Morgunblaðið - 09.04.2006, Blaðsíða 82

Morgunblaðið - 09.04.2006, Blaðsíða 82
82 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÞÉR MUN STANDA AF HLÁTRI! www.xy.is Frá Grínsnillingnum Mel Brooks!! Ice Age 2 m/ensku tali kl. 6, 8 og 10 Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 2, 4 og 6 Date Movie kl. 4, 8 og 10 B.i. 14 ára Big Momma´s House 2 kl. 2 N ý t t í b í ó Ice Age 2 m/ensku tali kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10 Ice Age 2 m/ensku tali í Lúxus kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10 Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 12, 2, 4, 6 og 8 Date Movie kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára Big Momma´s House 2 kl. 1.30, 3.40, 5.45, 8 og 10.15 Pink Panther kl. 1.30, 3.50 og 10.10 Ein stærsta opnun allra tíma í USA ! RANGUR TÍMI, RANGUR STAÐUR, RANGUR MAÐUR „FRÁBÆR, FLOTT OG FYNDIN... OFURSVALUR SPENNUTRYLLIR“ FHM Sýnd með íslensku og ensku tali eee LIB, Topp5.is FRÁ ÖLLUM HANDRITS-HÖFUNDUM „SCARY MOVIE“ 2 af 6 Hvílíkt snilldarverk er maðurinn! svoágætur að vitsmunum! svo tak-markalaus að gáfum! í svip og hátt- um svo snjall og dásamur! í athöfn englum líkur! í hugsun goðum líkur! prýði veraldar, afbragð alls sem lifir.“ Þessi orð lét þung- lyndur Danaprins eitt sinn hafa eftir sér.    Ég hef verið að endurskoða afstöðu mínatil fegurðarsamkeppna. Ekki svo að skilja að ég hafi haft mjög ákveðnar hug- myndir um tilvist þeirra, en þó. Síðan ég man eftir mér hafa fegurðarsamkeppnir virkað mjög skringilega á mig. Sá hugmynda- fræðilegi grunnur sem þær byggjast á er æði valtur og ég held að flestir taki undir það. En um leið og hugtök eins og hégómi og hallæri koma upp í hugann þegar keppnir í fegurð eru annars vegar, hefur mér líka fundist það einum of auðvelt að afskrifa þær með hjálp slíkra sleggjudóma. Það er margt annað í samfélaginu sem virkar skringilega á mig þó ég leiði það yfirleitt hjá mér. Ég get nefnt hjónabandið sem dæmi og erfðaskattinn en kannski væri andlitsförðun nærtækara dæmi þegar um huglæga hluti á borð við fegurð er að ræða.    Þegar fegurðarsamkeppnir ber á góma eroftar ekki langt að bíða þar til einhver grípur til grísku goðsögunnar um þrætuepl- ið, fyrstu fegurðarsamkeppninnar þar sem gyðjurnar Aþena, Afródíta og Hera börðust með klækjum um hylli Parísar og að með þessari goðsögu sannist að fegurðarsam- keppnir hafi fylgt manninum frá örófi alda. Sem er líklega satt. Fegurð – og mat á fegurð – hefur fylgt mannkyninu frá upphafi og þetta snýst ekki síst um það hvernig manns- heilinn virkar. Hvernig við löðumst frekar að samhverfu en andhverfu. Lífeðlisfræðileg lögmál liggja hér að baki skilst mér, og hver erum við þá að halda því fram að fegurð sé afstæð – ef annað segir heilinn?    Án efa hefur réttindabarátta kvenna orðiðtil þess að viðhorf okkar til fegurð- arsamkeppna hefur breyst. Hér áður fyrr var keppnin samtvinnuð þjóðernisvitundinni al- veg eins og aflsmunir Jóns Páls. Við áttum fegurstu konur veraldar og sterkustu karl- mennina. Við vorum sjálfstæð og fullvalda og stolt af því. En svo fór að halla undan fæti, tí- undi áratugurinn gekk í garð og fegurð og aflsmunir féllu í skuggann af Björk – jæja, kannski ekki alveg. Réttindabaráttan barði það inn í hausinn á okkur að kroppasýningar eins og fegurðarsamkeppnir ýttu, með einum og öðrum hætti, undir ójöfnuð kynjanna. Nokkuð til í því. Þess ber þó að geta að keppnin um fegursta karlmann Íslands hlýt- ur að skekkja þá röksemdarfærslu að ein- hverju leyti. Eða var það allt kannski eitur- snjall mótleikur nokkurra dónakalla sem vildu halda í kroppasýningarnar?    Annað sem tengist þessu er pólitísk rétt-hugsun. Inntak þessa orðskrípis hefur tröllriðið vestrænum samfélögum á und- anförnum árum og ekki eru allir á eitt sáttir með þá þróun. Á mörgum sviðum samfélags- ins er þessi rétthugsun orðin þvingandi. Og hún á ekki síst sök á því að fegurðarsam- keppnir eru í dag taldar hallærislegar. Þær eru taldar óhæfar á þann hátt að í þeim felst staðhæfing sem ekki er pólitískt rétthugsuð, þ.e.a.s. að fegurðin sé ekki afstæð – hún spásseri meira segja á sviðinu þarna, í bikiníi. Svoleiðis hugsunarháttur getur ekki gengið í samfélögum þar sem allir eru jafnir frammi fyrir guði. Féllumst við á slíkan hugs- unarhátt, væri ekki langt þar til að stétta- skipting kæmist aftur á og það viljum við ekki, eða hvað? En svona hugsun, eða hegðun réttara sagt,á sér samt stað, jafnvel þó að hún sé ekki viðurkennd. Hana má sjá á efnisvali fjöl- miðla, í auglýsingum, í stjórnmálum og alls staðar annars staðar þar sem manneskjan sjálf er notuð sem söluvara. Fegurðin er við- urkennd – ekki bara sem afstæður hlutur heldur sem fastmótað form. Að vísu getur þetta form breyst lítillega eftir því hvernig vindar tískunnar blása en þeir vindar blása yfirleitt bara í eina átt í einu. Blaðið í gegnum þetta blað og önnur í nokkra daga og ég full- vissa ykkur um að þið komist að raun um að fallega fólkið fær fleiri dálksentimetra en aðrir. Dálæti okkar á fegurð mannsins er óseðjandi – eins og svo glögglega má sjá á til- vitnuninni hér að ofan.    Vandamálið með fegurðarsamkeppnis-umræðuna sem reglulega skýtur upp kollinum, er að hún skiptist ávallt í átök tveggja fylkinga. Þetta verður til þess að annaðhvort er maður brennimerktur sem femínisti eða það sem á ensku kallast „sexist“ og er illþýðanlegt. Ég get samsamað mig hvorugum hópnum. Óræð tengsl kvenlegrar fegurðar og undirgefni við karlkynið er tíma- skekkja sem þyrfti að útrýma úr okkar menn- ingu hið fyrsta en fegurðin sem slík er ekki af hinu illa. Ef til eru þeir sem dreymir um að keppa í fegurð er það þeirra mál. Fyrir mér er það einfaldlega spurning um lífsstíl.    Prýði veraldar, afbragð alls sem lifir,“ erhaft eftir prinsinum danska í upphafi pistilsins en tilvitnunin er í heild sinni aðeins lengri og endar svo; „og þó hvers virði er mér þessi duftsins kostakjarni? Maður er ekki mitt gaman; nei ekki kona heldur.“ Ég er ekki frá því að ég sé sammála hon- um, í einu og öllu. Af fegurð engla ’Fegurðin er viðurkennd – ekkibara sem afstæður hlutur heldur sem fastmótað form.‘ Dómur Parísar eftir Peter Paul Rubens. AF LISTUM Höskuldur Ólafsson hoskuldur@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.