Morgunblaðið - 09.04.2006, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13 SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali.
STIGAHLÍÐ 10 - 1. hæð
Opið hús í dag frá kl. 13-14
Nýtt á skrá sérlega glæsileg og mikið endurnýjuð 3ja-4ra herb. íbúð á 1. hæð
með vestursvölum. Tvö svefnherbergi, samliggjandi stofa og borðstofa. Nýleg
innrétting í eldhúsi, baðherbergi endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, baðkar.
Parket á öllum gólfum nema baði. Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús í
kjallara. Verð 19,9 millj.
Verið velkomin í dag frá kl. 13-14, bjalla merkt Ólöf.
BÆJARGIL - GLÆSILEGT HÚS
Fallegt endaraðhús (suðurendi) um 200 fm sem er á þremur hæðum með innbyggðum bíl-
skúr. Á jarðhæð er forstofa, innra hol, eldhús, stofa, borðstofa og arinstofa auk snyrtingar
og þvottahúss. Bílskúr. Á 2. hæð er hol, baðherbergi, 3 stór herbergi og fataherbergi (getur
verið svefnherbergi). Í risi er hol, og stórt herbergi. Skv. Ný timburverönd og falleg lóð.
V. 42,9 m. 5748
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F. OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
VALLARBRAUT - SELTJARNARNESI
OPIÐ Á LUNDI MILL I KL. 12 OG 14 Í DAG
Snyrtilegt 195 fm einbýlishús á einni hæð með 55 fm tvöföldum bílskúr. Fremri forstofa,
eldhús með borðkrók, gestasnyrting, stofa, borðstofa, sjónvarpshol, 4 herbergi, baðherbergi
og þvottahús. Húsið sem hefur fengið gott viðhald stendur á stórri hornlóð og býður upp á
mikla möguleika. Vallarbrautin var valin fallegasta gatan á Nesinu 2005. V. 59.9 m.
HÁSKÓLINN í Reykjavík (HR)
stendur um þessar
mundir fyrir kynn-
ingu á meistaranámi í
fjármálafræðum og
reikningshaldi sem
þar er í boði. Tvenns
konar meistaragráður
(M.Sc.) í fjár-
málafræðum koma
þar til greina. Annars
vegar er nám fyrir þá
sem hyggjast starfa
fyrir fjármálafyr-
irtæki á sviði fjárfest-
ingarstjórnunar og
hins vegar nám sem
miðast við þarfir fyrirtækja í al-
mennum rekstri.
Námið í reikningshaldi höfðar
einnig til fólks sem hefur tvenns
konar starfsvettvang í huga. Ann-
ars vegar þeirra sem vilja starfa
sem endurskoðendur, en námið
miðar einnig að því að þjálfa fólk
til starfa á sviði
reikningshalds, hvort
sem markmiðið er
gerð reikningsskila
fyrir fjármagnseig-
endur eða árangurs-
mælingar í rekstri
sem stjórnendur
þurfa upplýsingar um.
Námið sem skólinn
býður hefur einkum
verið sniðið að erlend-
um fyrirmyndum og
raunar er það svo að
meistaranámið í fjár-
festingarstjórnun
miðast við sambærilegt nám við
Boston-háskólann í Bandaríkj-
unum. Í þessu námi eru gerðar
talsverðar kröfur til tæknilegrar
færni og reynir því talsvert á
kunnáttu í hagnýtri stærðfræði.
En það er ekki bara svo að
námið sé sniðið að erlendum kröf-
um, heldur hefur skólinn einnig
fengið að njóta starfskrafta kenn-
ara sem kenna fjármálafræði við
háskóla í Bandaríkjunum og Dan-
mörku (CBS – Viðskiptaháskólann
í Kaupmannahöfn). Flestir þess-
ara kennara hafa auk þess veru-
lega starfsreynslu á fjármagns-
markaði og við fjármálastjórn
fyrirtækja. Vegna þessara erlendu
tengsla þykir enn fremur rétt að
benda á að HR hefur boðið nem-
endum að sækja námskeið við há-
skóla á Boston-svæðinu og hugað
er að frekari aukningu á því sviði.
Auk hinna erlendu kennara kenna
í náminu reynslumiklir sérfræð-
ingar sem starfa á íslenskum fjár-
magnsmarkaði.
Þá hefur HR nýlega stofnað til
tengsla við háskóla í Evrópu og
eiga nemendur nú kost á að sækja
námskeið til eins af virtustu við-
skiptaháskólum í Frakklandi
(ESCP-EAP), en að auki stendur
til að bjóða kennurum við þann
skóla að starfa við HR. Við vænt-
um mikils af því samstarfi.
Fyrir ári hóf HR kennslu á
meistarastigi í reikningshaldi og
endurskoðun. Það nám var und-
irbúið af sérfræðingum skólans í
samvinnu við fulltrúa Félags lög-
giltra endurskoðenda og tók mið
af evrópskum kröfum um meist-
aranám. Vegna síaukinna krafna
til endurskoðenda og þeirra sem
starfa innan fyrirtækja á sviði af-
komu- og efnahagsmælinga hefur
þurft að gera meiri kröfur um
formlegt nám en áður. Það á ekki
aðeins við á Íslandi heldur hefur
það einnig gerst víða erlendis.
Námið tekur tvö ár og kennarar
hafa allir mikla reynslu af kennslu
og störfum í atvinnulífinu. Þá
munu bandarískir prófessorar með
mikla reynslu af kennslu á meist-
arastigi annast kennslu á næsta
skólaári.
HR hefur lagt sig fram um að
bjóða eins gott nám í fjármálum
og reikningshaldi og völ er á.
Námið tekur mið af síauknum
kröfum viðskiptalífsins til kunn-
áttu á þessum sviðum, enda hefur
viðskiptaumhverfið breyst og orð-
ið flóknara og alþjóðlegra en
nokkru sinni fyrr. Vegna þessa er
námið í boði og í þessu felst enn
fremur að verulegar kröfur eru
gerðar til nemenda í náminu. HR
hvetur þá sem vilja styrkja stöðu
sína á atvinnumarkaði og auka við
þekkingu sína til að kynna sér
rækilega námið sem skólinn býð-
ur. Frekari upplýsingar um námið
er að fá hjá Þórhildi Hansdóttur
Jetzek, verkefnisstjóra námsins
hjá HR og undirrituðum.
Meistaranám í fjármálafræð-
um og reikningshaldi
Stefán Svavarsson fjallar
um Háskólann í Reykjavík ’HR hefur lagt sig framum að bjóða eins gott
nám í fjármálum og
reikningshaldi og völ
er á.‘
Stefán Svavarsson
Höfundur er forstöðumaður meist-
aranáms í fjármálum og reiknings-
haldi við HR.
UNDARLEGT er að eiga orða-
stað við þann sem
svarar ekki því sem
maður sagði heldur
aðeins því sem maður
sagði ekki. Þannig
gengur það til í annað
sinn í mínu tilviki
þegar Kristján G.
Arngrímsson svarar
mér í Viðhorfsgrein
sinni 31. mars, „Mik-
ilvægt verkfæri“. Þar
heldur hann því blá-
kalt fram að ég sé
„fullfljótur að hafna
algerlega verkfæra-
settsskilgreiningunni“ og vísar
hann þar til líkingamáls Witt-
gensteins sem hann notaði í fyrri
grein 9. mars. Ég hef engu slíku
hafnað, benti aðeins á 23. mars að
hann virtist ekki fyllilega sann-
færður sjálfur. Ég get aðeins ráð-
lagt Kristjáni að nota verkfæri
lestrarins betur og á ég þar ekki
aðeins við augun. Túlkunarfræð-
ingurinn Friedrich Schleiermacher
setti einu sinni fram
tvær aðferðir list-
arinnar að skilja sem
ég hvet Kristján til að
lesa vandlega fyrir
næsta svar. Þær eru á
þessa leið:
1) Sérhlífnari aðferð
listarinnar að skilja
gengur út frá því sem
vísu að skilningurinn
komi af sjálfu sér og
lætur markmiðið í ljós
með neikvæðum for-
merkjum: Að forðast
beri misskilning.
2) Agaðri aðferðin gengur út frá
því að misskilningurinn komi af
sjálfu sér og að skilninginn verði
menn að vilja og finna í hverju at-
riði.
Þetta er einfalt og ættu allir,
sem vinna með texta og túlka þá
með einhverjum hætti, að tileinka
sér reglu númer 2, því sú fyrri
leiðir oft til þess að menn hafa
eitthvað annað eftir öðrum en þeir
raunverulega sögðu.
Tvær aðferðir til skilnings
Gauti Kristmannsson svarar
Kristjáni G. Arngrímssyni
í Viðhorfsgrein hans ’Þetta er einfalt og ættuallir, sem vinna með texta
og túlka þá með ein-
hverjum hætti, að til-
einka sér reglu númer 2,
því sú fyrri leiðir oft til
þess að menn hafa eitt-
hvað annað eftir öðrum
en þeir raunverulega
sögðu.‘
Gauti Kristmannsson
Höfundur er bókmennta-
og þýðingafræðingur.
Þorsteinn Gestsson fjallar um
vímuefni.
Marteinn Karlsson: „Vegna
óbilgjarnrar gjaldtöku bæjar-
stjórnar Snæfellsbæjar af okkur
smábátaeigendum, þar sem ekk-
ert tillit er tekið til þess hvort við
megum veiða 10 eða 500 tonn,
ákvað ég að selja bátinn og flytja
í burtu.“
Sigríður Halldórsdóttir skrifar
um bækur Lizu Marklund sem
lýsa heimilisofbeldi.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Fáðu úrslitin
send í símann þinn