Morgunblaðið - 09.04.2006, Page 82
82 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÞÉR MUN STANDA
AF HLÁTRI!
www.xy.is
Frá Grínsnillingnum Mel Brooks!!
Ice Age 2 m/ensku tali kl. 6, 8 og 10
Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 2, 4 og 6
Date Movie kl. 4, 8 og 10 B.i. 14 ára
Big Momma´s House 2 kl. 2
N ý t t í b í ó
Ice Age 2 m/ensku tali kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10
Ice Age 2 m/ensku tali í Lúxus kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10
Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 12, 2, 4, 6 og 8
Date Movie kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
Big Momma´s House 2 kl. 1.30, 3.40, 5.45, 8 og 10.15
Pink Panther kl. 1.30, 3.50 og 10.10
Ein stærsta opnun
allra tíma í USA !
RANGUR TÍMI, RANGUR
STAÐUR, RANGUR MAÐUR
„FRÁBÆR, FLOTT OG FYNDIN...
OFURSVALUR SPENNUTRYLLIR“ FHM Sýnd með íslensku og ensku tali
eee
LIB, Topp5.is
FRÁ ÖLLUM HANDRITS-HÖFUNDUM „SCARY MOVIE“
2 af 6
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn! svoágætur að vitsmunum! svo tak-markalaus að gáfum! í svip og hátt-
um svo snjall og dásamur! í athöfn englum
líkur! í hugsun goðum líkur! prýði veraldar,
afbragð alls sem lifir.“ Þessi orð lét þung-
lyndur Danaprins eitt sinn hafa eftir sér.
Ég hef verið að endurskoða afstöðu mínatil fegurðarsamkeppna. Ekki svo að
skilja að ég hafi haft mjög ákveðnar hug-
myndir um tilvist þeirra, en þó. Síðan ég man
eftir mér hafa fegurðarsamkeppnir virkað
mjög skringilega á mig. Sá hugmynda-
fræðilegi grunnur sem þær byggjast á er æði
valtur og ég held að flestir taki undir það. En
um leið og hugtök eins og hégómi og hallæri
koma upp í hugann þegar keppnir í fegurð
eru annars vegar, hefur mér líka fundist það
einum of auðvelt að afskrifa þær með hjálp
slíkra sleggjudóma. Það er margt annað í
samfélaginu sem virkar skringilega á mig þó
ég leiði það yfirleitt hjá mér. Ég get nefnt
hjónabandið sem dæmi og erfðaskattinn en
kannski væri andlitsförðun nærtækara dæmi
þegar um huglæga hluti á borð við fegurð er
að ræða.
Þegar fegurðarsamkeppnir ber á góma eroftar ekki langt að bíða þar til einhver
grípur til grísku goðsögunnar um þrætuepl-
ið, fyrstu fegurðarsamkeppninnar þar sem
gyðjurnar Aþena, Afródíta og Hera börðust
með klækjum um hylli Parísar og að með
þessari goðsögu sannist að fegurðarsam-
keppnir hafi fylgt manninum frá örófi alda.
Sem er líklega satt. Fegurð – og mat á fegurð
– hefur fylgt mannkyninu frá upphafi og
þetta snýst ekki síst um það hvernig manns-
heilinn virkar. Hvernig við löðumst frekar að
samhverfu en andhverfu. Lífeðlisfræðileg
lögmál liggja hér að baki skilst mér, og hver
erum við þá að halda því fram að fegurð sé
afstæð – ef annað segir heilinn?
Án efa hefur réttindabarátta kvenna orðiðtil þess að viðhorf okkar til fegurð-
arsamkeppna hefur breyst. Hér áður fyrr var
keppnin samtvinnuð þjóðernisvitundinni al-
veg eins og aflsmunir Jóns Páls. Við áttum
fegurstu konur veraldar og sterkustu karl-
mennina. Við vorum sjálfstæð og fullvalda og
stolt af því. En svo fór að halla undan fæti, tí-
undi áratugurinn gekk í garð og fegurð og
aflsmunir féllu í skuggann af Björk – jæja,
kannski ekki alveg. Réttindabaráttan barði
það inn í hausinn á okkur að kroppasýningar
eins og fegurðarsamkeppnir ýttu, með einum
og öðrum hætti, undir ójöfnuð kynjanna.
Nokkuð til í því. Þess ber þó að geta að
keppnin um fegursta karlmann Íslands hlýt-
ur að skekkja þá röksemdarfærslu að ein-
hverju leyti. Eða var það allt kannski eitur-
snjall mótleikur nokkurra dónakalla sem
vildu halda í kroppasýningarnar?
Annað sem tengist þessu er pólitísk rétt-hugsun. Inntak þessa orðskrípis hefur
tröllriðið vestrænum samfélögum á und-
anförnum árum og ekki eru allir á eitt sáttir
með þá þróun. Á mörgum sviðum samfélags-
ins er þessi rétthugsun orðin þvingandi. Og
hún á ekki síst sök á því að fegurðarsam-
keppnir eru í dag taldar hallærislegar. Þær
eru taldar óhæfar á þann hátt að í þeim felst
staðhæfing sem ekki er pólitískt rétthugsuð,
þ.e.a.s. að fegurðin sé ekki afstæð – hún
spásseri meira segja á sviðinu þarna, í bikiníi.
Svoleiðis hugsunarháttur getur ekki gengið í
samfélögum þar sem allir eru jafnir frammi
fyrir guði. Féllumst við á slíkan hugs-
unarhátt, væri ekki langt þar til að stétta-
skipting kæmist aftur á og það viljum við
ekki, eða hvað?
En svona hugsun, eða hegðun réttara sagt,á sér samt stað, jafnvel þó að hún sé
ekki viðurkennd. Hana má sjá á efnisvali fjöl-
miðla, í auglýsingum, í stjórnmálum og alls
staðar annars staðar þar sem manneskjan
sjálf er notuð sem söluvara. Fegurðin er við-
urkennd – ekki bara sem afstæður hlutur
heldur sem fastmótað form. Að vísu getur
þetta form breyst lítillega eftir því hvernig
vindar tískunnar blása en þeir vindar blása
yfirleitt bara í eina átt í einu. Blaðið í gegnum
þetta blað og önnur í nokkra daga og ég full-
vissa ykkur um að þið komist að raun um að
fallega fólkið fær fleiri dálksentimetra en
aðrir. Dálæti okkar á fegurð mannsins er
óseðjandi – eins og svo glögglega má sjá á til-
vitnuninni hér að ofan.
Vandamálið með fegurðarsamkeppnis-umræðuna sem reglulega skýtur upp
kollinum, er að hún skiptist ávallt í átök
tveggja fylkinga. Þetta verður til þess að
annaðhvort er maður brennimerktur sem
femínisti eða það sem á ensku kallast „sexist“
og er illþýðanlegt. Ég get samsamað mig
hvorugum hópnum. Óræð tengsl kvenlegrar
fegurðar og undirgefni við karlkynið er tíma-
skekkja sem þyrfti að útrýma úr okkar menn-
ingu hið fyrsta en fegurðin sem slík er ekki af
hinu illa. Ef til eru þeir sem dreymir um að
keppa í fegurð er það þeirra mál. Fyrir mér
er það einfaldlega spurning um lífsstíl.
Prýði veraldar, afbragð alls sem lifir,“ erhaft eftir prinsinum danska í upphafi
pistilsins en tilvitnunin er í heild sinni aðeins
lengri og endar svo; „og þó hvers virði er mér
þessi duftsins kostakjarni? Maður er ekki
mitt gaman; nei ekki kona heldur.“
Ég er ekki frá því að ég sé sammála hon-
um, í einu og öllu.
Af fegurð engla
’Fegurðin er viðurkennd – ekkibara sem afstæður hlutur heldur
sem fastmótað form.‘
Dómur Parísar eftir Peter Paul Rubens.
AF LISTUM
Höskuldur Ólafsson
hoskuldur@mbl.is