Morgunblaðið - 09.04.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 98. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Katherine
Jenkins
Viðtal við söngkonuna sem hefur
heillað tónlistarunnendur 32
Tímarit og Atvinna í dag
Tímaritið | Kristján Ingimarsson segir mikilvægt að detta með stæl Þjóð í
rusli Vísbendingar lárétt og lóðrétt Heimur vínsins Atvinna | Fjölbreytt
störf á öllum sviðum þjóðlífsins Aukið framboð í verslunarstarfsmenntun
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
LÍTIL hætta er á
öðru vígbúnaðar-
kapphlaupi, slíkir eru
yfirburðir Banda-
ríkjamanna um þess-
ar mundir, segir
George Shultz, fyrr-
verandi utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna,
í viðtali við Morgun-
blaðið í dag. „En fólk
mun alltaf halda
áfram að þróa nýjar
gerðir vopna,“ segir
Shultz þegar hann er
spurður fyrirætlanir
Bandaríkjamanna um
að þróa nýjar gerðir
kjarnorkuvopna.
„Það væri gott ef við gætum komið
traustari böndum á kjarnorkuvopnin og þar
skiptir arfleifð Reykjavíkurfundarins
miklu,“ bætir Shultz við.
Shultz segir að Reykjavíkurfundur Ron-
alds Reagans og Mikhaíls Gorbatsjovs 1986
sé „sennilega mikilvægasti fundur sem
haldinn hefur verið vegna þeirra stefnu-
mála sem þar voru kynnt, þótt ekki næðist
endanlegt samkomulag þá … En þegar
einu sinni er búið að kynna tillögur endar
það oft með því að þær komast í gegn“.
Lítil hætta á
vígbúnaðar-
kapphlaupi
Hægt að byggja | 20
George P. Shultz svar-
ar spurningum blaða-
manna á Hótel Loft-
leiðum eftir leið-
togafundinn 1986.
„ÉG SÁ sveðjuna þegar ég var í partíinu, en ég
man ekkert eftir því að hafa fengið hana í höfuðið.
Ég fann bara þungt högg og vissi ekki af mér fyrr
en ég lá í jörðinni,“ segir Einar Ágúst Magnússon
í samtali við Morgunblaðið, en hann varð fyrir til-
efnislausri líkamsárás í október sl. þar sem
höggvið var ítrekað í höfuð hans með sveðju.
Tölum ber ekki saman um hvort almennt sé að
draga úr ofbeldi eða ekki. Komum á bráða- og
slysadeild LSH hefur fjölgað um 10% á milli ára
og hefur komum vegna áverka af völdum ofbeldis
voru undir áhrifum slíkra efna.“ Tölfræði lög-
reglu sýnir rúmlega 64% fleiri fíkniefnabrot árið
2004 en meðalfjölda á árunum 2000 til 2003. Mun-
ar þar mikið um fjölgun brota vegna vörslu eða
neyslu fíkniefna, en árið 2004 voru þau tæplega
79% fleiri en árin á undan.
„Við erum farin að sjá miklu meira af fíkniefn-
um, hvort sem það á við um slys, sjúkdóma eða
ofbeldi,“ segir Ófeigur Tryggvi. „Þau ná yfir allt
litróf mannlegra þjáninga og því miður allan ald-
ur – ótrúlega langt niður en ótrúlega lítið upp.
Fólk lifir ekki lengi á þessum sterku lyfjum.“
fjölgað í samræmi við það. Samkvæmt tölfræði
lögreglunnar fækkaði ofbeldisbrotum hins vegar
um 11% árið 2004 samanborið við meðalfjölda frá
2000 til 2003.
Þó virðist ekki um það deilt að líkamsárásir séu
að verða grófari. „Miklu meira er um vopnaburð
en áður var og þá er ég fyrst og fremst að tala um
hnífa, en einnig barefli,“ segir Hörður Jóhann-
esson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í
Reykjavík.
Hann segir að skýringuna á grófara ofbeldi
megi meðal annars rekja til aukinnar neyslu örv-
andi efna, einkum amfetamíns. „Við erum með
nýleg dæmi um það, frá þessu ári, að árásarmenn
Morgunblaðið/Eggert
Líkamsárásir grófari en
áður og meira um vopn
Árásir | 10
Lögreglan handtekur mann eftir ólæti í röð við skemmtistað í miðborg Reykjavíkur um síðustu helgi.
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Nashville, Tennessee. AP. | Ellefu
manns létust og a.m.k. 60 slösuðust
þegar þrumuveður og skýstrókar
gengu yfir Tennessee-ríki í Banda-
ríkjunum seint á föstudag. Þá varð
mikið eignatjón í óveðrinu, sem
eyðilagði vegi, hús og bifreiðar víða
um ríkið.
Ástandið var verst í Nashville,
þar sem 16.000 heimili voru raf-
magnslaus af völdum óveðursins.
Skýstrókum fjölgaði verulega á
fyrsta ársfjórðungi ársins 2006
miðað við síðustu ár, en áætlað er
að 286 skýstrókar hafi gengið yfir
Bandaríkin á tímabilinu.
11 létust í
stormum
vestanhafs
Washington. AFP. | Í nýjasta hefti
bandaríska tímaritsins The New
Yorker er því haldið fram að stjórn
George W. Bush, forseta Banda-
ríkjanna, sé að undirbúa stórfelld-
ar loftárásir gegn Írönum. Að sögn
tímaritsins mun hún m.a. fela í sér
notkun lítillar kjarnorkusprengju
til að eyðileggja neðanjarðarbyrgi
sem talið er gegna lykilhlutverki í
kjarnorkuáætlun Írana.
Þetta er fullyrt í grein eftir
rannsóknarblaðamanninn Sey-
mour Hersh, sem byggð er á við-
tölum við ónafngreinda embættis-
Bush forseti á síðustu vikum hafið
leynilegar umræður um áætlunina
gegn Íran með nokkrum lykilþing-
mönnum á bandaríska þinginu,
þ.m.t. a.m.k. einum þingmanni
demókrata.
Hersh vitnar ennfremur í fyrr-
verandi yfirmann hjá ótilgreindri
stofnun varnarmála sem segir að
hernaðaráætlunin sé grundvölluð á
þeirri trú að „stöðugar loftárásir
gegn Íran muni niðurlægja hið
trúarlega yfirvald [landsins] og
leiða til þess að almenningur muni
rísa upp og steypa stjórninni“.
menn í Washington. Þar er því m.a.
haldið fram að stjórn Bush líti á
Mahmoud Ahmadinejad, forseta
Írans, sem eins konar nútíma Adolf
Hitler.
Vilja niðurlægja klerkaveldið
Þá vitnar Hersh í ónafngreindan
ráðgjafa hjá bandaríska varnar-
málaráðuneytinu, en að hans sögn
telur Hvíta húsið „að eina lausnin á
vandamálinu sé að gera breytingar
á valdakerfinu í Íran og það þýði
stríð“.
Samkvæmt greininni hefur
Segir Bandaríkin
undirbúa árás á Íran
ÍTALIR ganga í dag til þingkosninga eftir
nokkurra vikna harða og óvæga kosninga-
baráttu hægrimannsins Silvios Berlusconis
forsætisráðherra og Romanos Prodis, leið-
toga vinstriflokkanna.
Kjörstöðum verður lokað á morgun,
mánudag, en búist er við að kosningarnar
verði afar spennandi í ljósi þess að stjórn-
arandstöðuflokkar Prodis hafa mælst með
allt að fimm prósentustiga forskot á stjórn
Berlusconis.
Samkvæmt nýjustu könnunum á allt að
fjórðungur Ítala eftir að gera upp hug sinn.
Vonast stuðningsmenn Berlusconis til að
fátækir kjósendur í suðurhluta landsins
snúist að lokum á sveif með honum. Napólí
gegnir lykilhlutverki í þessari áætlun og
þess vegna valdi Berlusconi Napólí sem
fundarstað fyrir síðasta kvöld kosningabar-
áttunnar í fyrrakvöld, en í ræðu til 10.000
stuðningsmanna sinna sagðist hann leggja
áherslu á „kristin einkenni“ Ítalíu og „fjöl-
skyldugildi“. Þá sakaði hann vinstriflokk-
ana um „svartsýni“ og að upphefja leiðtoga
á borð við Lenín, Stalín og Pol Pot.
Prodi var hógværari í orðavali á lokafundi
í Róm á föstudagskvöld. Hann lagði áherslu
á einingu þjóðarinnar og „réttlátara sam-
félag þar sem enginn yrði út undan“.
Um 47 milljónir Ítala eru á kjörskrá og er
búist við að kjörsókn verði um 80%.
Ítalir
ganga til
kosninga
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
♦♦♦