Morgunblaðið - 10.03.2006, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 65
H
vað segirðu gott?
Ég segi allt ljómandi, var að koma úr
gymminu og var með persónulega
bætingu í „concentration curls“ á
Preacher-bekk. Þannig ég er eld-
hress!
Hvenær varstu síðast Wig Wamaður?
Wig Wam má sápuþvo á mér afturendann.
Kanntu þjóðsönginn?
Nei, og ég fullyrði það að það kann ekki einn ein-
asti maður á landinu þennan blessaða þjóðsöng. Af-
hverju mumla allir með söngnum á landsleikjum en
síðan öskra allir þegar kemur að „Ísland þúsund
ár, ÍSLAND ÞÚÚÚÚSUND ÁÁÁÁÁÁR!“ Það er
bara vegna þess að þetta er alltof flókinn þjóð-
söngur.
Hvenær fórstu síðast til útlanda og hvert?
Ég fór til Miami og skellti mér á skemmtistaðinn
hennar Paris Hilton. Stelpan er kannski ekki að
fara að finna upp kaldan samruna en hún kann að
búa til helvíti góða skemmtistaði.
Uppáhaldsmaturinn?
Humarfyllt kjúklingabringa með rauðlauksböku
„tatin“ og „foie gras“-froðu sem hún móðir mín býr
til. Það toppar það ekkert.
Bragðbesti skyndibitinn?
Serrano er í miklu uppáhaldi þessa dagana. Burr-
ito með kjúkling, gulum baunum, miðlungssterkri
sósu og káli. Það er hollt og ekkert eðlilega gott.
Besti barinn?
Ólíver er málið í dag. En síðan er Þorpið á Patró
líka alveg hörkugóður bar.
Hvaða bók lastu síðast?
Eftir að ég var búinn að lesa Biblíu fallega fólksins,
þá miklu snilld, þá ákvað ég að glugga aðeins í ís-
lensku útgáfuna af Líkami fyrir lífið. Það voru mis-
tök því ég skildi ekki eina setningu í þessari bless-
uðu bók, það er engu líkara en að gæinn sem þýddi
hana væri þroskaheftur. En síðan sá ég mynd af
manninum sem þýddi hana, ekki nóg með það að
hann heitir Hávar þá er hann vaxinn eins og
Woody Allen. Hefur hann einhvern tímann lyft lóð-
um á ævinni? Veit Bill Phillips af þessu?
Hvaða leikrit sástu síðast?
Ég sá síðast Sjálfstætt fólk og það var þegar ég var
í MK og þurfti að fara á það. Það voru fjórir tímar
sem ég fæ ALDREI aftur.
En kvikmynd?
A Night At The Roxbury. Ég horfi á hana að með-
altali þrisvar sinnum í viku og hún verður bara
betri og betri.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Plötu? Það er 2006, ég er með Mp3. Síðasta lag sem
ég hlustaði á var „Easy Lover“ með Phil Collins.
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Þetta er erfiðasta spurning sem ég hef fengið, ég
treysti mér ekki til að svara henni. Ef ég segi
Kiss FM þá lemur Ívar Guðmunds mig. Ef ég
segi X-FM þá lemur Gunni Samloka mig. Ef ég
segi X-ið þá lemur Hafsteinn Austmann mig og ef
ég segi FM 957 þá lemja Freysi og Búi mig. Það
er ekki hægt að svara þessari spurningu.
Besti sjónvarpsþátturinn?
24, Prison Break og Kallarnir. Þetta eru svona
bestu þættirnir í dag, myndi ég segja.
Gætirðu hugsað þér að taka þátt í raunveru-
leikaþætti í sjónvarpi?
Það myndi fara soldið eftir því hvað það væri. Ef
við værum að tala um Survivor eða Fear Factor
þá væri ég á heimavelli og myndi rúlla þessu upp.
G-strengur eða venjulegar nærbuxur?
Ég er nú yfirleitt í venjulegum nærbuxum. Ég
tapaði einu sinni veðmáli og þá þurfti ég að ganga
í g-streng heilan dag. Það var ekkert sérstaklega
þægilegt og hef ég haft það í lágmarki síðan.
Helstu kostir þínir?
Ég er myndarlegur, skemmtilegur, rómantískur,
hreinskilinn, massaður og heiðarlegur. Einnig er
ég fáránlega góður rithöfundur og hæfileikaríkur
leikari.
En gallar?
Á það til að vera of rómantískur og kannski full
hreinskilinn stundum. Síðan er ég með mikla full-
komnunaráráttu.
Besta líkamsræktin?
Köld lóð í klukkutíma og 45 mínútna skokk á eft-
ir. Það er formúlan.
Hvaða ilmvatn notarðu?
Maður á nú ófá ilmvötnin en David Beckham In-
stinct er í miklu uppáhaldi þessa dagana.
Ertu með bloggsíðu?
Er ég með bloggsíðu! Það vita nú allir landsmenn
að ég er með vinsælustu bloggsíðu landsins sem
heitir kallarnir.is. Þess má geta að kallarnir.is
eru frumkvöðlar í hópbloggi.
Pantar þú þér vörur á netinu?
Ég prófaði það einu sinni. Gerði heiðarlega til-
raun og ákvað að panta Puma-skó. Það fannst
mér rosalega góð kaup þangað til að ég fékk þá.
Þá kom í ljós að þetta var Pyma-skór en ekki
Puma-skór. Kannski ekki alveg jafn góðar vörur
en ég er samt mikill Pyma-aðdáandi í dag.
Flugvöllinn burt?
Ég gæti reynt að vera meira skítsama, en ég held
mér tækist það ekki.
Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda okkar?
Ertu með rakaðan pung eða hefurðu rakað pung?Morgunblaðið/Ásdís
Massaður og
heiðarlegur
Íslenskur aðall | Gillzenegger
Gillz tapaði einu sinni
veðmáli og þurfti að
ganga í g-streng í heilan
dag.
Aðalsmaður
vikunnar er einn
þekktasti blogg-
ari landsins og
sendi nýverið frá
sér bókina Biblía
fallega fólksins.
Til viðbótar er
hann annar
tveggja
umsjónarmanna
sjónvarpsþátt-
arins Kallarnir.
Vinsælasta myndin á Íslandi í dag
... og heimsins frægasta
rannsóknarlögregla gerir allt til
þess að klúðra málinu…
Bleiki demanturinn
er horfinn...
ALLT TENGIST Á EINHVERN HÁTT
FREISTINGAR
GETA REYNST
DÝRKEYPTAR
eee
H.J. Mbl.
eee
V.J.V.Topp5.is
eee
S.K. DV
SEXÍ, STÓRHÆTTULEG OG
ÓSTÖÐVANDI
eee
V.J.V. Topp5.is
eee
S.V. MBL
*****
L.I.B. Topp5.is
****
Ó.Ö. DV
****
kvikmyndir.is
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
AEON FLUX kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára.
AEON FLUX VIP kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10
SYRIANA kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 16 ára.
BLÓÐBÖND kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
CASANOVA kl. 5:50 - 8 - 10:20
NORTH COUNTRY kl. 6:30 B.i. 12 ára.
MUNICH kl. 9 B.i. 16 ára.
BAMBI 2 M/- Ísl tal kl. 4
Litli Kjúllin M/- Ísl tal kl. 4
OLIVER TWIST kl. 4 B.i. 12 ára.
Frá höfundi „Traffc“
Framúrskarandi samsæris-
tryllir þar sem George
Clooney sýnir magnaðan leik.
eee
V.J.V. topp5.is
eeee
A.G. Blaðið
eeee
S.V. mbl
G.E. NFS
eee
Ó.H.T. RÁS 2
KEVIN
KLINE
STEVE
MARTIN
JEAN
RENO
BEYONCÉ KNOWLES
A.G. / Blaðið
eeeee
Dóri Dna / Dv
eeee
Ö.J. Kvikmyndir.com
eeee
V.J.V. Topp5.is
eeee
S.v. / Mbl
Fyrir besta aukahlutverk karla
George Clooney.
na)
THE NEW WORLD kl. 5 - 8 - 10:10 B.i. 12.ára.
THE PINK PANTHER kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
UNDERWORLD 2 kl. 10:45 B.i. 16 ára.
DERAILED kl. 8 B.i. 16 ára.
BAMBI 2 M/- Ísl tal. kl. 4 - 6