Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Við vorum 17 ára og áttum allt lífið fram- undan. Árið var 1968 og við vorum nýbyrj- aðar í 4. bekk í MR. Við vorum þrjár Kvennaskólastúlk- ur og fyrir framan okkur settust tvær sætar og hressar úr Kópavog- inum. Þetta var upphafið að yndis- legri vináttu. Sigrún og Togga voru Kópavogsskvísurnar og við þrjár vorum Kvennaskólameyjarnar. Sigrún var ekki bara falleg og skarpgreind, heldur líka bráð- skemmtileg og átti heiðurinn af ýms- um uppákomum og nýyrðasmíði. Ógleymanlegar eru ferðir okkar á Taunusnum um ýmsar götur höfuð- borgarsvæðisins og ófá voru þau lög- in sem þá voru sungin. Við ákváðum að stofna saumaklúbb og gáfum hon- um nafn. Fimmeyringurinn skyldi hann heita, og það hefur hann gert fram á þennan dag. Leiðir skildi lít- illega, þegar menntaskólaárunum lauk og háskólanámið hófst, en við bárum gæfu til að láta ekki verða langt hlé á saumaklúbbnum, þrátt fyrir nám einnar erlendis og búsetu annarrar í Vestmannaeyjum. Sigrúnu lá á. Við sjáum það núna. Hún varð fyrst til að eignast barn, hún eignaðist þau líka flest. Amma varð hún einnig fyrst af okkur. En hún átti líka yndislegan mann, hann Jóa, og saman hafa þau komið upp fjórum vel gerðum börnum, sem bera foreldrum sínum gott vitni. Í rúm níu ár hefur Sigrún barist við krabbameinið sem að lokum lagði hana að velli. Hún var ótrúlega dug- leg, sterk og seig. Fyrir örfáum vik- um hélt hún okkur matarveislu í saumaklúbb heima hjá sér. Hún átti aðdáun okkar óskipta. Sigrún var hetja í okkar augum og við munum ávallt sakna hennar og heiðra minn- ingu hennar. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR ✝ Sigrún Magnús-dóttir fæddist í Reykjavík 17. febr- úar 1951. Hún lést á líknardeild LSH í Kópavogi 14. apríl síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Kristskirkju í Landakoti 26. apríl. Lifir þó ljósið bjarta, Lýsir upp myrkrið svarta. Vinur þó félli frá. Góða minning að geyma Gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Við sendum Jóa, Hönnu Dóru, Páli, Kristínu Þóru, Signýju og fjölskyld- um þeirra okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Guð blessi minningu Sig- rúnar Magnúsdóttur. Bergþóra, Ragna Birna og Kristín (Diddý) og fjölskyldur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Það er sumardagurinn fyrsti. Ég veit, að vorið er á næsta leiti, þótt enn sé vetrarlegt um að litast hérna í sveitinni minni. Hugur minn er líka þungur, þar sem vinkona mín, Sig- rún Magnúsdóttir, hefur kvatt þenn- an heim langt um aldur fram. Við Sigrún hittumst fyrst fyrir þrjátíu og þremur árum. Ég var þá nýbúin að kynnast manninum mín- um, honum Mássa, og hún var unn- usta hans Jóa, vinar hans. Sigrún kom mér fyrir sjónir sem snaggara- leg og ákveðin, ung kona. Hún var fríð sýnum með fallegt dökkt hár. Þegar ég kynntist henni betur komu mannkostir hennar í ljós. Hún var hreinskilin, og það var alltaf hægt að treysta henni. Sýndarmennska var henni fjarri. Hún var alltaf hún sjálf. Öll verkefni leysti hún einstaklega vel af hendi. Hún fékk góðar gáfur í vöggugjöf, sem hún nýtti afar vel. Henni gekk afburðavel í námi og starfaði við sitt fag, eins lengi og hún gat. Það sem skipti hana mestu máli í lífinu var hins vegar heimili hennar og fjölskylda. Heimilið var alltaf óað- finnanlegt. Hún hugsaði af mikilli natni um börnin sín fjögur og hann Jóa sinn. Þau voru svo hamingjusöm og samhent hjón. Þegar maðurinn minn sá hana í fyrsta skipti sagði hann við vin sinn: „Slepptu henni ekki, þessari.“ Það var mikið áfall, þegar hún greindist með krabbamein fyrir rúmum níu árum. Hún barðist eins og hetja. Þá kom líka best í ljós, hversu sterkur persónuleiki hún var. Ég trúi því, að þetta líf sé undirbún- ingur fyrir lífið fyrir handan. Það hlýtur því að hafa verið tekið vel á móti henni eftir allar þær raunir, sem hún var búin að ganga í gegnum í þessu lífi síðustu níu árin. Þegar ég heimsótti hana síðast á líknardeildina var hún sárþjáð, en andlegt atgervi hennar var eins og áður. Hún var ræðin og spurði um fólkið, sem við þekkjum. Ég vil þakka Sigrúnu fyrir allar yndislegu samverustundirnar, sem við áttum á heimilum okkar á höf- uðborgarsvæðinu og í sumarbústöð- um okkar við Þingvallavatn. Jói, Signý, Kristín Þóra, Páll, Hanna Dóra og fjölskyldur, við Mássi, Siggi og Birgir sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi góður guð styrkja ykkur í ykk- ar miklu sorg. Minningin um góða konu lifir. Elna Sigrún Sigurðardóttir. Glitrandi perlur minninganna rað- ast ein af annarri á festina. Sigrún, ung og frjálsleg í fasi, ástfangin af Jóhannesi og hann af henni. Allt lífið framundan. Sigrún, móðir fjögurra mannvæn- legra barna sem glöddu hana sífellt meira eftir því sem árin liðu með elskulegu viðmóti, heilbrigði æsk- unnar og góðum árangri í því sem þau tóku sér fyrir hendur. Sigrún, miðpunktur samheldinnar fjölskyldu. Sigrún, brosmild, röggsöm, ákveð- in, glettin, rökföst, heiðarleg og dug- leg. Sigrún, óþreytandi glaður gest- gjafi. Sigrún, baráttukona til hinstu stundar, trúuð og ákveðin í að gefast ekki upp, hugrökk í fullvissu þess að hennar biði eilíf vist í faðmi almætt- isins sem öllu ræður. Perlurnar halda áfram að skína skært en við sendum Jóhannesi og fjölskyldunni allri innilegar samúð- arkveðjur með hjartans þökk fyrir að hafa hlotnast sá heiður að vera samferða Sigrúnu nokkurn spöl á vegferð okkar gegnum lífið. Hún hvíli í friði. Einar og Steinunn. Kveðja frá samstarfsmönnum Sigrún Magnúsdóttir lyfjafræð- ingur í apóteki Landspítalans and- aðist hinn 14. apríl sl. eftir langa og erfiða baráttu við krabbamein. Sigrún var góður vinnufélagi og fagmaður og einstaklega þægileg í öllu viðmóti. Í erfiðum veikindum sýndi hún mikinn dugnað og æðruleysi og aldr- ei heyrðum við hana kvarta. Um leið og við kveðjum góðan samstarfsmann söknum við góðs vin- ar. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu gengin á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Friðrik Stgr. frá Grímsstöðum.) Fjölskyldunni sendum við innileg- ar samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Samstarfsmenn apóteki Landspítalans. Laugardag fyrir páska fengum við þær fréttir að Sigrún Magnúsdóttir hefði látist aðfaranótt föstudagsins langa. Hún lést langt um aldur fram eftir að hafa háð langa og stranga baráttu við erfiðan sjúkdóm. Við kynntumst Sigrúnu og Jó- hannesi manni hennar í gegnum dætur okkar. Signý yngsta dóttir þeirra og Björg okkar urðu miklar vinkonur aðeins sex ára gamlar. Samskipti á milli heimilanna voru tíð árin sem á eftir komu. Þetta voru skemmtileg ár. Stelpurnar skiptust mikið á að gista hvor hjá annarri og í mörg sumur fór Björg í ferðalög með Signýju og foreldrum hennar. Sig- rún og Jóhannes voru Björgu ein- staklega góð. Björg minnist allra þessara stunda með þakklæti og hlýju. Við kynntumst Sigrúnu fyrst og fremst sem mömmu Signýjar. Hún var frábær móðir, umhyggjusöm og hlý. Forgangsröðun vafðist ekki fyr- ir henni, fjölskyldan gekk fyrir öllu öðru. Bera börn þeirra Jóhannesar þessari alúð fagurt vitni. Sigrún og Jóhannes voru samhent hjón, vönd- uð og heilsteypt. Sigrún var svipsterk og falleg kona. Hún var greind, hrein og bein í tali og framkomu. Skýrmælt og rösk með mikinn húmor. Þannig munum við ætíð minnast hennar. Síðustu ár hafa verið Sigrúnu og fjölskyldu hennar erfið. Stundum hefur birt til og vonin um bata glæðst. Það hefur verið lærdómsríkt að fylgjast með úr fjarlægð hversu vel þau hafa farið með góðu stund- irnar. Við vitum líka að trúin hefur verið og er þeim mikill styrkur. Kæri Jóhannes og fjölskylda. Við fjölskyldan á Unnarbraut 14 vottum ykkur öllum okkar dýpstu samúð og biðjum guð að blessa minningu Sig- rúnar og gefa ykkur styrk til að tak- ast á við sorgina. Elsku Signý. Mundu að þú átt okkur ætíð að. Björg, Sólveig, Torfi, Páll og Áslaug. Þegar vorsólin bræðir af sér klaka og snjó liðins vetrar og birta og ylur vex með degi hverjum er langvinnri og hetjulegri baráttu Sigrúnar Magnúsdóttur við illvígan sjúkdóm lokið. Svona langt og erfitt stríð, án uppgjafar, lýsir best sálarstyrk hennar og lífsvilja. Aldrei var vonin úti, öðru nær. Segja má, að tímabilið hafi ein- kennst fremur af mörgum smásigr- um og þau hlé sem þá sköpuðust vel notuð til ferðalaga og samskipta í góðra vina hópi. Þrátt fyrir, að við Jói hefðum unn- ið hjá sama atvinnurekanda í yfir 30 ár, hófust kynni okkar ekki að ráði, fyrr en við stofnuðum og hófum rekstur Aðalvíkur ehf árið 1998. Samstarf okkar og kynni einkennast af trausti og vináttu sem Sigrún átti svo ríkan þátt í. Framganga hennar svo hlý og einlæg, jákvæð og heillandi. Hennar verður nú sárt saknað úr okkar röðum, en minning- in situr eftir, svo skær og hrein. Okk- ur er efst í huga þakklæti fyrir allar samverustundirnar á ferðalögum hér heima sem erlendis, söknuður, góðs vinar og félaga og virðing fyrir hetjulundina einstöku. Kæra fjölskylda, Jói, börn, tengdabörn, barnabörn og móðir, færum ykkur öllum innilegustu sam- úðarkveðjur okkar. Megi góður guð sefa sorg og söknuð við fráhvarf yndislegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og dóttur. Inga og Páll. Þung er sú þögn í landi – álfar ugga um sinn hag þá horfið er af heiminum brott það ljúflingslag – lindin spyr vindinn: Hví syngur hann ekki í dag? (Jóhannes úr Kötlum.) Mér fannst sem drægi fyrir sólu fyrir rúmum níu árum, þegar Sigrún hringdi til mín og sagði, að hún hefði greinst með illkynja mein, sem nú hefur lagt hana að velli eftir erfitt stríð. Allir, sem fylgst hafa með henni í sigrum og áföllum gegnum þessi ár, hafa fyllst aðdáun á kjarki hennar og stillingu. Hún var ekki margorð um veikindi sín, en ræddi þau af skynsemi, ef á þurfti að halda. Hún stóð ekki ein í baráttunni, eig- inmaður hennar og fjölskyldan öll hafa staðið fast við hlið hennar og gert allt sem í mannlegu valdi stóð til að létta henni lífið. Sigrún hafði átt gott og gæfuríkt líf, ólst upp hjá ástríkum foreldrum og tveim eldri bræðrum, giftist mannkostamanni og átti heilbrigð og góð börn og barnabörn og gekk vel í skóla og starfi. Hún rækti öll sín hlutverk í lífinu af sannri trú- mennsku og gleði. Sigrún var vönd- uð manneskja, heiðarleg, greind og skynsöm og einstaklega glaðvær – ég held ég hafi ekki hlegið jafn mikið með nokkurri annarri manneskju. Við urðum vinkonur snemma í barnaskóla og var þar stofnað til vin- áttu, sem aldrei bar skugga á. Á þessum tímamótum leitar hug- urinn til baka og ég sé okkur fyrst fyrir mér þar sem við erum að æfa okkur með þrem og fjórum boltum upp við húsvegg í Holtagerðinu og svo að prjóna eða hekla með góðri leiðsögn Kristínar móður hennar. Ég minnist líka kvöldferða á Þing- völl, þegar pabbi hennar var að veiða, mamma hennar leit í blöðin og við fórum í göngutúra og spiluðum badminton. Ég fékk að vera með fjölskyldunni og fylgjast með fyrstu útsendingu íslenska sjónvarpsins. Svo vorum við stundum að passa elstu börn bræðra hennar á kvöldin. Heima hjá mér var hún auðvitað tíð- ur gestur og góður vinur fjölskyld- unnar. Þar vorum við m.a. í kjall- aranum að framkalla ljósmyndir, sem pabbi kenndi okkur. Alltaf var Sigrún glöð og kát og hló gjarnan svo tárin runnu niður kinnarnar. Við fórum samferða yfir klettana hjá Kópavogskirkju í Gagnfræða- skólann í Kópavogi í þrjú ár og vor- um þar í sama bekk. Á þeim árum var mikið talað og hlegið og við stóð- um oft og töluðum langtímunum saman, þegar við komum úr skólan- um. Eftir eitt ár í MR fórum við á lýðháskóla í Danmörku mánaðar- tíma um sumarið, sem var mikið „oplevelse“. Ekki þótti okkur auð- velt að skilja talaða dönsku, þegar við komum, en okkur þótti við brill- era í danskri málfræði, enda vel und- irbúnar frá Ólafi Jens úr gagnfræða- skólanum. Þarna lærðum við ýmislegt, saumuðum út í klukku- strengi og lásum „gribende kær- lighedsromaner“ til að efla dönsku- kunnáttuna. Þessi ferð var okkur báðum ógleymanleg. Síðar í menntaskólanum kynnt- umst við þrem vinkonum, Beggu, Birnu og Diddý, og stofnuðum saumaklúbbinn „fimmeyringinn“, sem enn „starfar“ og hefur staðið saman í blíðu og stríðu í gegnum ár- in. Næst sé ég okkur fyrir mér í stúd- entsprófunum og við erum að kvíða fyrir að fara inn í munnlegt íslensku- próf á Sal. Allt gekk þetta vel og í minningunni er alltaf sól og blíða þetta vor. Seinna þetta sumar kom Sigrún í heimsókn og sagði mér, að hún hefði hitt ungan mann og hann myndi koma og sækja hana til mín. Svo kom bíll og stoppaði á götunni, ég var hálffeimin og veifaði bara í stað þess að fara og heilsa upp á hann. Hann veifaði á móti og ég hugsaði með mér, að þetta hlyti að vera ágætis- maður. Þarna var þá kominn Jó- hannes, sem hefur staðið við hlið hennar síðan og aldrei hef ég efast um þetta mat mitt á honum í upp- hafi. Sigrún las lyfjafræði og við lukum prófum samtímis frá HÍ, þótt ekki væri í sömu grein. Samskiptin urðu eðlilega minni, þegar út í lífið var komið, bréfa- skipti, þegar ég bjó erlendis, heim- sóknir, saumaklúbbar, svo vorum við saman í leikfimi um tíma – Sigrún og Jói áttu gott heimili þar sem börnin uxu úr grasi – og árin liðu. – Sigrún og Jói að ferma, gifta og útskrifa börnin úr skólum – og barnabörn líta dagsins ljós. Við fórum að hitta okkar gamla barnaskólabekk, 12 ára K, og Hug- rúnu kennara árið 1990 og átti bekk- urinn þar góða kvöldstund saman. Það var nú spenningur í loftinu hjá öllum að hitta skólafélagana aftur, sumir höfðu ekki sést í 26 ár. Við fór- um samferða og urðum eins og smá- stelpur aftur, þegar við nálguðumst salinn og heyrðum hvíslað manna á milli „Sigrún og Togga eru að koma“. Síðasta ár hefur verið henni erfitt og varð hún að hætta störfum í maí 2005. Hinn 8. febrúar sl. hafði hún saumaklúbb fyrir okkur – með glæsi- legum veitingum að vanda. Síðan versnaði heilsa hennar að mun. Ógleymanleg er mér ein heimsókn Mig langar að þakka Garðari fyrir langan, góðan og umfram allt traustan vinskap í gegnum öll 22 árin. En þá urðu mín fyrstu kynni af honum. Og mér eins og svo mörgum öðrum, vildi hann allt til gera til að hjálpa og setti hann mig því inn í varahlutasöl- una og var ég byrjuð að vinna hjá honum áður en langt um leið. Það var þá sem ég gekk með mitt fyrra barn og var honum umhugað um að ég hefði það sem best og yrði alls ekki kalt. Þetta var um vetur og þá var Garðar með partasöluna sína fyrir of- an kirkjugarðinn í Hafnarfirði. Alltaf gátum við Garðar talað sam- an um allt og ekkert, og hann tók GARÐAR PÁLMASON ✝ Garðar Pálma-son fæddist á Sauðárkróki 28. október 1946. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 22. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Höfðakapellu 31. mars. mjög nærri sér ef eitt- hvað var að hjá mér. En þá stakk hann upp á bíltúr austur yfir fjall eða í Hvalfjörðinn og keypti hann þá handa okkur kók og prins- póló. Mig langar að þakka honum fyrir allt og allt. Hann mátti aldrei neitt aumt sjá og var alltaf reiðubúinn að hlaupa til. Þær voru alltaf góðar samveru- stundirnar þegar ég kom svo með stelpurnar mínar í heimsókn, það virtist endalaust hægt að hlæja saman. En hér ætla ég að láta staðar num- ið, því ég gæti svo endalaust sett á blað kveðjuorð og þakklæti mitt fyrir að hafa kynnst Garðari. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Birna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.