Morgunblaðið - 24.03.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 33
MENNING
A›alfundur Avion Group hf. ver›ur haldinn í fijó›minjasafni Íslands,
laugardaginn 1. apríl 2006 og hefst klukkan 13.00.
Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins:
1. Sk‡rsla stjórnar um sí›astli›i› starfsár.
2. Ársreikningur fyrir li›i› starfsár ásamt sk‡rslu endursko›anda lag›ur fram til sta›festingar.
3. Ákvör›un um me›fer› hagna›ar sí›astli›ins starfsárs.
4. Ákvör›un stjórnarlauna og flóknun til endursko›enda.
5. Breytingar á samflykktum.
6. Stjórnarkjör.
7. Kosning endursko›enda.
8. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum.
9. Önnur mál löglega fram borin.
Atkvæ›ase›lar og önnur fundargögn ver›a afhent á fundarsta› frá kl. 10 á fundardegi.
Frambo›sfrestur til stjórnar rennur út mánudaginn 27. mars nk., kl. 13.00.
Frambo›um skal skila skriflega til stjórnar Avion Group hf., Hlí›asmára 3, Kópavogi.
Avion Group hf., Hlí›asmára 3, Kópavogi.
A›alfundur Avion Group
w w w . a v i o n g r o u p . i s
– íslensk sókn um allan heim
Söngleikurinn um litlu hryll-ingsbúðina er einn afþessum stóru, sígildusöngleikjum sem er sýnd-
ur út um allan heim með reglulegu
millibili. Upprunalega er verkið
sprottið af kvikmynd frá sjöunda
áratugnum sem á rætur að rekja
til B-mynda kúltúrs. Sem söng-
leikur byrjaði verkið nærri Broad-
way árið 1982 og nær þar fljótlega
að vaxa og ná þeim vinsældum
sem það nýtur við enn þann dag-
inn í dag. Til Íslands kom verkið
fyrst árið 1984 þegar Hitt leik-
húsið setti það upp í Íslensku
óperunni og síðan var verkið sett
upp í Borgarleikhúsinu árið 1998.
Nú er verkið komið á fjalir Leik-
félags Akureyrar sem mun frum-
sýna þeirra uppfærslu í kvöld.
Græðgisvæðing
Verkið segir frá Baldri sem
vinnur í blómabúðinni hans Mark-
úsar. Dag einn uppgötvar hann
undarlega plöntu sem hann nefnir
Auði II í höfuðið á sinni heittelsk-
uðu. Í ljós kemur að plantan þrífst
á mannablóði og því meira sem
hún vex þeim mun meira blóð þarf
hún að fá sem skiljanlega hefur al-
varlegar afleiðingar í för með sér.
„Það er mjög skemmtilegur hrjúf-
leiki og íronía í þessum söngleik,“
segir Magnús Geir Þórðarson,
leikhússtjóri LA og jafnframt leik-
stjóri sýningarinnar. „Það er
broddur í verkinu og jafnframt
mikill húmor. Í því er deilt á
græðgisvæðinguna sem á ágætlega
við á Íslandi í dag. Verkið er um
peningahyggju, að eignast og eign-
ast meira og að allt sé falt fyrir fé.
Það er á sama tíma mikill húmor í
því hvernig sagan er skrifuð og í
persónunum. Það eru mjög litríkar
persónur og skemmtilegar, svolítið
teiknimyndalegar á köflum. Í þess-
ari uppsetningu er svolítið meira
rokk en áður hefur verið gert, við
þorum að fara út í öfgarnar og
ganga svolítið langt í hverja áttina
fyrir sig.“
Samkomuhúsið nötrar
Guðjón Davíð Karlsson, gjarnan
þekktur undir nafninu Gói, er ung-
ur leikari á uppleið. Hann fer með
eitt af aðalhlutverkunum í verkinu
sem er hlutverk Baldurs blóma-
sölumanns
„Þetta er búið að vera alveg æð-
islegt æfingatímabil,“ segir Guð-
jón. Það er búið að vera mikið
púsluspil síðustu daga að koma
öllu saman; ljósum, hljóði, dönsum,
leik og hljómsveit og öllu þessu.“
Að hans sögn verður rokkið og
rólið í algleymingi í þessari upp-
færslu. „Samkomuhúsið hérna á
Akureyri nötrar alveg á meðan
æfingum stendur.“
Þrátt fyrir að vera mikill aðdá-
andi kvikmyndarinnar Little Shop
of Horror, sem gerð var eftir
söngleiknum með Steve Martin og
Rick Moranis í aðalhlutverkum, er
Guðjón á því að þetta verk henti
mun betur leikhúsinu.
„Þetta verk er svo rosalega
mikið leikhús og það hefur verið
voðalega gaman að fylgjast með
þessum göldrum við uppfærsluna.
Maður er orðin vanur svo miklum
tæknibrellum í bíói, það er ekkert
nýtt við það. Það er alltaf gaman
að sitja í leikhúsi og vita það að
brellurnar eru ekki gerðar í tölvu,
heldur er verið að gera þær fyrir
framan nefið á manni. Mér finnst
það alltaf voðalega heillandi.
Þetta er voðalega mikil galdra-
sýning. Leikhúsið hefur vinning-
inn yfir bíóinu, að þessu sinni alla
vega.“
Galdrar leikhússins
Guðjón hrósar sérstaklega fólk-
inu á bak við mannætublómið
Auði II sem hann segir að sé ein-
staklega vel gert.
„Það eru engar fréttir að Andr-
ea Gylfadóttir (hún talar fyrir Auði
II)er stórkostleg söngkona og það
er alveg með ólíkindum hvað hún er
flott Auður II. Og svo er það Guð-
jón Þorsteinn Pálmason sem er inni
í plöntunum. Hann er alveg í svaka-
legu hlutverki að hreyfa varirnar
og láta þær passa við röddina henn-
ar Andreu. Þetta er mjög raunveru-
legt. Mér bregður stundum þegar
ég er að tala við þessa dúkku og
hún verður allt í einu ekki lengur
dúkka heldur risastór planta sem
er að hóta því að éta mig. Þá fæ ég
alltaf smáhroll,“ segir Guðjón og
hlær.
Leikhús | Leikfélag Akureyrar frumsýnir söngleikinn Litla hryllingsbúðin í Samkomuhúsinu í kvöld
Rokk og rósir
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Litla hryllingsbúðin segir frá Baldri sem vinnur í blómabúð. Dag einn uppgötvar hann undarlega plöntu sem hann nefnir Auði II í höfuðið á sinni heitt-
elskuðu. Í ljós kemur að hún þrífst á mannablóði og því meira sem hún vex þeim mun meira blóð þarf hún sem hefur alvarlegar afleiðingar í för með sér.
eftir Howard Ashman.
Tónlist: Alan Menken. Byggt á
samnefndri kvikmynd Roger
Corman.
Handrit: Charles Griffith.
Þýðing á bundnu máli: Megas.
Þýðing á lausu máli: Einar Kára-
son.
Leikmynd og búningar: Halla
Gunnarsdóttir.
Brúðuhönnun: Bernd Ogrodnik.
Danshöfundur: Ástrós Gunn-
arsdóttir.
Tónlistarstjórn: Kristján Edel-
stein. Lýsing: Björn Bergsteinn
Guðmundsson.
Leikarar: Andrea Gylfadóttir,
Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Guðjón
Davíð Karlsson, Jóhannes Hauk-
ur Jóhannesson, Þráinn Karlsson,
Álfrún Helga Örnólfsdóttir,
Esther Talía Casey, Ardís Ólöf
Víkingsdóttir og Guðjón Þor-
steinn Pálmarsson.
Leikstjórn: Magnús Geir Þórð-
arson.
Litla hryllingsbúðin
ÞÓRA Kristjánsdóttir listfræð-
ingur heldur í dagfyrirlestur um
„Myndlistarmenn fyrri alda á Ís-
landi“ Fyrirlesturinn hefst kl.
14.50 og er í Ketilhúsinu í Lista-
gili á Akureyri. Allir eru velkomn-
ir.
Þóra leitar fyrst og fremst að
listamönnunum bak við verkin, og
einskorðar sig því í meginkafl-
anum við gripi eftir nafngreinda
menn, en fjallar í stuttu máli um
listgripi frá miðöldum sem kynnu
að vera eftir íslenska listamenn.
Elstu gripirnir með nafni höf-
undar eru stólarnir frá Grund í
Eyjafirði. Benedikt Narfason, sem
setti nafn sitt á stól Þórunnar
Jónsdóttur á Grund, hlaut uppeldi
sitt og menntun í klaustrinu á
Munkaþverá og hefur trúlega ver-
ið þar munkur. Elstu málverkin
eru hinsvegar eftir Björn Gríms-
son sem menntaðist í útlöndum í
lok 16. aldar. Þóra fjallar um á
þriðja tug íslenskra listamanna
sem störfuðu hér á landi á 16., 17.
og 18. öld.
Myndlistarmenn
fyrri alda
Í FRÉTT blaðsins um undir-
ritun samstarfssamnings vegna
útgáfu nýrrar bókar um lista-
manninn Erró í gær misritaðist
að hlutaðeigendur væru Hafþór
Yngvason og Sigurður Svav-
arsson. Hið rétta er að Páll
Valsson undirritaði samstarfs-
samninginn ásamt Hafþóri, eins
og myndin sýnir.
Leiðrétt