Morgunblaðið - 10.03.2006, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 10.03.2006, Qupperneq 34
Skýrsluhöfundar verðbréfafyrirtækisins Merrill Lynch telj lendis er sögð áhyggjuefni og ýmis merki um aukna spennu Þ að er í raun ekki sérstaklega erfitt að kortleggja þær vís- bendingar sem hafa má til marks um að hættur geti mögulega steðjað að í fjár- málakerfum. Miklu vandasamara er að mynda sér ígrundaða skoðun á því hvort þessar vísbendingar þýði að áhætta lán- veitenda eða eigenda skuldabréfa sé í raun að aukast. Þetta er sagt í ljósi þess að slíkt er langt í frá sjálfgefið. Engu að síður er ástæða til að tíunda nokkrar helstu vís- bendingar aukinnar spennu í fjár- málakerfum til að varpa ljósi á hvers vegna, og við fyrstu sýn, íslenskt fjár- málakerfi gæti orðið undir auknum þrýst- ingi. Mikilvægar vísbendingar þegar um spennu í fjármálakerfi eru:  Skuldsetning og útlánaaukning til heimila  Skuldsetning og útlánaaukning til fyrirtækja  Eignaverðbólga  Vöxtur erlendra skuldbindinga fjármálastofnana Að okkar mati gefa ofangreindar vís- bendingar til kynna að rauð ljós blikki fyr- ir Ísland. Hækkandi skuldir einstaklinga og heimila Þegar þróun undanfarinna ára er skoðuð má sjá mikla aukningu í skuldum heimila og einkum undanfarin þrjú ár. Bankar eru stærstu lánveitendur á þessu sviði, sem þarf ekki að koma á óvart í ljósi þess að þeir hafa haslað sér völl í húsnæðislánum. Hvernig sem horft er á, hefur vöxtur ís- lenskra eigna bankakerfisins verið undra- verður. Enginn þarf að velkjast í vafa um að útlánum hafa vaxið gífurlega á und- anförnum árum. Skv. gögnum lánshæf- ismatsfyrirtækisins Fitch námu skuldir heimila og einstaklinga 218% af vergri landsframleiðslu í árslok 2005, og höfðu tvöfaldast á þremur árum. Slík hlutföll vekja spurningar um hvort mögulegt hafi verið að verja fénu með skynsamlegum og arðsömum hætti eða auknar lántökur hafi verið notaðar til eignakaupa með með- fylgjandi hækkun á eignaverði. Eignaverðbólga Hlutabréfaverð hefur hækkað gífurlega undanfarin ár. Ákvörðun Fitch fyrir hálf- um mánuði um að breyta horfum um láns- hæfiseinkunn íslenska ríkisins í neikvæðar horfur hafði ekki mikil áhrif á hlutabréfa- verð og markaðurinn náði sér mjög fljótt aftur á strik. Eignaverðbólgu gætir einnig á fasteignamarkaði en á undanförnum ár- um hefur verið mikill uppgangur á honum sem á sér varla hliðstæðu. Skv. tölum frá Fasteignamati ríkisins hækkaði fast- eignaverð á höfuðborgarsvæðinu um 149% frá upphafi árs 1997 til febrúar 2005. Þessi mikli uppgangur kemur okkur ekki á óvart. Bankarnir hafa allir komið af mikl- um krafti inn á húsnæðislánamarkaðinn og framboð lánsfjár á hagstæðum kjörum verið yfrið. Þetta hefur kynt undir upp- ganginum á fasteignamarkaðinum. Þrátt fyrir mjög háar þjóðartekjur á mann á alþjóðlegan mælikvarða eru ís- lensk heimili verulega skuldsett. Að mati Seðlabankans námu skuldir heimilanna breytingum á t legum fjármála um má nú auglj árum hafa erlen hratt og ræður tökur bankann Útskýringar Þótt rauð ljós b ur atriði sem m og halda til hag því hvort íslens ógöngur. Vöxt skulda því samhengi a háar og að stað isins er sterk. S 192% af ráðstöfunartekjum árið 2004 og þessi staða hefur varla batnað síðan. Heimilin virðast hafa nýtt sér lægri vexti og aukna möguleika til töku lengri lána til að auka enn á skuldsetningu sína. Erlendar skuldir Mikill vöxtur erlendra skulda gæti einnig bent til útlánaþenslu sem ekki getur verið viðvarandi, þar sem slíkur vöxtur gefur vísbendingu um að lánsfjáreftirspurn sé umfram aukningu innlána. Slík þróun get- ur mögulega leitt til spennu í fjármálakerf- inu og bendir til að aðilar þurfi að reiða sig í ríkum mæli á lántökur, eins og reyndin er með íslenska banka. Þetta gerir bankana viðkvæmari en ella fyrir skyndilegum Undraverður eigna í banka Í skýrslu Merrill Lynch koma ekki hvað síst fram áhyggjur um að í íslensku banka- og fjármálakerfi séu til staðar þættir sem geti skapað kerfisbundna áhættu ef hlutir skyldu snúast til verri vegar. Hér er birt lausleg þýðing úr síðari hluta skýrslunnar um þessi efni. 34 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Á BARMI BORGARA- STYRJALDAR Sendiherra Bandaríkjanna íÍrak, Zalmay Khalilzad, segirað þar sé nú hætta á allsherjar borgarastríði, sem gæti haft alvar- legar afleiðingar fyrir heimsbyggð- ina. Sendiherrann vísar í gríska goða- fræði og segir að Bandaríkjamenn hafi opnað öskju Pandóru í Írak og nú verði að reyna að smíða brýr á milli samfélaga sjíta og súnníta. Allsherj- arstríð í Írak gæti orðið til þess að arabar í grannlöndunum snerust á sveif með súnnítum og Írakar styddu trúbræður sína, sjíta. Khalilzad átti sinn þátt í að undirbúa stefnu stjórn- ar George W. Bush Bandaríkjafor- seta gagnvart Írak og sæta orð hans því tíðindum. Hann gengur mun lengra en Donald Rumsfeld varnar- málaráðherra, sem sakar fjölmiðla um að hafa gert of mikið úr ofbeldinu, sem nú ríður yfir Írak. Að morgni 22. febrúar sprengdu hryðjuverkamenn Askariya-mosk- una í Samarra í loft upp. Moskan er helgur staður sjíta og þangað streyma pílagrímar. Í kjölfar þessa ódæðisverks fylgdu hryllilegar blóðs- úthellingar; sjálfsmorðsárásir og af- tökur. Hundruð manna hafa fallið í valinn. Yfirvöld í Írak hengdu þrettán uppreisnarmenn í gær og 16 létu lífið í sprengjutilræðum. Í fyrradag var skýrt frá því að lík 24 karlmanna hefðu fundist í Bagdad. Var hermt að þeir hefðu ýmist verið skotnir til bana eða kyrktir. Orðrómar eru á kreiki í Írak um að sjítar hafi stofnað dauðasveitir til að myrða súnníta. Upp hefur komist um leynilegt fangelsi, sem íraska innan- ríkisráðuneytið rak. Þar ráða nú sjít- ar ríkjum. Í fangelsinu voru tugir súnníta, sem grunaðir voru um að vera uppreisnarmenn, pyntaðir. Súnnítar svara fyrir sig með grimmi- legum hætti og saka sjíta um að vera hallir undir hernámslið Bandaríkja- manna. Árásin á moskuna var vitaskuld ekki upphafið að þessum vítahring hefndaraðgerða. Í tíð Saddams Huss- eins fór minnihluti súnníta með völd- in og sjítar voru hinn ofsótti meiri- hluti. En Saddam réðist einnig gegn súnnítum, sem honum voru andvígir, þegar honum þótti sér ögrað. Eftir innrás Bandaríkjamanna og fall Saddams hefur bilið á milli sjíta og súnníta hins vegar breikkað um leið og völdin hafa í auknum mæli færst yfir til hinna fyrrnefndu. Borgarastríð í Írak er síður en svo óumflýjanlegt, en það hefur verið uggvænlegt að fylgjast með því hvernig upplausnin hefur aukist jafnt og þétt í Írak án þess að hernámsliðið hafi fengið rönd við reist. Donald Rumsfeld sagði í yfirheyrslum á Bandaríkjaþingi í gær að Banda- ríkjamenn myndu treysta á íraskar öryggissveitir kæmi til þess að kæfa þyrfti niður borgarastyrjöld. Þegar Bandaríkjamenn réðust inn í Írak var vísvitandi ákveðið að þeir myndu ekki taka völdin í landinu og gæta öryggis í stað þeirra afla, sem steypt var af stóli. Það var talið óþarfi og reyndist hraparlegt vanmat á stöðunni af hálfu Rumsfelds. Er ástæða til að ætla að mat hans nú byggist á meira raunsæi? Það yrði skelfilegt ef afleið- ing þess að Saddam Hussein var steypt af stóli yrði borgarastyrjöld í Írak. VIÐHALD ÞJÓÐLEIKHÚSSINS Það er íslenzku þjóðinni tilskammar hvað það gerist oft að merkilegum byggingum er ekki nægilega vel við haldið. Það á við um Þjóðleikhúsið bæði fyrr og nú. Að vísu er ekki sama hvernig húsum er haldið við. Breytingarnar á áhorf- endasal Þjóðleikhússins fyrir all- mörgum árum voru alvarleg mistök, sem því miður verða ekki aftur tekin. Við sýnum verkum húsameistara fyrri tíma ekki nægilega virðingu. En að auki verður almennt viðhald að fara fram með reglulegum hætti á húsum í almannaeigu og á því hefur verið mikill misbrestur. Nú þarf að leggja rúmlega einn og hálfan millj- arð í viðhald á Þjóðleikhúsinu og það verður að gerast. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleik- hússtjóri hefur komið því rækilega til skila á opinberum vettvangi hversu brýn þörf er á sómasamlegu viðhaldi á Þjóðleikhúsinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði um þetta mál á Alþingi í fyrradag: „Það var farið í endurbætur á Þjóðminjasafninu, nú er það búið. Það var farið í endurbætur á Þjóð- menningarhúsinu, nú er það búið. Það er alveg ljóst í mínum huga að Þjóðleikhúsið á að vera næst í röð- inni og það þarf að gera það vel og sómasamlega.“ Þetta er rétt hjá menntamálaráð- herra. Nú þarf að gera myndarlegt átak í viðhaldi á Þjóðleikhúsinu. Þetta hús var tákn nýrra tíma fyrir rúmlega hálfri öld. Það var eitt af fyrstu táknunum um sjálfstæði þjóð- arinnar og hið unga lýðveldi. Það er ekki hægt að lýsa með orðum því andrúmi, sem ríkti í höfuðborginni og raunar um land allt, þegar Þjóð- leikhúsið var opnað. Í þessu húsi endurspeglaðist von og trú fátækrar þjóðar um betri framtíð. Þeir sem gengu um Þjóðleikhúsið í fyrsta sinn við opnun þess gleyma þeirri stund aldrei. Ísland var að verða til sem jafningi stærri þjóða. Við getum ekki verið þekkt fyrir að láta hús sem geymir slíka sögu drabbast niður. Með því erum við að sýna sögu okkar og afrekum fyrri kynslóða Íslendinga fullkomið virð- ingarleysi. Þess vegna hljótum við að ganga út frá því að Alþingi Íslendinga sinni skyldum sínum og veiti fé til viðhalds Þjóðleikhússins á þann veg að því viðhaldi verði hægt að ljúka á nokkr- um árum. TVÖ tiltölulega nýleg fordæmi eru fyrir stuðningi við banka. Annars vegar endurfjármagnaði ríkissjóður Útvegsbanka Íslands eftir að hann hafði lánað stóran hluta eigin fjár til skipafélags. Kostnaður vegna endur- fjármögnunarinnar var ekki veruleg- ur eða um 1% af þjóðarframleiðslu. Hins vegar rataði Landsbanki Íslands í nokkur vandræði í upphafi tíunda áratugarins og tapaði verulegu fé vegna lána til nokkurra fyrirtækja. Stuðningur ríkissjóðs vegna aðgerða sem gripið var til í þessu sambandi nam 0,5% af þjóðarframleiðslu. Vand- ræði Landsbankans á þessum tíma endurspegluðu almenna erfiðleika í bankakerfinu á þeim tíma þar sem vanskil lána voru mjög mikil. Aðrar aðstæður nú Við mat á íslenskum bönkum er ljóst að fordæmi eru um stuðning og er það jákvæður þáttur. Ólíku er þó saman að ja irhöfuð þörf aðrar en þe ast stuðning Eignir ba uðust á tíma meðan þjóða aðist. Hugsa fjárhagslega mörgum þát hversu miki ratað varða stöðu. Matsf við verstu a málakerfið l 15–30% af in Íslenska ríkið Merrill L muni hla þróuðus þeirri um
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.