Morgunblaðið - 27.04.2006, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Koenigsegg
CCR
Bílar á morgun
Sá hraðskreiðasti
í heimi á Íslandi
SPÁNSKUR humarkaupmaður vildi
kaupa óslitin humar á Hornafirði ár-
ið 1989 en Spánverjar borða humar
til hátíðabrigða um jólin og í gifting-
arveislum, enda er Spánn eitt mesta
fiskneysluland í heimi. Þessi tilraun
með óslitinn humar á Spán á sínum
tíma gekk ekki eftir, en komst aftur í
gang fyrir nokkrum árum, og nú er
svo komið að Spánverjar eru
stærstu kaupendur okkar af gæða-
humri.
Mokveiði humarbáta á Hornafirði
fyrstu vikurnar af vertíðinni lofar
góðu við að anna helstu mörkuðun-
um á Spáni, í Japan og á Ítalíu í heila
humrinum og Ameríku í humarhöl-
unum. Bátar sem voru á Lónsdýpi í
gær og fyrradag fengu veiðiskammt-
inn sem þeim var úthlutað í róðurinn
á sólarhring, en venjulega tekur þrjá
sólarhringa að fiska það magn.
Bátar frá Þorlákshöfn og Vest-
mannaeyjum hafa verið að komast af
stað og fréttist af nokkrum bátum á
Breiðamerkurdýpi í góðu fiskiríi í
byrjun vikunnar. Þá er bátur frá
Grindavík að byrja. Alls staðar er
sama sagan, bátum á humarveiðum
hefur fækkað til muna miðað við
fyrri ár.
Skipverjar á Skinney SF 30 voru
að taka tvö tonn af afla í bæði trollin
á Miðbleyðunni í Lónsdýpi þegar
þessi mynd var tekin um miðjan dag
á þriðjudag og nægði það til að fylla
kvóta veiðiferðarinnar. Sjómenn
mæla hins vegar alla veiði í skottum
svo aflinn í halinu er um 600 kíló af
slitnum humri. Tveir dagar á sjó og
tveir í landi til að anna vinnslunni
þar til krakkarnir fjölmenna eftir
skólasetuna í sumarvinnuna og hægt
verður að hafa undan svona góðri
veiði, er staðan í augnablikinu.
Humarinn ómissandi réttur
í giftingarveislum á Spáni
Morgunblaðið/Kristinn Benediktssom
Vertíð Mokveiði er á humri á flestum miðum nú í upphafi vertíðar. Það tók skipverja á Steinunni SF aðeins einn
dag að taka hæfilegan skammt fyrir vinnsluna á Höfn, en þar verður að hafa undan til að halda hámarks gæðum.
Eftir Kristin Benediktsson
krben@internet.is
Siglufjörður | „Mér heyrist menn
bera sig mjög vel yfir grásleppu-
veiðinni. Þetta hefur verið mikill
afli þegar menn hafa komist á sjó,
þeir hæstu eru komnir yfir hundr-
að tunnur af hrognum. En veðr-
áttan hefur verið leiðinleg og mjög
stopult hvað þeir hafa getað vitjað
um netin. Hefði verið þokkalegt
tíðarfar held ég það hefði orðið
gríðarleg veiði,“ sagði Sigurður
Sigurðsson hafnarvörður í Siglu-
firði þegar fréttaritari innti hann
eftir grásleppuvertíðinni sem nú
er að enda.
Sigurður sagði að átta heima-
bátar hefðu stundað grásleppu-
veiðina í vor. Einnig hafa tveir
bátar úr Haganesvík lagt upp í
Siglufirði. Bátarnir lögðu nær allir
þann 10. mars og þar sem þeir
mega veiða í 50 daga endar vertíð-
in nú um mánaðamótin. Síðustu
daga hefur heldur dregið úr veið-
inni og telja menn að sú gráa sé
gengin upp í fjöruna.
Aðalveiðisvæði bátanna í vor
hefur verið út af Siglufiirði og
Héðinsfirði en hinsvegar hefur
verið tregari veiði undan Almenn-
ingum sem þó eru hefðbundin og
gjöful grásleppumið.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Höfnin Sigurður Sigurðsson, hafnarvörður á Siglufirði, ásamt tveimur
grásleppukörlum, þeim Hilmari Zóphóníassyni og Atla Ómarssyni.
Góð grásleppuveiði
þegar gefur á sjó
ÚR VERINU
SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir um-
hverfisráðherra veitti Verkfræði-
og ráðgjafarfyrirtækinu Línu-
hönnun hf. umhverfisviðurkenn-
ingu umhverfisráðuneytisins, Kuð-
unginn, á Degi umhverfisins sl.
þriðjudag.
Dagur umhverfisins var nú
haldinn í áttunda sinn og að þessu
sinni tileinkaður endurnýtingu og
úrvinnslumálum. Sveitarfélög,
skólar og allur almenningur hafa
verið hvött til þess að huga sér-
staklega að umhverfismálum
þennan dag.
Kuðungurinn er veittur fyr-
irtækjum fyrir framlag þeirra til
umhverfismála á liðnu ári og var
viðurkenningin fyrst veitt árið
1994. Verðlaunagripurinn er kuð-
ungur og er nýr hannaður ár
hvert af nýjum listamanni. Það er
Ólöf Erla Bjarnadóttir leir-
listamaður sem hannaði Kuðung-
inn að þessu sinni. Kuðungshafinn
fær auk þess, í eitt ár frá því að
Kuðungurinn er veittur, að nota
sérstakt merki sem listamaðurinn
Kristín Þorkelsdóttir hannaði.
Línuhönnun veitt umhverfisviður-
kenning umhverfisráðuneytisins
Línuhönnun fékk viðurkenningu umhverfisráðuneytisins. Á myndinni eru
starfsmenn Línuhönnunar með umhverfisráðherra, f.v. Guðmundur Þor-
björnsson, Ríkharður Kristjánsson, Sigríður Anna Þórðardóttir, Sigurður
Ragnarsson, Helga Jóhanna Bjarnadóttir og Helgi Þór Ingason.
FYRSTI aðalfundur Þrista-
vinafélagsins verður haldinn
í dag, í ráðstefnusal Hótels
Loftleiða og hefst klukkan
17. Skv. upplýsingum Tóm-
asar Dags Helgasonar, for-
manns félagsins, mun stjórn-
in gera grein fyrir helstu
störfum sínum, reikningar
lagðir fram og framtíðar-
verkefnin rædd, meðal ann-
ars flugið í sumar.
Er félagið um þessar
mundir að kanna undirtektir
við áburðarflugið en eins og
kunnugt er af fréttum hætti
Landgræðslan formlega
áburðarfluginu á síðasta
sumri og afhenti Þristavina-
félaginu landgræðsluflugvél-
ina Pál Sveinsson til umsjónar.
Að sögn hans stendur til að
fljúga um 30 ferðir á svæðinu
kringum Þorlákshöfn þar sem
dreift hefur verið síðustu árin.
Heildarkostnaður við hverja
ferð er um 250 þúsund krónur.
Vart borgi sig að fara af stað
fyrir minna en 30 ferðir en þá
geti félagið jafnað út hluta af
fastakostnaðinum við trygg-
ingar og fleira sem tengist
rekstrinum á hverja ferð. Hef-
ur félagið skrifað um 40 fyr-
irtækjum til að leita eftir fjár-
stuðningi þeirra við verkefnið.
Undirbúa 30 ferðir á
svæði við Þorlákshöfn
Morgunblaðið/Þorkell
Fyrir dyrum stendur að landgræðsluflugvélin Páll
Sveinsson fljúgi um 30 ferðir og dreifi áburði á
svæði kringum Þorlákshöfn í sumar.
Þristavinir ræða sumarstarfið á fyrsta aðalfundi