Morgunblaðið - 24.03.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.03.2006, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NÍU manns starfa hjá Fæðingaror- lofssjóði í Reykjavík og ætlar enginn þeirra að flytjast búferlum er starf- semi sjóðsins verður flutt í Húna- vatnssýslur, að sögn Hallveigar Thordarson, deildarstjóra fæðingar- orlofsdeildar hjá Tryggingastofnun ríkisins. „Auðvitað eru starfsmenn ósáttir þegar störfin eru tekin frá þeim,“ segir hún innt eftir því hvern- ig þessi flutningur leggist í starfs- menn. Starfsmönnum var tilkynnt í upp- hafi þessa árs að starfsemin yrði flutt til Húnavatnssýslna í byrjun næsta árs. Ákvörðunin var tekin af þáver- andi félagsmálaráðherra, Árna Magnússyni. Fæðingarorlofssjóður hefur hingað til verið í vörslu Trygg- ingastofnunar ríkisins (TR) og hefur starfsemin verið í húsakynnum TR í Reykjavík. Vinnumálastofnun tekur hins vegar við vörslu sjóðsins þegar starfsemin verður flutt og er undir- búningur breytinganna á hendi þeirr- ar stofnunar en í góðri samvinnu við TR, að því er fram kom í máli Jóns Kristjánssonar félagsmálaráðherra á Alþingi í fyrradag. „Fyrir liggur að Tryggingastofnun mun sinna verk- efninu á grundvelli gildandi þjón- ustusamnings út árið 2006,“ upplýsti ráðherra ennfremur á Alþingi. Miðað er við að starfsemi sjóðsins verði komin til Húnavatnssýslna í byrjun janúar 2007. Nákvæm staðsetning hefur ekki enn verið ákveðin. Hallveig segir að af níu starfs- mönnum sjóðsins séu fimm háskóla- menntaðir. Starfsemi sjóðsins sé nokkuð sérhæfð. Hún segir að allt verði gert til að reyna að koma starfs- mönnunum í önnur störf hjá TR. Tveir hafi reyndar þegar fengið aðra vinnu og láti þeir af störfum hjá sjóðnum hinn 1. maí nk. Það þýði að ráða verði tvo í þeirra stað tímabund- ið út árið. Búast megi við að fleiri láti af störfum hjá sjóðnum þegar líða taki á sumarið og að ráða verði aðra tímabundið í þeirra stað þar til starf- semin verður flutt. Hallveig segir að þessar breyting- ar auki á álag starfsmanna sjóðsins. Hún bendir einnig á, í því sambandi, að þjálfa þurfi nýja starfsmenn sem taka eigi við starfseminni. Um tólf þúsund launamiðar sendir út á ári Fæðingarorlofssjóður annast greiðslur til foreldra sem eiga rétt til greiðslu í fæðingarorlofi. Lög um for- eldra -og fæðingarorlof, og þar með starfsemi sjóðsins, tóku gildi 1. jan- úar 2001. Sjóðurinn heyrir undir fé- lagsmálaráðherra. Hallveig segir að um fjögur til fimm þúsund börn fæðist á ári hverju og að umsóknir til sjóðsins séu í sam- ræmi við það. „Við sendum út í kring- um tólf þúsund launamiða á ári hverju.“ Hún segir að ekki sé hægt að sækja um greiðslur úr sjóðnum með rafrænum hætti. Flestir skili inn um- sóknum til þjónustumiðstöðvar TR í Reykjavík, umboða TR hjá sýslu- mönnum víða um land eða með pósti. Félagsmálaráðherra sagði á Al- þingi í fyrradag að stefnt væri að því að átta svæðisvinnumiðlanir í öllum landsfjórðungum, þ.á m. vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins, veittu eftir breytingarnar ráðgjöf og þjónustu vegna fæðingarorlofsgreiðslna. Út- reikningar myndu þó fara fram á ein- um stað. „Þjónustan verður bætt frá því sem nú er, að minnsta kosti að þessu leyti,“ sagði ráðherra. „Það getur vel komið til greina að í Reykja- vík verði t.d. sérfræðingateymi auk þess sem fjölmargir starfsmenn munu veita þjónusturáðgjöf í hverj- um landshluta fyrir sig. Reynslan hefur sýnt að mjög margir foreldrar leita í dag til Tryggingastofnunar rík- isins vegna foreldra- og fæðingaror- lofsgreiðslna með því að senda tölvu- póst eða hringja. Ef svo er breytir engu hvar á landinu fólk er statt. Raf- ræn stjórnsýsla eykst ár frá ári og er það vel. Það er mjög æskilegt fyrir al- menning að geta leitað eftir þjónustu hins opinbera án þess að þurfa að taka sér frí frá vinnu eða skóla til að heimsækja tilteknar stofnanir og eyða í það bæði tíma og peningum.“ Enn liggja ekki fyrir endanlegar ákvarðanir um fjölda starfsmanna sjóðsins fyrir norðan. Kostnaður vegna breytinganna liggur heldur ekki fyrir, að sögn Hönnu Sigríðar Gunnsteinsdóttur, skrifstofustjóra félagsmálaráðuneytisins. Níu manns starfa hjá Fæðingarorlofssjóði í Reykjavík Enginn níu starfsmanna sjóðsins flytur með norður Morgunblaðið/Ásdís Fjögur til fimm þúsund börn fæðast á ári hverju og umsóknir til Fæðingar- orlofssjóðs eru í samræmi við það. „Við sendum út í kringum tólf þúsund launamiða á ári hverju,“ segir Hallveig Thordarson deildarstjóri. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is HÆSTIRÉTTUR Íslands staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavík- ur yfir Scott McKenna Ramsay og dæmdi hann til 18 mánaða fangels- isvistar, en þar af eru 15 mánuðir skilorðsbundnir í þrjú ár, fyrir að hafa orðið manni að bana á skemmtistað í Keflavík í nóvember 2004. Hann var einnig dæmdur til að greiða foreldrum mannsins samtals 2,3 milljónir króna í skaða- og miskabætur. Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms að öllu leyti, utan þess að í dómi Hæstaréttar kemur fram að einn dagur sem Ramsay sat í gæsluvarðhaldi vegna málsins komi til frádráttar fangelsisdómin- um. Ramsay er breskur ríkisborgari en búsettur hér á landi. Játaði hann að hafa slegið Flemming Tolstrup, danskan hermann, einu hnefahöggi með þeim afleiðingum að hann lést. Hann sagðist hafa orðið reiður þeg- ar hinn látni gerðist nærgöngull við kærustu hans og því slegið hann. Segir í dómi Hæstaréttar að ekki verði hjá því litið hversu alvarlegar afleiðingar hafi hlotist af broti Ramsay og að ekki verði talið að framkoma hins látna hafi gefið nokkurt tilefni til árásarinnar. Alvarlegri afleiðingar en við var að búast Á hinn bóginn segir Hæstiréttur að ekki verði séð að Ramsay hafi beitt sérlega hættulegri aðferð við atlöguna, sem gerð hafi verið í skammvinni geðshræringu, og ljóst sé að afleiðingarnar af hnefahögg- inu hafi orðið mun alvarlegri en við mátti búast. Réttarmeinafræðingur hafi þannig borið að við hverjar 2.500 krufningar vegna áverka sem hljótast af líkamsárásum megi bú- ast við einu tilviki sem þessu. Segir ennfremur í dóminum að gögn beri það með sér að brotið hafi verið Ramsay þungbært og að hann hafi gert það sem í hans valdi hafi stað- ið til að bæta fyrir það. Dóm Hæstaréttar kváðu upp hæstaréttardómararnir Árni Kol- beinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Verjandi Ramsay var Ásgeir Jóns- son hdl., en sækjandi í málinu var Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari. Hæstiréttur staðfestir dóm Héraðs- dóms Reykjavíkur yfir Scott Ramsay 18 mánaða fangelsi fyrir að verða manni að bana Yfirlýsing frá verslunarstjórum Krónunnar MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá 12 versl- unarstjórum Krónunnar: „Vegna lesendabréfs fyrrver- andi starfsmanns Krónunnar og fjölmiðlaumfjöllunar í kjölfarið, viljum við verslunarstjórar Krón- unnar taka fram að við kapp- kostum að fara eftir kjarasamn- ingum. Við virðum lögbundin réttindi starfsmanna okkar varð- andi matar- og kaffitíma og leggj- um áherslu á góðan starfsanda. Ánægt og metnaðarfullt starfsfólk er forsenda þess að verslanirnar geti veitt viðskiptavinunum sem besta þjónustu. Alls eru 250 starfsmenn í 11 verslunum Krónunnar, þar af eru 190 í hlutastarfi. Það er metn- aðarmál okkar verslunarstjóranna að starfsfólk okkar sé vel upplýst og ánægt í starfi, en það er lyk- ilatriði í því að Krónan sé og verði raunhæfur valkostur á lág- vörumarkaði. Anna Marín Ragnarsdóttir Ástþór Jónsson Bjarni Sigurðsson Egill Pálsson Lárus Arnar Guðmundsson Margeir Steingrímsson Rakel Jónasdóttir Sandra Gunnarsdóttir Sara Rós Þórðardóttir Steingrímur Valgarðsson Sigurður Bragason Úlfur Eggertsson“ Karlmenn í meirihluta KARLMENN eru í meirihluta í flest- um nefndum á vegum ráðuneytanna og undirstofnana þess, að því er fram kemur í svari forsætisráð- herra, Halldórs Ásgrímssonar, við fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Þegar einstök ráðuneyti eru skoð- uð kemur í ljós að munurinn á milli kynjanna er hlutfallslega mestur í nefndum á vegum landbúnaðarráðu- neytisins, karlmönnum í vil. Hlutfall karla er þar samtals 88%, að því er fram kemur í svarinu. Félagsmála- ráðuneytið er hins vegar eina ráðu- neytið þar sem konur eru samtals hlutfallslega fleiri í nefndum, en þar er hlutfallið 55% konum í vil. Hlutfall karla í nefndum á vegum samgönguráðuneytisins er samtals 81%, hlutfall karla í nefndum á veg- um sjávarútvegsráðuneytisins er samtals 80% og hlutfall karla í nefndum á vegum iðnaðar- og við- skiptaráðuneytisins er samtals 77%. Hlutfall karla í nefndum á vegum fjármálaráðuneytisins er samtals 69%, hlutfall karla í nefndum á veg- um forsætisráðuneytisins er samtals 68%, hlutfall karla í nefndum á veg- um heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins er samtals 60% og hlutfall karla í nefndum á vegum umhverfisráðuneytisins er samtals 60%. Hlutfall karla í nefndum á vegum menntamálaráðuneytisins er sam- tals 55% og hlutfall karla í nefndum á vegum dóms- og kirkjumálaráðu- neytisins er samtals 54%. Ekki voru upplýsingar um nefndir utanríkis- ráðuneytisins í svarinu. Mannréttinda- skrifstofa fær hæsta styrkinn DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur út- hlutað átta milljónum króna í styrki til verkefna á sviði mannréttinda- mála. Hæsta styrkinn hlaut Mann- réttindaskrifstofa Íslands, alls 4,6 milljónir króna, og næsthæsti styrk- ur rann til Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands, 1,5 milljónir króna. Þá fékk Félag heyrnarlausra 300 þúsund króna styrk og sömuleiðis Heimili og skóli til fræðslu og gerð- ar bæklings á ýmsum tungumálum fyrir nýja Íslendinga. Félag guðfræðinema fékk 400 þúsund krónur, Island-Panorama 500 þúsund krónur til fræðslu- og ráðgjafarverkefnis gegn útlend- ingafælni og útlendingahatri, Ung- mennafélag Íslands 300 þúsund krónur til forvarna gegn kynferð- islegu ofbeldi á börnum og Mann- réttindanefnd ELSA 100 þúsund krónur til opinna funda, fræðilegrar umræðu og samstarfs við fé- lagasamtök á vettvangi mann- réttinda. ÓTRÚLEGA vel hefur gengið að fylla lestir skips sem sigla á til Nam- ibíu fullhlöðnu af varningi fyrir kon- ur og börn. Segir María Kristjáns- dóttir, sem stendur fyrir söfnuninni ásamt dóttur sinni, að líklega sé skip- ið að að verða fullt. Eins og sagt var frá í Morgun- blaðinu í gær er búið að kaupa skipið Hring til Namibíu, þar sem synir og fyrrverandi eiginmaður Maríu reka útgerð, og var ákveðið að nota tæki- færið og senda varning til kvenna og barna í landinu. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. „Þetta gengur ótrúlega, það eru bæði fyrirtæki og ein- staklingar sem gefa og mikið leik- skólar, en ég er sjálf leikskólakenn- ari,“ segir María. „Manni líður eins og Hróa hetti, ég á bara ekki orð.“ Hún segir að mikið hafi safnast af leikföngum og barnahúsgögnum auk þess fólk og fyrirtæki hafi gefið tals- verðan fjölda af saumavélum. María segir að varningurinn verði fyrst um sinn vistaður á tollsvæði fyr- irtækis sona sinna og fyrrverandi eiginmanns í Namibíu og ekki sé reiknað með vandamálum samfara því að flytja hann inn í landið. Hægt er að ná í Maríu í síma 664 5845. „Líður eins og Hróa hetti“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.