Morgunblaðið - 24.03.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.03.2006, Blaðsíða 28
Daglegtlíf mars „ÞAÐ sem greinir kynin fyrst og fremst að, fyrir utan líkamlega eiginleika, er mótun samfélagsins. Við fæðumst inn í þetta sam- félag og þar eru viðteknar reglur og gildi sem við lögum okkur að. Mótun samfélags- ins hefst strax frá fyrsta degi. Hún kemur fram í öllu viðmóti fólks við börn og í öllum fyrirmyndum barnanna,“ segir Sólveig Karv- elsdóttir, lektor við Kennaraháskóla Íslands. Nýlega birtist kafli eftir Sólveigu um áhrif samfélagsmótunar á hegðun kynjanna í bók- inni Kynjamyndir í skólastarfi en hún er skrifuð af átta konum, háskólakennurum, fjórum frá Háskóla Íslands og fjórum frá Kennaraháskóla Íslands. „Samfélagsmótunin ræður miklu um það að konur haga sér á annan hátt en karlar, því það hefur verið ætlast til þess frá því þær voru börn. Það er talið að samfélagsmótunin sé miklu sterkari áhrifaþáttur hvað varðar hegðun en áður var haldið. Það er gjarnan gert ráð fyrir því að vissir eiginleikar tilheyri öllum konum, bara af því þær eru konur. Það er merkilegt vegna þess að við vitum að konur hafa mis- jafna eiginleika eins og sérhver ein- staklingur.“ Eins og manngangur í skák Sólveig segir samfélagsmótunina líka hafa áhrif á karla. „Strákar mega ekki vera við- kvæmir, þeir mega helst ekki gráta og full- orðnum karlmönnum finnst erfitt að sýna til- finningar. Hins vegar er annar vandi, sem konur glíma við fremur er karlar, og það er þessi útlitskrafa sem er mjög vægðarlaus gagnvart konum og kemur harðast niður á unglingsstúlkum. Maður veltir fyrir sér hvernig þetta endar. Mér finnst sumar kon- ur hafa gengið langt, sérstaklega ungar stúlkur, í því að mæta þessari kröfu. Þessi ofuráhersla á útlitið er heftandi og tekur tíma og hugsun sem væri hægt að verja í svo miklu mikilvægari þætti. Konur hafa slitið af sér ýmsa fjötra í gegnum tíðina en setja sig í nýja fjötra þar sem eru óvægnar kröfur um útlitið. Ég er ekki að tala um að við megum ekki halda okkur til en við verð- um að losna undan öfgunum. Þessi út- litskrafa er að aukast hjá strákum líka en hún er ekki eins vægðarlaus og hjá stúlk- unum.“ Sólveig líkir hegðun kynjanna við mann- ganginn í skák þar sem við skiptumst í tvo hópa og förum eftir föstum leikreglum. „Við förum mjög stíft eftir leikreglum, varðandi útlit, klæðnað, framkomu og starfsval og yf- irleitt varðandi það sem telst vera við hæfi fyrir karl eða konu. Það er krafan að við víkjum ekki af leið og virðum „manngang- inn“. Ef karlmenn fara til dæmis að færa sig í átt til einhvers sem telst kvenlegt þá er hnýtt í þá.“ Sólveig segir kynjaskiptingu jafnvel byrja strax á meðgöngu. „Það virðast vera bundnar ákveðnar væntingar við hvort kynið, ef það er strákur þá verða ósjálfrátt aðrar vænt- ingar til hans en til stelp- unnar. Það er talað um hvað hann sé pattaralegur og skæli kröftuglega, hún er sæt prinsessa, það er strax í orðræðunni sem kynin eru skilgreind. Ungar stelpur geta leikið sér eins og strákar, þó það sé ekki endilega vel séð, en það er frekar hægt að umbera það en ef strákar eru mikið í dúkkuleik. Við virðumst hafa mikla þörf fyrir þessa aðgreiningu og þekkjum ekki annað. Við erum svo forrituð að við sjáum ekki þessa ólíku kynjamótun.“ Eiga að vera til fyrirmyndar Sólveig segir þó þróun í gangi sem ætti að draga smám saman úr kynjamuninum. „Kon- ur eru að styrkjast og það er í vaxandi mæli farið að líta á þær sem hæfar til að takast á við ýmis verkefni sem þær töldust ekki hæf- ar til áður. En það hallar enn á konur á mörgum sviðum og þetta gamla viðhorf að konur séu síður hæfar en karlar, er enn til staðar, jafnvel þó þær séu komnar með mikla menntun. Ég hef trú á því að þetta breytist en það á eftir að taka langan tíma. Það sem mér finnst kannski verst er að margar yngri konur virðast ekki átta sig á þessari mismunun og staðhæfa að fullt jafn- rétti sé komið á.“ Sólveig segir hugsanlegt að konur hiki við að taka að sér stjórn- unarstöður því krafan til þeirra sé svo mikil. „Þær þurfa að líta óaðfinnanlega út, vera helst færari en karl í sömu stöðu, gegna starfinu athugasemdalaust og vera samt fyr- irmyndarhúsmæður, eiginkonur og mæður. Það er engin tilviljun að heilsufari kvenna hrakar, það getur enginn þolað til lengdar það álag sem er á mörgum útivinnandi kon- um og konum í stjórnunarstöðum nema til komi góður stuðningur varðandi heimili og börn. Ég vona að með aukinni menntun kvenna láti þær meira til sín taka og fái tækifæri til þess, að þær hætti að vera svona hljóðar og hikandi og finni sinn innri styrk,“ segir Sólveig að lokum.  KYNIN | Fara eftir föstum leikreglum Vægðarlaus útlitskrafa fjötrar konur Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Það er engin tilviljun að heilsufari kvenna hrakar, það getur enginn þolað til lengdar það álag sem er á mörgum útivinnandi konum og konum í stjórnunarstöðum nema til komi góð- ur stuðningur varðandi heimili og börn. Morgunblaðið/Jim Smart Mótun samfélagsins hefst frá fyrsta degi. Að klæða stelpu í bleikt og strák í blátt er dæmi um það. Morgunblaðið/ÞÖK Sólveig Karvelsdóttir Bókina Kynjamyndir í skólastarfi er hægt að panta hjá Rannsóknarstofnun Kennarahá- skóla Íslands í síma 563 3827. „ÉG MAN ekki eftir að hafa tekið gríðarlegu ástfóstri við neinn ákveðinn einn hlut,“ segir Guðrún Gunnarsdóttir, söngkona og dag- skrárgerðarmaður. „En það er ein mynd sem mér þykir undur vænt um og það er mynd eftir Elías Hall- dórsson sem er pabbi Gyrðis Elías- sonar. Lítil mynd sem maðurinn minn gaf mér á 35 ára afmælinu mínu og orti mjög fallegt ljóð til mín sem ber sama nafn og myndin, Undir grænum himni. Ég á nú bara þessa einu mynd eftir Elías en myndi langa til að eignast fleiri. Það er kannski eini hluturinn sem mér þykir virkilega vænt um.“ Silfur, vesti, svunta og skotthúfa Fyrir utan kaffivélina og ýmsa aðra hluti, sem henni finnst vænt um svona dags daglega nefnir Guð- rún hluti úr upphlut, sem hún eign- aðist eftir frænku sína. „Þetta eru mjög gamlir gripir,“ segir hún. „Ég á silfrið, vesti, svuntu og skotthúfu, sem ég erfði eftir frænku mína og nöfnu en ég er skírð í höfuðið á henni og Ólafi manni hennar og heiti Guðrún Ólöf fullu nafni. Þau bjuggu að Keldu í Ísafjarðardjúpi þangað sem ég fór nánast á hverju sumri, sem barn í Djúpið með foreldrum mínum og systkinum. Þetta var yndislegt og alltaf sól. Frænka mín bjó þarna ein en Ólafur lést sama ár og ég fædd- ist þannig að ég sá hann aldrei en ég man vel eftir henni. Það var ynd- islegt að komast vestur í sveitina og ég veit ekkert fegurra en Vestfirði að sumri til í stillu og sól. Ég fer sjálf með börnin mín þangað á hverju sumri, það er engu líkt.“  HLUTUR MEÐ SÖGU | Guðrún Gunnarsdóttir og myndin góða Myndinni fylgdi fallegt ljóð Morgunblaðið/ÞÖK Guðrún Gunnarsdóttir með myndina góðu eftir Elías Halldórsson, sem hún fékk í afmælisgjöf frá manni sínum ásamt ljóði. Morgunblaðið/ÞÖK Skotthúfa, vesti, belti og svunta. krgu@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.