Morgunblaðið - 27.04.2006, Page 33

Morgunblaðið - 27.04.2006, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 33 UMRÆÐAN VÍS er sá sem víða fer – var yf- irskrift á auglýsingu frá Þjóðminja- safni Íslands til leikskóla í Reykjavík eftir að það var opnað aftur eftir breytingar. Öllum fjögurra ára börnum var sér- staklega boðið að koma og fræðast um Þjóð- minjasafnið. Það er hverju barni hollt og nauðsynlegt að kynnast því samfélagi sem það lifir í. Leik- skólar eru í mismun- andi umhverfi í at- vinnulegu, félagslegu og menningarlegu til- liti. Leikskólastarf á hverjum stað mótast eðlilega af þessum ytri skilyrðum. Þjóðminja- safnið hefur verið sterkur áhrifavaldur í starfsemi þeirra leik- skóla sem standa því næst í Vesturbænum. Það var því mikil gleði þegar safnið var opnað aftur og börn- in gátu farið og skoðað gömlu beina- grindurnar ásamt ýmsu öðru sem til- heyrir gamla tímanum. Gamlir munir hafa góð áhrif á börn og vekja þau til umhugsunar um þann tíma sem eitt sinn var. ,,Í gamla daga voru allir gamlir“, sagði ein stúlka er verið var að ræða um gömlu dagana. Safnið hefur tekið miklum stakka- skiptum. Leikherbergin eru til mik- illa bóta fyrir börnin. Þar fá þau að prófa og máta ýmsa hluti sem tengj- ast safninu. Það hefur mikið að segja að börn fá að upplifa hlutina í um- hverfinu á eigin forsendum. Börn þurfa að fá að snerta og spyrja því það er þeirra leið til að skilja heiminn og læra. Hlutverk full- orðna fólksins er að skapa ákjósanlegt um- hverfi fyrir börnin. Þjóðminjasafninu hefur tekist það bærilega. Í leikskólum er yf- irleitt ekki ákveðið fyr- irfram hvað skal vinna með, heldur fá börnin að ráða. Útkoman kemur því oft á óvart og verður oft á tíðum önnur en lagt var upp með. Börnin eru klár og ef þau fá að njóta sín með hugmyndir sín- ar og þróa þær verður útkoman oft á tíðum stórfengleg. Leikskólar Vest- urbæjar ákváðu að vinna sameiginlega að einu stóru verki, sem sýnir hugmyndir barnanna um Þjóð- minjasafn Íslands. Listaverkið verð- ur til sýnis í Þjóðminjasafninu frá 27. apríl – 12. maí og mun hanga við kaffistofuna. Á sama tíma verður opið hús í öllum leikskólum Vesturbæjar þar sem afrakstur vetrarstarfsins verður til sýnis. ,,Vís er sá sem víða fer“ Soffía Þorsteinsdóttur segir frá sýningu fjögurra ára leikskóla- barna í Þjóðminjasafni Íslands Soffía Þorsteinsdóttir ’Það er hverjubarni hollt og nauðsynlegt að kynnast því sam- félagi sem það lifir í.‘ Höfundur er leikskólastjóri Sæborgar. ERT þú sögumaður? Þú hugsar kannski ekki um þig sem sögu- mann og sérð e.t.v. ekki tengslin á milli grísku goðafræðanna og við- skipta. Þú gætir jafn- vel álitið sem svo að sögumaður sé einhver sem ýkir og fer frjáls- lega með sannleikann. Staðreyndin er hins vegar sú að ef þú ert í stöðu þar sem stjórn- un eða fræðsla er hluti af þínu starfs- sviði og markmið þitt er að ná hámarks ár- angri þá eru miklar líkur á því að þú notir eitthvað af þeim að- ferðum sem hinir upp- runalegu sögumenn notuðust við fyrir mörgum öldum síðan. Á morgun, föstudaginn 28. apríl, mun fyrirtæki mitt standa fyrir námstefnu á Nordica Hotel þar sem fjallað verður um söguformið og stjórnun. Yfirskrift námstefn- unnar er „Change through story- telling“ og er Margaret Parkin fyr- irlesari. Margaret hefur skrifað þrjár metsölubækur á þessu sviði og er vinsæll fyrirlesari um allan heim. Það er því mikill fengur fyrir þá sem starfa á sviði stjórnunar að fá hana hingað til lands og eiga þess kost að hlýða á hana og jafn- vel tileinka sér fræðin hennar. Mannfræðingar segja t.d. að í mörgum hefðbundnum ættbálkum hafi hæfileikinn til að segja frá verið eig- inleiki sem varð til þess að viðkomandi var valinn til að leiða ættbálkinn. Sögumenn fyrr á tímum áttuðu sig á því að besta leið- in til að hjálpa fólki að muna væri sú að skapa lifandi og æv- intýralegar myndir í huga hvers og eins og flétta upplýsingarnar inn í þá mynd. Eftir því sem myndin sem dregin var upp var ævintýralegri, þeim mun auðveldara var að muna inntak sögunnar. Þannig urðu til illar nornir, fljúgandi svín o.s.frv. Söguformið er jafnframt gagnvirkt þar sem hlustandinn er þátttakandi í framvindunni. Það getur hjálpað einstaklingnum, hann verður síður gagnrýninn og þ.a.l. móttækilegri fyrir breytingum og nýjum hug- myndum. Söguformið er máttug leið til samskipta og virkar alls ekki sem stjórnunartæki og við- brögð verða jákvæðari frekar en þegar notuð er „brettum upp erm- arnar“ aðferð. Í upphafi fundar eða námskeiðs er hægt að nýta sér einfaldar að- ferðir til að leggja grunninn að þeirri vinnu sem fram undan er. Tilgangurinn er að fá starfsmenn til að íhuga og endurspegla hvert hlutverk þeirra er, teymisins, við- skiptavina, fyrirtækisins og þess háttar. Ef verið er að stjórna litlum hópi fólks, þá er það vel þekkt að nota sögur sem „case studies“ sem og til að hvetja til umræðna. Einnig er hægt að nota sögu sem aðgerð- aráætlun en það er mögulegt bæði þegar um einstakling er að ræða og teymi fólks. Sögur geta virkað vel við lok fundar eða námskeiðs, bæði til að draga saman efnisþætti sem og til að skapa heild. Sagan getur undir- strikað og varpað ljósi á þær áherslur sem máli skipta. Þegar komið er að sögulokum fer best á því stoppa, ekki halda áfram að tala heldur gefa andrými svo áheyrendur geti hugleitt það sem fram hefur farið. Það er þá sem töfrar sögunnar í raun gerast … Stjórnun breytinga Lísbet Einarsdóttir skrifar um stjórnun breytinga í gegnum söguformið ’Söguformið er máttugleið til samskipta …‘ Lísbet Einarsdóttir Höfundur er framkvæmda- stjóri Lectura ehf. TENGLAR .............................................. www.lectura.is www.trainingoptionsuk.com. ÞESSI spurning kom upp í huga mér þegar ég las blöðin um daginn. Nú eru þingmenn Sjálf- stæðisflokksins að hlaupa út und- an sér, bera kápuna á báðum öxlum og eru bæði í stjórn og stjórnarandstöðu svona eins og hentar. Framsóknarmenn hafa leitast við að vera heilir í stjórn- arsamstarfinu og standa við gerða samninga, þrátt fyrir að stundum hafi kal- eikurinn verið beisk- ur. Framsóknarflokk- urinn tók þátt í dansinum kringum fjölmiðlafrumvarpið þrátt fyrir að í þing- flokknum væru um það mjög skiptar skoðanir og margar efasemdarraddir. Framsóknarmenn tóku þátt í að einka- væða Símann og selja grunnnetið, enda málið kynnt með þeim hætti að það væri óaðskilj- anlegur hluti Símans. Nú er annað komið á daginn og ýmislegt sem bendir til að ráðuneyti samgöngu og fjármála hafi ekki sagt allan sannleikann í þeirri einkavæðingu. Framsóknarmenn tóku þátt í að setja Ísland á lista hinna viljugu og er langt frá því að um það hafi verið einhver sátt, en þegar menn eru í samstarfi leggja menn ým- islegt á sig til að halda friðinn og til að tryggja eigin málum fram- gang þarf stundum að sætta sig við aðra niðurstöðu í einstökum málum en þá sem menn helst hefðu óskað sér. Nú eru þingmenn Sjálfstæð- isflokksins á móti frumvarpi iðn- aðarráðherra um Nýsköp- unarmiðstöð Íslands. Þeir virðast helst hafa það á móti frumvarpinu að þeir skrópuðu á kynningu ráð- herra á frumvarpinu og efni þess og eru sárir yfir því að ekki hafi verið haldinn aukatími fyrir skrópagemlingana. Sjálfstæðisflokkurinn í heild neitar að horfast í augu við stað- reyndir þegar ræða á stöðu ís- lensku krónunnar sem örmyntar í alþjóðlegu samhengi. Flokkurinn afgreiðir alla umræðu um stöðu Íslands í Evrópu með gömlum marghröktum klisjum og forðast alla málefnalega um- ræðu, bæði innan eig- in raða og úti í þjóð- félaginu. Ábyrgur flokkur eins og Framsókn- arflokkurinn getur ekki endalaust slegið mikilvægum málum samfélagsins á frest af því samstarfsflokk- urinn hefur ekki kjark til að horfast í augu við samtímann. Fram- sóknarmenn hafa alla tíð lagt áherslu á að tryggja að allir hafi næga vinnu. Traust og öflugt atvinnulíf er forsenda fyrir góðu velferðarkerfi. Til þess að tryggja áframhaldandi hag- sæld er nauðsynlegt að horfa fordómalaust á þá kosti sem Íslandi bjóðast í samfélagi þjóðanna og í því samhengi tel ég augljóst að það liggur nær Íslend- ingum að kanna kosti þess að taka upp evru á Íslandi, en að gera frí- verslunarsamning við Kína. Formaður Sjálfstæðisflokksins er á flótta í utanríkismálum og er nú svo komið að hann hallar sér að Kína á sama tíma og vestrænar þjóðir hafa sívaxandi áhyggjur af flæði ódýrrar vöru frá Kína ætlar hann að opna dyrnar upp á gátt. Allt til þess að halda í úrelta hug- myndafræði Davíðs Oddssonar að betra sé að stinga höfðinu í sand- inn en að ræða málin. Er ekki komin tími til að fram- sóknarmenn gefi íhaldinu frí frá landsstjórninni og láti reyna á það í samstarfi við Samfylkingu hvort við náum ekki viðunandi lendingu í aðildarviðræðum við Evrópusam- bandið, íslenskum fyrirtækjum og íslenskum fjölskyldum til heilla. Er þetta ekki orðið ágætt? G. Valdimar Valdemarsson fjallar um stjórnmálaástandið G. Valdimar Valdemarsson ’Er ekki kominntími til að fram- sóknarmenn gefi íhaldinu frí frá landsstjórn- inni…‘ Höfundur er kerfisfræðingur og félagi í Framsóknarflokknum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.