Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 43 UMRÆÐAN Vegna mikils aðstreymis aðsendra greina í aðdraganda bæjar- og sveitarstjórnarkosninganna verður formi þeirra greina, sem lúta að kosningunum, breytt. Er þetta gert svo efnið verði aðgengilegra fyrir les- endur og auka möguleika Morgunblaðsins á að koma greinunum á framfæri fyrir kosningar. Bæjar- og sveitarstjórnarkosningar MIKIÐ hefur verið rætt um hnignun miðbæja og margar kenningar eru á lofti um hverjar ástæðurnar séu. Augljósasta skýringin er sú að eftir því sem íbú- um tiltekins bæjarhluta fækkar er minni spurn eftir þjónustu á því svæði. Það gefur sem sagt augaleið að rekst- ur hverfisverslunar, svo dæmi sé tekið, versnar í réttu hlutfalli við fækkun íbúa í viðkomandi hverfi. Breyttir lífshættir leiða af sér eðli- lega þróun og breytingar á umhverfi miðbæjanna. Íbúum þar fækkar eftir því sem íbúabyggðin færist yfir í úthverfin. Að sama skapi færist verslun og þjónusta í auknum mæli yfir í stórmarkaði og verslunarmiðstöðvar, sem gjarnan eru utan miðbæjarsvæðisins. Þessi þróun hefur átt sér stað í flestum löndum hins vestræna heims. Að skekkja samkeppnisstöðuna Á seinni árum hafa yfirvöld skipulagsmála í mörgum borgum og stærri bæjum lagt áherslu á að fjölga íbú- um í miðbænum með það að markmiði að gæða miðbæinn auknu lífi. Þessi viðleitni hefur sætt gagn- rýni. Spurt hefur verið hvers vegna sveitarfélag eigi að nota skattpeninga til að „bjarga“ verslunarrekstri í gamla miðbænum og af hverju miðbærinn megi ekki þróast á eigin forsendum eins og aðrir bæjarhlutar; rísa og hnigna? Ég hygg að flestir vilji innst inni hafa jákvæð áhrif á þróun miðbæjarins síns. En hvernig á að gera það án þess að kosta miklu til og skekkja samkeppnisstöð- una? Það getur ekki talist eðlilegt að sveitarsjóður hlúi sérstaklega að rekstri fyrirtækja sem eru stað- sett á miðbæjarsvæði. Að sama skapi er óeðlilegt að bæjarsjóður leggi mismunandi álögur á íbúa eða fyr- irtæki eða innheimti misháar tekjur af atvinnu- starfsemi eftir því hvar hún er staðsett í bænum. Enga stöðumæla, takk! Dæmi um skekkta samkeppnisstöðu er innheimta gjalds fyrir stöðu bíla á miðbæjarsvæði. Hvers vegna á bæjarsjóður að hafa tekjur af viðskiptavinum fyr- irtækja í miðbænum með innheimtu bílastæðagjalda? Dæmi eru um að bæjarfélag hafi umtalsvert hærri tekjur af rekstri bílastæðasjóðs en sem nemur þeim gjöldum sem til falla vegna rekstrar bílastæða á mið- bæjarsvæðinu. Slíkt er auðvitað ótækt með öllu. Við Akureyringar tókum upp nýtt fyrirkomulag í fyrra við stjórnun á stöðu bíla í miðbænum. Öll gjald- taka á almennum stæðum var lögð af og í stað mið- amæla og stöðumæla voru teknar upp bílastæða- klukkur. Þær eru notendum að kostnaðarlausu svo framarlega sem þeir gæta þess að geyma ekki bifreið sína lengur en leyfilegt er í tilteknu stæði. Næg bílastæði og allir ánægðir Reynslan af breytingunni og þessu nýja kerfi er væg- ast sagt mjög jákvæð og eigendur fyrirtækja í mið- bænum hafa fundið fyrir mikilli breytingu til hins betra. Og það sem meira er: Í ljós hefur komið að bílastæði eru nógu mörg og að alltaf eru laus stæði, jafnvel á háannatímum! Þar fóru hrakspár úrtölu- manna fyrir lítið! Það er bjargföst trú mín að með breyttu skipulagi og fjölgun íbúa á miðbæjarsvæðum megi hjálpa til við þróunina: Miðbærinn lifnar við á eigin forsendum. Þróun miðbæja og aðgerðir sveitarstjórna Eftir Guðmund Jóhannsson Höfundur er formaður umhverfisráðs Akureyrar og skipar 12. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórnarkosn- ingunum 27. maí nk. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Stór sumarbústaðalóð á Þingvöllum Vorum að fá í einkasölu 10 þús. fm sumarbústaðarlóð á eftirsóttum stað á Þingvöllum. Glæsilegt útsýni og gott aðgengi að vatninu. Heimilt er að byggja sumarhús sem yrði 150 fm að grunnfleti auk 30 fm gestahúss. V. 17,0 m. 1.272 fm húseign við Bæjarhraun í Hafnarfirði. Um er að ræða 38 sam- þykktar stúdíóíbúðir í traustri útleigu sem verið er að ljúka við að innrétta. Leigusamningur til lengri tíma er í gildi um allar íbúðirnar við einn leigutaka. Sameign í góðu ástandi og ný lyfta. Góð aðkoma og næg bílastæði. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Bæjarhraun - Hafnarfirði Heimili fyrir þig - alhliða eignaumsýsla Sími 530 6500 Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Allar nánari upplýsingar veitir Bogi Pétursson, löggiltur fasteignasali, á skrifstofu Heimilis eða í síma 699 3444. Óskum eftir sérbýli, raðhúsi, parhúsi eða einbýli í Grafarvogi Bogi Pétursson lögg. fasteignasali ER spurt en lítum á staðreyndir málsins. Reykjavíkurflugvöllur í Vatns- mýri hefur þjónað íslensku samfélagi vel í gegnum árin og getur haldið því áfram um ókomin ár. Nú er þó svo komið að landið undir Vatnsmýrar- flugvelli þykir eftirsóknarvert til húsbygginga og meirihluti borgarbúa vill flugvöllinn úr Vatnsmýrinni. Ef það er vilji fólksins að flug- völlurinn víki þarf að finna aðra staðsetningu fyrir hann á höfuðborgarsvæðinu, en það er skoðun mín og þeirra flug- manna sem ég hef rætt við vegna málsins að ekki komi til greina að höfuðborgin Reykjavík verði flugvallarlaus. Hvers vegna ekki og hvar skal þá byggja flugvöll? Ýmsar hugmyndir hafa verið viðraðar um staðsetningu flugvallarins. Að mínu mati kemur ekki til greina að setja hann fyrir austan borgina, eins og t.d. á Hólmsheiði. Þar eru aðstæður þannig að landið liggur hátt og því oft lágskýjað. Einnig er þar vindasamt og nálægð við fjöll ógnar flugöryggi. Ég get fallist á að flugvöllur á Álftanesi sé ákjósanlegur kostur. Þar eru aðstæður til flugs svipaðar og á Reykjavíkurflugvelli, ef ekki betri, en bæjaryfirvöld á Álftanesi hafa þver- tekið fyrir flugvöll þar. Einnig verður landsvæði Álftaness væntanlega eft- irsótt til húsbygginga í framtíðinni, svipað og með Vatnsmýrina nú. Þar með getur tæpast talist raunhæfur kostur að landinu þar verði ráðstafað undir flugvöll. Löngusker eru því sá kostur sem stendur uppúr, í bókstaflegri merkingu. Aðstæður þar til flugs eru góðar og litlu sem engu landi væri fórnað undir flugvöllinn. Ef flugvöllur yrði byggður á Lönguskerjum myndi vinnast mun meira land í Vatnsmýri en þyrfti að búa til á Lönguskerjum fyrir flugvöll. Það er vegna þess að stórt svæði í kringum Reykjavíkurflugvöll er ekki hægt að nýta til húsbygginga vegna nálægðar við flugbrautirnar. Á Lönguskerj- um væri slíkt ónýtanlegt svæði að mestu undirlagt af sjó sem er að sjálfsögðu afar hagkvæmt. Sumir vilja að Reykjavíkurflugvöllur verði lagður niður og miðstöð innan- landsflugsins flytjist á Keflavíkurflugvöll. Þessu fylgja margvíslegir ókostir. Fyrst má nefna að nálægð Reykjavíkurflugvallar við Landspítalann er ómet- anlegur kostur fyrir bráðatilfelli í sjúkraflugi. Í öðru lagi yrði flugtími í inn- anlandsflugi lengri enda allar flugleiðir utan af landi lengri til Keflavíkur en til Reykjavíkur og aksturstími til og frá flugvelli lengdist einnig til muna. Í þriðja lagi yrði flugöryggi ógnað því Reykjavíkurflugvöllur er mikilvægur varaflugvöllur fyrir flugumferð á leið til Keflavíkurflugvallar. Eins þjónar Keflavíkurflugvöllur sem varaflugvöllur fyrir flugvélar á leið til Reykjavíkur en það er ekki síður mikilvægt öryggisatriði fyrir innanlandsflugið. Í allri flugstarfsemi er öryggið mikilvægast en með því að rýra flugöryggi á einn eða annan hátt er allt of verðmætum hagsmunum fórnað. Það er nauð- synlegt að velja raunhæfasta og besta kostinn sem er nýr Reykjavík- urflugvöllur á Lönguskerjum. Hvers vegna flug- völlinn á Löngusker? Eftir Ingvar Jónsson Höfundur er flugstjóri hjá Icelandair og skipar 8. sæti B-listans í Reykjavík. BORGARSTJÓRI, Steinunn Val- dís Óskarsdóttir, hefur nýverið geyst fram á ritvöllinn til að svara grein undirritaðs í Morgunblaðinu þar sem staða barna- fólks og fjár- hagsstaða sveit- arfélaganna á höfuðborgarsvæðinu var borin saman. Hún hefur notað orðaforða sem minnir helst á harðsvíraða götu- stráka, enda tekur hún þetta allt nærri sér og eitthvað er samviskan slæm. Rétt er að taka fram eftirfar- andi: 1. Borgarstjóri víkur ekki einu orði að kjarna málsins, að það sé ódýrast fyrir barna- fjölskyldur að búa í Kópavogi. 2. Ekki vildi borgarstjóri ræða íbúaþróun, þar sem hún veit að barnafjölskyldum hefur fækkað í Reykjavík undanfarin 10 ár og fjölgað mest í Kópavogi. 3. Ekki minntist borgarstjóri á að R-listinn hefur létt af borg- arsjóði skuldum upp á 35 millj- arða króna með því að skuld- setja Orkuveituna og Félags- bústaði um þá upphæð. 4. Eignarhlutur borgarinnar hjá Landsvirkjun (25–30 milljarðar króna) var færður til eignar hjá borgarsjóði. Hann var áður eign Rafmagnsveitu Reykjavíkur og hefði átt að ganga til Orkuveit- unnar en hlutfallslegar skuldir Landsvirkjunar voru ekki tekn- ar með inn í dæmið. 5. Borgarstjóri gortar af hækkun lægstu launa en staðreyndin var sú að þeir hæst launuðu hjá Reykjavíkurborg fengu mest og þeir lægst launuðu fengu minnst. 6. Merkilegt er þó að borgarstjóri viðurkennir loks að skuldir á hvern íbúa í Reykjavík eru með því hæsta sem þekkist á lands- vísu. Þetta er nýlunda því R-listinn hefur ekki fengist til að tjá sig um gríðarlegan vöxt heildarskulda Reykjavík- urborgar á síðustu 10 árum. Oft sannast hið fornkveðna að sannleikanum er hver sárreiðastur. Sannleikurinn er sár Eftir Gunnar I. Birgisson Höfundur er bæjarstjóri og skipar 1. sæti á D-lista Sjálfstæð- isflokksins í Kópavogi. mbl.is smáauglýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.