Morgunblaðið - 24.03.2006, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
!
" !#$
1
2 /0 324-3 045
6
!" #$%
&'
&"
%
() %" %
( "%
'%* #% + %*
,
,
& %
-./01 &21#%
3
%
& .0 + %*
4 %*
4. 02%
5
%*
672
89& %
8.
:;"" %". 0 0 %
< %% 0 %
!
& * =;220
-1>" -0%*
"#
$%
5?=@
-A0
0 0
/
/
/
/
/
/
/
; %" 1
; 0 0
/
/ /
/ / /
/ / / /
/ / /
/
/
/
/
/
/ /
/
/
/
/
B /CD
B /
CD
/
B /CD
B /CD
B / CD
B /CD
B /
CD
B /CD
/
B /CD
B /CD
B CD
B /CD
B /CD
B CD
/
/
/
B CD
/
B /CD
/
/
/
/
/
4 * 0
*" %
: #0 A *" E
( -
/
/
/
/
/
/
/
< 0 A )$
:4 F "% &2 *
0
/
/
/
/
/
/
/
Hlutabréf
lækkuðu á ný
● NOKKUR lækkun varð almennt á
hlutabréfaverði í Kauphöllinni í
gær, eftir að hafa hækkað lítillega
daginn áður. Úrvalsvísitalan lækk-
aði um 2,31% og er nú 6.088 stig.
Viðskipti með hlutabréf námu tæp-
lega fimm milljörðum króna, þar af
fyrir 1,1 milljarð með bréf KB
banka. Mest lækkuðu bréf FL
Group, eða um 5,42%, bréf Lands-
bankans um 4,41% og Íslands-
banka um 3,38%. Lítilsháttar
hækkun varð á bréfum Avion
Group, Icelandic Group og Mosaic
Fashions.
Líkur á afskráningu
verði yfirtöku-
tilboði tekið
● VERÐI væntanlegu yfirtökutilboði
Skoðunar ehf, félags í eigu Dags-
brúnar hf, í Kögun tekið af öðrum
hluthöfum mun félagið að öllum
líkindum ekki lengur uppfylla skil-
yrði Kauphallar Íslands um dreifða
eignaraðild og í framhaldinu verða
afskráð úr Kauphöllinni, að sögn
Páls Harðarsonar, staðgengils for-
stjóra Kauphallarinnar.
Segir Páll að samkvæmt reglum
Kauphallarinnar verði 25% hluta-
fjár í skráðum félögum að vera í
eigu almennra hluthafa, en Skoð-
un á nú 51% hlutafjár í Kögun og
Síminn og Exista eiga samanlagt
38%.
Gengju síðarnefndu félögin tvö
að væntanlegu yfirtökutilboði
Skoðunar yrði eignarhlutur þess
félags 89% og myndi félagið því
ekki lengur uppfylla áðurnefnt skil-
yrði.
Bílaþing býður
3,19% vexti
● BÍLAÞING Heklu er að fara af stað
með markaðsátak um helgina í sölu
á notuðum bílum.
Í boði verður allt að 100% fjár-
mögnun með bílasamningum gegn-
um SP-fjármögnun á 3,19% vöxtum,
sem Heklumenn fullyrða að séu
lægstu vextir sem bjóðast í slíkum
samningum.
Vaxtakjörin samanstanda m.a. af
myntkörfu sem er 50% svissneskir
frankar og 50% japönsk jen. Boðið
verður upp á fjármögnun og aldur
bílsins samanlagt allt að tíu ár, sam-
kvæmt upplýsingum frá Bílaþingi
Heklu.
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
BJÖRGÓLFUR Jóhannsson hefur
verið ráðinn forstjóri Icelandic
Group en ráðningin var tilkynnt á að-
alfundi félagsins í gær. Björgólfur
hóf störf hjá Icelandic í desember sl,
sem framkvæmdastjóri viðskiptaþró-
unar. Hann var áður forstjóri Síld-
arvinnslunnar og fyrrv. stjórnarmað-
ur í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
Á fundinum kynnti Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson, starfandi
stjórnarformaður, skýrslu stjórnar
félagsins og sagði m.a. að rekstrarár-
ið 2005 hefði verið afar slakt. „Hagn-
aður fyrir afskriftir og fjármagnsliði
nam aðeins 1.264 milljónum á móti
2,5 milljörðum árið áður. Þessar nið-
urstöður eru vitaskuld algjörlega
óviðunandi.“
Að sögn Gunnlaugs má rekja
ástæðuna fyrir hinu 1.176 milljóna
króna tapi félagsins til þriggja ein-
inga Icelandic samstæðunnar; í
Frakklandi, Coldwater í Bretlandi og
í Bandaríkjunum. Hann sagði að aga-
leysi hafi ríkti í stjórnun dótturfélag-
anna í Frakklandi og Bretlandi, og
liður í endurskipulagningu þessara
félaga hafi verið að skipta um for-
stjóra þeirra.
Um 720 milljóna króna tap í
Bandaríkjunum sagði Gunnlaugur að
þar muni mestu um 300 milljóna
króna tap af rekstri rækjufyrirtæk-
isins Ocean To Ocean. „Þar voru mik-
il mistök og afdrifarík gerð við inn-
kaup á heitsjávarrækju sem ekki
hafði verið tryggð sala á. Þar var enn-
fremur skipt um forstjóra en unnið er
að því að Icelandic USA yfirtaki dag-
legan rekstur,“ sagði Gunnlaugur.
Stefna á 10% ytri vöxt
Nýráðinn forstjóri kynnti rekstr-
armarkmið Icelandic Group til
þriggja ára. Samkvæmt þeim er
markið sett á 10% ytri vöxt og 5%
innri vöxt á árunum 2007 og 2008.
„Við áætlum rekstrartekjur sam-
stæðunnar á árinu 2006 um 120 millj-
arða króna, árið 2007 um 140 millj-
arða króna og 2008 um 160 milljarða
króna. Við áætlum að EBITDA á
árinu 2006 verði 5,5 til 6 milljarðar
króna fyrir kostnað við endurskipu-
lagningu,“ sagði Björgólfur.
Framkvæmdastjórn Icelandic er
að öðru leyti óbreytt, en auk Björg-
ólfs skipa hana Bogi Nils Bogason,
framkvæmdastjóri fjármála, Finn-
bogi A. Baldvinsson, framkvæmda-
stjóri Europe og Ellert Vigfússon,
framkvæmdastjóri Icelandic USA/
ASIA.
Stjórn Icelandic skipa: Jón Krist-
jánsson, stjórnarformaður, Aðal-
steinn Helgason, Baldur Örn Guðna-
son, Magnús Þorsteinsson.
Á fundinum var samþykkt tillaga
stjórnar um að ekki verði greiddur
arður til hluthafa á árinu 2006 vegna
ársins 2005.
Agaleysi í rekstri dóttur-
félaga Icelandic Group
Morgunblaðið/Kristinn
Nýr forstjóri Tilkynnt var á aðalfundi Icelandic Group í gær að Björgólfur
Jóhannsson hefði verið ráðinn forstjóri félagsins.
Tilkynnt á aðalfundi félagsins um ráðningu Björgólfs Jóhannssonar í stól forstjóra
VÁTRYGGINGAFÉLAG Íslands,
VÍS, skilaði 8,4 milljarða króna
hagnaði eftir skatta á síðasta ári,
sem er 46% meiri hagnaður en árið
2004. Hagnaður fyrir skatt nam
10,3 milljörðum, samanborið við
rúma sjö milljarða árið áður. Þetta
kom fram á aðalfundi VÍS í gær,
þar sem samþykkt var að greiða
hluthöfum 650 milljónir króna í arð,
en jafnframt var upplýst að tap
hefði orðið af tryggingastarfsemi
upp á 143 milljónir króna.
Í máli Finns Ingólfssonar, for-
stjóra VÍS, á fundinum kom m.a.
fram að góða afkomu félagsins
mætti einkum rekja til hagnaðar af
fjármálarekstri og hækkunar hluta-
bréfa. Hins vegar hefði afkoma af
vátryggingastarfsemi ekki verið
viðunandi og í raun enn verri en ár-
ið 2004. Heildartekjur VÍS-sam-
stæðunnar námu 23,4 milljörðum,
þar af voru iðgjöld upp á 9,6 millj-
arða. Eigið fé í árslok var 27,6
milljarðar og heildareignir 92,9
milljarðar kr.
Í ársskýrslu félagsins segir Finn-
ur að afkoman ráðist af ytri að-
stæðum annað árið í röð og tekju-
grunnur sé þannig tiltölulega
veikur. „Þessi staðreynd hlýtur að
vera okkur áleitið umhugsunarefni
og á ekki einvörðungu við hjá okk-
ur í VÍS heldur almennt á trygg-
ingamarkaðnum,“ segir Finnur.
Metafkoma hjá VÍS
en tap af tryggingum
„Í takti við
væntingar
okkar“
INGVAR H. Ragnarsson, forstöðumaður alþjóð-
legrar fjármögnunar hjá Glitni, segir að um sé að
ræða minnihluta af öllum skuldabréfaútgáfum
bankans í Bandaríkjunum. Hann segir enn frem-
ur að um nokkuð sérstaka útgáfu sé að ræða.
„Bréfin eru gefin út til 13 mánaða í einu og um
hver mánaðamót ákveður fjárfestinn hvort hann
vill framlengja útgáfuna eða ekki. Í öllum okkar
áætlunum reiknum við með að þurfa að greiða
upp þessa skuld upp eftir 13 mánuði.“
Að sögn Ingvars hafa sveiflur á eftirmarkaði á
kjörum skuldabréfanna síðustu vikur haft nei-
kvæð áhrif á uppgjör eignarsafna þessara kaup-
enda og því hafi bankinn búist við að þessir að-
ilar myndu ekki framlengja útgáfuna. „Í raun er
þetta í takti við okkar væntingar,“ segir Ingvar,
„og þetta hefur ekkert með mat þessara aðila á
áreiðanleika bankans að gera. Um er að ræða
peningamarkaðssjóði, sem vilja stöðuga ávöxtun
og fjárfesta til skamms tíma í senn. Mikið flökt á
mörkuðum, eins og verið hefur á skuldabréfum
íslensku bankanna, er ekki í samræmi við fjár-
festingastefnu þeirra.“
HLUTI kaupenda að skuldabréfum íslensku
bankanna í Bandaríkjunum nýtti sér uppsagnar-
ákvæði í útgáfu bréfanna á mánudaginn sl. og
framlengdi ekki bréfin, sem koma þá til endur-
greiðslu eftir 13 mánuði. Talsmenn bankanna
segja að ástæða uppsagnarinnar sé hækkandi
ávöxtunarkrafa bréfanna á eftirmarkaði, en ekki
breytt mat fjárfestanna á áreiðanleika bankanna.
Í tilfelli KB banka er um að ræða skuldabréf
fyrir 600 milljónir dollara, eða 42,7 milljarða ís-
lenskra króna, sem er tæplega helmingur af út-
gáfu bankans í Bandaríkjunum.
Guðni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri fjár-
stýringar KB banka, segir að bréfin hafi verið gef-
in út til fimm ára, en að fjárfestinn þurfi að fram-
lengja þau um hver mánaðamót. „Ef hann gerir
það ekki þarf að borga þau til baka 13 mánuðum
síðar.“
Guðni segir að tvenns konar fjárfestar hafi
keypt skuldabréf bankans í Bandaríkjunum og að
annar hópurinn hafi ekki verið í stöðu til að fram-
lengja bréfin. „Þetta eru 8 fjárfestar, eða rúmlega
helmingur kaupendanna, sem stunda fjárfesting-
ar á svokölluðum peningamark-
aði. Um hver mánaðamót þurfa
þessir aðilar að meta stöðu sína
á markaðsvirði, en um síðustu
mánaðamót hafði sveiflan á
ávöxtunarkröfu bréfanna á eft-
irmarkaði áhrif á mánaðarlega
nettóniðurstöðu þeirra. Þeim
er ekki heimilt að eiga eignir
sem sveiflast svo mikið og
ákváðu því að framlengja ekki
útgáfuna frekar.“
Við uppsögn bréfanna hækkar endurfjármögn-
unarþörf KB banka árið 2007 um 25% og verður
tæplega 3 milljarðar dala í stað 2,4 milljarða dala.
„Við höfum ávallt vitað að þetta eru peningar sem
ekki var víst að myndu endast í fimm ár og höfum
tekið mið af því,“ segir Guðni.
Hann segir enn fremur að það hafi komið skýrt
fram í samtölum við kaupendurna að ástæða upp-
sagnarinnar hafi ekki verið breytt mat þeirra á
áreiðanleika bankans heldur breytt kjör bréfanna
á eftirmarkaði.
Guðni
Aðalsteinsson
„Ástæðan sveiflur
á eftirmarkaði“
6 *G
-H8
!
!
C
C
&:-=
!I
!
"
C
C
??
J,I
"
C
C
J,I ( %
6
!
C
C
5?=I !K L%
!
!
C
C