Morgunblaðið - 10.03.2006, Page 38

Morgunblaðið - 10.03.2006, Page 38
38 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jóhanna Stef-anía Einarsdótt- ir fæddist í Reykja- vík 16. ágúst 1940. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 3. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Einar Björnsson, skrif- stofumaður, f. 21.5. 1908, d. 8.6. 1990, og Olga Ellen Lúðvígs- dóttir, húsmóðir, f. 17.12. 1914, d. 9.4. 2000. Bræður Jó- hönnu eru Björn L., f. 3.8. 1941, d. 22.6. 1992, og Þorsteinn Bjarni, f. 1.9. 1949. Hinn 26. ágúst 1961 giftist Jó- hanna Jóni Hanssyni Wíum, f. 3.3. 1938, d. 3.7. 1997. Þau slitu sam- vistir 1992. Börn þeirra eru: 1) Einar Jónsson, f. 7.12. 1962, maki Sveinhildur Vilhjálmsdóttir, dæt- ur þeirra eru Þórunn María, f. 21.11. 1990, og Valgerður Anna, f. 14.12. 1992. 2) Anna Ingigerður, f. 16.11. 1964, maki Hallgrímur Stefánsson, sonur þeirra er Stefán Fannar, f. 7.10. 2005. Jóhanna lauk prófi frá Kvenna- skólanum í Reykjavík 1957. Vet- urinn 1958–1959 var hún í lýðhá- skóla í Dölunum í Svíþjóð. Jóhanna starfaði við ýmis skrifstofu- störf á árunum 1959–1970. Starfaði hún lengst af í bréf- ritunardeild Út- vegsbanka Íslands. Árið 1972 hóf hún störf sem ritari á Rannsóknastofu í lyfjafræði og starf- aði þar þangað til henni bauðst starf við kennslu upp úr 1980. Jóhanna starfaði við kennslu í Ármúlaskóla, í Þykkvabæ, Borg- arholtsskóla og víðar, hún kenndi m.a. fötluðum börnum og í deild fyrir einhverf börn. Jóhanna var í námi samhliða starfi í kennslu- réttindum við Kennaraháskóla Ís- lands á árunum 1989–1991 og öðl- aðist þá réttindi sem framhaldsskólakennari. Síðustu árin hefur hún starfað með fötl- uðum og við umönnun á sambýl- um. Síðasta æviár sitt starfaði hún á sambýlinu Esjugrund 5. Útför Jóhönnu verður gerð frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Elsku amma mín, mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Þegar ég kom í heiminn fyrir fimm mánuðum, þá varst þú svo full eft- irvæntingar og samgladdist svo innilega með mömmu og pabba og öðrum í fjölskyldunni. Meira að segja tókstu þér ömmufæðingaror- lof eins og þú kallaðir það í tvær vikur til að hjálpa mömmu og pabba í nýju hlutverkunum. Þegar þú veiktist í janúar og þurftir að vera á spítala þá kom ég til þín, elsku amma mín, á hverjum degi, það var einmitt í einni heim- sókninni sem þú fannst fyrstu tönn- ina mína, það gladdi þig svo mikið. Það var líka gaman þegar þú dvaldir heima hjá mér og mömmu og pabba í nokkra daga á milli spít- alavistarinnar. Hér eru bænirnar sem þú fórst svo oft með fyrir mig. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Þú, Guð, sem stýrir stjarnaher og stjórnar veröldinni, í straumi lífsins stýr þú mér með sterkri hendi þinni. (Valdimar Briem.) Guð geymi þig, elsku amma mín, og takk fyrir allar yndislegu stund- irnar sem við áttum saman. Þinn Stefán Fannar (Lilli). Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Við trúum því vart að nú sé Nanný okkar farin frá okkur. Nanný sem alltaf átti næga hlýju og elsku fyrir okkur öll. Hún mundi alltaf eftir öllum afmælum og sendi gjafir handa öllum. Enginn skyldi verða útundan. Aldrei kom hún í heimsókn án þess að koma færandi hendi. Þegar við vorum börn kom hún alltaf með snúða og vínarbrauð þegar hún kom í heimsókn. Þegar við fórum að búa kom hún með ým- iss konar hluti sem vantaði í búið og ekki er hægt annað en að brosa því að hún hefur áreiðanlega gefið okk- ur fjórða hvern hlut sem við eigum í dag. Hún sat löngum stundum yfir Kristjáni og Söndru og tók þau í einkakennslu, ef einhver þurfti pössun var hún mætt og ef einhver var veikur var hún komin til að hjálpa til. Jafnvel eftir að hún veikt- ist var hún enn að vernda okkur og hugsa um að fólkinu í kringum hana liði vel. Fjölskyldan skipti Nanný miklu máli og segja má að Nanný hafi tengt ættleggina saman. Kæra Nanný frænka, við þökkum þér fyrir allan hlýhug þinn og ástúð, þökkum fyrir þann tíma sem við fengum með þér sem var ómetan- legur. Við vitum að góður Guð hefur búið um þig í faðmi sínum og mun varðveita þig um ókomin ár. Minn- ingarnar um þig munum við varð- veita alla ævi. Með ástar- og saknaðarkveðju, Sigurður Einar og fjölskylda, Baldvina Ýr og fjölskylda, Dagmar Dögg og fjölskylda, Olga Ellen og Sunneva Líf, Björgvin Þór og fjölskylda, Kristján Mar. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna, margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta vinur þó félli frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Ók. höf.) Við andlát vina og ættingja leita ýmsar áleitnar spurningar á huga manns ásamt söknuði og óteljandi minningum. Jóhanna Stefanía Einarsdóttir eða Nanný eins og hún var ávallt kölluð hefur verið hluti af lífi mínu svo lengi sem ég man. Hún var gift Jóni móðurbróður mínum og hún var mikil vinkona móður minnar sem lést fyrir tíu árum. Á þeim erf- iðu tímum reyndist Nanný mér afar vel. Þá kom svo vel í ljós hvað hún gat verið hlý og nærgætin en jafn- framt stappað í mann stálinu. Síðar áttum við eftir að verða samstarfskonur og enn betri vin- konur. Nanný var vönduð manneskja með góða nærveru. Hún hafði ein- lægan áhuga á samferðafólki sínu og lét sig varða líðan þess og vel- ferð. Hún var gjafmild með ein- dæmum og hafði yndi af því að gleðja aðra. Hún hafði þann hæfi- leika að gera jafnvel fábrotinn morgunverð að veisluborði, bara með kerti og servíettum, eða hvern- ig hún raðaði á borðið. En mest var það hún sjálf sem með nærveru sinni gerði stundina að veislustund. Nanný var glaðlynd og kunni þá list að hlæja og gleðjast með öðrum. Hún var einstaklega umtalsgóð og reyndi ávallt að leggja fólki gott til. Hún var fróð, vel lesin og hafði upplifað margt á lífsleiðinni. Hún kunni vel að segja frá þannig að það var ævinlega gaman að ræða við hana um lífið og tilveruna. Síðustu árin eftir að Nanný hætti kennslu starfaði hún við umönnun fatlaðra í búsetu. Þar komu kostir hennar vel í ljós hvort sem varðaði samskipti við íbúa eða samstarfsfólkið, þar var virðing og væntumþykja í fyrirrúmi. Það var alltaf gott að koma í vinn- una og taka við af Nanný. Ró yfir húsinu, kaffi á könnunni og vissa um notalegt spjall, smáveganesti fyrir daginn. Nanný var mikil fjölskyldumann- eskja og bar hag sinna nánustu fyrir brjósti. Hún var stolt af fólkinu sínu og fylgdist vel með þeim öllum. Hún var ávallt í góðu og nánu sambandi við börnin sín þau Önnu og Einar og uppskar eins og hún sáði í snörpum og erfiðum veikindum undanfarnar vikur. Þar vöktu þau systkinin yfir mömmu sinni dag og nótt þar til yfir lauk. Elsku Anna og Einar og fjöl- skyldur. Við Arna sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hugur okkar er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum. Ég vil með þessum orðum þakka elsku Nanný minni fyrir samveruna og alla hennar elsku og væntum- þykju í minn garð og fjölskyldu minnar í gegnum árin. Guð blessi minningu Jóhönnu Einarsdóttur. Anna Hlín Bjarnadóttir. Kær vinkona er fallin frá, alltof fljótt. Einungis sex vikum fyrir and- látið greindist Nanný með illkynja mein. Vonir stóðu til að lyfjameð- ferð myndi auka lífslíkur hennar en sú von brást. Nanný hrakaði hratt og ljóst var að hverju stefndi. Með ólíkindum var að sjá hversu vel Nanný tókst að halda sínu sérkenni allt til enda, þ.e. jákvæðninni sem ávallt fylgdi henni. Hún var með eindæmum jákvæð og bjartsýn kona að eðlisfari. Hún hló mikið og innilega og það fylgdi henni hress- andi andblær sem auðvelt var að hrífast með. Ég kynntist Nanný fyr- ir rúmlega 23 árum. Við Anna dóttir hennar kynntumst í Versló, urðum nánar og góðar vinkonur og erum enn. Það var sannkölluð gæfa að kynnast Önnu, því ekki einungis eignaðist ég trausta og góða vin- konu heldur tengdist ég fjölskyldu hennar líka. Það var frábært að kynnast Nanný, Jóni, Einar og Önnu. Mér stóðu allar dyr opnar hjá þessari elskulegu fjölskyldu og aldr- ei hefur borið skugga á þessa dýr- mætu vináttu. Þær voru ófáar stundirnar í Bólstaðarhlíðinni sem JÓHANNA STEFANÍA EINARSDÓTTIR ✝ Klemenz Hall-dórsson fæddist á Dýrastöðum 12. apríl 1953. Hann lést á heimili sínu föstudaginn 3. mars síðastliðinn. For- eldrar hans voru Halldór Klemenz- son, f. 9.10. 1910, d. 21.12. 1999, bóndi á Dýrastöðum, og kona hans Áslaug Þorsteinsdóttir, f. 12.2. 1919, d. 28.11. 1995. Bræður Klem- enzar, sammæðra, eru Þorsteinn, f. 22.9. 1938, og Sigurjón Gunnar, f. 10.4. 1940, Guðbergssynir. Al- systkini eru Kristín, f. 6.5. 1948, d. 2.9. 1998, Haukur, f. 26.9. 1950, Guðrún, f. 5.11. 1955, d. 20.5. 1956, og Guðrún, f. 19.7. 1958. Árið 1979 kvæntist Klemenz Ragnheiði Stein- unni Hjörleifsdóttur frá Heggsstöðum, f. 7.6. 1957. Foreldrar hennar eru Magnús Hjörleifur Guð- mundsson, f. 20.3. 1925, d. 7.8. 2004, og Guðrún Jómunds- dóttir, f. 14.3. 1933. Þau eignuðust tvo syni. Þeir eru: Hlyn- ur, f. 19.12. 1983, unnusta hans er Anja Mager, f. 3.8. 1983, og Heimir, f. 7.7. 1991. Klemenz varð búfræðingur frá Hvanneyri árið 1974 og 1976 tók hann við búskap á Dýrastöðum, sem hann stundaði til æviloka. Útför Klemenzar verður gerð frá Borgarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Traustum og tryggum frænda er af alhug þökkuð samfylgdin í gegnum lífið. Hann hvíli í friði. Áslaug Lind og fjölskylda. Jæja, Klemenz, þá er komið að kveðjustund. Hún kemur svo miklu fyrr heldur en ég átti von á. Maður stendur hjá orðlaus yfir því hvernig lífið getur stundum verið óskiljanlegt og ósanngjarnt. Hvernig stendur á þessu að þú, maður í blóma lífsins, skulir vera kallaður burt? Það er fátt um svör. Það eru ekki margar dagar síðan að við töluðumst við í síma. Þá rædd- um við um veikindi þín, en það hvarfl- aði ekki að mér hversu veikur þú varst, ég gerði mér ekki grein fyrir því. Við Sigrún komum í heimsókn að Dýrastöðum í síðasta mánuði. Þá var margt spjallað yfir kaffibolla og rifj- aðar upp gamlar stundir. Við kvödd- umst og það var síðasta handtak okk- ar, ótrúlegt. Kynni okkar hófust mjög fljótlega eftir að ég kom sem kennari að Varmalandi. Þú varst þá við nám að heiman. Þegar þú komst heim að Dýrastöðum til að aðstoða foreldra þína við búskapinn lágu leiðir okkar saman í stjórn Ungmennafélags Staf- holtstungna. Þar voru þér falin gjald- kerastörf sem þú sinntir af kost- gæfni. Við náðum vel saman og þar tókst vinátta sem treystist með ár- unum. Margar minningar rifjast nú upp tengdar þér, allar ljúfar og góð- ar. Ég minnist stjórnarfundanna. Þegar kom að liðnum „önnur mál“ hófust gjarnan skemmtilegar um- ræður um allt mögulegt og var stund- um orðið áliðið þegar fundi var slitið og stuttur svefn hjá þér þær nætur. Það var mjög gefandi og gaman að vinna með þér að félagsmálum. Þú lagðir alltaf gott til. Sjálfur varst þú tilbúinn að leggja hönd á plóg, þó að þú byggir langt uppi í Norðurárdal og ættir misjafnlega gott með að fara að heiman. Þú gerðir fyrst kröfur til þín áður en gerðar voru kröfur til annarra. Á þig var hægt að treysta. Stundum gafst tími á þessum árum til að skreppa í helgartúra okkur til upplyftingar. Ég minnist þess að eitt sumarið hringdi ég að Dýrastöðum og lagði til að við færum í smáferða- lag. Þú tókst vel í það og vorum við helst komnir að þeirri niðurstöðu að fara á Vestfirði. Þá var gamli sveita- síminn og Sigga í Skarði kom þá inn í samtalið, okkur til leiðsagnar og sagðist hafa heyrt að það væri svo gott veður fyrir norðan. Við tókum hennar ráðgjöf og drifum okkur þess í stað norður. Hennar orð og norð- lenska sumarblíðan brást ekki þá. Þetta voru árin sem við vorum fríir og frjálsir og lífið áhyggjulítið. Síðan liðu árin. Þið Ragnheiður fellduð hugi saman og tókuð við búi foreldra þinna á Dýrastöðum. Það var þitt lán að eignast Ragnheiði. Það var gaman að fylgjast með ykkur, hversu samhent og dugleg þið voru við að byggja upp jörðina. Þar varð á mikil breyting. Nýtt íbúðarhús var reist og nýtt fjós var byggt auk þess sem farið var í jarðarbætur. Þið stækkuðuð bústofninn og voruð með kýr, kindur og hesta, en hið síðast talda var reyndar ekki þín deild. Saman rákuð þið fyrirmyndarbú sem eftir var tekið, enda lögðuð þið mikla vinnu fram og alúð við störfin. Snyrti- mennskan og velferð skepnanna var ykkar aðalsmerki. Það hefur ekki verið slæmt hlutskipti að vera kýr í fjósi á Dýrastöðum. Það sannaðist á ykkur að sam- viskusemin kostaði að ýmsu varð að fórna. Þið gátuð alltof sjaldan tekið ykkur frí frá störfum því að búskap- urinn hafði forgang. Orlofsferðirnar urðu því fáar og stuttar miðað við kröfur í þeim efnum nú til dags. En þið settuð það ekki fyrir ykkur, það varð bara að hafa það. Þú varst alvörugefinn maður. Þú hafðir þínar skoðanir sem þú varst óhræddur að tala fyrir og á þær var hlustað. Það skapaði þér traust. Sveitungar þínir fólu þér mörg vandasöm verkefni, því vitað var að gott var að hafa þig með í áhöfn. Eitt af þínum einkennum var hjálpsemi og velvilji. Þú varst alltaf tilbúinn að létta undir með þeim sem þurftu á hjálp að halda og hafðir oftar en ekki þar frumkvæði að. Það eru margir sem eiga þér gott að gjalda. Ragnheiður, Hlynur og Heimir. Ég veit að þið eruð sterk og samhent fjölskylda. Megi algóður Guð veita ykkur styrk til að takast á við sorgina og þrek til að halda ótrauð áfram því starfi sem fram fer á Dýrastöðum. Far þú í friði, kæri vinur. Við Sig- rún þökkum þér fyrir samfylgdina. Gunnlaugur Árnason, Stykkishólmi. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega þá blómgast enn, og blómgast ævinlega þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðm.) Snjóinn er tekið að leysa, sólin sendir hlýja geisla sína á leifarnar af sköflunum sem tóku sér bólfestu í fjöllunum hér norður á Ströndum í vetur. Allt vitnar um að vorið sé í nánd en Klemenz vinur minn mun ekki líta vorið með okkur. Hann hefur haldið í aðra og lengri ferð sem bíður okkar allra. Í annað skipti á nokkrum vikum kveður skólabróðir og jafn- aldri. KLEMENZ HALLDÓRSSON Elsku Nanný. Þú hefur kvatt þetta líf allt of fljótt. Ég þakka fyrir samfylgdina í gegnum 53 ár, fyrst sem skólasystir og síðan vinkona. Sendi börnum þínum og fjöl- skyldu mínar innilegustu samúðarkveðjur. Þín vinkona Guðrún Aðalsteins- dóttir (Dúna). HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.