Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
OFANLEITI 2, 103 REYKJAVÍK • HÖFÐABAKKA 9, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 599 6200 www.ru.is
METNAÐARFULLT OG
NÚTÍMALEGT LAGANÁM
MARKVISST NÁM – MEIRI MÖGULEIKAR
Umsóknarfrestur er til 29. maí.
Allar nánari
upplýsingar á
www.ru.is og
hjá námsráðgjöfum
í síma 599 6200.
ÍBÚÐALÁN MINNKA
Íbúðalán viðskiptabankanna
þriggja hafa dregist saman um tæp-
an helming á fyrsta ársfjórðungi,
miðað við sama tímabil í fyrra.
Hærri vextir og breyttar horfur í
efnahagsmálum virðast aðalorsökin.
Vilja endurskoðun
Endurskoða þarf lög um almanna-
tryggingar og auka þarf möguleika
öryrkja og eldri borgara á atvinnu-
þátttöku. Þetta kemur meðal annars
fram í skýrslu Landssambands eldri
borgara, Þroskahjálpar og 30 aðild-
arfélaga ÖBÍ.
19,1 milljarðs hagnaður
Hagnaður Straums-Burðaráss
fjárfestingabanka á fyrsta ársfjórð-
ungi 2006 eftir skatta var 19,1 millj-
arður króna, sem er 317% hækkun
miðað við fyrsta ársfjórðung 2005.
Heildareignir bankans hafa aukist
um 202%.
Hóta gagnárásum
Íranskir leiðtogar voru ómyrkir í
máli í gær og sögðu að gerðu Banda-
ríkjamenn árás vegna deilnanna um
kjarnorkutilraunir Írana myndi
verða svarað með árásum á Banda-
ríkjamenn og eignir þeirra um allan
heim. Vesturveldin óttast að mark-
mið tilraunanna sé að smíða kjarn-
orkusprengju. Ajatollah Ali Kham-
enei, voldugasti maður Írans, sagði
Írana reiðubúna að deila kjarn-
orkuþekkingu sinni með öðrum.
Hvítir mega kaupa jarðir
Einn af ráðherrum í stjórn Ro-
berts Mugabe, forseta Zimbabwe,
sagði í gær að hvítum bændum yrði
á ný gefinn kostur á að kaupa jarðir
sem teknar voru af þeim fyrir
nokkrum árum og afhentar blökku-
mönnum. Efnahagur ríkisins er á
heljarþröm vegna brotthvarfs hvítu
bændanna.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 36
Fréttaskýring 8 Bréf 42
Úr verinu 16 Minningar 45/51
Erlent 18/19 Brids 52
Minn staður 20 Hestar 55
Höfuðborgin 22 Myndasögur 56
Akureyri 22 Dagbók 58/61
Suðurnes 23 Víkverji 56
Landið 24/25 Staður&stund 58/59
Austurland 24/25 Leikhús 60
Daglegt líf 28/29 Bíó 62/65
Menning 30, 60/65 Ljósvakamiðlar 66
Umræðan 31/44 Veður 67
Forystugrein 34 Staksteinar 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
ALLAR líkur eru á að kjarasamn-
ingar verði í uppnámi í haust vegna
ástandsins í efnahagsmálum að því
er fram kemur í ályktun miðstjórnar
Alþýðusambands Íslands sem sam-
þykkt var í gær, en þar er lýst
áhyggjum vegna óstöðugleika í efna-
hagsmálum og gerð krafa til þess að
ríkisstjórnin axli nú þegar ábyrgð á
efnahagsstjórninni og leggi fram
raunhæfar tillögur til úrbóta.
Gríðarlega alvarlegt
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, sagði að hér ríkti
efnahagslegur óstöðugleiki og ef
stjórnvöld teldu að það væri í lagi
væru kjarasamningar í uppnámi.
„Þetta eru ekki þær forsendur sem
stöðugleikastefnan byggist á. Það
þarf að vera stöðugleiki í afkomu
fólks og fyrirtækja og þetta er ekki
það,“ sagði Gylfi.
Hann bættti því við að málið væri
gríðarlega alvarlegt að mati ASÍ.
„Vissulega liggja í þessu einnig
ákveðin vonbrigði með viðbrögð for-
sætisráðherra í gær (í fyrradag) á
fundi Samtaka atvinnulífsins að eini
vandinn sé sá að við kunnum ekki að
lesa í hagtölur,“ sagði Gylfi einnig.
Í ályktun miðstjórnar segir enn-
fremur: „Gengissveiflur hafa verið
miklar, viðskiptahalli í sögulegu há-
marki, einkaneysla mikil og fjárfest-
ingar miklar. Þessi óstöðugleiki hef-
ur leitt til þess að verðbólgan hefur
verið óviðunandi um nokkuð langt
skeið og verðbólguhorfur eru slæm-
ar fyrir næstu misseri. Afleiðingin er
sú að kaupmáttur launa margra
heimila dregst saman og greiðslu-
byrði lána vex hratt. Allar líkur eru
því á að kjarasamningar verði í upp-
námi í haust.“
Hagstjórnin brugðist
Síðan segir að einsýnt sé að núver-
andi hagstjórn hafi brugðist.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi
frekar ýtt undir verðbólgu en haml-
að gegn henni. „Illa tímasettar
breytingar á íbúðalánakerfinu og illa
tímasettar skattalækkanir hafa auk-
ið á þensluna og ójafnvægið í hag-
kerfinu. Seðlabankinn hefur einn
setið uppi með ábyrgðina á hag-
stjórninni og hann hefur beitt þeim
úrræðum sem hann hefur. Niður-
staðan er þekkt; háir vextir, miklar
gengissveiflur og allt of mikil verð-
bólga. Slík hagstjórn dugar ekki til
að treysta og undirbyggja nauðsyn-
legan stöðugleika. Sveiflur í afkomu-
skilyrðum fólks og fyrirtækja eru of
miklar til að það geti samrýmst stöð-
ugleikastefnunni.
Framvinda efnahagsmála ræðst
mikið af trúverðugleika hagstjórnar-
innar næstu mánuði og misseri. Mið-
stjórn ASÍ gerir þá kröfu til ríkis-
stjórnarinnar að hún axli þegar
ábyrgð á ástandi efnahagsmála og
leggi fram raunhæfar tillögur til úr-
bóta,“ segir einnig.
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands átelur stjórn efnahagsmála
Allar líkur á að samn-
ingar verði í uppnámi
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
Í FORSETAHEIMSÓKNINNI til Austur-Skaftafells-
sýslu tóku nemendur við Hrollaugsstaðaskóla vel á
móti forsetahjónunum en skólinn er með þeim allra fá-
mennustu á landinu. Fámennt og góðmennt þar á bæ
og fór vel á því að fá hópmynd í kennslustofunni. For-
setahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Mouss-
aieff heimsóttu Austur-Skaftfellinga í gær og fyrradag.
Forsetahjónin komu víða við í heimsókn sinni og sóttu
meðal annars heim Egil Jónsson, fyrrv. alþingismann, á
Seljavöllum. Þannig vill til að á Seljavöllum er haldin
kýr sem nefnd er í höfuðið á forsetafrúnni. Var kusa
því heimsótt og lét sér allvel líka nærveru Dorritar.
Morgunblaðið/Kristinn
Tóku vel á móti forsetahjónunum
MAÐURINN sem lést þegar hann
varð undir dráttarvél á bænum
Krossvík í Vopnafirði hét Björn
Sigmarsson. Björn, sem var frá
Krossvík, bjó að Sundabúð 2,
Vopnafirði. Hann var fæddur árið
1919. Hann lætur eftir sig eigin-
konu og tvo syni.
Lést af
slysförum
MAGNÚS Kristinsson mun að nýju
taka við embætti varaformanns
stjórnar Straums-Burðaráss Fjár-
festingabanka eftir stjórnarfund hjá
félaginu síðdegis í gær. Eggert
Magnússon mun því láta af embætt-
inu og gegna hlutverki almenns
stjórnarmanns.
Eftir fundinn lét Björgólfur Thor
Björgólfsson, formaður stjórnarinn-
ar, frá sér fara eftirfarandi yfirlýs-
ingu:
„Vegna umróts á íslenskum fjár-
málamarkaði á undanförnum vikum
og óheppilegrar opinberrar umræðu
um málefni stjórnar félagsins hefur
stjórn Straums-Burðaráss Fjárfest-
ingabanka hf. komist einróma að
samkomulagi um að færa verkaskipt-
ingu stjórnar til fyrra horfs frá því
fyrir aðalfund félagsins þann 3. mars
sl. Að öðru leyti verður ekki fjallað
um innri mál stjórnar félagsins í fjöl-
miðlum.“
Ágreiningur kom upp innan stjórn-
ar Straums-Burðaráss Fjárfestinga-
banka við kjör varaformanns stjórnar
félagsins á stjórnarfundi, sem haldinn
var strax að afloknum aðalfundi fé-
lagsins hinn 3. mars sl. Magnús Krist-
insson útgerðarmaður, sem verið
hafði varaformaður stjórnar, var ekki
endurkjörinn varaformaður heldur
var á fundinum gerð tillaga um að
Eggert Magnússon, formaður KSÍ,
tæki sæti varaformanns í hans stað.
Magnús greiddi atkvæði á móti og
gagnrýndi að fundi loknum hvernig
staðið var að undirbúningi hans.
Samkvæmt niðurstöðu fundarins í
gær mun Magnús, eins og áður segir,
taka að nýju við sæti varaformanns
stjórnarinnar.
Magnús varaformaður
Straums að nýju
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ÖLGERÐIN Egill Skallagrímsson
fékk gullverðlaun fyrir Egils Lite
bjór í heimsmeistarakeppni bjórteg-
unda í Bandaríkjunum fyrir
skemmstu. Keppnin heitir World
Beer Cup 2006 og hefur verið haldin
af Sambandi bandarískra bjórfram-
leiðenda frá 1996. Athygli vakti að
Egils Lite skaut Foster’s ref fyrir
rass í sínum flokki en ástralski bjór-
risinn fékk silfurverðlaunin.
109 manns frá 18 löndum fengu það
hlutverk að dæma 2.221 bjórtegund
frá 540 framleiðendum í 56 löndum.
Guðmundur Mar Magnússon, brugg-
meistari Ölgerðarinnar, hefur haft
veg og vanda af þróun Egils Lite.
Egils Lite
vann gull
í Banda-
ríkjunum
Vörðust
allra frétta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fulltrúar í bandarísku viðræðu-
nefndinni koma til fundarins í gær.
VIÐRÆÐUR íslenskra og banda-
rískra stjórnvalda um varnarsam-
starf ríkjanna hófust aftur í gær eftir
nokkurt hlé, en þar er farið yfir það
hvernig vörnum Íslands verði háttað
eftir að herinn fer af landi brott í
haust. Nefndarmenn vörðust allra
frétta af viðræðunum, en þeim verð-
ur haldið áfram í dag.
Sendiherra Bandaríkjanna á Ís-
landi, Carol van Voorst, fer fyrir
sendinefnd Bandaríkjanna, en í
henni er einnig James Townsend
sem fer fyrir NATO-samstarfi í
bandaríska varnarmálaráðuneytinu.
♦♦♦