Morgunblaðið - 10.03.2006, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINN STAÐUR
AUSTURLAND
Höfn | Nú virðast fyrstu grágæsirnar vera
að koma til landsins. Á vefnum fuglar.is,
vefsvæði Félags fuglaáhugamanna á
Hornafirði, segir að á þriðjudagsmorgun
hafi 16–18 fuglar sést koma í oddaflugi úr
suðaustri yfir Höfn og fréttir frá því á
mánudag greindu frá því að 45–50 gæsir
hefðu sést fljúga út Eyjafjörð í oddaflugi.
Síðust þrjú ár hafa fyrstu gæsirnar komið
í fyrstu viku mars og er þetta því eðlilegur
tími fyrir fyrstu fuglana.
Fyrstu grágæs-
irnar að koma
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Rölt með ruslatunnu | Sumarið 2003
ferðaðist þýskur ferðalangur, Dirk West-
phal, um landið. Það væri svo sem ekki í
frásögur færandi nema vegna þess að hann
ferðaðist fótgangandi með farangurinn sinn
í ruslatunnu. Tunnuna fékk hann á Seyð-
isfirði og var hún rækilega merkt Seyð-
isfjarðarhöfn og með skjaldarmerki Seyð-
isfjarðar. Dirk er nú staddur á Seyðisfirði
ásamt kærustu sinni, Juliu Fritsche, og í
fyrradag rifjaði hann upp kynni sín af
ruslatunnunni og kynnti hana fyrir nýrri
tunnu sem hann hefur meðal annars gengið
með um Marokkó, Króatíu, Spán og Þýska-
land. Frá þessu segir á Seyðisfjarð-
arvefnum.
Egilsstaðir | Samtök sykursjúkra halda
fræðslufund fyrir sykursjúka og aðstand-
endur þeirra laugardaginn 11. mars. kl. 14, í
fundarsal Heilbrigðisstofnunar Austur-
lands (HSA) við Lagarás. Gengið er inn hjá
sjúkraþjálfun.
Allir sem hafa áhuga á að koma eru vel-
komnir, jafnt þeir sem eru sykursjúkir og
heilbrigðir.
Á fundinum verður m.a. fjallað um félagið
sjálft, blóðsykurstjórnun og sykursýki,
mataræði og boðið verður upp á ókeypis
blóðsykurmælingar.
Samtök sykursjúkra
á Egilsstöðum
Djúpivogur | „Flugstöðin á Egils-
stöðum er sprungin og ég hef falið
flugmálastjóra að kanna hvernig
koma má framkvæmdum við
stækkun hennar sem fyrst af
stað,“ sagði Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra á aðalfundi
Ferðamálasamtaka Austurlands,
sem haldinn var á Djúpavogi í
fyrradag. Sagði samgönguráð-
herra að í ljósi þess að millilanda-
flugumferð um Egilsstaðaflugvöll
hefði aukist mjög, kallaði það á
betri aðstöðu fyrir farþega, eink-
um þá sem kæmu erlendis frá. Að-
staða til vegabréfaeftirlits og toll-
skoðunar þætti jafnframt ekki
fullnægjandi. Framkvæmdir
vegna stækkunar flugstöðvar
myndu hefjast á þessu ári en ekki
ferðamannanna voru erlendir.
Gistinætur töldust 560 þúsund og
má sjá á rannsókninni að Íslend-
ingar velja fremur gistingu í
Múlasýslum en útlendingar kjósa
að gista á sunnanverðu Austur-
landi. Þá kom fram hjá Rögnvaldi
að erfitt virðist að lengja ferða-
mannatímann umfram hina hefð-
bundnu þrjá sumarmánuði.
Fundur Ferðamálasamtaka
Austurlands var vel sóttur og líta
ferðaþjónustuaðilar á svæðinu
björtum augum til framtíðar.
hefur hlotið sérstök verðlaun fyrir
góða hönnun. Rögnvaldur Guð-
mundsson hjá Rannsóknum og
ráðgjöf kynnti nýja og viðamikla
ferðamannakönnun sem gerð var
fyrir Ferðamálasamtökin á síðasta
sumri. 6.000 erlendir ferðamenn
og 1.200 Íslendingar voru þar
spurðir ýmissa gagnlegra spurn-
inga og kom m.a. fram að um 190
þúsund ferðamenn sóttu lands-
hlutann heim í fyrra og vörðu um
4 milljónum króna á svæðinu frá
Bakkafirði að Skaftafelli. 60%
væri hægt að segja til um hvenær
þeim lyki.
Flugumferð um Egilsstaðaflug-
völl hefur tvöfaldast frá árinu
2002, m.v. í fyrra og á milli 150 og
200 flugvélar lenda þar í hverjum
mánuði.
20 ára ferðamálastarf
Ferðamálasamtök Austurlands
hafa nú starfað í tuttugu ár sam-
fleytt og kom fram í máli for-
manns þeirra, Stefáns Stefánsson-
ar, að liðið ár hefði verið
sérstaklega starfssamt hjá sam-
tökunum og þau unnið að mörgum
metnaðarfullum verkefnum.
Kynntur var nýr ferðaþjónustu-
vefur fyrir Austurland, www.east.-
is, ásamt margmiðlunardiski, sem
Flugstöðin á
Egilsstöðum
verður stækkuð
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Upplýst um stækkun flugstöðvar Ferðamálasamtök Austurlands
greindu frá stöðu ferðamála í fjórðungnum á aðalfundi sínum í vikunni.
á Reyðarfirði, í húsakynnum Félagslundar.
Það hús hefur einnig farið í stranga upp-
herslu og búið að setja þar inn hallandi gólf
og bíóbekki frá gamla Laugarársbíói í
Reykjavík. Húsið verður einnig nýtt fyrir
leiksýningar og fundahöld.
Bræður og systur ehf. var upphaflega
stofnað árið 1999 og er eftir nokkur eig-
endaskipti nú í eigu Egils Guðna Jónssonar.
Auk Valhallar og Félagslundar leigir félagið
Hótel Tanga á Vopnafirði, keypti á dögunum
KK matvæli á Reyðarfirði og er nýbúið að
gera samning um rekstur á matsölu Hótels
Reyðarfjarðar.
Eskifjörður | „Menn ganga nú inn í gerbreytt
hús,“ segir Baldvin Samúelsson, fram-
kvæmdastjóri Bræðra og systra ehf., sem
opnuðu Valhöll á Eskifirði nýlega eftir gagn-
gerar endurbætur. Baldvin segir húsið orðið
hið glæsilegasta og kostnað vegna endurbóta
hlaupa á tæpum tíu milljónum. Húsið verði
rekið í sama dúr og áður, utan að pítsastaður
hættir, en í stað hans komi faglærðir kokkar
og þjónar í vinnu á góðu helgarveitingahúsi,
þar sem menn geti komið í þriggja rétta
kvöldverð og haft það huggulegt.
Bræður og systur standa í fleiri stórvirkj-
um, en nú hillir undir opnun kvikmyndahúss
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Í endurbættri Valhöll F.v. Baldvin Sam-
úelsson frkvstj., Egill Jónsson forstjóri og
Þorleifur J. Guðjónsson yfirmatreiðslumaður.
Félagsheimilin í uppherslu
Seltjarnarnes | Seltjarnarnes-
bær hefur endurnýjað samn-
ing við öryggisgæslufyrirtæk-
ið Securitas um framhald
hverfagæsluverkefnis sem
hófst í október á síðasta ári.
Verkefnið hefur að sögn Jón-
mundar Guðmarssonar, bæj-
arstjóra Seltjarnarness, mælst
mjög vel fyrir í bæjarfélaginu
og þykir ljóst að ávinningur
íbúa af því sé umtalsverður.
Meginmarkmið verkefnis-
ins, sem hófst í október á síð-
asta ári, er að sporna gegn
innbrotum og skemmdarverk-
um í bænum. „Segja má að
það hafi tekist, þar sem engin
innbrot hafa verið skráð í bæj-
arfélaginu frá upphafi hverf-
agæslunnar samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglu,“ segir
Jónmundur. „Í fjölmennri við-
horfskönnun sem gerð var
meðal Seltirninga um hverf-
agæsluna í janúar, reyndist yf-
irgnæfandi meirihluti að-
spurðra, eða 96%, fylgjandi
því að framhald verði á hverf-
agæslu.“
Hverfagæsla er hugsuð sem
stuðningur bæjarfélagsins við
störf lögreglunnar en hún felst
í því að bílar frá öryggisgæslu-
fyrirtækinu aka um hverfi
bæjarins eftir ákveðnu skipu-
lagi og líta eftir eignum bæj-
arbúa. Bílarnir eru sérmerktir
hverfagæslu og því fer ekki á
milli mála hvert erindi þeirra
er.
Hverfa-
gæsla
áfram á
NesinuSeltjarnarnes | Nemendur Brynju
Dagmarar Matthíasdóttur, stærð-
fræðikennara við Valhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi, stóðu sig svo sannarlega
eins og hetjur í stærðfræðikeppni
grunnskólanemenda sem fram fór á
dögunum. Árni Freyr Gunnarsson
bar sigur úr býtum, Tryggvi Ragn-
arsson varð í 4. sæti og Vilborg Guð-
jónsdóttir í 8. sæti af rúmlega hundr-
að 10. bekkingum frá átta
þátttökuskólum. Öll eru þau nem-
endur í sama bekk, 10. ÞHM, og
njóta leiðsagnar Brynju Dagmarar í
stærðfræðinni. Þá varð systir Vil-
borgar, Aðalheiður Guðjónsdóttir, í
4. sæti í keppninni fyrir 8. bekk.
Stærðfræðikeppni grunnskóla-
nemenda hefur verið haldin und-
anfarin fjögur ár í Menntaskólanum í
Reykjavík fyrir átta grunnskóla í
mið- og vesturbæ Reykjavíkur.
Verkefni keppninnar eru samin af
stærðfræðikennurum Flensborg-
arskólans í Hafnarfirði. Valhúsaskóli
átti 108 keppendur af þeim 288 sem
þátt tóku að þessu sinni, en mikill
áhugi var fyrir keppninni meðal nem-
enda skólans.
Áhugi og ástundun mikilvæg
Árni Freyr er 14 ára og ári á und-
an í skóla, en stærðfræðin hefur allt-
af legið vel fyrir honum. „Mér hefur
alltaf gengið mjög vel í stærðfræði,“
segir Árni, en hann hefur líka gaman
af myndmennt og ensku.
En hver er lykillinn að því að
standa sig svona vel í stærðfræðinni?
Árni segir vissulega nauðsynlegt að
fylgjast vel með í tímum og æfa sig á
dæmunum heima. „Þá er mjög mik-
ilvægt að sýna áhuga á efninu og ekki
gefa sér fyrirfram að stærðfræðin sé
leiðinleg eða erfið,“ segir Árni, sem
einnig spilar á píanó og æfir sig um
einn og hálfan til tvo tíma á dag þeg-
ar hann getur. „Við erum líka með
frábæran kennara hér, en hún heitir
Brynja Dagmar. Hún kenndi öllum
krökkunum sem stóðu sig svona vel.
Hún er mjög ströng og ákveðin í því
að nemendur standi sig vel, svo mað-
ur kann það sem hún er að kenna
mjög vel. Ég held að henni takist líka
ágætlega að vekja áhuga hjá nem-
endum.“ Brynja Dagmar er þó ekki
eini stærðfræðikennarinn í lífi Árna,
því foreldrar hans byrjuðu að kenna
honum dálitla stærðfræði þegar
hann var aðeins fjögurra ára.
Spurður hvert förinni sé heitið eft-
ir að tíunda bekk lýkur segir Árni
MH eða MR líklegast munu verða
fyrir valinu, en hann á eftir að gera
það upp við sig. Kveðst hann þá
myndu vilja fara á náttúrufræði-
braut. Hann hefur mikið velt fyrir
sér framtíðinni en er enn algerlega
óákveðinn um hvað blasir við sem
ævistarf. Hann hefur líka skoðanir á
skerðingu náms til stúdentsprófs.
„Mér finnst það persónulega ekkert
sniðugt að stytta námið til stúdents-
prófs,“ segir Árni. „Það eru minni
tækifæri til að læra, fólk lærir minna.
Svo eru þetta skemmtilegustu ár ævi
manns og ekkert gaman að stytta
þau.“
Að þessum orðum slepptum
kvaddi blaðamaður Árna, enda þurfti
hann að fara að drífa sig heim með
nýafhent viðurkenningarskjal sitt og
gera sig kláran fyrir árshátíð skól-
ans, sem fram fór í gærkvöldi, en þar
hugðist hann skemmta sér vel.
Klárir unglingar úr Valhúsaskóla stóðu sig vel í stærðfræðikeppni grunnskóla
Kennarinn góður
og strangur
Stærðfræðikempur Tryggvi, Árni, Vilborg og Aðalheiður stóðu sig með
stakri prýði í stærðfræðikeppni grunnskólanna.