Morgunblaðið - 24.03.2006, Síða 68

Morgunblaðið - 24.03.2006, Síða 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi ENGINN þeirra níu sem starfa hjá Fæðingarorlofssjóði í Reykjavík ætlar að flytja með stofnuninni norður í Húnavatnssýslur. Sjóður- inn hefur hingað til verið í vörslu Tryggingastofnunar ríkisins (TR) og hefur aðstöðu í húsnæði stofn- unarinnar í Reykjavík. Starfsmönnum sjóðsins var kynnt í upphafi árs að ákveðið hefði verið af þáverandi félagsmálaráð- herra, Árna Magnússyni, að færa vörslu sjóðsins undir Vinnumála- stofnun og starfsemina til Húna- vatnssýslna. Stefnt er að því að starfsemin verði flutt í byrjun næsta árs. Starfsmenn ósáttir Hallveig Thordarson, deildar- stjóri fæðingarorlofsdeildar TR, segir að allt verði gert til að hjálpa starfsmönnum sjóðsins að fá önnur störf hjá TR. Tveir hafi reyndar þegar fengið aðra vinnu og láti af störfum 1. maí. „Auðvitað eru starfsmenn ósáttir þegar störfin eru tekin frá þeim,“ segir hún hins vegar, innt eftir því hvernig þessi flutningur leggist í starfsmenn. Enn liggja ekki fyrir endanlegar ákvarðanir um fjölda starfsmanna sjóðsins fyrir norðan. Kostnaður vegna breytinganna liggur heldur ekki fyrir, að sögn Hönnu Sigríðar Gunnsteinsdóttur, skrifstofustjóra félagsmálaráðuneytisins. | 4 Enginn flytur með sjóðnum norður „ÞETTA gekk æðislega vel,“ sagði Anna María Ómarsdóttir, nemandi í Hólabrekkuskóla, í gær- kvöldi að lokinni skemmtidagskrá sem ungling- ar í listasmiðju skólans stóðu fyrir til styrktar Barna- og unglingageðdeild Landspítalans. lagið Chapel sem Marvelettes gerðu vinsælt á 7. áratugnum við mikinn fögnuð áheyrenda. Fénu var safnað með sölu aðgöngumiða og veitinga og gekk söfnunin vonum framar en í það minnsta 200 þúsund krónur söfnuðust. Margir lögðu leið sína í skólann til að fylgjast með tískusýningu, hlýða á söng og horfa á spurningakeppni og danssýningu. Meðal atriða var söngur þeirra Jóhönnu Lindu, Thelmu Lind- ar, Hörpu Rúnar og Söndru Óskar, sem fluttu Morgunblaðið/Ómar Dansað og sungið fyrir BUGL NÝVERIÐ ákvað kammerkórinn Schola cantorum að hefja launa- greiðslur til söngvara kórsins, bæði fyrir æfingar og tónleika. Kom þessi ákvörðun í kjölfar menningarstyrks sem kórinn hlaut vegna útnefningarinnar Tónlistarhópur Reykjavíkur 2006. „Á bak við þetta er náttúrulega löngun til að geta veitt söngv- urum, sem eru hér margir með góða menntun, færi á að geta lif- að af söngnum,“ sagði Hörður Áskelsson kórstjóri Schola cant- orum. | 32 Schola cantorum á launum LOFTLEIÐIR Icelandic eru nú að fljúga með 92 efnaða ferðamenn sem eru í 20 daga lúxusferð kring- um hnöttinn. Farkosturinn er Boeing 757-flugvél sem var sér- staklega breytt vegna fararinnar. Ekkert er til sparað að gera ferða- lagið sem glæsilegast, hvorki í mat, gistingu, afþreyingu eða aðbúnaði, enda kostar hver farseðill um 50 þúsund bandaríkjadali eða meira en 3,5 milljónir króna, að sögn Sigþórs Einarssonar, fram- um félag sem tengist National Geographic-landfræðifélaginu og er lögð talsverð áhersla á fræðslu í ferðinni. Heimsþekktir fyrirlesarar fylgja ferðafólkinu og fræða það um næsta áfangastað. Áhöfnin er að mestu íslensk. Flugstjóri og tveir flugmenn, flug- virki, átta flugþjónar, íslenskur matreiðslumeistari og annar bandarískur frá skipuleggjanda ferðarinnar. Kokkarnir útbúa úr- vals veislumat fyrir hvern áfanga. „Allt fæði er fyrsta flokks, Beluga-kavíar og kampavín í morg- unmat og framhaldið á svipuðum nótum,“ sagði Sigþór. Horfur eru á fjölgun ferða af þessu tagi hjá Loftleiðum Ice- landic. Þegar er búið að ákveða fjórar slíkar ferðir næsta vetur. kvæmdastjóra Loftleiða Icelandic. Ferðin hófst í Washington D.C. sl. laugardag og var fyrsti áfanga- staður Lima í Perú. Í fyrradag var flugvélin á Páskaeyjum í Kyrrahafi. Þaðan verður haldið um Ástralíu, Asíu og Afríku uns ferðinni lýkur í Bandaríkjunum. Innréttingu flug- vélarinnar var breytt en sæti eru fyrir 92 farþega í stað í kringum 200 sæta með venjulegri sætaskip- an í flugvél af þessari gerð. Hluti sætanna var seldur í gegn- Flugvél Loftleiða Icelandic í 20 daga lúxusferð kringum hnöttinn með 92 efnaða ferðamenn Sætið kostar 3,5 milljónir króna Morgunblaðið/Árni Torfason Flugvélin var innréttuð með 92 þægilegum sætum vegna lúxushnattferð- arinnar. Farþegarnir fá kampavín og kavíar í morgunmat. ALÞÝÐUSAMBAND Íslands leggur til við stjórnvöld að frestað verði um þrjú ár til viðbótar að veita launafólki frá hinum nýju aðildarríkjum Evr- ópusambandsins frjálsa för inn á ís- lenskan vinnumarkað. Samtök at- vinnulífsins eru annarrar skoðunar og telja æskilegt að af opnuninni verði. Aðildarríki ESB og Evrópska efna- hagssvæðisins þurfa að taka afstöðu til þess fyrir 1. maí hvort þau ætla að nýta aðlögunarfrest vegna frjálsrar farar launafólks frá átta ríkjum, sem fengu aðild að ESB 2004 í allt að þrjú ár til viðbótar. Að óbreyttu opnast vinnumarkaður Evrópska efnahags- svæðisins launafólki frá þessum lönd- um, sem þurfa þá ekki að sækja um atvinnuleyfi til starfa hér á landi. Ákvörðunar ríkisstjórnar að vænta eftir helgi Jón Kristjánsson félagsmálaráð- herra segir að vænta megi ákvörðun- ar stjórnvalda fljótlega upp úr næstu helgi. Unnið sé að undirbúningi máls- ins af fullum krafti en þrjú ráðuneyti vinna að málinu. Á minnisblaði sem ASÍ hefur tekið saman, kemur fram að íslenskur vinnumarkaður sé ekki enn tilbúinn til að taka við frjálsri för launafólks frá nýju aðildarríkjunum Mikilvægt sé að treysta frekar innviði vinnu- markaðarins og þær reglur og kjör sem þar gilda. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri SA, segir enga ástæðu til að fresta opnuninni áfram. ,,Við teljum æskilegt fyrir vinnumarkað- inn að þetta verði opnað núna,“ segir hann. Stefán Kjærnested, framkvæmda- stjóri starfsmannaleigunnar IntJob, gagnrýnir stjórnvöld fyrir að hafa ekki enn tekið ákvörðun. Nauðsyn- legt sé að fá sem fyrst á hreint hvað taki við eftir 1. maí. Hann bendir á að það taki í dag um sex vikur að fá af- greiddar umsóknir um atvinnuleyfi fyrir erlenda starfsmenn frá þessum löndum. „Ég er búinn að tala við æðstu menn og það getur enginn gef- ið svör. Þetta eru undarleg vinnu- brögð og óvissan er mikil,“ segir hann. Stefán bendir á að í þenslunni fáist engir íslenskir verkamenn eða smiðir í þau störf sem í boði eru, einkum í byggingariðnaðinum. Stjórnvöld eigi því frekar að liðka fyrir því að erlend- ir starfsmenn geti komið með greið- um hætti til starfa hér fremur en að flækja málin. „Það er gríðarlega mik- ið af mjög hæfu fólki sem kemur frá Eystrasaltslöndunum og við höfum mjög góða reynslu af því. En það tek- ur þetta langan tíma eða sex vikur frá því að starfmaðurinn er ráðinn og þar til hann kemur til landsins.“ Ágreiningur um frjálsa för launafólks eftir 1. maí Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is  ASÍ vill | 8 ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.