Morgunblaðið - 09.04.2006, Blaðsíða 80
80 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Fáir listamenn hafa vakið aðraeins athygli vestan hafs áundanförnum árum og Jo-anna Newsom, í það minnsta
meðal tónlistaráhugamanna. Plata
hennar The Milk Eyed Mender, sem
kom út fyrir tveimur árum, var víða
valin ein besta plata ársins og vegur
hennar hefur vaxið síðan. Joanna
Newsom heldur tvenna tónleika hér
á landi í næsta mánuði, í Fríkirkj-
unni fimmtudaginn 18. og föstudag-
inn 19. maí.
Alin upp við tónlist
Joanna Newsom er alin upp við
tónlist, en móðir hennar er lærður
smíðum um þessar mundir og Jo-
anna segir að hún hafi ekki ætlað sér
að leika á neinum tónleikum fyrr en
einhvern tíman í haust, „en svo þeg-
ar mér bauðst að spila á Íslandi gat
ég ekki staðist það – mig hefur lang-
að til Íslands árum saman“. Hún
segir það af væntanlegri plötu að
hún sé búin að taka upp allan hörpu-
leik og söng, en nú standi sem hæst
sú vinna að bæta við á plötuna ýms-
um hljóðfærum öðrum.
Mikið af öðrum hljóðfærum
„Að þessu sinni ætla ég að hafa
mikið af öðrum hljóðfæraleik á plöt-
unni og fékk Van Dyke Parks til liðs
við mig,“ segir hún, en Van Dyke
Parks er einn fremsti upptökustjóri
bandarískrar tónlistarsögu og hefur
meðal annars unnið með mörgum
helstu tónlistarmönnum vestan hafs
og austan, til að mynda Beach Boys,
The Byrds, Tim Buckley, Ry
Cooder, Ringo Starr, Gabby Pahinui
og Fiona Apple svo dæmi séu tekin.
Parks er einmitt þekktur fyrir að
vera vandlátur á verkefni, en Joanna
segir að hún hafi leitað til hans með
hugsanlegt samstarf í huga og eftir
að hafa séð hana á tónleikum hafi
hann slegið til.
„Ég var mjög kvíðin þegar við
byrjuðum að vinna, en hann er svo
indæll maður og þægilegur í sam-
starfi að það er frábært að vinna
með honum. Hann er í þeirri stöðu
að velja bara þau verkefni sem hon-
um finnst skemmtileg og mér er það
heiður að fá að vinna með honum.
Það má ekki gleyma því að ég er
samningsbundin smáfyrirtæki og er
því ekki með mikla peninga umleikis
til að taka upp, þannig að ekki er
hann að gera þetta fyrir peninginn,“
segir Joanna og skellir uppúr.
Á væntanlegri plötu eru ýmsar
breytingar í aðsigi, því ekki er bara
að fleiri hljóðfæri koma við sögu
heldur syngur Joanna líka meira,
raddar með sjálfri sér. Hún tekur
fram að platan sé enn í smíðum og
endanleg útgáfa liggi ekki fyrir, það
sé allmikið á tilraunastigi enn sem
komið er, meðal annars sé hún að
bræða með sér hvort hún muni sjálf
spila á fleiri hljóðfæri á plötunni en
hörpuna. „Það er gríðarlega gaman
að sjá lögin vaxa og þróast í hljóð-
verinu, bæta við þau hljóðfærum og
stækka útsetninguna,“ segir hún og
minnir á að obbinn af lögunum á
Milk Eyed Mender sé orðinn fjög-
urra til fimm ára gamall og mikið
breyst á þeim tíma. „Mér finnst enn
gaman að spila gömlu lögin, en það
er sérkennilegt á sinn hátt að vera
að spá í ný lög, pæla í útsetningum
og upptökum á þeim, en vera enn að
tala um gömlu lögin og spila þau,“
segir hún og bætir svo við eftir smá
umhugsun: „Ekki óþægilegt eða
leiðinlegt, bara skrýtið.“
Nasasjón af væntanlegri plötu
Íslenskir áheyrendur fá nasasjón
af plötunni nýju því Joanna segist
ætla að hafa einhver af nýju lög-
unum á tónleikadagskránni, „en að-
allega verð ég með lög af Milk Eyed
Mender á dagskránni, tek tvö til
þrjú ný lög“, segir Joanna og segist
hlakka mikið til fararinnar, „það
verður frábært að fá að spila í Frí-
kirkjunni, ég hef heyrt að hún sé
einkar falleg, og svo tek ég mér
nokkra daga til að skoða Ísland með
kærastanum mínum“.
Eins og getið er í upphafi heldur
Joanna Newsom tvenna tónleika í
Fríkirkjunni, 18. og 19. maí, en á
undan leikur hljómsveitin Slowblow
sem kynnir nýtt efni, en talsvert er
síðan Slowblow hefur leikið á tón-
leikum hér á landi.
undir því nafni gaf hún út tvær smá-
skífur 2002.
Fyrsta smáskífan
Jafnhliða því sem Joanna lék í The
Pleased samdi hún og tók upp eigin
lög þar sem hún lék undir á hörpu og
fyrsta smáskífan, Walnut Whales,
kom út haustið 2002. Næsta skífa
var svo Yarn and Glue sem kom út
ári síðar og í framhaldi af því gerði
hún útgáfusamning við Drag City
útgáfuna, en smáskífurnar hafði hún
gefið út sjálf. Fyrsta Drag City plat-
an var svo The Milk Eyed Mender,
sem kom út í mars 2004.
Ný plata Joanna Newsom er í
píanóleikari, faðir hennar leikur á
gítar, systir hennar á selló og bróðir
hennar á trommur. Hún byrjaði og
ung að læra á hljóðfæri og kaus
hörpuna eftir að hafa lært á píanó í
nokkurn tíma. Harpan er dyntótt
hljóðfæri að margra mati, en í stuttu
spjalli tekur Joanna ekki undir það,
„kannski vegna þess að ég þekki
ekki önnur hljóðfæri. Ég hef heyrt
að mönnum þyki hún erfið, aðallega
að stilla hana og bera á milli staða,
en mér finnst alls ekki erfitt að spila
á hörpu, hún hefur nýst mér vel“.
Tónlistaruppeldið einskorðaðist
ekki bara við klassískt tónlistarnám
því Joanna fékk líka góða nasasjón
af þjóðlegri tónlist og féll einna helst
fyrir afrískri hörputónlist sem leikin
er á kora-hörpur.
Eins og getið er lærði Joanna
lengi á píanó og í fyrstu hljómsveit-
inni, sem hún tók þátt í að stofna í
miðskóla, spilaði hún á hljómborð.
Til að byrja með hét hljómsveitin
The Please og síðan The Pleased, en
Hörpusláttur
í Fríkirkjunni
Bandaríska söngkonan Jo-
anna Newsom er væntanleg
hingað til lands í næstu viku
og heldur tvenna tónleika í
Fríkirkjunni 18. og 19. maí.
Ljósmynd/Noah Georgeson
Á væntanlegri plötu eru ýmsar breytingar í aðsigi, því ekki er bara að fleiri
hljóðfæri komi við sögu heldur syngur Joanna líka meira, raddar með sjálfri sér.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
American Idol-dómarinn
Paula Abdul hef-
ur lagt fram
kæru á hendur
manni sem hún
segir að hafi beitt
sig ofbeldi í sam-
kvæmi einu í Los
Angeles á dögunum. Að sögn mun
Paula hafa orðið fyrir heilahristingi
og orðið fyrir hryggmeiðslum þegar
maður sem staddur var í samkvæm-
inu, greip í handlegg hennar og kast-
aði henni svo utan í vegg. Lögreglan
í Los Angeles segir að málið sé í
rannsókn en neitaði að gefa upp nafn
mannsins sem Abdul kærði. Tímarit-
ið US Weekly hélt því hins vegar
fram að Abdul og fyrrverandi kær-
asti hennar Dante Spencer hefðu
lent í rifrildi við umboðsmanninn
Jim Lefkowitz í samkvæmi um síð-
ustu helgi. Segir sagan að Lefkowitz
hafi látist sem hann hrasaði á Abdul
með þeim afleiðingum að hún þeytt-
ist utan í vegg. Spencer og Lefko-
witz tókust svo á sem endaði með því
að Spencer þurfti sjálfur að láta
sauma nokkur spor fyrir ofan augað.
Fólk folk@mbl.is