Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýjung! Sykurskerta Kókómjólkin inniheldur helmingi minni viðbættan sykur og fitu en hefðbundin Kókómjólk og orkuinni- haldið er fjórðungi lægra. Yfir 80% af mjólkursykrinum hafa verið klofin og hentar drykkurinn því flestum þeim sem hafa mjólkursykursóþol. helmingi léttari! viku. „Við höfum eitt ár til þess að vinna þessar hugmyndir áfram, þróa þær og fá botn í það hvort um það tekst samstaða að bæta kjör þessa fólks,“ sagði Sigursteinn. Víðtæk pólitísk sátt Hann sagði samtökin telja að um hugmyndirnar gæti náðst víðtæk pólitísk samstaða en auk þess að kalla eftir þátttöku stjórnmálaflokk- anna yrði samráð haft við fleiri, þar á meðal aðila vinnumarkaðarins. „Það hefur orðið gliðnun í íslensku sam- félagi á undanförnum árum. Aldraðir og öryrkjar hafa setið eftir á góð- æristímbilinu og það er algerlega óviðunandi í samfélagi sem á að gera ráð fyrir öllum og á að sinna öllum. Hér er um að ræða tillögugerð sem felur í sér að við getum stigið skref til framfara í næstu framtíð án þess að um sé að ræða einhverja há- stemmda kröfugerð. Við erum að leggja til að sjálfsögðu að almanna- tryggingarnar verði einfaldaðar, að lífeyris- og skattleysismörk verði hækkuð, að skerðingar vegna at- vinnutekna verði minnkaðar. En við erum líka að leggja til nútímaleg úr- ræði til að efla atvinnuþátttöku allra,“ sagði Sigursteinn. Þá þyrfti að stórauka menntun og endurhæf- ingu þeirra hópa sem um ræddi. „Við leggjum átta sinnum minna fé sem ENDURSKOÐA þarf frá grunni lög um almannatryggingar og þjónustu Tryggingastofnunar ríkisins og auka möguleika öryrkja og eldri borgara á atvinnuþátttöku. Einnig þarf að huga að menntun, hæfingu og end- urhæfingu hjá þessum hópum, sem og búsetumálum, fjölskyldulífi, stoð- þjónustu og aðgengi og hönnun góðrar heilbrigðisþjónustu þeim til handa. Þetta kemur fram í skýrslu sem unnin hefur verið af hópi 56 ein- staklinga á vegum Landssambands eldri borgara, Landssamtakanna Þroskahjálpar og 30 aðildarfélaga Öryrkjabandalags Íslands. Hópurinn hefur verið að störfum frá því snemma á árinu en hugmyndir hans voru kynntar á blaðamannafundi í gær. Samtökin þrjú telja að breytinga sé þörf eigi að takast að skapa á Íslandi eitt sam- félag fyrir alla „sem við viljum meina að hafi ekki verið til staðar hingað til,“ að því er fram kom í máli Sig- ursteins Mássonar, formanns ÖBÍ, á fundinum. Sigursteinn sagði hug- myndirnar hafa verið kynntar leið- togum allra þeirra stjórnmálaflokka sem fulltrúa eiga á Alþingi. Eigi samtökin von á því afstaða flokkanna til hugmyndanna liggi fyrir í næstu hlutfall af vergri landsframleiðslu í endurhæfingarmál á Íslandi að með- altali heldur en hinar Norðurlanda- þjóðirnar,“ sagði Sigursteinn. Hug- myndir um einstaklingsmiðuð úrræði fyrir búsetu og samfélags- þátttöku, aukin þátttaka í menntun, hæfingu og endurhæfingu snerust ekki fyrst og fremst um kostnað, heldur fjárfestingu sem myndi skila sér aftur til baka inn í samfélagið á margvíslegan hátt. Fólk hafi val um búsetu Gerður Aagot Árnadóttir, formað- ur Landssamtakanna Þroskahjálp- ar, benti á að huga þyrfti að búsetu- málum. „Það sem við viljum sjá er að fólk sem býr við örorku eða er orðið aldrað eigi möguleika á að velja sér búsetu og fá þá þjónustu sem það þarf til sín,“ sagði Gerður. Þessir hópar geti þannig lifað sambærilegu lífi á við aðra, líkt og tryggt sé í lög- um en sé ekki reyndin. „Við viljum sjá nýja hugsun í þessum mála- flokki,“ sagði Gerður. Borgþór Kjærnested, fram- kvæmdastjóri Landssambands eldri borgara, sagði að samtökin teldu að samstarfið við Þroskahjálp og ÖBÍ hefði skilað mjög góðum grundvelli að byggja á og starfa áfram útfrá. Mörg mál brynnu á eldri borgurum, þar á meðal búsetu- og atvinnumál. Endurskoða þarf frá grunni lög um almannatryggingar Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðlegri auglýsinga- samkeppni á vegum INMA (Int- ernational Newspaper Marketing Association). Um er að ræða sam- keppni þar sem verðlaunaðar eru bestu markaðsherferðirnar sem dagblöð út um allan heim hafa stað- ið að. Þetta var í 71. skipti sem sam- keppnin er haldin á vegum INMA og að þessu sinni voru 1.019 inn- sendingar í keppnina frá 206 dag- blöðum í 37 löndum. Auglýsingaherferðin „Innihaldið skiptir öllu máli“ sem Hvíta húsið vann fyrir Morgunblaðið hlaut fyrstu verðlaun í flokki dagblaða með upplag undir 75 þúsund eintök. Verðlaunin voru veitt fyrir skömmu á heimsþingi INMA sem haldið var á Drake-hótelinu í Chicago þar sem voru samankomnir um 350 þátttak- endur víðsvegar að úr heiminum. Dómnefndin sagði um auglýs- ingar Morgunblaðsins sem unnu verðlaunin að þarna væri um að ræða vel útfærða hugmynd, auglýs- ingarnar væru grafískar og kæmu beint að kjarna málsins. Auglýsing- arnar sem verðlaunaðar voru verða birtar í bókinni Best in Print. „Við erum hæstánægð með þenn- an árangur, enda er þetta mikill heiður. Og svo er auðvitað alltaf skemmtilegt að vinna, sérstaklega í alþjóðlegum keppnum,“ segir Sverrir Björnsson hjá Hvíta húsinu. Aðspurður segir hann auglýsing- arnar ávallt þýddar yfir á ensku í svona keppnum til þess að hægt sé að meta þær, en engu að síður skipti alltaf mestu að hugmyndin í auglýsingunni og framsetning skili sér til fólks. „Mér finnst afar ánægjulegt að menn hafi séð og skynjað það að þetta væri góð markaðssetning á blaði sem leggur áherslu á innihaldið,“ segir Sverrir. Vöktu athygli Við verðlaununum tóku Margrét Kr. Sigurðardóttir, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Árvakurs hf., og Unnur I. Jónsdóttir markaðs- stjóri. Að sögn Margrétar og Unnar er þetta ánægjuleg viðurkenning. „Ef horft er á fjölda innsendinga í keppnina þá held ég að við stöndum okkur bara vel í markaðssetningu í samanburði við önnur dagblöð í heiminum. Auglýsingarnar okkar vöktu athygli enda er um að ræða slagorð og framsetningu sem hægt væri að nota fyrir dagblöð víðs veg- ar í heiminum. Það eru öll dagblöð að keppast um að fá fleiri lesendur og í þessum auglýsingum er athygl- inni beint að gæðum blaðsins og reynt að segja með einföldu mynd- máli það sem máli skiptir.“ Morgunblaðsauglýs- ingar verðlaunaðar Margrét Kr. Sigurðardóttir, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Árvak- urs hf. (t.h.), og Unnur I. Jónsdóttir markaðsstjóri taka við verðlaununum úr hendi forseta INMA, Ross McPherson, á heimsráðstefnu samtakanna. VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík, varð sextugur í gær og samfagnaði fjöldi manna með honum á þessum tímamót- um. Óhætt er að segja að í veislunni hafi verið margt í, enda voru 500 gestir komnir fyrstu klukkustundina. Til veislunnar var blásið síðdegis í björtu og fallegu aprílveðri og samkoman haldin í Gullhömrum í Grafarholti þar sem Vilhjálmur ásamt unnustu sinni, Guðrúnu Kristjánsdóttur, tóku á móti gestum. Morgunblaðið/Ómar Margt var um manninn í afmælisveislunni og má hér m.a. sjá Geir Sveinsson, handknattleiksmann og maka Jóhönnu, dóttur Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Fjölmenni samfagnaði Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni Morgunblaðið/Ómar Gísli Marteinn Baldursson óskar Vilhjálmi til hamingju með árin sextíu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.