Morgunblaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 27 MENNING Omega 3-6-9 FRÁ H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Fjölómettaðar fitusýrur APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR SÉRKENNI listrýmis hefur óneitanlega áhrif á listaverk sem þar eru til sýnis og margt í listinni hefur þar af leiðandi þróast í átt til rýmisins þar sem listamenn vinna verk sín út frá þeim sérkennum sem hvert rými hefur. T.d. átti þýski myndlistarmaðurinn Joseph Beuys það til, þegar hann var beðinn um að vinna verk fyrir tiltekin rými eða staði, að hugsa verkið út frá þörfum staðarins eða rým- isins. Þetta er ekkert óalgeng hugsun hjá listamönnum í dag hvort sem niðurstaðan kunni að vega upp á móti sérkennum rýmisins eða fylgja þeim eftir. Hanna Christel Sigurkarlsdóttir er ung listakona sem virðist hugsa með þeim hætt- inum. Hún sýnir nú rýmisinnsetningu sem hún nefnir „Innar“ í Galleríi Dverg sem er niðurgrafið kjallararými með lágri lofthæð svo að meðalhár maður þarf að ganga hokinn í baki. Það liggur því ljóst fyrir að sérkenni rýmisins hafi undireins áhrif á sýningargesti sem heimsækja galleríið. Til að byrja með hefur Hanna smíðað lítið huggulegt rými inni í galleríinu sem vegur upp á móti hráleika „dvergsins“ og virkar eins og anddyri. Opnar dyr vísa manni svo inn í rangala meðfram anddyrinu um eilítið hráslagalegt umhverfi sem leiðir mann innar í rýmið eða þangað til maður stansar við aðrar opnar dyr sem þó eru lokaðar fyrir umgang. Maður getur bara kíkt gegn um göng og þar fyrir innan stendur manneskja hálf út úr veggtjaldi og horfir frá manni eða á hvað sem kann að vera hinum megin við tjaldið. Í fyrstu er óvíst hvort þetta sé gína eða raunveruleg manneskja, en and- ardráttur og smá hreyfingar á fingrum sann- færa mann að hér er um líf að ræða. Hugmyndin um að eitthvað sé „innar“ get- ur þýtt allmargt. Fyrir mitt leyti upplifði ég rýmið mjög líkamlega. Þannig upplifir maður reyndar rými almennt, en í innsetningu Hönnu fannst mér ég ferðast dýpra inn í lík- ama eða vitund þess og mín sjálfs um leið, líkt og John Malkovich gerði í ógleymanlegri kvikmynd Spike Jonze, Being John Malko- vich. Er sýningin virkilega vel af hendi leyst. Rýmisgreindin til fyrirmyndar og listakon- unni tekst að stækka „dverginn“ upp í óút- skýranlega stærð. Þykir mér það aðdáun- arvert hve mikið Hanna hefur lagt á sig fyrir slíka neðanjarðarsýningu sem örfáir sjá og mæli ég hiklaust með henni. Óútskýranleg stærð MYNDLIST Gallerí Dvergur Opið kl. 18–20 á laugardögum og sunnudögum. Sýningu lýkur 12. mars. Hanna Christel Sigurkarlsdóttir Innar í Galleríi Dverg. Jón B.K. Ransu TVEIR íslenskir listamenn, Anna G. Torfadóttir og Sveinbjörg Hall- grímsdóttir, taka nú þátt í sýning- unni „Grafíski genabankinn – Grafíkverkstæði Fjóns ásamt gestum“, sem stendur yfir í listasafni Jo- hannes Larsens í Kerteminde á Fjóni. Grafíkverk- stæði Fjóns hafði frum- kvæðið að sýn- ingunni sem var skipulögð í samvinnu við lista- safn Johannes Larsens og Lista- miðstöðina Silkeborg Bad, þar sem sýningin var fyrst opnuð 19. nóvember 2005. Alls sýna þarna grafíkverk sín 122 listamenn, sem allir eru félagar á Grafíkverkstæð- inu, en það heldur upp á 30 ára af- mæli sitt á þessu ári. Anna og Sveinbjörg hafa starfað í Graf- íkverkstæði Fjóns og eru þar fé- lagsmenn. Aðstandendur sýningarinnar buðu einnig fjórum víðfrægum er- lendum listamönnum verulegt sýn- ingarrými á henni. Þetta eru am- eríski popplistamaðurinn Jim Dine, Þjóðverjinn Georg Baselitz, Finninn Tuula Lehtinen og Jap- aninn Kyoko Sakamoto. Sýningunni var valið nafnið Grafíski genabankinn, því hún sýnir á margvíslegan hátt frjósem- ina á grafíska akrinum í fortíð og samtíð. Sýningunni lýkur 2. apríl. Grafíski genabank- inn á Fjóni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.