Morgunblaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ S túlknahljómsveitin Coco- Rosie er væntanleg hing- að til lands, en sveitin heldur tónleika á skemmtistaðnum NASA við Austurvöll miðvikudaginn 17. maí næstkomandi. Það eru syst- urnar Bianca og Sierra Casady sem mynda kjarnann í CocoRosie, en þær fá fjölda tónlistarmanna til liðs við sig á tónleikum. Systurnar, sem báðar eru fæddar í Bandaríkjunum, ólust ekki upp saman, en árið 2003 var Bianca á ferðalagi í París og ákvað að heim- sækja systur sína sem þá bjó í borg- inni. Þær höfðu ekki sést í tíu ár en þrátt fyrir það náðu þær strax mjög vel saman og hófu samstarf, en báð- ar höfðu þær fengist við tónlist frá blautu barnsbeini. Snemma árs 2004 kom fyrsta plata sveitarinnar út, La Masion de Mon Reve, og vakti hún töluverða athygli. Í kjölfarið fóru þær í tónleikaferðalag og á því ferðalagi fæddist önnur plata Coco- Rosie, Noah’s Ark, sem hlotið hefur góðar viðtökur bæði gagnrýnenda og almennings. Dansa ballett með Antony Tónleikar CocoRosie hafa vakið mikla athygli, en á þeim syngur Sierra og spilar á píanó, hörpu, gítar og flautu og Bianca syngur og sér um ásláttinn, sem felst meðal annars í því að hrista hluti, sveifla gull- keðjubelti og spila á gamlan eldhús- vask. Að sögn Biöncu mun svipað verða uppi á teningnum á tónleik- unum hér á landi, en ómögulegt sé hins vegar að spá fyrir um hverjir muni stíga á stokk ásamt þeim systr- um. „Við vitum ekki fyrr en á síðustu stundu hverjir koma fram á tónleik- unum með okkur. Við skiptum tón- listarmönnum út eftir því í hvernig skapi bæði við og þeir sjálfir eru hverju sinni,“ segir Bianca, en á meðal þekktra tónlistarmanna sem komið hafa fram með CocoRosie er Antony úr hljómsveitinni Antony and the Johnsons, sem söng meðal annars með þeim systrum í einu lagi á Noah’s Ark. Bianca segir hann hafa haft mikil áhrif á þær systur. „Hann hefur veitt okkur innblástur á marga mismunandi vegu. Okkur finnst til dæmis mjög gaman að ærslast með honum, og að dansa ballett með honum í sjónum,“ segir hún. Frá París til New York Bianca og Sierra bjuggu lengi vel saman í íbúð í París en þær búa nú í sitt hvoru lagi í New York. „Já, við bjuggum lengi saman en það er liðin tíð. Ég held að það fyrirkomulag hafi komið sér vel þegar við vorum að byrja í tónlistinni. Sköpunargleðin var í hámarki á þessum tíma og við fundum okkur vel saman. Við erum hins vegar mjög öfgakenndar, stundum langar okkur að vera mikið saman, en stundum viljum við vera í einrúmi. Þetta er stundum erfitt, en öll sambönd eru erfið á köflum,“ seg- ir Bianca, sem kann vel við sig í New York. „Hérna finnst mér ég eiga heima, þótt Sierra kunni kannski betur við sig í París. Við höfum kynnst fullt af fólki hérna og eigum góða vini, sem sumir eru miklir listamenn,“ segir hún. Í tónlistarsköpun sinni blanda systurnar saman ólíkum menningar- heimum og tónlistarstefnum, þær syngja um Jesú Krist og hafnabolta, nota dýrahljóð og leikföng, og skapa þannig fremur framsækna og ögr- andi tónlist. Þekkir lítið til Íslands Aðspurð segir Bianca einfalda skýringu á tilkomu nafnsins Coco- Rosie. „Móðir okkar kallaði okkur Coco og Rosie þegar við vorum litl- ar.“ Hún segir að engin sérstök verkaskipting sé í hljómsveitinni. „Við erum alltaf að gera mismunandi hluti. Við skiptum líka mjög oft um hlutverk þegar við erum að semja hvert lag,“ segir Bianca, sem er ekki eingöngu í tónlistinni. „Ég er líka myndlistarmaður og rithöfundur. Ég er til dæmis að fara að opna sýn- ingu í New York þar sem ég mun sýna teikningar. Ég mun þó aldrei hætta að sinna tónlistinni,“ segir Bianca, sem aldrei hefur komið til Íslands, en hún hlakkar mikið til ferðarinnar. „Ég veit því miður mjög lítið um landið, en ég hef þó kynnst nokkrum sterkum og fallegum íslenskum kon- um,“ segir hún og bætir því við að hún þekki lítið til íslenskrar tónlist- ar. „Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá hef ég ekki hlustað mikið á ís- lenska tónlist,“ segir Bianca að lok- um. Tónlist | CocoRosie á leið til landsins Framsækin og ögrandi systrasveit Móðir systranna kallaði þær Coco og Rosie og þannig kom nafn hljómsveit- arinnar til. Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is Miðasala á tónleika CocoRosie er hafin. Miðasalan er á Miði.is og fer fram í verslunum Skífunnar í Reykjavík, í verslunum BT á Ak- ureyri og á Selfossi og á event.is. Miðaverð er 3.400 kr. auk 250 kr. miðagjalds. Hefndin er á leiðinni Sýnd með íslensku tali. SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK Magnaður framtíðartryllir með skutlunni Charlize Theron. AEON FLUX kl. 6 - 8 - 10 BLÓÐBÖND kl. 6 - 8 pride & prejudice kl. 10 eee V.J.V. topp5.is eeee S.V. mbl eeee A.G. Blaðið G.E. NFS eee Ó.H.T. RÁS 2 Frá höfundi „Traffc“ Fyrir besta aukahlutverk karla George Clooney. eeee „Skemmtilegasti furðufugl ársins!" - Roger Ebert „Anthony Hopkins sýnir besta leikinn á ferlinum!" - Pete Hammond, Maxim „Stórkostleg!" - David Germain, AP Anthony Hopkins sýnir stór- leik í sínu eftirminnilegasta hlutverki til þessa í skemmtile- gustu mynd ársins. eeee Ö.J. Kvikmyndir.com eeeee Dóri Dna / Dv eeee S.v. / Mbl BESTA MYND ÁRSINS Bambi II kl. 6 Walk the line kl. 8 - 10:30 Blóðbönd kl. 8 - 10 The Chronicles of Narnia kl. 5 (400 kr tilboð á myndin The New World kl. 5.30 - 8.15 og 11 b.i. 12 ára The Worlds Fastest Indian kl. 5.30 - 8 og 10.30 Syriana kl. 5.30 - 8 og 10.30 b.i. 16 ára Blóðbönd kl. 6 - 8 og 10 Crash kl. 8 og 10.15 b.i. 16 ára Pride & Prejudice kl. 5,30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.