Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 10
STURLA Böðvarsson, samgönguráð-
herra, sagði á Alþingi í gær að
Reykjavíkurborg hefði dregið „út í
hið óendanlega“ að taka ákvörðun um
legu Sundabrautar, þannig að ekki
væri unnt að hefja verkhönnun, sem
væri undanfari útboðs. Því teldi hann
óhjákvæmilegt að láta kanna það af
fullri alvöru hvort ekki væri rétt að
hefja framkvæmdir við Sundabraut
að norðanverðu, en með því væri
„verkið tekið úr þeirri gíslingu sem
meirihlutinn í Reykjavík heldur því í“.
Þetta kom fram í svari ráðherra við
fyrirspurn Birgis Ármannssonar,
þingmanns Sjálfstæðisflokks, um um-
ferðaröryggi á Kjalarnesi. Spurði
Birgir ráðherra meðal annars um við-
brögð hans við yfirlýsingum forsvars-
manna R-listans um Sundabraut.
„Það sem ég sé fyrir mér að kanna
verði er að hefjast handa við fram-
kvæmdir með breikkun vegarins á
Kjalarnesi, milli syðri gangamunna
Hvalfjarðarganga að þeim stað sem
fyrirhugað er að Sundabraut þveri
Kollafjörð. Með þessari aðgerð væri
umferðaröryggismálum á Kjalarnesi
og í nágrenni við Grundahverfi komið
í gott horf. Teng-
ingar við hverfið
og á milli svæða
þess yrðu með
besta móti og
fyllsta umferðar-
öryggis yrði gætt,
eins og að sjálf-
sögðu er stefnt að.
Verði þetta niður-
staðan mun þessi
hluti framkvæmdarinnar koma inn í
endurskoðaða vegaáætlun fyrir árin
2007–2010 og ég tel ekkert eiga að
vera því til fyrirstöðu að framkvæmd-
irnar eigi sér stað á fyrri hluta þess
áætlunartímabils. Þær gætu hafist á
næsta ári í þágu umferðaröryggis á
þessu svæði,“ sagði Sturla.
Staðan með ólíkindum
Sú staða sem uppi væri í skipulags-
málum Reykjavíkurborgar og sneri
að legu fyrirhugaðrar Sundabrautar
væri með miklum ólíkindum. „Misseri
eftir misseri eru samgönguyfirvöld
dregin á svari um hvar Sundabrautin
megi liggja yfir Kleppsvíkina,“ sagði
Sturla. „Hver afsökunin er nefnd af
annarri og nú síðast á fundi í borg-
arstjórn í gær [fyrradag] hélt Dagur
B. Eggertsson, formaður skipulags-
ráðs borgarinnar, því fram að málið
tefjist vegna þess að ,,enn sé óvissa
um fulla fjármögnun verksins“. For-
maðurinn vissi betur en kysi að fara
Segir Reykjavíkurborg hafa dregið of lengi að taka ákvörðun um Sundabraut
Kannað verði hvort rétt sé að hefja
framkvæmdir að norðanverðu
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
með rangt mál til að fela aðgerðar-
leysi í eigin ranni. „Það er leitt til þess
að hugsa að hugtakið ,,Dagsatt“ fái
nýja og miður góða merkingu þessa
dagana,“ sagði Sturla. Þá væri Dagur
B. Eggertsson einn um að halda á
lofti þeirri skoðun að það ætti að kjósa
sérstaklega um legu Sundabrautar.
Þetta yrði ekki til að flýta fram-
kvæmdum.
Skattfé af höfuðborgarsvæðinu
í vegagerð á landsbyggðinni
Nokkrir þingmenn tóku til máls að
loknu svari ráðherra. „Það er að sjálf-
sögðu fagnaðarefni ef menn taka þá
ákvörðun að breikka veginn að Kjal-
arnesi frá suðurmunna Hvalfjarðar-
ganga og í áttina að þeim stað þar
sem fyrirhuguð Sundabraut á að
koma að,“ sagði Magnús Þór Haf-
steinsson, þingmaður Frjálslyndra.
Hann sagði jafnframt óskiljanlegt að
menn gætu ekki komist að niðurstöðu
um það hvar Sundabrautin ætti að
liggja, það þyrfti ekki að vera svo
flókin ákvörðun.
Helgi Hjörvar, þingmaður Sam-
fylkingar, sagði samgönguráðherra
hafa varið skattfé því sem að mestu
kæmi af höfuðborgarsvæðinu til
vegaframkvæmda úti á landi. „Um
leið gerir hann þá kröfu til Reykjavík-
ur að ef hér sé vandað betur til verks
en ódýrast er skuli Reykvíkingar
greiða það sérstaklega,“ sagði Helgi.
„Það er auðvitað fráleitt og hefur tafið
verkið sem ráðherrann veit að var
marga mánuði hjá umhverfisráðherra
að bíða úrskurðar á síðasta ári,“ sagði
hann. Framtaksleysi ráðherra væri
með þeim hætti að „Faxaflóahafnir sf.
hafa lýst sig reiðubúna að leggja
Sundabrautina fyrir hann vegna þess
að hann kemst aldrei af stað. Nú hef-
ur Sjóvá boðist til þess að leggja Suð-
urlandsveginn fyrir hann yfir Hellis-
heiðina vegna þess að þar kemst hann
heldur ekki spönn frá rassi en kýs að
ráðast hér úr ræðustól Alþingis að
fjarstöddum mönnum með því að
uppnefna þá,“ sagði Helgi
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri-
grænna, sagði sannleikann þann að
Reykjavíkurborg hefði verið í gísl-
ingu andúðar samgönguráðherra og
sjálfstæðismanna að því er varðaði
vegaframkvæmdir innan Reykjavík-
ur. „Það fjármagn sem hefur fengist
til framkvæmda innan Reykjavíkur
hefur fengist seint og illa og það hefur
líka verið skilyrt,“ sagði Atli og vísaði
til framkvæmdanna við Hringbraut.
Sturla Böðvarsson, sagði við lok
umræðnanna að fyrir lægi að það
væri á valdi sveitarfélaganna í land-
inu að fara með skipulagsmál. Hann
sagði samgönguyfirvöld hafa tekið
ákvörðun um að leggja Sundabraut,
en ákvörðunar um hvar hún ætti að
liggja væri enn beðið. „Í því liggur
minn vandi,“ sagði Sturla.
10 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
PERLAN
Ein magnaðasta bygging Reykjavíkur á daginn.
Eitt besta veitingahúsið á kvöldin.
Perlan · Öskjuhlíð · Sími: 562 0200 · Fax: 562 0207 · perlan@perlan.is
H
rin
gb
ro
t
Silfurverðlaun á Matur 2006!
Til hamingju Björn!
Perlan óskar Birni Braga og fjölskyldu
hans innilega til hamingu með silfur-
verðlaunin í keppninni Matreiðslu-
maður Íslands 2006.
1999 - Matreiðslunemi ársins
1999 - Matreiðslumaður ársins (úrslit)
2004 & 2005 - Þjálfari matreiðslunema
fyrir Norrænu matreiðslunemakeppnina
(bæði árin lentu nemendur skólans í 1. sæti).
„MÉR sýnist að þetta sé allt í gamal-
kunnugu fari. Það er stutt eftir af
þinginu og greinilega örlítil spenna,“
segir Hjálmar Árnason. Hann tók í
gær sæti á Alþingi að nýju eftir veik-
indaleyfi, en Hjálmar fékk hjarta-
áfall í lok febrúar sl. „Það er að byrja
þessi hefðbundni póker þar sem
stjórnarandstaðan setur fram sínar
óskir um mál sem eiga að fara út og
stjórnarsinnar vilja náttúrlega engin
spil sýna strax. Ég fæ ekki betur séð
en að Ríkisútvarpið sé þar ofarlega á
blaði,“ segir Hjálmar um þingstörf
næstu daga.
Hann segir það blendna tilfinn-
ingu að snúa aftur til starfa að loknu
veikindaleyfinu. „Ég er búinn að
hafa það svo gott og vera í góðri end-
urhæfingu, heima hjá mér fyrst og
fremst, sem og í Hveragerði. Ég er í
því að ganga og geng 5–7 kílómetra
á hverjum einasta degi og er af-
skaplega glaður og bjartsýnn,“ segir
hann. Veikindin hafi orðið til þess að
hann hafi endurmetið lífsviðhorf sitt
og forgangsröðun hlutanna. „En það
er gaman að koma aftur í vinnuna
en ég hef alltaf haft gaman af því að
vinna. En þetta verður nú stutt,
snarpt og mjög hefðbundið,“ segir
Hjálmar Árnason.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„…það er gaman að koma aftur í vinnuna en ég hef alltaf haft gaman af því
að vinna,“ segir Hjálmar Árnason sem slær á létta strengi með flokkssystk-
inum sínum, Dagnýju Jónsdóttur og Magnúsi Stefánssyni, á Alþingi í gær.
Blendin
tilfinning
Hjálmar Árnason kominn til þingstarfa að nýju eftir veikindaleyfi
Morgunblaðið/Ómar
Hlýtt á umræður í þingsal
Jón sagði að lög virtust heimila
ráðherra að ráða einn aðstoðar-
mann, og því væri rétt að spyrja
forsætisráðherra hvort einhverjir
ráðherrar hefðu ráðið fleiri aðstoð-
armenn en lög gerðu ráð fyrir.
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra sagði að heimilt væri í lögum
að ráða einn aðstoðarmann, en auk
þess væri heimild
til að ráða ráð-
gjafa til að sinna
tímabundnum
verkefnum. For-
sætisráðuneytið
hefði í kjölfar
fyrirspurnar
Jóns óskað eftir
upplýsingum um
slíka starfsmenn
hjá ráðuneytun-
um. Í flestum svörum hefði komið
fram að slíkir starfsmenn væru ekki
að störfum.
Þó hefðu verið ráðnir upplýsinga-
fulltrúar í forsætisráðuneytinu og
samgönguráðuneytinu, en þeir
hefðu báðir verið ráðnir til tíma-
bundinna verkefna. Upplýsinga-
fulltrúar hefðu starfað að tíma-
bundnum verkefnum í öðrum
ráðuneytum, en gerðu það ekki
lengur. Nú væri auk þess starfandi
tímabundið ráðgjafi í menntamála-
ráðuneytinu.
Ráðuneytisstjórar
pólitískir
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, sagði rétt að
breyta lögum um pólitíska aðstoð-
armenn. Ráðherrar ættu að eiga
þess kost að ráða með sér nokkra
pólitíska aðstoðarmenn, t.d. mætti
draga mörkin við þrjá. Hann sagði
ráðuneytisstjóra stundum orðna
full-pólitíska, sem væri ekki æskileg
þróun.
Jón Gunnarsson þakkaði ráð-
herra skýr svör, kvað ljóst að að-
eins væri heimild til að ráða einn
aðstoðarmann og ráðgjafi mennta-
málaráðherra hefði þá greinilega
misskilið eitthvað þegar hún hefði
sagst vera nokkurs konar annar að-
stoðarmaður menntamálaráðherra í
viðtali á NFS.
Upplýsingafull-
trúar og ráðgjafar
ráðnir tímabundið
FORSÆTISRÁÐHERRA var spurður um heimildir ráðherra til að ráða að-
stoðarmenn í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Jón Gunnarsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, benti í fyrirspurn sinni á að í viðtali á NFS í janúar hefði
komið fram að menntamálaráðherra hefði ráðið bæði pólitískan aðstoðar-
mann og sérstakan ráðgjafa í menntamálum, sem liti á sig sem annan póli-
tískan aðstoðarmann ráðherra.
Jón Gunnarsson
Sturla Böðvarsson