Morgunblaðið - 27.04.2006, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 63
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Vorblót hefst í kvöld á NASA við Austurvöll.
Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin en ætlunin er að hún verði fast-
ur viðburður í tónlistarlífi höfuðborgarinnar. Dagskráin teygir sig frá
fimmtudegi til og með sunnudeginum 30. apríl. Á hátíðinni ægir saman
ýmsum tónlistarstefnum og straumum eins og djassi, fönki, salsa, blús og
heimstónlist og þar koma fram tónlistarmenn frá ýmsum heimshornum,
t.a.m. sígaunabandið KAL frá Belgrad, Salsa Celtica frá Edinborg, bossa
nova listamaðurinn Ife Tolentino frá São Paulo og Mezzoforte frá Reykja-
vík.
Dagskráin í kvöld
kl. 20.00 – húsið opnað
kl. 21.00 – Ife Tolentino fer á svið, Mezzoforte í kjölfarið
kl. 00.00 – Áætluð dagskrárlok
Mezzoforte
Aðalnúmerið á upphafskvöldi Vorblótsins er stórsveitin Mezzoforte sem
er nýkomin úr tónleikaferð um Mið- og Austur Evrópu. Í framhaldi af tón-
leikum sínum á Vorblótinu heldur sveitin áfram tónleikaferð sinni um
Norðurlönd og Evrópu. Mezzoforte hefur ekki spilað heila tónleika hér-
lendis um nokkuð skeið og því mikill fengur fyrir hátíðargesti að fá að njóta
fönksveiflu frá þessari stórmerku sveit.
Ife Tolentino
Brasilíski bossanova listamaðurinn Ife Tolentino hefur á ferli sínum spil-
að og tekið upp með mörgum fræknustu tónlistarmönnum Brasilíu og má
þar nefna Fagner, Toninho Horta, Nana Vasconcelos, João Donato og
Jacques Morelenbaum. Ife er fæddur í São Paulo 1952 en hefur síðustu ár
búið í London. Síðasta breiðskífa hans Brazil In Black and White, sem er
tileinkuð er Chico Burarque, einum ástsælasta tónlistarmanni og ljóð-
skáldi Brasilíu, þykir með hans bestu verkum. Ife hefur upp á síðkastið
unnið með listamönnum á borð við John Paricelli, Clare Foster, rússneska
plötusnúðnum DJ Vladim – og íslenska saxófónleikaranum Óskari Guð-
jónssyni sem mun koma fram með honum á tónleikunum á Vorblótinu.
Erlendir fjölmiðlar á Vorblóti
Blaðamenn frá tímaritunum Mojo og Songlines og Breska ríkisútvarp-
inu BBC eru meðal þeirra erlendu fjölmiðla sem koma hingað til lands til
að fylgjast með Vorblóti, eða Rite of Spring eins og hátíðin er titluð erlend-
is. Songlines er eitt stærsta og virtasta tónlistarrit heims á sviði heims- og
þjóðlagatónlistar. Blaðamenn þess eru mjög spenntir fyrir hátíðinni, ekki
síst að sjá serbnesku hljómsveitina KAL og þá innlendu listamenn sem
koma fram á hátíðinni. Þeir ætla sér heldur ekki að missa af skotunum í
Salsa Celtica, en ekki er langt síðan hún prýddi forsíðu blaðsins.
Vorblót – Rite of Spring er haldin af Hr. Örlygi í samvinnu við Ice-
landair.
Vorblót | Mezzoforte og Ife Tolentino
Mikill áhugi
erlendra fjölmiðla
Miðaverð á hverja tónleika er 2.900 kr (auk 225 kr. miðagjalds). Miði á
alla hátíðina kostar 5.900 kr (auk 400 kr. miðagjalds). Forsala að-
göngumiða fer fram í verslunum Skífunnar, BT á Selfossi og Akureyri og á
netinu hjá www.Midi.is. Einnig verða seldir miðar á tónleikadag á NASA.
Morgunblaðið/Jim Smart
Mezzoforte hefur ekki leikið heila tónleika hér á landi í háa herrans tíð.
HOLLENSKA tríóið Treble sem er
framlag Hollendinga til Evróvisjón í
ár, kom til landsins í gær en tríóið er
um þessar mundir á ferð um öll 37
þátttökulöndin til að kynna sig og
hitta aðra þátttakendur. Stúlkurnar
hollensku óskuðu að sjálfsögðu eftir
því að hitta okkar einu sönnu Silvíu
Nótt en áður en sá fundur átti að fara
fram var skipulögð heimsókn í sjón-
varpsþáttinn 6 til sjö þar sem Treble
hugðist flytja sigurlag sitt. Þangað
mætti Silvía hins vegar óforvarandis
og eftir að hafa kynnt sig, kærasta
sinn Romario og lífverðina tvo,
bauðst hún til að hjálpa stelpunum
við flutninginn á laginu (lesist: þær
áttu að vera bakraddasöngkonur
Silvíu). Það gekk hins vegar ekki bet-
ur en svo að í miðju lagi urðu hinar
hollensku söngmeyjar að stöðva
flutninginn til að kenna Silvíu Nótt
réttan framburð og svo fór allt meira
eða minna úr böndunum eftir að
Silvía byrjaði að leika á rafmagns-
gítar við lagið sem hún var vel að
merkja að heyra í fyrsta skipti.
Eftir þáttinn bauð Silvía Nótt
stúlkunum út að borða á Óliver þar
sem ljósmyndarar og sjónvarps-
tökumenn frá hollenska ríkissjón-
varpinu biðu þeirra. Silvía sagði í
viðtali við hollenska sjónvarpið að
hollenska lagið væri uppáhaldslagið
hennar og væri líklega það besta
sem hún hefði heyrt.
Hollenska tríóið fór af landi brott
í gærmorgun.
Tónlist | Framlag Hollendinga til Evróvisjón heimsótti Ísland
Uppáhaldslag Silvíu Nóttar
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Ástmaður Silvíu Nóttar, Romario, stóð vörð um ástkonu sína en ekkert bólaði á vini hans Pepe.
Hollensku stúlkurnar stilltu sér upp fyrir ljósmyndara
en það er auðséð hver er stjarnan á þessari mynd.
Silvía Nótt lék á rafmagnsgítar við hollenska lagið í þætt-
inum 6 til sjö á Skjá einum.
FRÁ ÖLLUM HANDRITS-HÖFUNDUM „SCARY MOVIE“
2 af 6
ÞÉR MUN STANDA
AF HLÁTRI!
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Sími - 551 9000
-bara lúxus
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.30
eee
LIB, Topp5.is
eee
V.J.V Topp5.is
eee
H.J. Mbl
eee
J.Þ.B. Blaðið
42.000 manns á
aðeins 18 dögum!
Kl. 4 og 6 ÍSL. TAL
Vinsælasta myndin á Íslandi í dag
RANGUR TÍMI, RANGUR
STAÐUR, RANGUR MAÐUR
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 16 ára
“Ekkert mun búa þig undir kraftinn
og þungann í þessari mynd.”
-Quentin Tarantino
SVAKALEGUR SPENNUTRYLLIR SEM
HELDUR ÞÉR Í HELJARGREIPUM
FRÁ UPPHAFI TIL ENDA
„Ég er dolfallinn“
eee
ROGER EBERT
„Rosaleg kvikmyndaupplifun“
eee
M.M.J. Kvikmyndir.com
eee
s.v. Mbl
eee
DÖJ kvikmyndir.com
eeee
DÓRI DNA dv
walk the line
The Hills Have Eyes kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Ice Age 2 m/ensku tali kl. 6, 8 og 10
Lucky Number Slevin kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
When a Stranger Calls kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Walk the Line kl. 5.30
Ekki missa af frumlegustu gamanmynd ársins.
Sýnd kl. 4Kl. 10.20 B.i. 16 ára
RANGUR TÍMI, RANGUR
STAÐUR, RANGUR MAÐUR
„FRÁBÆR, FLOTT OG FYNDIN...
OFURSVALUR SPENNUTRYLLIR“ FHM
eee
LIB, Topp5.is
eee
DÖJ kvikmyndir.com
eeee
DÓRI DNA dv
Sumum karlmönnum þarf að ýta út úr hreiðrinu
Allra
síðustu sýningar!