Morgunblaðið - 27.04.2006, Qupperneq 14
Þurrhreinsun
ReglurMengunarvarnir
Bestu fáanlegu tækni (BAT) verður beitt við hreinsun
útblásturs frá álverinu í Reyðarfirði. Almennt eru gerðar
strangar kröfur um mengunarvarnir í íslenskum lögum
og reglugerðum. Þar sem íslensk viðmið vantar, eru
evrópskir staðlar hafðir til hliðsjónar. Á þynningarsvæði
umhverfis álver geta eftirlitsaðilar samþykkt að styrkur
efna fari yfir viðmiðunarmörk. Helstu mengunarefni í
útblæstri álvera eru loftkennt flúoríð (HF), rykbundið
flúoríð, brennisteinsdíoxíð (SO2), svifryk (PM10) og
svokölluð fjölhringa kolefnissambönd (PAH), en meðal
þeirra efna er B(a)P.
SjórFrárennsli
Þegar eingöngu er beitt þurrhreinsun
verður ekkert frárennsli frá framleiðslu-
ferlum til sjávar. Við þvottinn í vothreinsi-
virkjunum breytist SO2 í súlfat (SO4) sem
er óskaðlegt sjó og lífríki hans. Önnur
efni í útblæstrinum skolast einnig út í sjó
og geta valdið staðbundinni mengun við
útrás vothreinsibúnaðarins, en þynnast
fljótt út eins og sést í niðurstöðum
dreifingarreikninga í sjó.
Skýrslu um mat á umhverfisáhrifum álvers í
Reyðarfirði, svokallaðri frummatsskýrslu, var skilað
til Skipulagsstofnunar 7. apríl síðastliðinn. Í
skýrslunni er að finna niðurstöður umfangsmikilla
rannsókna sem gerðar hafa verið til að meta áhrif
álversins á umhverfið. Hluti af matsferlinu felst í
því að kynna skýrsluna fyrir almenningi. Vegna
athugasemda, sem bárust við matsáætlunina, voru
færustu sérfræðingar fengnir til að meta ítarlega
tvo kosti við hreinsun útblásturs, þurrhreinsun
eingöngu og þurrhreinsun að viðbættri
vothreinsun. Áhrif útblásturs frá álverinu er innan
allra viðmiðunarmarka í báðum tilvikum.
Tómas Már Sigurðsson
forstjóri Alcoa Fjarðaáls
Hluti af þurrhreinsibúnaði
álversins í Reyðarfirði á leið
til hafnar
Útblástur Viðmiðunartímabil Umhverfismörk
Þurrhreinsun Vothreinsun
eingöngu auk þurrhreinsunar
SO2
1 klst. 350 µg/m3 Uppfyllt alls staðar Uppfyllt alls staðar
(Má fara yfir 24 sinnum á ári)
24 klst.
50 µg/m3 Uppfyllt alls staðar Uppfyllt alls staðar
(Má fara yfir 7 sinnum á ári)
125 µg/m3 Uppfyllt alls staðar Uppfyllt alls staðar
(Má fara yfir 3 sinnum á ári)
Almanaksárið 20 µg/m3 Uppfyllt alls staðar Uppfyllt alls staðar
Flúoríð
24 klst. 25 µg/m3 Uppfyllt alls staðar Uppfyllt alls staðar
Vaxtartími gróðurs 0.3 µg/m3 Uppfyllt utan Uppfyllt utan
(1. apríl – 30. september) þynningarsvæðis þynningarsvæðis
Svifryk (PM10)
24 klst.
50 µg/m3 Uppfyllt alls staðar Uppfyllt alls staðar
(Má fara yfir 23 sinnum á ári)
Almanaksárið 20 µg/m3 Uppfyllt alls staðar Uppfyllt alls staðar
B(a)P Almanaksárið 1 ng/m3 Uppfyllt alls staðar Uppfyllt alls staðar
Þurrhreinsun eingöngu
Notaður verður öflugur þurrhreinsi-
búnaður með meira en 99,5% hreinsi-
virkni til að fjarlægja og endurvinna
flúor úr útblæstrinum. Hreinsaður
útblástur er leiddur um 78 metra háan
reykháf til að tryggja sem mesta
dreifingu og þynningu útblástursefna í
andrúmsloftinu. Útblástur frá þurr-
hreinsivirkinu eingöngu er mjög heitur
og kemur út úr reykháfnum á miklum
hraða, sem leiðir til betri dreifingar
og minni styrks efna við jörðu.
Áhrif útblásturs eru alls staðar undir umhverfismörkum
Þurrhreinsun með vothreinsun
Við vothreinsun er útblástur frá
þurrhreinsivirkinu leiddur um vot-
hreinsivirki, þar sem útblásturloftið
streymir upp á móti sjó sem er dælt
niður í gegnum úðara. Við þetta
hreinsast meira en 95% af SO2 úr
útblæstrinum. Reykháfar vothreinsi-
virkja eru af staðlaðri hæð, 40 m. Hærri
reykháfar myndu ekki ná sömu virkni
hvað varðar loftdreifingu og næst með
háum reykháfi þurrhreinsivirkja.
Ástæðan er sú að í vothreinsivirkjunum
kólnar útblásturinn þannig að hraði
hans og uppdrif minnka. Því er líklegt
að útblástur frá vothreinsivirkjunum nái
niður að jörðu nær álverinu, frekar en
að dreifast og þynnast í meiri hæð yfir
jörðu. Niðurstöður loftdreifingar-
reikninga og áhættugreiningar styðja
þetta.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
A
LC
3
21
05
04
/2
00
6