Morgunblaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 23
MINNSTAÐUR
unglingageðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri og Heilsugæslustöðin á Akureyri, Skóla- og
Fjölskyldudeild bæjarins taka þátt í rekstri og
ráðgjöf vegna Skjaldar. Þær Soffía og Erla segja
að um nýjung sé að ræða hvað varðar úrræði fyrir
börn og ungmenni með geðraskanir, en aðdrag-
andi þess að til stofnunar sérdeildarinnar kom má
rekja til sívaxandi vanda langveikra barna og ung-
linga með alvarlegar geð- og þroskaraskanir, úr-
ræði fyrir þann hóp í skólakerfinu hafi verið af
skornum skammti. Áhersla er lögð á að vinna
þverfaglega og þvert á stofnanir með því að sam-
SKJÖLDUR, sem er sérdeild við Hlíðarskóla, var
formlega tekin í notkun í gær. Um er að ræða nýtt
úrræði sem ætlað er börnum og unglingum með
geðraskanir og nú á fyrsta misserinu eru tveir
nemendur við deildina. „Við leggjum mikið upp úr
því að hafa heimilislegt andrúmsloft hérna,“ segja
þær Soffía Pálmadóttir og Erla Hilmisdóttir,
kennarar í Skildi.
Skólinn er til húsa í Miðvík, á hlaðinu í Skjald-
arvík í Hörgárbyggð, skammt norðan Akureyrar.
Um áramót var lokið við viðamiklar endurbætur á
húsinu, „sem var nánast í niðurníðslu,“ segir
Soffía, en Fasteignir Akureyrar stóðu fyrir fram-
kvæmdum á húsinu sem alls er um 180 fermetrar
að stærð, á einni hæð. Þar eru m.a. fjórar skóla-
stofur, aðstaða fyrir starfsfólk, gott eldhús og
rúmgóð og björt stofa auk ganga og salerna og for-
stofu. Heildarkostnaður við endurbætur var um
10 milljónir króna.
Viðgerðum utanhúss var frestað til vors, nema
hvað þak var lagfært og settur á það þakdúkur.
Hlíðarskóli, sem er skammt ofan Skjaldarvíkur,
starfrækir þessa nýju deild, Skjöld. Í Hlíðarskóla
eru 15 drengir við nám, sem flestir eiga við hegð-
unarerfiðleika að etja. Akureyrarbær, Barna- og
þætta nauðsynlega þjónustu óháð því hver veitir
hana. Markmiðið er að skapa sérhæft og hnitmið-
að meðferðar- og kennsluúrræði þannig að nem-
endum líði vel, þeir þroskist og nái árangri í námi.
Fáir nemendur verða við nám í einu, mest fimm
talsins. Þátttaka foreldra er mikilvæg í öllu starfi
Skjaldar með barnið, enda þekkja þeir það best.
Hver nemandi hefur sinn eigin umsjónarkennara
sem kennir honum mest og heldur utan um hann
og hans mál, en dvöl nemenda er háð þörfum og
getu hvers og eins og því getur skólavistin orðið
mislöng.
Áhersla lögð á umhverfið
í öllu skólastarfinu
Úti í garði við Skjöld eru kanínur, þrjár alls í
þar til gerðu kanínuhúsi, en þær Soffía og Erla
segja að áhersla verði lögð á umhverfið í öllu
skólastarfi. „Við sjáum fyrir okkur að hægt verði
að nota sjóinn og fjöruna hér rétt framan við húsið
mikið og eins hefur það gefið nemendum mikið að
hugsa um kanínurnar. Vonandi getum við bætt við
fleiri dýrum síðar,“ segja þær og horfa þá meðal
annars til hestamennsku í því sambandi. Þá má
nefna að almenn útivist, siglingar, náttúruskoðun
og skógrækt verða fyrirferðarmikill hluti skóla-
starfsins; kenna á nemendum að veita umhverfi
sínu meiri athygli og læra af því.
Skjöldur, sérdeild við Hlíðarskóla, tekin í notkun í Skjaldarvík
Nýtt úrræði fyrir börn með
alvarlegar geðraskanir
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kennsla og kanínubúsksapur Soffía Pálma-
dóttir og Erla Hilmisdóttir, kennarar í Skildi.
AKUREYRI
Hádegistónleikar | Björn Steinar
Sólbergsson organisti heldur hádeg-
istónleika í Akureyrarkirkju á morg-
un, laugardaginn 11. mars, kl. 12.00.
Á efnisskrá tónleikanna verða verk
eftir Johann Sebastian Bach og Jeh-
an Alain.
Tónleikar | Söngfélagið Sálubót
heldur tónleika í Glerárkirkju á
laugardag, 11. mars, kl. 16. Yf-
irskrift þeirra er KEARA JAAN, en
á tónleikunum verður eingöngu flutt
tónlist eftir stjórnanda Sálubótar,
Jaan Alavere.
Fram koma auk Sálubótar Jan og
Marika Alavere, Valmar Valjaots,
Tarvo Nömm, Kaldo Kiis, Arnþór
Þorsteinsson, börn úr 6. til 8. bekk
Stórutjarnaskóla og fleiri.
Sálubót starfar í Þingeyjarsýslu,
meðlimir eru ríflega 40 talsins og
búa flestir í Þingeyjarsveit og
Fnjóskadal en nokkrir á Húsavík og
Akureyri. Söngfélagið hefur starfað
af krafti í bráðum 13 ár og lagt sitt af
mörkum til blómlegs menningarlífs
jafnt í sveitum sem þéttbýli norð-
anlands.
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505.
Opið virka daga 10-18,
laugardaga kl. 10-16.
NÝTT
Stakir jakkar, bolir, buxur og kápur
fylgir hverri
OROBLU vöru
Kaupauki
Kynningar
á n‡ju vorvörunum
frá OROBLU
Föstudag, 10. mars kl. 13-17
á Selfossi.
Föstudag, 10. mars kl. 14-18
í Keflavík.
Laugardag, 11. mars kl. 12-16
í Kringlunni.
Kynningar í Lyf og heilsu
SLIPPURINN Akureyri ehf.
hefur fest kaup á 50% hlutafjár
í DNG ehf. á Akureyri. Seljandi
er Vaki ehf. í Reykjavík og eru
kaupin gerð með fyrirvara um
áreiðanleikakönnun sem ráð-
gert er að ljúki fyrir lok mars-
mánaðar. Í kjölfarið er gert ráð
fyrir að starfsemi DNG muni
flytjast á athafnasvæði Slipps-
ins. Starfsmenn DNG eru átta.
„Það er alveg ljóst að mikil
hagræðing er af því að reka
þessi fyrirtæki með frekara
samstarfi og þessi kaup auka
möguleika DNG og Slippsins til
verkefnaöflunar á breiðari
vettvangi sem og víðtækari
þjónustu, meðal annars til
smærri báta,“ sagði Anton
Benjamínsson, framkvæmd-
stjóri Slippsins Akureyri ehf. í
samtali við Morgunblaðið í
gær.
Fyrirtækið Mustad í Noregi
á einnig 50% hlut í DNG en
norska fyrirtækið er hvað
þekktast fyrir búnað til línu-
veiða. Anton bendir á að línu-
veiðar fari vaxandi við Ísland
og því sé spennandi að tengjast
norska fyrirtækinu.
Uppistaðan í framleiðslu
DNG var lengi vel handfæra-
vindurnar frægu en á síðustu
árum hefur vægi annarrar vöru
aukist í veltu fyrirtækisins
Slippurinn
kaupir
helming
í DNG
HEILDARNIÐURSTAÐA árs-
reikninga Akureyrarbæjar fyrir ár-
ið 2005 er mun betri en fjárhags-
áætlun gerði ráð fyrir. Í frétt frá
bænum segir að fjárhagurinn sé
traustur, rekstrarniðurstaða sam-
stæðunnar jákvæð um ríflega 360
milljónir króna en áætlun hafði gert
ráð fyrir 144,2 milljóna króna hagn-
aði. Veltufé frá rekstri nemur tæp-
um 1,7 milljörðum og eignir sveitar-
félagsins eru bókfærðar á rúma 22
milljarða króna.
Ársreikningar fyrir árið 2005
voru lagðir fram í bæjarráði í gær.
Samkvæmt sveitarstjórnarlögum
skal fjalla um ársreikninginn á
tveimur fundum í sveitarstjórn og
verður hann til umfjöllunar í bæj-
arstjórn Akureyrar 21. mars og 4.
apríl nk.
Ársreikningurinn er settur fram
samkvæmt reikningsskilum sveitar-
félaga. Starfseminni er skipt upp í
tvo hluta, A-hluta annars vegar og
B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst
starfsemi sem að hluta eða öllu
leyti er fjármögnuð með skatt-
tekjum en í B-hluta eru fyrirtæki
sem að hálfu eða meirihluta eru í
eigu sveitarfélagsins og eru rekin
sem fjárhagslega sjálfstæðar ein-
ingar.
„Rekstur Akureyrarbæjar gekk
afar vel á árinu og er heildarnið-
urstaða ársins betri en fjárhags-
áætlun ársins gerði ráð fyrir og
fjárhagurinn traustur. Rekstrarnið-
urstaða samstæðunnar var jákvæð
um ríflega 360 milljónir króna en
áætlun hafði gert ráð fyrir 144,2
milljóna króna hagnaði á árinu.
Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi
nam veltufé frá rekstri 1.675 millj.
kr. og handbært fé frá rekstri
1.669,6 millj. kr. Fjárfestingar-
hreyfingar námu samtals 2.179,5
millj. kr. Fjármögnunarhreyfingar
námu samtals 523,1 millj. kr. Af-
borgun langtímalána nam 587,1
millj. kr. en ný langtímalán námu
1.393,3 millj. kr. Hækkun á hand-
bæru fé á árinu nam 13,2 millj. kr.
og nam handbært fé sveitarfé-
lagsins í árslok 1.502 millj. kr.“ seg-
ir í frétt frá bænum.
Heildarlaunagreiðslur án launa-
tengdra gjalda hjá samstæðunni
voru tæpir 4,4 milljarðar króna,
stöðugildi voru að meðaltali 1.456
og þeim fjölgaði um 36 frá fyrra
ári. Laun og launatengd gjöld sveit-
arfélagsins í hlutfalli við rekstrar-
tekjur þess voru 53,8%. Annar
rekstrarkostnaður var 31% af
rekstrartekjum. Skatttekjur sveit-
arfélagsins voru 290 þús. kr. á
hvern íbúa en tekjur samtals 608
þús. kr. á hvern íbúa. Árið 2004
voru skatttekjurnar 260 þús. kr. á
hvern íbúa og heildartekjurnar 550
þús kr.
Samkvæmt efnahagsreikningi
eru eignir sveitarfélagsins bókfærð-
ar á 22.053,5 milljónir kr., þar af
eru veltufjármunir 2.743,1 millj. kr.
Skuldir sveitarfélagsins með lífeyr-
isskuldbindingum nema samkvæmt
efnahagsreikningi 14.214,4 millj.
kr., þar af eru skammtímaskuldir
2.553,4 millj. kr. Veltufjárhlutfallið
er 1,07 í árslok, en var 1,29 árið áð-
ur. Bókfært eigið fé nemur 7.839,2
millj. kr í árlok 36,0% af heildar-
fjármagni, sama hlutfall og árið áð-
ur.
Niðurstaða ársreikninga Akureyrarbæjar um 220 milljónum
króna betri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun
Tekjuafgangur bæj-
arins 360 milljónir
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson