Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Síðumúla 33 - Sími 588 9490 - www.lyngvik.is - lyngvik@lyngvik.is F A S T E I G N A S A L A Um er að ræða mjög vel staðsett 46 fm sumarhús, ásamt 6 fm aukahúsi. Bústaðurinn stendur í fallega ræktuðu 11 þúsund fermetra eignarlandi rétt vestanmegin við Laugarvatn á skjólgóðum og rólegum stað. V. 12,7 m. SUMARHÚS - VIÐ LAUGARVATN Egilsstaðir | Heilbrigðisráðuneytið og forsvarsmenn Heilbrigðisstofn- unar Austurlands (HSA) starfa nú að því að meta fjárhag stofnunar- innar á grundvelli reiknilíkans sem aðilar komu sér saman um á fundi í ráðuneytinu sl. mánudag. HSA vant- ar um 100 milljónir króna til að láta enda ná saman á árinu og hafa verið boðaðar lokanir og mikill samdrátt- ur í rekstri. Stjórn HSA og sveitarstjórnir á Austurlandi hafa skorað á ríkisvald- ið að skoða málefni stofnunarinnar náið með það að leiðarljósi að fjár- veitingar til hennar séu engan veg- inn í takt við þá þenslu og fólks- fjölgun sem átt hefur sér stað í fjórðungnum á undanförnum miss- erum. „Því miður fékk ég ekki fulla vasa fjár með mér heim, sem hefði verið besta niðurstaðan, en verið er að leggja á borðið reiknilíkan til að máta rekstur starfseminnar inn í, þ.e.a.s. það er verið að vinna í því núna að skoða með hvaða aðferðum heilbrigðisráðuneytið úthlutaði okk- ur fé og hvernig það stemmir við raunveruleika stofnunarinnar,“ seg- ir Einar Rafn Haraldsson, fram- kvæmdastjóri HSA. Lausn þarf að finnast fljótlega „Nú er því farið í gang nokkurra daga vinnuferli þar sem menn reyna að gera sér ljósa grein fyrir hvar fjármagn vantar mest inn rekstur- inn og hvaða þættir hans hafa verið vanmetnir fjárhagslega. Ráðuneytið telur sig hafa lagt nægt fé af mörk- um en við segjum að vanti fé, við er- um ekki sammála um þetta og ekki í hvaða geira rekstursins féð vantar. Ég vona að þetta leiði til einhverr- ar rökréttrar niðurstöðu og að við komumst hjá lokunum. Lausnir finnast vonandi mjög fljótlega, ella erum við í miklum vandræðum,“ segir Einar Rafn. Heilbrigðisstofnun Austurlands, sem starfar á níu stöðum í fjórð- ungnum er með um 330 manns á launaskrá og veltan um 1,6 milljarð- ar króna. Í byrjun árs 2005 var staða HSA neikvæð um 16 milljónir króna. Halli ársins nam 67 milljónum króna. Í upphafi þessa árs var stofn- unin því að velta á undan sér halla sem nemur 83 milljónum króna. Fulltrúar ráðuneytis og Heilbrigðisstofnunar Austurlands gaumgæfa rekstur og fjárhag Leitað lausna á rekstrarvanda HSA Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Starfsemin verðlögð Heilsugæslan á Egilsstöðum er meðal þeirra eininga HSA sem þröngt er orðið um fjárhagslega svo til vandræða horfir. Neskaupstaður | Á morgun, föstu- daginn 28. apríl, verða hátíðahöld í íþróttahúsi Neskaupstaðar vegna 20 ára starfsafmælis Verkmennta- skóla Austurlands í Fjarðabyggð. Í tilefni af afmælinu var gefið út afmælisrit, sem dreift hefur verið inn á öll heimili á Austurlandi. Þar er m.a. rakin skólasaga Norðfjarðar í máli og myndum, sem undir- strikar þann mikilvæga grunn sem starfsemi Verkmenntaskólans byggir á í dag. Ritstjórar eru Smári Geirsson og Þórður Kr. Jó- hannsson. Að sögn Helgu M. Steinsson skólameistara er VA skóli verk- og starfsnáms í fjórðungnum auk þess að vera framhaldsskólinn í Fjarða- byggð. „Margar fjölbreyttar náms- leiðir eru í boði innan skólans auk þess sem við hann er heimavist og mötuneyti,“ segir Helga. „Við skól- ann starfa nú um 30 manns og nemendfjöldi er um 200. Flestir þeirra koma úr Fjarðabyggð en VA fagnar afmæli Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir VA fagnar tímamótum Nemendur í málmiðnum ásamt kennara sínum, Ásmundi Þorsteinssyni. LANDIÐ AUSTURLAND Ísafjörður | „Ég fer að slaka á þegar ég verð gömul. Það er ekki komið að því ennþá,“ segir Ruth Tryggvason, kaupkona í Gamla bakaríinu á Ísafirði. Hún verður 85 ára í næsta mánuði og stendur daglega vaktina í bakaríinu eins og hún hefur gert í áratugi. Í dag verður Ruth kosin heiðursborgari Ísafjarðarbæjar og Ísfirðingum er gefinn kostur á að samfagna henni. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til síns 200. fundar í dag. Eina málið á dagskrá er tillaga um að gera Ruth Tryggvason heið- ursborgara. Af þessu tilefni er fundurinn hald- inn í Íþróttahúsinu á Torfnesi, klukkan 17.30, og er öllum bæjarbúum boðið að vera viðstaddir og þiggja veitingar, kaffi og hátíðartertu sem er að sjálfsögðu frá Gamla bakaríinu. Ung og ástfangin Ruth er fædd í Danmörku á árinu 1921. Hún kynntist Aðalbirni Tryggvasyni, bakarasyni frá Ísafirði, þegar hann fór til verslunarnáms í Kaupmannahöfn. „Hann var búinn að vera einn dag í Kaupmannahöfn þegar hann fór í Tívolíið og þar hittumst við,“ segir Ruth. Þau voru í Kaupmannahöfn í fjögur ár, á meðan Aðalbjörn var í verslunarskólanum en fluttu þá til Ísa- fjarðar. Það var árið 1950. „Við vorum ung og ástfangin og til í allt,“ segir Ruth þegar hún er spurð að því hvort ekki hafi verið ógnvekjandi að flytjast til Ísafjarðar í febrúarmánuði. Hún segist hafa yfirunnið það fljótt og aldrei fundist fjöllin þrengja að sér. „Mér hefur alltaf þótt fjöllin hér svo falleg. Það fyrsta sem ég geri þegar ég vakna á morgnana er að líta til fjalla,“ segir hún. Aðalbjörn fór að vinna við Gamla bakaríið sem faðir hans rak og seinna keyptu þau fyr- irtækið. Þau opnuðu fyrstu húsgagnaverslunina á Vestfjörðum í húsi fyrirtækisins. „Mig langaði að gera eitthvað annað,“ segir Ruth til skýr- ingar. Hún byrjaði á því að selja húsgögn frá húsgagnaverksmiðjunni Valbjörk á Akureyri en fór síðan að flytja inn dönsk húsgögn. Auk þess að reka fyrirtækin kenndi Aðalbjörn í gagnfræðaskólanum á Ísafirði enda segir Ruth að hann hafi haft mikla ánægju af kennslu. „En það var mikið að gera hjá honum,“ segir hún. Aðalbjörn veiktist og dó á árinu 1970, aðeins 45 ára, og Ruth stóð eftir með fyrirtækin og þrjú börn þeirra, á aldrinum sjö til nítján ára. Hún hélt rekstrinum áfram og rekur enn Gamla bakaríið með dyggri aðstoð barna sinna og tengdabarna. „Þetta gekk ágætlega. Krakk- arnir voru duglegir og svo var ég með fólk sem hafði lengi unnið hjá okkur,“ segir hún. Auðgað mannlífið Ruth hefur komið víða við í mannlífinu á þessum tíma. „Allt frá komu sinni til Ísafjarðar hefur hún af fádæma eljusemi auðgað mannlíf með sinni alkunnu lífsgleði og þrótti. Ruth hef- ur í gegnum tíðina látið sér fátt óviðkomandi og má þar nefna […] menningarmál í víðasta skiln- ingi,“ segir í rökstuðningi Magnúsar Reynis Guðmundssonar bæjarfulltrúa fyrir tillögu um að útnefna Ruth sem heiðursborgara. Ruth var lengi ræðismaður Dana á Ísafirði og hefur unn- ið að ýmsum mannúðarmálum og skógrækt. Sjálf nefnir hún stofnun leikskóla á Ísafirði þeg- ar talið fer á þessar brautir. „Ég tók eftir því þegar ég kom hingað að ung börn léku sér á götunni. Ég og vinkona mín tókum því þátt í að koma á fót leikskóla og fengum skátaheimilið lánað til þess. Núna eru voðalega fínir leik- skólar hér á Ísafirði,“ segir hún. Af fjölmörgum áhugamálum nefnir hún dansinn. Segist hafa lært að dansa úti í Dan- mörku og aðstoðað við danskennslu á Ísafirði. „Já, ef mér er boðið upp!“ segir Ruth þegar hún er spurð hvort hún taki enn snúning á dansgólf- inu. Miðpunktur mannlífsins Gamla bakaríið við Silfurtorg er og hefur lengi verið einn af miðpunktunum í mannlífinu á Ísafirði. Þar stendur Ruth vaktina daglega og nýtur þess að spjalla við viðskiptavinina. Auk Ruthar vinna þrjú úr fjölskyldunni við fyrirtækið, Árni sonur hennar og Rósa kona hans og María dóttir Ruthar. Sjálf er hún við afgreiðsluna daglega frá klukkan níu á morgn- ana til sex síðdegis. „Ég hef svo gaman af þessu, sérstaklega að hitta fólkið,“ segir Ruth. Bæjarstjórn útnefnir í dag Ruth Tryggvason í Gamla bakaríinu heiðursborgara Ísafjarðarbæjar Hef svo gaman af því að hitta fólkið Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Heiðursborgari Ruth Tryggvason, heiðursborgari Ísafjarðar, stendur vaktina í Gamla bak- aríinu alla daga. Hún hefur komið víða við í mannlífinu á Ísafirði síðustu áratugina. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.