Morgunblaðið - 10.03.2006, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 21
MINN STAÐUR
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Kárastíg 1, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Calsium eap
Kalk sem nýtist
Reykjanesbær | Sverrir Sverrisson
ehf. og Elías Georgsson hafa keypt
Miðland ehf. af Húsagerðinni hf. í
Keflavík. Liðlega 50 hektarar lands
á svonefndu Neðra-Nikkelsvæði í
Njarðvík er eina eign þessa félags.
Þar verður byggt Hlíðahverfi,
íþróttasvæði Reykjanesbæjar og
fleira.
Neðra-Nikkelsvæðið er gamalt ol-
íubirgðasvæði sem varnarliðið er
fyrir löngu hætt að nota. Því var
skilað til íslenskra stjórnvalda fyrir
nokkrum árum, að lokinni hreinsun.
Landið er miðsvæðis í Reykja-
nesbæ, á milli byggðarinnar í Kefla-
vík og Ytri-Njarðvík. Húsagerðin
eignaðist landið eftir útboð ríkisins
á því. Búið er að skipuleggja hluta
landsins fyrir íbúðahverfi sem nefnt
hefur verið Hlíðahverfi. Elías
Georgsson, annar eigandi landsins,
segir að þar verði blönduð byggð í
sérbýli og fjölbýli.
Hann segir stefnt að því að selja
lóðirnar með vorinu. Fram kemur
hjá honum að mikill áhugi er fyrir
þessum stað og telur hann að þær
muni ganga út á stuttum tíma. „Við
keyptum þetta land til að skila því
til Suðurnesjamanna á ný. Við mun-
um því reyna að úthluta sem flest-
um lóðum til einstaklinga,“ segir
Elías.
Verðmætt land
Hluti landsins fer undir Borga-
braut og veghelgunarsvæði en hún
er ný stofnbraut til Reykjanesbæjar
frá Reykjanesbraut og Reykjanes-
bær hefur tekið hluta landsins undir
framtíðaríþróttasvæði Reykjanes-
bæjar. Þá er eftir spilda sem unnt
er að úthluta sem íbúðahverfi og
loks land meðfram Reykjanesbraut
sem ekki hefur verið ráðstafað.
Hluti þess telst til helgunarsvæðis
Keflavíkurflugvallar vegna hljóð-
vistar. Elías segir líklegt að unnt
verði að taka það í notkun í framtíð-
inni, meðal annars fyrir þjónustu-
starfsemi, og vinnur hann að því.
Telur hann að þetta land og stað-
setning þess gefi mikla möguleika í
framtíðinni og geti orðið gífurlega
verðmætt.
Kaupverð landsins er ekki gefið
upp.
Gefur mikla mögu-
leika í framtíðinni
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Byggt Vonast er til að úthlutun lóða hefjist í Hlíðahverfi með vorinu.
SUÐURNES
Reykjanesbær | Nærri því 40%
þeirra sem að undanförnu hafa
fengið einbýlishúsalóðir í
Reykjanesbæ eru búsettir utan
bæjarins og hyggjast flytja
þangað. Þetta kemur fram á vef
Reykjanesbæjar.
Af þeim 223 einbýlishúsalóð-
um sem úthlutað hefur verið að
undanförnu gengu 88 til fólks
sem nú er búsett utan bæjar-
ins. Flestir þeirra koma úr
Reykjavík. Annars koma lóðar-
hafar víða að, m.a. frá Dan-
mörku, Lúxemborg, Garðabæ,
Kópavogi, Garði, Hafnarfirði,
Mosfellsbæ, Sandgerði, Vest-
mannaeyjum, Vogum, Álfta-
nesi, Bakkafirði, Blönduósi, Ár-
borg, Akureyri, Dalvík og
Neskaupstað.
40% lóðar-
hafa eru að-
komumenn