' ()  ) 5?$& *# @ ;'! 5' ? ;'! 5$# *# @ ;'! A& *# @ ;'! 4+B ;'! 1C *# @ ;'! 1+ *# @ ;'!   ;'! : @D+ A ;'! :+  ;'! C    ;'! 9  ;'! 9#? 1;# ;'! $  EA F 1F'! ;'! G  ;'! *   + 5&# *# @ ;'! 1    ;'! A *  ;'! @ ;'!  <?  ? *# @ ;'! -H;  ;'! 0I1 5$$? 0 $#  2J+++$ ;'! ( $ ;'! , - "%% 1   3J' ;'!  F$ 'K+    &'! " .  / <73L $ &!&        E   E  E   E E E E E   A J$+ 'F 'J &!&  E E  E E E E E E E E  E E E E E E E E E E M ,N M E ,N M ,N M E,N M E,N M ,N E M E,N E E M E  ,N E M ,N M E,N M ,N M  ,N E M  ,N E E E E E E E E M E,N  &@$ + 2#  # + : @  !! ! ! ! !  ! !  ! ! ! !  ! ! ! E ! ! ! ! E ! E !  ! ! E E E !                                     (@$  DB! ! 52 ! O 5$; + $ 1  &@$       E   E E   E E E ÖLLUM starfsmönnum Íslands- banka, jafnt hér á landi sem erlend- is, alls um 1.200 að tölu, hefur verið boðið til samkomu í Háskólabíói síðdegis á morgun. Samkvæmt upp- lýsingum blaðsins verða breytingar boðaðar á ímynd og skipulagi bank- ans en talsmaður bankans harðneit- aði þeim orðrómi að fundurinn tengdist breyttu eignarhaldi. Aðrar upplýsingar fengust ekki frá bank- anum. Vegfarendur veittu því athygli í gær að merki bankans hafði verið fjarlægt utan af höfuðstöðvum Ís- landsbanka við Kirkjusand og af mörgum útibúum. Af því má ráða að hið minnsta eigi að skipta um merki. Starfsmenn Íslands- banka boð- aðir á fund Merki bankans fjarlægð utan af byggingum ● VÖRUINNFLUTNINGUR nam 22 milljörðum króna í febrúar, sem er um 3,5 milljörðum minna en inn- flutningur síðasta mánaðar. Kemur þetta fram í vefriti fjármálaráðu- neytisins, en niðurstöðurnar eru byggðar á bráðabirgðatölum á inn- heimtu virðisaukaskatts. Reynast bráðabirgðatölurnar réttar hefur staðvirtur vöruinnflutn- ingur aukist um 23% síðustu tólf mánuði en um 32% ef horft er til 12 mánaða breytingar ársfjórð- ungsmeðaltals. Meginskýringin á minni innflutningi frá fyrri mánuði er sagður minni innflutningur á eldsneyti en slíkur innflutningur sveiflast jafnan mikið milli mán- aða. Í fréttabréfinu segir að athygli veki að bílainnflutningur tekur kipp upp á við á ný. Mánaðarlegur innflutningur fólksbíla hefur verið mikill en stöðugur síðustu mánuði en eykst nokkuð í febrúarmánuði. Í ljósi gengislækkana síðustu vikna megi þó gera ráð fyrir að eitthvað fari að slá á mikinn bílainnflutning á næstunni. Flutt inn fyrir 22 milljarða í febrúar FYRIRTÆKINU Stjörnu-Odda, sem þróar og framleiðir mælitæki sem hægt er að setja á fiska, var í gær veitt Nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs. Verðlaunin hafa ver- ið veitt árlega frá árinu 1994, en við mat á því hvaða fyrirtæki eigi verð- launin skilin er horft til þess hvort um sé að ræða nýtt sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýskapandi tækni og hugmynd og hvort það sé kröfuhart á þekkingu. Þá er lagt mat á virðisauka afurða. Stjörnu-Oddi var stofnað árið 1985, en á árinu 2004 velti fyrirtækið 104 milljónum króna, þar sem um 90% teknanna komu erlendis frá. Starfs- menn eru í dag tólf talsins og er ráð- gert að fjölga þeim í 15 á árinu. Vörur félagsins hafa verið fluttar til 45 landa, en félagið hefur notið stuðn- ings Rannís við rannsóknir og Út- flutningsráðs við markaðsverkefni. Stjörnu-Oddi fær nýsköpunarverðlaun Morgunblaðið/Ásdís Nýsköpun Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra afhenti hjónunum Sigmari Guðbjörnssyni og Jóhönnu Ástvaldsdóttur, eigendum Stjörnu- Odda, nýsköpunarverðlaunin í gær. ● ÖSSUR hefur greint frá áætlunum um endurskipulagningu á hluta af starfsemi félagsins í Norður- Ameríku. Endurskipulagningin er þáttur í samþættingaráætlun félags- ins í kjölfar kaupanna á stuðnings- tækjafyrirtækjunum Royce Medical og Innovation Sports í Bandaríkj- unum. Í kjölfar endurskipulagningarinnar verður starfsmönnum Össurar í Norður-Ameríku fækkað um um það bil 80. Lögð er áhersla á að veita frá- farandi starfsmönnum stuðning við umbreytingarnar, meðal annars í formi faglegrar ráðgjafar um starfs- skipti. Gert er ráð fyrir að samþætting og endurskipulagning skili rekstr- arhagræði frá árinu 2007. Össur fækkar fólki í Bandaríkjunum ● HLUTABRÉF breska lággjalda- flugfélagsins easyJet lækkuðu í verði í dag. Nam lækkunin 9,75 pensum og var gengið 370 pens við lok viðskipta. Í Vegvísi Lands- bankans er vísað til fréttar frá Finsbury í dag um að bréfin hafi lækkað eftir að Merrill Lynch ráð- lagði fjárfestum að hafa varann á í viðskiptum með bréfin vegna þess að félagið væri óbeint í tengslum við bankakerfið á Íslandi, sem að sögn Merrill Lynch er viðkvæmt um þessar mundir. FL Group á um 16,5% hlut í easyJet en Landsbankinn og Kaup- þing eiga meirihluta bréfa í FL Group. Gengi easyJet lækkar HAGNAÐUR HB Granda hf. á síðasta ári nam 547 milljónum króna, en var 994 milljónir árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 1.633 milljónir króna eða 15,1% af rekstrartekjum, en var 1.548 milljónir króna árið áður. Rekstrartekjur fyrirtækisins árið 2005 námu um 10,9 milljörðum króna, samanborið við 9,3 milljarða árið áður. Í tilkynningu segir að þessi vöxtur um 16,5% skýrist einkum af tilkomu nýrra skipa í flotann. Þá hafi árangur af loðnuvertíð verið betri en árið áður og auknar tekjur fengist við vinnslu uppsjávarfisks til manneldis. Loks hafi afurðaverð í erlendri mynt hækkað. Þessir þættir hafi gert betur en að vega upp neikvæð áhrif af slæmri úthafskarfavertíð, lélegri grá- lúðuveiði og síðast en ekki síst háu gengi íslensku krónunnar. Heildarafli um 300 þús. tonn Heildareignir félagsins námu um 29,3 milljörðum króna í lok árs 2005. Í árslok nam eigið fé 10,3 millj- örðum króna og eiginfjárhlutfall var 35,2%, en það var einnig 35,2% í lok árs 2004. Heildarskuldir félagsins voru í árslok 18.971 mkr. Skipastóll HB Granda hf. samanstendur af 5 frysti- togurum, 4 ísfisktogurum, 5 uppsjávarskipum og einu uppsjávarfrystiskipi. Á árinu 2005 var heildarafli skipa félagsins 295 þúsund tonn, þar af botnfiskur 51 þúsund tonn og uppsjávarfiskur 244 þúsund tonn. HB Grandi skilar 547 milljóna hagnaði VILJI ER hjá stjórnendum Tryggingamiðstöðvarinnar til að halda áfram fjárfestingum erlendis og nýta þá þekkingu sem býr hjá þeim félögum sem fjárfest er í til að styrkja enn frekar kjarnastarf- semi Tryggingamiðstöðvarinnar. Var þetta meðal þess sem fram kom í máli Óskars Magnússonar, forstjóra TM, á aðalfundi félagsins í gær. Sagði Óskar að á síðasta ári hefði markvisst verið unnið að því að dreifa fjárfestingum félagsins og þannig dreifa áhættunni sem slíkum fjárfestingum fylgir. Þann- ig á TM 23% hlut í sænska trygg- inga- og fjármálafyrirtækinu Invik og í síðasta mánuði voru keypt 9,77% í norska tryggingafélaginu Nemi. Óskar vék að þeim halla sem varð á vátryggingarekstri fyrir- tækisins á síðasta ári, en 481 millj- ónar króna tap varð á honum. Sagði hann það öllum ljóst að það væri með öllu óviðunandi að þessi grunnstarfsemi væri rekin með tapi. „Meginmarkmið á yfirstand- andi ári er að snúa þessari þróun við og ná hagnaði af vátrygginga- starfseminni. Það er nauðsynlegt að sú starfsemi skili viðunandi arð- semi svo hagur félagsins þurfi ekki að byggjast á sveiflukenndum fjár- málamarkaði,“ sagði Óskar. Morgunblaðið/Kristinn Trygginga- miðstöðin stefnir út NOKKUÐ var fjallað um málefni íslensku krónunnar og skýrslu Merrill Lynch um íslenska fjár- málakerfið í erlendum miðlum í gær. Í grein danska blaðsins Bør- sen var skýrslunni líkt við fjár- hagslegan jarðskjálfta og hafði blaðið það eftir viðmælendum á ís- lenskum fjármálamarkaði að skýrslan væri þar kölluð „Svarta skýrslan“. Í grein norska blaðsins Dagens Næringsliv sagði að miklar fjár- festingar bankanna í útlöndum hefðu valdið áhyggjum hjá fjár- festum um það hvort bankarnir myndu geta staðið undir fjárhags- legum skuldbindingum sínum, sem margar væru til skamms tíma. Í grein á bandaríska fréttavefn- um Bloomberg um hreyfingar á gjaldeyrismarkaði var tekið fram að íslenska krónan og simbabveski dollarinn væru þeir gjaldmiðlar sem mest hefðu fallið í verði gagn- vart bandaríkjadal á árinu. Íslenska krónan lækkar mest ● HLUTABRÉF lækkuðu í verði í Kauphöll Íslands í gær. Úrvals- vísitalan lækkaði um 0,41% og var 6.271 stig við lok markaðar. Við- skipti með hlutabréf námu 13,6 millj- örðum króna, þar af 5,8 milljörðum með bréf Actavis. Bréf FL Group hækkuðu um 2,82%, bréf Granda hækkuðu um 2,3% og bréf Össurar um 0,9%. Bréf Flögu lækkuðu um 6,23%, bréf Alfesca um 2,81% og bréf Landsbankans um 2,17%. Hlutabréf lækka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.