Morgunblaðið - 10.03.2006, Síða 57

Morgunblaðið - 10.03.2006, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 57 DAGBÓK Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Tónlist Einholt 6 | Tónlistaruppákoma verður 11. mars kl. 21–22 í nýju Listgalleríi að Einholti 6. Íslensk armæða verður dubbuð upp á amerískan mæðumáta, „Mississippi style“. Hlöðver B. Jökulsson, Tómas A. Ragn- arsson og Rúnar Þ. Þórisson munu sjá um tónlistarflutning. Salurinn | Danski sellósnillingurinn Erling Blöndal Bengtsson fagnar því að 60 ár eru frá því að hann hélt sína fyrstu tónleika. Hann mun flytja fyrstu og síðustu einleiks- svítu Bachs ásamt verkum eftir Atla Heimi, tileinkuðu Erling, og danska tónskáldið Benzon. Tónleikarnir verða 11. mars kl. 16. Miðaverð 2.000/1.600 kr. Myndlist Artótek Grófarhúsi | Steinunn Helgadóttir myndlistarmaður sýnir ljósmyndir og DVD í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Sjá nánar á artotek.is. Bananananas | K-298 HH-49. K-299 HH-50. Einnota plastmál með skrýtinni brúnni skán. K-300 HH-51. Einholt 6 | „Munúðarfull“ myndlistar- og hönnunarsýning þeirra hjóna Bigga Breið- dal og Ásu Heiðar Rúnarsdóttur myndlist- arkonu. Opið kl. 16–18.45. Gallerí Fold | Sveinbjörg Hallgrímsdóttir sýnir handþrykktar tréristur í Baksalnum. Til 12. mars. Gallerí Humar eða frægð! | Sýning á veg- um Leikminjasafns Íslands um götuleikhóp- inn Svart og sykurlaust. Ljósmyndir, leik- munir, kvikmyndasýningar. Opið kl. 12–17 laugardaga, 12–19 föstudaga og 12–18 aðra virka daga. Lokað sunnudaga. Gallerí Lind | Svava K. Egilson sýnir blönd- uð verk, málverk-textíl og vatnsliti. Gallerí Sævars Karls | Hafsteinn Michael sýnir olíumálverk og teikningar til 23. mars. Opið virka daga kl. 10–18 og laug- ardaga kl. 10–16. Grafarvogskirkja | Sýning Svövu Sigríðar í Átthagahorni bókasafns Grafarvogs. Til 25. mars. Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí. Handverk og Hönnun | Sýningin „Auður Austurlands“ er opin alla virka daga á skrif- stofutíma hjá Handverki og hönnun. Hrafnista í Hafnarfirði | Sjö málarar frá Félagsmiðstöðinni Gerðubergi sýna í Menn- ingarsal til 21. mars. i8 | Tumi Magnússon sýnir til 29. apríl. Kaffi Milanó | Sigurbjörg Gyða Tracey er með myndlistarsýningu. Verkin eru olía á striga. Flestar myndirnar eru af hestum. Karólína Restaurant | Óli G. með sýn- inguna Týnda fiðrildið til loka apríl. Kling og Bang gallerí | Huginn Þór Arason og Jóhann Atli Hinriksson sýna Glory Hole og Sara Björnsdóttir sýnir Hellinn á bak við ennið. Opið er fim.–sun. kl. 14–18. Aðgangur er ókeypis. Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning. Listasafn Íslands | Gunnlaugur Blöndal - Lífsnautn og ljóðræn ásýnd og Snorri Ar- inbjarnar - Máttur litarins og spegill tímans. Ókeypis aðgangur. Kaffistofa og Safnbúð opin á opnunartíma. Helgi Þorgils Friðjónsson myndlistarmaður fjalla um nokkur verk á sýningum Gunn- laugs Blöndals og Snorra Arinbjarnar, kl. 12.10-12.40. Ókeypis aðgangur. Kaffistofan býður upp á létta rétti í hádeginu. Listasafnið á Akureyri | Spencer Tunick – Bersvæði, Halla Gunnarsdóttir – Svefnfar- ar. Safnið er opið alla daga nema mánu- daga. Nánari upplýsingar á www.listasafn.- akureyri.is. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá fæðingu málarans. Til 19. mars. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir 20 „minningastólpa“ unna á um- ferðaskilti víðsvegar í Reykjavík til 28. ágúst. Safn | Verk Roni Horn á þremur hæðum. Skúlatún 4 | Aðstandendur Skúla sýna ýmiss konar teikningar ásamt fjölda gesta- listamanna og taka sjálfir á móti gestum og leiðbeina þeim um sýninguna. Opið kl. 15– 18 á fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag. Studio 6 | Margeir „dire“ Sigurðarson sýn- ir „semi-sjálfsportrait“ í Studio 6 á Ak- ureyri og inniheldur sýningin innsetningu af þrívíddarverkum og ljósmyndir. Sýningin opnar 10. mars kl. 17–20 og stendur út mars. Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís- lenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar. Rætur rúntsins er heiti á sýningu með ljós- myndum hollenska ljósmyndarans Rob Hornstra sem stendur í Myndasal. Mynd- irnar eru afrakstur af ferðum Robs um Ís- land á sl. ári. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning Guðfinnu Ragnarsdóttur um ættfræði. Duus hús | Sýning Poppminjasafnsins frá tímabilinu 1969–1979 í máli og myndum. Opið daglega kl. 13–18.30 til 1. apríl. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Friðrik Örn sýnir ljósmyndir. Veiðisafnið - Stokkseyri | Skotveiðisafn með uppstoppuðum veiðidýrum ásamt skotvopnum og veiðitengdum munum. Op- ið alla daga kl. 11–18. Sjá nánar á hunting.is. Þjóðminjasafn Íslands | Boðið er upp á fræðslu og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Skemmtanir Cafe Catalina | Vignir Sigurþórsson úr Borgarnesi spilar og syngur. Classic Rock | Idol sýnt á stórum skjám á Classic Rock. Klúbburinn við Gullinbrú | Trúbadorararnir Halli og Kalli skemmta, frítt inn. 11. mars er dansleikur með hljómsveitinni Smack. Kringlukráin | Geirmundur Valtýsson og hljómsveit leika föstudags- og laugardags- kvöld frá kl. 23. Vélsmiðjan Akureyri | Danshljómsveit Friðjóns skemmtir föstudags- og laug- ardagskvöld. Útgáfukynning á nýjum safn- diski, 44 íslensk dans- og dægurlög með danshljómsveit Friðjóns, verður kl. 22 á laugardagskvöld. Fyrirlestrar og fundir AFS | Aðalfundur AFS verður haldin 11. mars kl. 13 í húsnæði Félags bókagerð- armanna á Hverfisgötu 21. Málþing sem ber yfirskriftina „Forskot til framtíðar“ hefst kl. 14.30 Meðal gesta verður forseti alþjóðasamtaka AFS, Tachi Casal. Kaffi Sólon | Aðalfundur Form Ísland- samtaka hönnuða verður haldinn 3 apríl nk. kl. 17, á annarri hæð á veitingastaðnum Kaffi Sólon Bankastæti. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundastörf. Friðrik V | Á næsta hádegisverðarfundi FKA mun Jón Ásgeir Hreinsson frá hönn- unarfyrirtækinu Studiobility fjalla um óhefðbundnar og hefðbundnar markaðs- aðferðir. Fundurinn er öllum opinn. Skrán- ing á fka@fka.is og í s. 570 7267. Garðabæjardeild Rauða krossins | Aðal- fundur Garðabæjardeildar Rauða krossins verður haldinn 13. mars kl. 20–22 í hús- næði deildarinnar. Almenn aðalfundarstörf og tvö fræðsluerindi verða flutt. Norræna húsið | Í tilefni af 20 ára afmæli Stofnunar Sigurðar Nordals síðar á þessu ári efnir stofnunin til málþings um menn- ingu á Íslandi og íslensk fræði í nútíð og framtíð í samvinnu við Ritið, tímarit Hug- vísindastofnunar Háskóla Íslands. Mál- þingið er í dag kl. 14–17. Frummælendur: Ása Richardsdóttir, framkvæmdastjóri Ís- lenska dansflokksins, Björn Ægir Norð- fjörð, aðjúnkt í kvikmyndafræði við HÍ, Gauti Kristmannsson, lektor í þýðingafræði við HÍ, Haraldur Bernharðsson, málfræð- ingur og stundakennari við HÍ, Haukur Ingv- arsson, bókmenntafræðingur og skáld, og Hilma Gunnarsdóttir, sagnfræðingur og rit- stjóri Kistunnar. Fundarstjóri er Úlfar Bragason, forstöðumaður Stofnunar Sig- urðar Nordals. Oddi - Félagsvísindahús HÍ | Bandaríski sagnfræðingurinn Susan Stryker flytur fyr- irlestur kl. 12–13 í fyrirlestraröð Samtak- anna ’78, Kynhneigð, menning, saga. Fréttir og tilkynningar Ferðafélagið Útivist | Jeppaferð á Eyja- fjallajökul – Mýrdalsjökul 11.–12. mars, brott- för frá Hvolsvelli kl. 10. Samtök sykursjúkra | Samtök sykursjúkra halda fræðslufund fyrir sykursjúka og að- standendur þeirra 11. mars kl. 14 í fundarsal Heilbrigðistofnunar Austurlands (HSA), Laugarási 17, Egilsstöðum. Gengið inn hjá sjúkraþjálfun. Allir velkomnir. Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Daggarvellir - Sérhæð Hafnarf. Laus strax. Glæsileg fullbúin 129 fm efri hæð í nýju fjórbýli. Eign sem mikið er lagt í. Náttúrusteinn og parket á gólfum, glæsilegar innréttingar frá Innex og vönduð tæki. Eign í al- gjörum sérflokki. Verð 29,9 millj. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Í TENGSLUM við niðurfellingu aðgangseyris að sýningum í Lista- safni Íslands verður komið til móts við safngesti með aukinni þjónustu og fræðslu. Þjónustan er miðuð við almenna gesti auk sérsniðinnar dagskrár fyrir hópa. Fyrirlestrar og erindi um afmarkað málefni, al- menn leiðsögn á sunnudögum kl. 14 og í hádeginu alla þriðjudaga eru fastir liðir í fræðsludagskránni auk sérstakra viðburða. Dag- skrárliðurinn Þankar um myndlist – spurt og spjallað er settur á dag- skrá í hádeginu á föstudögum til að gefa safngestum tækifæri til að skoða afmarkaða þætti sýninganna eða taka virkan þátt í þeirri um- ræðu sem tengist sýningum safns- ins. Í dag, föstudag, kl. 12.10–12.40 mun Helgi Þorgils Friðjónsson myndlistarmaður fjalla um nokkur verk á sýningum Snorra Ar- inbjarnar og Gunnlaugs Blöndals. Á morgun kl. 11–12 flytur Harpa Þórsdóttir listfræðingur fyrirlestur um list Gunnlaugs Blöndals. Ókeypis aðgangur – aukin fræðsla Helgi Þorgils Friðjónsson talar um verk Snorra Arinbjarnar og Gunn- laugs Blöndals í dag. SIGRÚN Harðardóttir sýnir um þessar mundir í Hafnarborg í Hafn- arfirði vídeóverk og tvö málverk. Vídeóverkið er gagnvirkt og gef- ur áhorfandanum tækifæri til þess að vera virkur þátttakandi í sköpun þess. Listaverkið er við fyrstu sýn tveir hverir á risatjaldi en er áhorf- andinn labbar nær breytast þessar tvær myndir, fyrst í fjórar og að lokum sex. Þá er áhorfandinn um- lukinn voldugri náttúru sem gefur frá sér hljóð sem hann stjórnar. Á miðju gólfi sýningarsalarins eru níu snertifletir sem virkja breyting- arnar á risatjaldinu. Áhorfandinn er tónlistarstjóri í sinfóníu náttúrunn- ar. Sigrún segir að fólk hafi tekið mjög vel í þetta en að greina hafi mátt feimni fólks við að stíga á teppið þar sem snertifletirnir eru. „Fólk hélt bara að þetta væri part- ur af verkinu og fylgdi kurteis- isreglum sem hafa loðað við listsýn- ingar frá upphafi. Þessi sýning er liður í því að brjóta niður þessa múra.“ Börnin kunnu vel við að hoppa á teppinu og sjá náttúruna breytast, að sögn Sigrúnar. Hún segir sýninguna virðast höfða til barna enda stafar áhugi hennar sjálfrar á hverum af minningum úr barnæsku. „Meðan það tíðkast er- lendis að fara með börnin í dýra- garðinn um helgar fóru íslensk börn á hverasvæði. Ég er alin upp við það að fara að heimsækja hverina.“ Listamanninum er aug- ljóslega mikilvægt að brýna fyrir fólki mikilvægi hvera í tilveru okk- ar. „Ég uppgötvaði það ekki fyrr en ég hafði búið erlendis hversu ein- stakt þetta var.“ Sýningin stendur til 27. mars, kl. 11–17, alla daga nema þriðjudaga. Myndlist | Sigrún Harðardóttir hefur alla tíð verið hugfangin af hverum Tónlistarstjóri í sinfóníu náttúrunnar Morgunblaðið/Ómar Sigrún gengur um á hverasvæðinu í Hafnarborg. Í KVÖLD halda nemendur Listaháskólans gjörningahátíð á 4. hæð Nýlistasafnsins (gengið inn frá Grettisgötu). Gjörn- ingaveðrið skellur á klukkan 20 með viðburðaríkri dagskrá þar sem gestir fá að njóta ýmissa karaktera úr hugarfylgsnum myndlistarnema. Lofað er óvenjulegri skemmtun og fjöri sem mun standa langt fram á kvöld með miklu diskó- drullumalli og sjúkum gúrkum í majonesfílingi sem hafa ýmislegt til málanna að leggja. Hitað verður upp fyrir fjörið með gerningi við Gróttuvita klukkan 18 og þaðan er gestum boðið að taka þátt í píslargöngu nútímans upp að Nýlistasafni. Brestur á með gjörningaveðri Einn listnemanna, Una Björk Sigurðardóttir, við gjörning í Kringlunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.