Morgunblaðið - 27.04.2006, Side 26

Morgunblaðið - 27.04.2006, Side 26
B altasar Kormákur var ánægður með vel heppnaðar tökur fyrir kvikmyndina Mýrina, en næst síðasti tökudagur í Reykjavík var á þriðjudaginn og svo eru örfáar tökur eftir úti á landi. „Þetta hefur gengið rosalega vel og við erum á áætlun, höfum verið að skjóta í sex vikur og erum þegar farin af stað með klippingu. Okkur hefur alls staðar verið tekið vel þar sem við höfum þurft að athafna okkur, bæði af ein- staklingum og stofnunum.“ Baltasar segir þetta stífa törn og lítill tími gefist fyrir ann- að á meðan. „Ég hef aðeins komist tvisvar á hestbak síðan tökur hófust, en það er besta slökun sem ég get hugsað mér. Ég endur- nærist við það að ríða út.“ Hann er mjög sáttur við starfsfólkið sitt og segir þennan hóp sem vinnur að myndinni vera einn þann allra besta sem hann hefur kynnst. „Sumir eru þeir færustu á sínu sviði, eins og Kjart- an hljóðmaður sem ég hef unnið lengi með en öðrum er ég að vinna með í fyrsta sinn.“ Ráðskonan Rakel Jónsdóttir er einmitt ein þeirra sem ekki hafa áður unnið með Baltas- ar en hún segir samstarfið hafa gengið vel. Vaskar upp í litlu vaskafati „Ég á eiginlega að vera mamman í hópn- um og reyni að hugsa eins vel um alla og ég mögulega get. Ég sé um að gefa fólkinu að borða og drekka, ber í þau kaffi og meðlæti á tökustað og svo koma þau hingað inn í rútu til að borða einu heitu máltíðina sem þau fá yfir daginn, en ég þarf ekki að elda hana, heldur sé um að panta hana úti í bæ og sæki hana. Það er ekki eldunaraðstaða hér í rútunni og ekki heldur rennandi vatn. Ég er með fimmtíu lítra tunnu, fulla af vatni, sem dugar mér yfir daginn og svo vaska ég leirtauið upp í litlu vaskafati.“ Rút- an, sem er vinnustaður Rakelar um þessar mundir, er tuttugu og þriggja ára Int- ernational langferðabifreið sem kölluð er Ís- firðingurinn en upphaflega kemur hún frá hernum á Keflavíkurflugvelli og Rakel hefur prófað að keyra hana, enda er hún með meirapróf. „Þetta er svaka trukkur. En ef það er frost úti þá verður stundum svolítið kalt hérna inni, því það er engin miðstöð í henni. En við erum með litla blástursofna og þetta reddast allt saman. Ég reyni þá bara að hlaupa mér til hita þegar kallað er í mig í talstöðinni og ég beðin um að koma með eitthvað á tökustað.“ Mæting klukkan sex á morgnana Vinnudagurinn hjá hóp sem er að taka upp kvikmynd er langur og óreglulegur. „Vinnudagurinn er sjaldan undir tólf tímum og stundum fer hann upp í fimmtán tíma. Stundum þurfum við að mæta klukkan sex á morgnana og stundum seinnipartinn, en ég veit aldrei með vissu fyrr en í lok hvers dags hvenær ég á að mæta daginn eftir,“ segir Rakel sem er á fullu allan daginn, að smyrja samlokur, kaupa inn og gera allt sem þarf að gera. „En mér finnst þetta gaman og þetta er líka bara tímabundið verkefni. Það er til dæmis skemmtilegt að láta hugmyndaflugið ráða í efnisvali við sam- lokugerðina og gera tilraunir. Sumir í hópn- um hafa hvatt mig til að opna samlokustað. Ég lít náttúrlega á það sem hrós.“ Kunni ekki að sjóða egg Rakel er ekki alls óvön ráðskonustörfum því hún hefur gert þó nokkuð að því að elda ofan í ferðamenn sem komið hafa til lands- ins. „Þegar ég var tvítug þá tók ég að mér kokkastarf yfir sumar hjá rútufyrirtæki sem var með hópferðir út á land, en þá kunni ég ekki að sjóða egg, hvað þá meira. En allt fór þetta vel og ég bjó í tjaldi allt sumarið, sem var mjög gaman. Svo var ég líka ráðskona í hestaferðum hjá Íshestum eitt sumur.“ Rak- el er leiðsögumaður á sumrin og segist þá stundum þurfa að elda ofan í ferðamennina og þá kemur ráðskonureynslan sér vel. Í leiðsögumennskunni hefur hún líka þjálfast í því að vera með hópa þar sem einginn er eins, en það er heilmikil kúnst. Hún segir nokkuð sérstakt að vinna með hóp sem er að taka upp kvikmynd og að hún hafi lært heil- mkið af því. „Ég þarf að bregðast skjótt við þegar kallað er í talstöðina og passa mig að ganga ekki inn í miðja töku eða láta í mér heyra þegar ég fer með mat út á settið. Svo er fjöldinn í hópnum sem ég þarf að gefa að borða breytilegur, stundum eru þetta fimm- tán manns en getur farið upp í þrjátíu. Ef það eru aukaleikarar þá bíða þeir mikið hér inni í rútunni hjá mér og ég þarf náttúrlega að sjá til þess að þá skorti ekkert. Það krefst mikillar þolinmæði að vinna í þessu þrönga rými og það getur tekið á að skila sínu þegar ég get kannski næstum ekki snú- ið mér við. En í þessum hóp eru einstök ljúfmenni og flestir húmoristar og fyrir vikið þá gengur þetta allt saman upp.“ Rakel færir leikstjóranum Baltasar Kormáki rjúkandi disk með kjötsúpunni kjarngóðu. Lísa Kristjánsdóttir aðstoðarleikstjóri kemur askvaðandi í rútuna með kjötsúpu sem hún eld- aði fyrir hópinn í tilefni af fimm hundraðasta „klappinu“ (slate) í upptökum Mýrarinnar. Morgunblaðið/Ómar Rakel tók sig til og málaði nöfn allra starfsmanna á bollana þeirra og skreytti með mynd. khk@mbl.is apríl Daglegtlíf ÞAÐ er jafnslæmt ef ekki verra að vera þreyttur undir stýri en stútur undir stýri, að því er sænsk rannsókn bendir til. Fimmta hvert umferðaróhapp má nefnilega rekja til þreytu eða svefnleysis bílstjóra, að því er m.a. kemur fram á vef Berlingske Tidende. Doktorsverkefni við Umeåháskóla gekk út á að rannsaka viðbragðsflýti hjá annars vegar þreyttum og hins vegar út- hvíldum þátttakendum. Niðurstöðurnar voru m.a. þær að bílstjóri sem ekki hafði sofið nægilega mikið hafði sama viðbragðs- flýti og maður með 0,8 prómill af alkóhóli í blóðinu. Til samanburðar má geta þess að á Íslandi má ekki hafa meira en 0,05 prómill í blóðinu undir stýri. Þreyta undir stýri stórhættuleg  RANNSÓKN Margir þurfa að leggja hönd á plóg við gerð kvikmyndar og meðal annars þarf einhver að sjá til þess að magar séu mettir og þorsta starfsfólks svalað. Kristín Heiða Kristinsdóttir fékk að læðast um á tökustað með ráðs- konunni Rakel Jónsdóttur þegar Mýrin var fest á filmu. Ráðskonan í rútunni  VERKEFNI | Rakel Jónsdóttir er mamman í Mýrinni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.