Morgunblaðið - 27.04.2006, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 27.04.2006, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Margar minningar koma upp í hugann frá fyrstu til síðustu stundar þegar ég minnist Rönku og eru þær hver ann- arri fegurri og dýrmætari. Það eru ekki allir sem geta státað af því að hafa eignast einu bestu tengdamóð- ur í heimi. Þó að öllum líkindum sé verið að bera í bakkafullan lækinn með kveðjuorðum til þessarar mik- ilfenglegu konu sem ekki bar mikið á en allir soguðust að sem komust í einhvern námunda við hana, má ég til með að bæta þar aðeins við. Ranka gaf öllum eitthvað af sjálfri sér. Hún hafði alltaf tíma fyrir stóra sem smáa þrátt fyrir að alltaf væri fullt hús af fólki hjá henni á Hjálms- stöðum, bæði af börnum og barna- börnum, frændum og vinafólki. Hún forðaðist að fara að heiman, sérstak- lega um helgar því enginn mátti koma í tómt hús eða verða af heim- sókn til hennar. Mat og kaffi komst enginn undan að þiggja. Hún var alls staðar vel heima, las mikið, kunni ógrynni af ljóðum, bæði eftir þekkta og óþekkta höfunda. Hún var mjög viðkvæm og rómantísk kona, kunni heilu bækurnar utanað, hvort sem það var fyrir unga eða aldna. Las ljóðabálkana fyrir okkur með mikilli innlifun og tilfinningu þannig að kökkur kom í háls eða tár í auga. Þótt hún lægi deyfð og kvalin kom hún okkur enn á óvart og las upp ljóðabálka sem náðist að hljóðrita aðeins sólahring áður en hún kvaddi þennan heim. Hún ræktaði svo sannarlega garð- inn sinn og hann var stór og hver átti ekki lopapeysu eftir hana? Ég undr- aðist oft eljuna í henni að heimsækja alla, koma við á sem flestum stöðum þegar hún skrapp til Reykjavíkur. Gleðin, kærleikurinn, ástúðin, kátín- an og hláturinn voru helstu einkenni Rönku og hefur þessi eiginleiki erfst til allra hennar afkomenda. Yndis- legt er að hafa öðlast það hlutskipti RAGNHEIÐUR SVEINBJÖRNS- DÓTTIR ✝ RagnheiðurSveinbjörns- dóttir fæddist á Snorrastöðum í Laugardal 17. júlí 1916 og ólst þar upp. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urlands, Selfossi 7. apríl síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Skálholts- kirkju 15. apríl. að hafa tengst og sam- einast öllum þessum frábæra ættlegg gegnum áratugina þar sem samheldnin, gleðin og húmorinn ráða alltaf ríkjum. Ranka spilaði á org- el og las nótur, ófáar helgar á Hjálmsstöð- um átti hún sinn þátt í því að fjör og gleði fyllti húsið alveg fram að því síðasta. Þótt ár- in væru að verða 90 var hún alltaf með og fór með þeim síðustu í háttinn. „Það er svo gaman að hafa ykkur,“ sagði hún. Hún vildi aldrei missa af neinu þrátt fyrir að sjónin og líkaminn væri farin að bila verulega. Fyrir ári héldum við að hún væri að kveðja er hún veiktist hastarlega en upp úr því komst hún þó að heilsan hafi ekki verið góð. Nú var það fótbrot sem trúlega olli því að hún náði því ekki að vera með okkur á okkar árlegu sumargleði á Hjálmsstöðum sem er alltaf í kringum afmælið hennar og hún var farin að hlakka til að fylla sín 90 ár þar með fjölskyldunni. Samheldni systkinanna um að bera móður sína á höndum sér þegar þróttur og þrek fór að þverra var einstakt, voru þau öll sem eitt alltaf tilbúin að leggja til hjálparhönd og fórna öllu öðru fyrir hana með þeim dýpsta kærleik sem er til. Hún átti því láni að fagna að vera alla tíð heimilisföst á Hjálmsstöðum. Vil ég sérstaklega tjá svilkonu minni, Fanney, þakklæti, virðingu mína fyrir hvað hún hjúkraði og annaðist tengdamóður okkar síðustu árin og sá þannig til þess að hún þurfti ekki að flytja í burtu frá Hjálmsstöðum. Við ræddum oft um hvað væri framundan eftir þetta líf, vorum ekki alltaf á sama máli en samt var henni í mun að heyra mína skoðun og spurði þá ofan í kjölinn. Nú hefur hún komist að því sanna. Guð veri með þér, Ranka mín, og okkur öllum, ástvinum þínum sem eftir erum. Óneitanlega komum við öll á eftir en í hvaða röð er öllum hul- ið. Eygló Þorgeirsdóttir. Komið er að kveðjustund, elsku- leg tengdamóðir mín er látin. Minn- ingarnar eru margar frá því ég kom fyrst að Hjálmsstöðum kornung sem tilvonandi tengdadóttir þeirra Rönku og Pálma. Þar var gott og skemmtilegt að koma og alltaf nóg pláss, þó að húsið væri lítið, fólkið margt og nútímaþægindum ekki fyr- ir að fara. Þjónustaði húsmóðirin alla í mat og drykk og passaði vel að enginn færi svangur þaðan og ríkti alltaf mikill léttleiki yfir heimili þeirra hjóna. Ranka var skemmtileg kona, létt í lund og ekki síður á fæti. Spilaði á orgel, hafði yndi af söng og kunni ógrynni af ljóðum, sem hún þuldi upp fyrir okkur fram á síðasta dag, einnig hafði hún mjög gaman af að taka í spil. Hún bar hag stórfjöl- skyldunnar mjög fyrir brjósti og naut sín best með henni á góðri stundu, en fjölskyldan er alveg ein- staklega samheldin, svo að eftir er tekið. Margt á ég henni að þakka, sem dæmi tók hún að sér elsta son okkar í nokkra mánuði þegar hann var á fyrsta ári svo að ég gæti áfram stundað mitt nám. Það eru liðin 24 ár síðan við Palli fluttum í sveitina með synina litla og nutu þeir þeirra forréttinda að alast upp með ömmu og afa, á meðan hans naut við. Eftir andlát Pálma hefur Ranka átt sitt annað heimili hjá okk- ur. Það hefur verið gefandi og lær- dómsríkt að vera með henni, margt farið á milli okkar bæði í gamni og alvöru. Ekki vorum við alltaf sam- mála, hún gat verið föst fyrir ef svo bar undir en aldrei bar skugga á vin- skap okkar. Minningarnar eru dýr- mætar og ljúfar sem ég geymi fyrir mig um þessa góðu konu. Nú þegar ég kveð mína elskulegu tengdamóður er mér efst í huga þakklæti fyrir allt sem hún var mér og mínum. Far þú í friði. Þitt hjarta geymdi gullið dýra og sanna, að gleðja og hjálpa stærst þín unun var. Því hlaust þú hylli Guðs og góðra manna og göfugt líf þitt fagran ávöxt bar. Ég blessa nafn þitt blítt í sál mér geymi, og bæn til Guðs mín hjartans kveðja er. Hann leiði þig í ljóssins friðarheimi, svo lífið eilíft brosi móti þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Fanney. Hún Ragnheiður fyllir 18 ár, er yndið í föðurranni. Og fögur var hönd, en fótur smár, og fegri var engin svanni. „Hefur einhver flutt þetta fyrir þig áður, Ragnheiður mín?“ Þegar ég hugsa um ömmu á Hjálm er þetta það fyrsta sem kem- ur upp í hugann hjá mér. Oftar en ekki spurði amma mig þessarar spurningar eftir að hafa þulið þetta brot fyrir mig. Alltaf fannst mér jafn gaman að sitja með ömmu og hlusta á hana flytja þetta kvæði ásamt svo ótal mörgum öðrum. Amma hafði al- veg ótrúlegt kvæðaminni, hún gat setið tímum saman og komið með hin og þessi kvæði og vísur sem sum- ir höfðu jafnvel aldrei heyrt áður og þannig gat hún svo sannarlega skemmt manni. En það gerði hún ekki bara með ljóðum, amma var hlý og glaðleg kona og kunni vel að sinna sínum gestum. Minningarnar frá Hjálmsstöðum eru svo ótal margar að maður veit ekki hvar skal byrja, þegar ég hugsa um eitt atvik rifjast annað upp og svo koll af kolli. Bjúgu með kartöflu og sykri, kleinur, nýbakaðar flatkök- ur og ilmurinn sem þeim fylgdi, hlýtt og gott faðmlag, spil og öll heimsins ævintýri með prinsum og prinsess- um froskum og svönum sem amma samdi á staðnum, og því miður eru ekki til á blaði í dag, og svo ýmsir leikir eins og að setja í horn, og að ógleymdum andvökunóttum þar sem maður lá og kveið því að klukkan færi að slá tólf sinnum áður en mað- ur sofnaði, en amma sá til þess að maður sofnaði glaður og öruggur. Göngutúrarnir austureftir til Andr- ésar og Dísu og niðureftir til Palla og Fanneyjar, spjallið og spilin við eld- húsborðið eða inní stofu og svo margt margt fleira sem ég get talið upp þegar ég hugsa um ömmu á Hjálm. En minnisstæðust mun sjálf- sagt alltaf vera ferðin okkar til Kan- arí, stóri bjórinn sem amma fékk, fuglagarðurinn, bíltúrarnir, og allt hitt sem við fundum okkur að gera. Best var samt að horfa á hana rölta um berfætta á ströndinni í sólinni og vaðandi í sjónum, brosandi út að eyr- um eftir að hafa upplifað hugsanlega langþráðan draum. Það var ólýsan- lega gaman að fá þetta tækifæri til að ferðast með ömmu ásamt öðrum frábærum ferðafélögum. Þrátt fyrir aldur sinn og litla sjón lét amma ekkert stoppa sig þegar dreginn var fram spilastokkur. Fátt var skemmtilegra en að spila kasjon eða manna með mömmu og ömmu og ég hlakkaði mikið til að komast heim í sveitina á frídögum á veturna og slaka á með mæðgunum og taka þó nokkur spil með þeim, og auðvitað dró maður sín 9 spil annað slagið hjá ömmu til að sjá hvað framtíðin bæri í skauti sér. Amma var frábær spila- félagi og ég á eftir að sakna þess mikið að hafa hana ekki til að spila við okkur mömmu. Amma var mikil hannyrðakona, en flestallt sem hún gerði var meira til gagns en skrauts. Með prjónum sínum og prjónavél sá amma til þess að afkomendum hennar yrði hlýtt, eitthvað sem gat varið okkur hin fyr- ir kuldanum, fallegar peysur, trefla, sokka og vettlinga, kjóla á dætur sínar og ýmislegt fleira, sem ég er henni sérstaklega þakklát fyrir. Hún var svo sannarlega snillingur með prjónavélinni sinni, og ég held að ég geti sagt það með fullri vissu að allt sem amma tók sér fyrir hendur klár- aði hún með fullkomnum frágangi. Amma og afi hófu sinn búskap á Hjálmsstöðum og þar sem þau voru bæði af góðu fólki komin var enginn vafi á því að þau myndu stofna sína eigin frábæru fjölskyldu. Afkomend- ur þeirra, systkini og aðrir ættingjar eru þau bestu sem ég get hugsað mér að hafa í kringum mig. Við átt- um öll eitthvað í henni ömmu sem við munum hvert og eitt varðveita, hún var ekki bara mamma eða amma okkar, hún var líka sönn vinkona sem var gott að tala við um hvað sem var og var alltaf til í að hlusta á mann sama um hvað málið snerist, og alltaf var stutt í hláturinn og grín- ið. Mér er mjög minnisstæð ein kvöldstund sem við amma áttum saman. Mamma hafði gefið mér gamlan plötuspilara og við amma vígðum hann með laginu Það er svo ótal margt með Ellý Vilhjálms. Við áttum þarna skemmtilegt kvöld saman og mig langar að láta textann fylgja hér með því hann minnir mig svo á hana ömmu. Fannir í fjöllum, frostrós á skjá. Fuglar í lofti, fiðrildin smá. Lindin tær, augun skær, ótrúlega blá. Það er svo ótal margt sem minnir þig á. Stormur sem æðir, stillur um vor. Slóðir í sandinum, samhliða spor. Andvarinn, undur létt, leikur við strá. Það er svo ótal margt sem minnir þig á. Vetrarnótt, vorkvöld hljótt, er sumarsólin skín, ár og daga, alla tíð, ég hugsa til þín. Ljósin sem blika, lágnættið hljótt. Ærsli og unaður, andvarp um nótt. Ástarhót, augnaráð, er orðalaust tjá. Það er svo ótal margt sem minnir þig á. (Jóhanna G. Erlingsson.) En þó að söknuðurinn sé mikill efast ég ekki um að amma og afi séu saman og hafi það gott, ásamt ætt- ingjum sínum og vinum. Elsku amma og afi, þakka ykkur fyrir frá- bærar minningar og yndislegustu fjölskyldu sem ég get hugsað mér. Ragnheiður Hilmars. „Hún amma mín það sagði mér um sólarlagsbil.“ Einhvern veginn kemur þessi fyrsta hending í kvæði eftir Guðmund Guðmundsson skóla- skáld oft upp í huga minn þegar ég hugsa til ömmu á Hjálmsstöðum. Undanfarna daga hefur hugurinn verið mikið hjá henni og þá koma bernskuárin upp í kollinn á svo margan hátt. Alltaf er amma þá eins og einhver fastur punktur eða at- hvarf sem svona heldur utan um alla í kringum sig. Glaðværð, væntum- þykja, góðsemi í ríkum mæli og fleiri kostir prýddu hana alla tíð og aldrei heyrði maður hana tala illa um nokk- urn mann. Það yljar manni núna að minnast ferða með ömmu á grasa- fjall hér upp frá Hjálmsstöðum, í berjamó og bara að fá hana niður á tún með kaffi og brauð, kleinur, kök- ur o.fl. þegar heyskapur var á fullu. Þá komu oft sögur og hún gat verið mjög sannfærandi. Lengi vel var ég alveg viss um að Mjallhvít ætti heima í Slögusteini og þar væri al- veg sérstakt heiðurssæti fyrir hana. Henni tókst líka að gæða Óla lokbrá slíku lífi að eiginlega gekk manni illa að sofna. Hún minntist oft á það við mig að þegar ég var gutti voru mér gefin föt sem ég var víst ákaflega stoltur af. Ég var oft settur í þau og sagði þá við gesti sem komu: „Það er verið að sýna mig,“ og fannst ömmu þetta mjög skondið. Það er orðinn stór hópurinn sem kominn er út frá henni og það veit ég að henni þótti sérlega vænt um hversu samheldinn þessi hópur er. Um hverja helgi komu einhverjir austur á sumrin og einu sinni á sumri er vinnuhelgi þar sem allir koma saman og taka til hendinni í eða við gamla bæinn. Einnig er komin hefð á það að barnabörnin ásamt langömmubörn- um hittast alltaf á skírdag og það er samkoma sem hún hafði gaman af. Þeim fer nú fækkandi Laugdæling- unum sem muna nánast sögu dalsins frá því hér voru eingöngu bænda- býli. Amma mundi vel þegar Hér- aðsskólinn var byggður og hún þekkti Þórarin Þorláksson listmál- ara sem byggði Birkihlíð sem er elsta hús á Laugarvatni. Hún sagði mér frá ferðalögum með Ragnari Ásgeirssyni sem stofnaði hér gróðrastöð og byggði Lindina og fleiri gengna höfðingja og merkis- konur mætti nefna. Það er einnig umhugsunarvert að skoða þær að- stæður sem hún bjó við fyrstu árin sem hún og afi voru á Hjálmsstöð- um. Ekkert rennandi vatn, eitt her- bergi sem var haldið heitu og erf- iðleikar á ýmsa lund sem voru bara til að sigrast á. En allt lukkaðist þetta vel og þau komu upp 6 börnum sem hafa skilað 21 barnabarni og 29 langömmubörnum. Það eru forrétt- indi að ná þessu og má með sanni segja að hún hafi unnið í lífsins lottói. Hún náði því að búa alla tíð á Hjálmsstöðum og er það ekki hvað síst því að þakka hversu vel þau Palli og Fanney hugsuðu um hana sein- ustu árin. Ég og fjölskylda mín biðj- um Guð að geyma ömmu mína, lang- ömmu barna okkar og þökkum henni fyrir allt og allt. Pálmi Hilmarsson. 7. apríl síðastliðinn urðum við einni sómakonunni fátækari þegar Ragnheiður kær frænka mín kvaddi þetta jarðlíf. Allan sinn aldur ól hún í Laug- ardalnum, var fædd og uppalin á Snorrastöðum, giftist Pálma Páls- syni frá Hjálmsstöðum og þar stofn- uðu þau heimili, hófu búskap og eignuðust barnahópinn sinn. Afkom- endur þeirra eru margir, líklega á milli 50 og 60, allt mikið myndarfólk og fjölskylduböndin traust, enda segir máltækið að sjaldan falli eplið langt frá eikinni. Kannski vegna þess hvernig tíð- arandinn var í hennar uppvexti, þeg- ar allir þurftu að leggja fram starfs- krafta sína jafnskjótt og þeir urðu til var henni svo eðlislægt að vera sí- starfandi að maður einhvern veginn tók ekki eftir því. Ef til vill líka vegna þess að þrátt fyrir annir gaf hún sér ávallt tíma til að taka á móti fólki á þann hátt að það fann sig einkar velkomið, einna líkast því að hún hefði einmitt verið að bíða eftir manni. Það lögðu því margir leið sína að Hjálmsstöðum enda hjónin Ragnheiður og Pálmi vinmörg, gest- risin og góð heim að sækja. Ragnheiður var falleg kona jafnt yst sem innst og samsvaraði sér vel, með þykkt hrokkið hár, kvik á fæti og léttstíg, að auki mannblendin, skemmtileg og léttlynd. Velvild hennar og þokkarík framkoma jafnt við börn og fullorðna léði umhverf- inu jafnan einhvern hlýjan blæ. Þessu viðmóti hennar kynntist ég einkar vel þegar ég fyrst sem krakki rölti á milli bæja, svo unglingur og Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA EGGERTSDÓTTIR frá Steðja, Álakvísl 27, verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn 28. apríl kl. 15.00. Jóhann Bergsveinsson, Súsanna Magnúsdóttir, Eggert Bergsveinsson, Anna Högnadóttir, Kristmundur Bergsveinsson, Margrét Bergsveinsdóttir, Birgir Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÓHANNA ÁRMANNSDÓTTIR frá Neskaupstað, sem lést á heimili sínu, Aðalgötu 5, Keflavík, miðvikudaginn 19. apríl, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 28. apríl kl. 14.00. Gunnhildur Ásgeirsdóttir, Halldór Vilhjálmsson, Sigurbjörg Ásgeirsdóttir, Hörður Helgason, barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.