Morgunblaðið - 10.03.2006, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 53
FRÉTTIR
KB banki hefur gefið Umhyggju,
félagi til stuðnings langveikum
börnum, 200 eintök af kennslu-
forritinu Stærðfræðisnillingarnir –
Tívolítölur. Um er að ræða nýjan
tölvuleik á geisladiski þar sem
Lúlli ljón og fleiri teiknimynda-
persónur leiða börn frá 5 ára aldri
í gegnum grundvallarþætti stærð-
fræðinnar. Umhyggja mun dreifa
diskunum til barna sem tengjast
félaginu og geta nýtt sér þessa
leið til náms og dægrastyttingar í
senn.
Á myndinni má sjá Friðrik S.
Halldórsson, framkvæmdastjóra
viðskiptabankasviðs KB banka, af-
henda Rögnu K. Marinósdóttur,
framkvæmdastjóra Umhyggju,
gjöfina.
Með á myndinni eru Valdís Guð-
laugsdóttir frá markaðsdeild KB
banka og Ágúst Hrafnkelsson, for-
maður Umhyggju.
Gaf Umhyggju kennsluforrit fyrir börn
FORMENN og starfandi formenn
allra þingflokka á Alþingi hafa sam-
eiginlega sent frá sér yfirlýsingu í
tilefni af fréttaumfjöllun um utan-
ferðir alþingismanna.
„Alþjóðlegt samstarf er hluti af
starfi alþingismanna. Gert er ráð
fyrir slíku samstarfi í þingsköpum
Alþingis og til þess er veitt fé á fjár-
lögum. Fari þingmaður á fundi er-
lendis ber honum að tilkynna um
fjarvist sína til skrifstofu Alþingis og
liggur fjarvistaskrá frammi á hverj-
um þingfundi.
Fjarvistaskráning hefur ekki
áhrif á launagreiðslur til þingmanna.
Ef fjarvist vegna funda erlendis
er á vegum Alþingis og nær yfir
fimm þingfundadaga eða lengur get-
ur alþingismaður tekið inn vara-
mann en haldið óskertum launum á
meðan. Varamaður situr skemmst
tvær vikur á Alþingi. Þegar þing-
menn taka þátt skemmri fundum,
eða fundum sem eru ekki á vegum
þingsins, skrá þeir sig hins vegar
með fjarvist eins og gildir um fjar-
vistir þingmanna vegna fundahalda í
kjördæmi eða annars staðar hér á
landi.“
Undir yfirlýsinguna skrifa Guð-
laugur Þór Þórðarson, starf. for-
maður þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins, Margrét Frímannsdóttir,
formaður þingflokks Samfylkingar-
innar, Magnús Stefánsson, starf.
formaður þingflokks Framsóknar-
flokksins, Ögmundur Jónasson, for-
maður þingflokks Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs, Magnús
Þór Hafsteinsson, formaður þing-
flokks Frjálslynda flokksins.
Yfirlýsing frá formönnum þingflokka
Fjarvist hefur ekki
áhrif á launagreiðslur
Í DAG kl. 14–17.30 verður haldin
ráðstefna á Hótel Nordica á vegum
Fuglaverndarfélags Íslands, Hætta-
hópsins, Náttúruvaktarinnar og
Náttúruverndarsamtaka Íslands,
um atvinnu og umhverfi, undir heit-
inu Orkulindin Ísland: Náttúra,
mannauður og hugvit. Í frétta-
tilkynningu segir að náttúruvernd-
arsamtökum sé gjarnan legið á hálsi
fyrir að berjast á móti stóriðjustefnu
en benda ekki á aðrar leiðir í at-
vinnumálum – þessi ráðstefna sé lið-
ur í að gera einmitt það.
„Við teljum að hægt sé að byggja
hagvöxt og velsæld á Íslandi án þess
að valda óafturkræfum spjöllum á
náttúru Íslands, og teljum jafnframt
að Íslendingar eigi mikla möguleika
á sviði vísinda og tækni í þekkingar-,
afþreyingar- og hátækniiðnaði, auk
ferðaþjónustu og menntunar, með
áherslu á nýsköpun á öllum sviðum.
Ekki má heldur gleyma úrvinnslu
gæðahráefnis í sjávarútvegi og land-
búnaði. Reynsla undanfarinna ára
hefur sýnt hversu miklir möguleikar
eru á þessum sviðum en því miður
virðast stjórnvöld ætla að setja þeim
óyfirstíganlegar skorður með ein-
stefnu sinni og áherslum á þunga-
iðnað,“ segir í fréttatilkynningu.
Guðmundur Páll Ólafsson, rithöf-
undur og líffræðingur, flytur setn-
ingarávarp, en fyrirlesarar eru úr
ýmsum áttum. Í lok ráðstefnunnar
verða umræður í pallborði þar sem
fulltrúar stjórnmálaflokkanna ræða
þessi mál.
Ráðstefna náttúruverndarsamtaka
Orkulindirnar eru náttúra,
mannauður og hugvit
AÐALFUNDUR AFS verður hald-
inn á morgun, laugardaginn 11.
mars, kl. 13 í húsnæði Félags
bókagerðarmanna á Hverfisgötu
21. Eftir aðalfundinn, kl. 14.30,
munu samtökin efla til málþings
sem ber yfirskriftina „Forskot til
framtíðar“, þar sem ætlunin er
að fjalla um gildi AFS- dvalar
fyrir ungt fólk og hvernig það
nýtist bæði í námi og starfi að
hafa fengið þá reynslu að hafa
stundað nám og búið hjá erlendri
fjölskyldu í heilt ár.
Forseti alþjóðasamtaka AFS,
Tachi Casal, verður gestur mál-
þingsins og mun hann m.a. kynna
niðurstöður rannsóknar sem al-
þjóðasamtök AFS létu gera til að
kanna áhrif skiptinemadvalar á
ungt fólk. Aðrir framsögumenn á
málþinginu eru:
Runólfur Ágústsson, rektor
Viðskiptaháskólans á Bifröst,
Margrét Jónsdóttir, dósent við
Háskólann í Reykjavík og Edda
Huld Sigurðardóttir, skólastjóri
Ísaksskóla.
Ræða gildi AFS
á aðalfundi
Rangt föðurnafn
Í FRÉTT í blaðinu í gær um fund
framhaldsskólanema um styttingu
náms til stúdentsprófs var farið
rangt með föðurnafn Odds Þorra
Viðarssonar. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum.
Tripp Trapp
Í FRÉTT um dóm Héraðsdóms
Reykjaness um sölu á eftirlíkingu á
vinsælli tegund barnastóla í Morg-
unblaðinu í gær var sagt að stóllinn
héti Trip Trap. Rétt heiti stólsins er
Tripp Trapp.
LEIÐRÉTT
FJALLGÖNGUKEPPNI skáta verð-
ur um helgina, 10.–12. mars. Ung-
menni víða að taka þátt í Dróttskáta
(Ds.) göngunni, þrjátíu klukku-
stunda fjallgöngukeppnik, sem fer
fram á Hellisheiði og nærliggjandi
svæðum. „Hreysti, dáð og lúnir fæt-
ur“ eru kjörorð Ds. göngunnar.
Keppendur leysa ýmsar þrautir
samhliða fjallgöngunni. Áætlað er
að 40–50 skátar taki þátt í keppn-
inni í ár. Auk þess koma eldri skátar
og björgunarsveitarfólk að skipu-
lagningu keppninnar.
Mæting er í skíðaskála Víkings
kl. 19.00 í dag, föstudag. Keppnin
hefst á á morgun, laugardag, kl.
7.00 og stendur til kl. 14.00 á sunnu-
dag.
Fjallgöngukeppni
skáta
SKÁKMÓT fer fram í Egilshöll,
Fossaleyni 1, í Grafarvogi, í dag,
föstudaginn 10. mars. Þetta er
fyrsta grunnskólamót Miðgarðs í
skák og er ætlunin að gera skóla-
skákmótið að árvissum atburði.
Þátttakendur eru frá 7 skólum úr
Grafarvogi og Kjalarnesi. Hver
sveit er skipuð 8 einstaklingum auk
1–2 varamanna.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,
forseti Skáksambands Íslands, set-
ur mótið kl. 10. Farandbikar verður
í verðlaun auk eignabikars fyrir
þann skóla sem vinnur hvert ár og
verðlaunapeningar fyrir liðsmenn
þriggja efstu sveitanna (gull, silfur
og brons).
Grunnskólamót
Miðgarðs í skák
MENNTASKÓLINN í Kópavogi
verður með kynningu á öllum
námsbrautum skólans á morgun,
laugardaginn 11. mars, kl. 12–16.
Skólinn er móðurskóli í hótel- og
veitinganámi, ferðagreinum og
leiðsögunámi, ásamt því að vera
einn stærsti menntaskóli á landinu.
Margt verður gert til að lífga
upp á daginn. Smurbrauðsjómfrúin
Marentza mun sýna smurbrauðs-
listir, væntanlegir leiðsögumenn
bjóða upp á stutta skoðunarferð
um Kópavog, framreiðslu- og mat-
reiðslunemar sýna húsakynni og
námsleiðir og bóknámsdeildir
bjóða upp á kynningar á náms-
greinum. Nemendafélag skólans
mun taka þátt í kynningu á leik og
starfi í skólanum, segir í frétta-
tilkynningu.
Kynning á
námsbrautum MK
WALDORFSKÓLINN Sólstafir
verður öllum opinn á morgun, laug-
ardaginn 11. mars, kl. 13–15.
Kennarar og starfsfólk skólans
verða til staðar til þess að sýna
skólann og svara spurningum um
starf hans og framtíðarsýn. Skólinn
er til húsa í Hraunbergi 12 í Breið-
holti.
Opinn dagur í
Waldorfskólanum