Morgunblaðið - 27.04.2006, Page 51

Morgunblaðið - 27.04.2006, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 51 MINNINGAR til hennar á Landspítalann núna um daginn, þar sem hún sat í hjólastól og sagði, að hún væri búin að fá pláss á líknardeildinni – það væri nú gott, því að þar fengi hún gott pláss fyrir gesti. – Ekki var að finna nokkurn bilbug á henni. Mikið fann maður til vanmáttar síns að geta engu breytt. Núna þrem dögum fyrir andlátið, þegar við systurnar litum til hennar á líknardeildina. heyrðist glaðlega úr rúminu. „Nei eru nú söstrene Grene komnar!“ Þessar stundir svo og kveðjustundin við dánarbeð hennar á skírdag, þar sem hún var um- kringd allri sinni fjölskyldu, gleym- ast aldrei. Þú, Jói minn, varst sá klettur, sem aldrei haggaðist, og sú alúð og natni, sem þú og börnin sýnduð, var einstök. Elsku Jói, Hanna Dóra, Páll, Kristín Þóra og Signý, Kristín (eldri) og Geir, Helgi og fjölskyldur – við Svavar sendum ykkur öllum innileg- ar samúðarkveðjur. Megi minningin um hugprýði hennar og geislandi bros verða ykkur styrkur í framtíð- inni. Haf þökk fyrir samfylgdina, Sig- rún mín. Guð geymi þig. Þorgerður Árnadóttir (Togga). Hún Sigrún vinkona hennar Toggu er dáin. Ég kveið því að þurfa að segja þessi orð. Þó það hafi lengi verið ljóst, að barátta hennar mundi enda á þennan veg, hefur maður aldrei í raun viljað trúa því. Í veik- indum Sigrúnar urðu mörg krafta- verk, það síðasta nú fyrir jólin. Ég vonaðist eftir fleiri kraftaverkum en þau komu ekki. Sigrún og Togga systir mín voru æskuvinkonur og skólasystur, fyrst í Kársnesskóla og síðan lá leiðin í Gagnfræðaskólann í Kópavogi. Þær tóku síðan stúdentspróf frá MR 1971. Alltaf í sama bekk, alltaf kátar og allt var svo skemmtilegt og „pjúsugt“ á þessum árum. Þær fóru ævinlega fótgangandi í og úr skóla á gagnfræðaskólaárunum þótt leiðin væri löng. Þó að þær töluðu stans- laust á leiðinni var alltaf eitthvað eft- ir að segja þegar þær á heimleiðinni komu í Holtagerðið, þar sem Sigrún bjó. Þá héldu þær áfram að tala og stóðu þá úti við öskutunnurnar. Fjöl- skyldur okkar kölluðu þetta ösku- tunnufundi, en þeir áttu til að drag- ast mjög á langinn, og voru ekki vinsælir þegar beðið var með mat- inn. Á þessum árum mátti ekki missa af lögum unga fólksins í útvarpinu og bítlalögin voru vinsælust, lög voru tekin upp á segulbönd og spiluð aftur og aftur. Þó svo að ég væri fjórum árum yngri fékk ég stundum að vera með þegar Sigrún var í heimsókn hjá Toggu. Mér fannst allt svo spenn- andi sem þær voru að tala um og gera. Sigrún var hláturmild með af- brigðum þannig að tárin runnu niður kinnarnar á henni í mestu hláturs- köstunum. Setningar eins og „ég fékk algjört kast“ heyrðust ósjaldan og voru oft eina lýsingin á skemmti- legum atvikum. Þetta var góður og áhyggjulaus tími. Sigrún var alltaf mjög samvisku- söm og dugleg í skólanum. Einnig var hún mjög vandvirk og flink í höndunum. Hún prjónaði og heklaði og var nýbúin að fitja upp á hring- prjón fyrir enn eina peysuna, þegar hún lést. Hún lærði lyfjafræði í Há- skólanum, eignaðist góðan mann og fjögur börn sem bera foreldrum sín- um gott vitni. Fyrir níu árum veikt- ist hún af alvarlegum sjúkdómi, sem hún tókst á við af miklu æðruleysi og hafði sterkan lífsvilja. Hinn mikli styrkur hennar í veikindunum var aðdáunarverður og okkur hinum næstum óskiljanlegur. Elsku Jói, Hanna Dóra, Kristín, Páll og Signý, sagt er að sorgin sé tvíburasystir gleðinnar og þær eigi sömu móður, kærleikann. Þið hafið umvafið Sigrúnu kærleika, sem eng- an átti sinn líka, og veitt henni allan þann stuðning í veikindunum sem í mannlegu valdi var. Sorgin er nú óbærileg, en öll eigum við glaðar og góðar minningar um Sigrúnu sem munu ylja um ókomin ár. Við á Kársnesbrautinni sendum ykkur og Kristínu móður Sigrúnar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Einfríður Árnadóttir. Það var skyndilega kallað á hann Krist- ján sem kvaddi þetta tilverustig eftir stutt veikindi. Við kynntumst Kristjáni þegar Guð- laug kona hans hóf störf hér fyrir 5 árum. Hann kom oft við hjá okk- ur, ýmissa erinda við Gullu sína eins og gengur eða stundum bara til að fá sér kaffisopa. Hann var aufúsugestur með Gullu í starfs- mannaferðunum okkar, þessi ró- legi og viðmótsþýði maður sem hafði svo einkar notalega návist. Hann sat iðulega íbygginn álengd- ar þar sem kona hans var hrókur alls fagnaðar og hann hafði lag á að leggja aðeins gott til málanna. Æðruleysi var augljóslega líka sterkur þáttur í skapgerð hans og honum var ekki tamt að hafa hátt um það þó eitthvað þjakaði hann eins og við skynjuðum síðustu vik- urnar þegar veikindi hans komu í ljós. Rósemi er eiginleiki sem lað- ar oft að sér börn og Kristján var með annarri vinnu knattspyrnu- þjálfari yngri flokka áratugum saman, nú síðast hjá KR. Það var augljóst að það var starf sem þessi barngóði maður hafði mikla ánægju af. Ótalmargir ungir knattspyrnumenn hafa fengið sína fyrstu knattspyrnuþjálfun hjá Kristjáni. Við sendum Gullu og fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur og biðjum almættið og alla góða krafta að styrkja þau á sorgar- stundu. Starfsfólk Fítons og Auglýsingamiðlunar. Kæri bróðir, sjaldan hafa skref- in að tölvunni verið jafn þung og nú. Aldrei hef ég verið jafn illa undirbúin undir neitt verkefni og nú, það að skrifa þessa kveðju til þín. Undanfarnir mánuðir, kannski ár, hafa að mörgu leyti verið erf- iðir okkur og fjölskyldum okkar. Samt sem áður hefur þetta að hinu leytinu verið einn okkar besti tími, sjaldan höfum við öll verið nánari en einmitt nú. Fyrir þennan tíma er ég ævinlega þakklátur. Ekki ætla ég þó að hefja hér lofræðu um þig, það væri ekki í þínum anda. Kæri bróðir og vinur, takk fyrir samfylgdina, takk fyrir stuðninginn, takk fyrir að vera ávallt þú sjálfur á hverju sem gekk. Nú hefur þú fengið hvíld frá þrautum þínum, fyrir það ber að þakka. Að kveðja þennan heim hljóðlaust, orðalaust, fara í friði og fyrirvaralaust var þér líkt. Óþarfa orðagjálfur og langur fyrirvari var óþarfur, enda ekki þinn stíll. Guð- laug og strákarnir þínir ásamt tengdadætrum og barnabarni sjá nú á eftir ástríkum eiginmanni, pabba, tengdapabba og nú líka afa, ástríkum fyrst og fremst en ekki varstu berandi tilfinningar þínar á torg. Í afanum kom aftur á móti hlutverk sem þú naust þín í, gam- an var að fylgjast með þér í því hlutverki og sorglegt að þú skyldir ekki fá aðeins lengri tíma til að sinna því. Ekki síst, Kristján minn, með tilliti til þess að þitt annað barnabarn er væntanlegt í heiminn innan skamms. Kæri bróðir, mínar bestu kveðj- ur færi ég þér og þinni fjölskyldu um leið og ég, Hulda, Kristján Orri nafni þinn og stelpurnar okk- ar tvær, Jóhanna og Brynja, fær- um öllum þeim er um sárt eiga að binda nú við fráfall þitt okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Berðu KRISTJÁN G. ÞORVALDZ ✝ Kristján G. Þor-valdz fæddist 20. febrúar 1954. Hann lést á LSH á Hringbraut 23. mars síðastliðinn eftir stutt veikindi og var útför hans gerð frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 31. mars. mömmu og pabba kveðjur okkar. Far þú í friði. Þinn bróðir, Jóhann Jóhannsson. Okkur langar til að minnast með nokkr- um orðum fyrrver- andi þjálfara okkar. Kristján þjálfaði okk- ur hjá 2. flokki Fylk- is árin 1989-90. Æf- ingar hans á undirbúningstímabili voru gríðar- lega góðar og árangurinn eftir því. Má þar einna helst nefna: Íslands- meistarar í innanhússknattspyrnu og bikarmeistarar utanhúss. Eftir eina æfinguna sem var töluvert erfiðari en aðrar sagðist hann gera þetta öðru hverju til þess að sjá hverjir væru í bolt- anum til þess að ná árangri og hverjir ekki. Það voru alltaf aðeins færri á næstu æfingu. Með þessu tókst honum að skapa sterka liðs- heild. Fyrir nokkrum misserum var hann aftur farinn að þjálfa hjá Fylki. Er við hittum hann og spurðum hann hvað hann ætlaði að endast í þessu lengi þá var svarið einfalt. ,,Þetta er bara svo gaman“. Þessi orð eru lýsandi fyrir hann. Kristján var sterkur persónuleiki og naut virðingar sem þjálfari. Aðdáunarvert var hversu samstiga kona hans var honum í þjálfuninni. Við viljum votta fjölskyldu hans og vinum okkar dýpstu samúð. Við munum minnast Kristjáns fyrir þau verk sem hann vann, því orð- spor það sem hann skapaði sér deyr ekki. 2. flokkur Fylkis 1989. Góður félagi okkar Kristján G. Þorvaldz er fallinn frá, langt fyrir aldur fram. Hann flutti á unglings- árum sínum í Vallargerðið í Kópa- vogi. Þetta var í hjarta Blikahverf- isins og fór Kristján að sjálfsögðu að æfa knattspyrnu með Breiða- bliksliðinu enda mikill íþróttamað- ur í sér. Þetta var uppgangstími hjá félaginu og meðal annars vann meistaraflokkur félagsins í karla- knattspyrnu sig upp í efstu deild í fyrsta skipti á þessum tíma. Krist- ján tók þátt í þessari uppbyggingu og spilaði með meistaraflokknum í nokkur ár. Kristján Þorvaldz var ágætur knattspyrnumaður; sterkur og fylginn sér og það fóru fáir framhjá honum í vörninni. Hann var líka mikill félagsmálamaður og fljótlega haslaði hann sér völl sem stjórnarmaður og sem þjálfari yngri flokka félagsins. Kristján sat í stjórn knattspyrnudeildar Breiðabliks í nokkur ár, meðal annars var hann gjaldkeri deild- arinnar. Það starf þykir eitt hið erfiðasta sem nokkur tekst á við í félagsstarfi íþróttafélaga en Krist- ján sinnti því af ákveðni og festu eins og öllu því sem hann tók sér á hendur fyrir félagið. En mest af mörkum lagði þó Kristján til félagsins í formi þjálf- unar. Hann þjálfaði marga flokka félagsins og þeir eru ófáir knatt- spyrnumennirnir sem hlutu góða grunnþjálfun hjá Kristjáni. Hann var afskaplega áhugasamur þjálf- ari og vel skipulagður í starfi sínu. Kristján var ákveðinn við drengina sem hann þjálfaði en sanngjarn. Margir þessara pilta náðu langt í íþrótt sinni og má að hluta þakka það ötulu starfi Kristjáns. Þó svo að það séu nokkur ár síð- an Kristján þjálfaði hjá félaginu þá fylgdist hann alltaf vel með starfi Breiðabliks. Ekki minnkuðu sam- skiptin þegar sonur hans Skúli fór að þjálfa hjá félaginu. Kristján studdi vel við bakið á syni sínum enda hafði Skúli spilað undir hans stjórn í grænu treyjunni. Breiðablik kveður góðan dreng og sendir Guðlaugu og fjölskyld- unni allri innilegar samúðarkveðj- ur. Fyrir hönd knattspyrnudeildar Breiðabliks, Andrés Pétursson. „Ef ég ætti að velja drengja- landslið í dag þá værir þú fyrsti maðurinn sem ég myndi velja“, sagði Kristján við mig um leið og hann tók utan um axlirnar á mér. Þetta var fyrir rúmlega 20 árum, rétt fyrir einn leikinn sem við átt- um að spila. Þessi orð, sem hann lét eflaust falla um fleiri í uppörv- unarskyni, komu fyrst upp í hug- ann þegar ég frétti af andláti hans. Kristján þjálfaði mig í 3. flokki í Val árin 1985 og 1986. Þessi orð voru mér mikill innblástur og hvatning til að leggja hart að mér áfram í knattspyrnunni. Þetta end- urspeglar einnig einkenni Krist- jáns sem þjálfara en hann lagði mikla áherslu á að hvetja læri- sveina sína til dáða. Auk þess var hann gríðarlega metnaðargjarn um að ná góðum árangri. Ég man enn hversu vonsvikinn hann var þegar við töpuðum leik gegn Vík- ingi í úrslitakeppni 3. flokks árið 1986 og misstum þar með af Ís- landsmeistaratitlinum. Kristján náði einnig að sameina snilldarlega þá eiginleika að vera ákveðinn þjálfari, sem lét okkur vita þegar við gerðum mistök, og að vera frá- bær húmoristi. Hann hélt uppi aga en alltaf var stutt í glaðværðina og kímnina sem létti okkur lund. Ég bar mikla virðingu fyrir Kristjáni, sem hann ávann sér svo auðveld- lega með óþvingaðri og þægilegri framkomu sinni. Mér er einnig minnisstætt þegar hann bauð okkur strákunum heim til sín við lok keppnistímabilsins 1986. Þar áttum við frábæra stund með honum og Gullu, konu hans, sem fylgdist oft með leikjum okkar og veitti okkur stuðning. Þar var mikið borðað, hlegið og spiluð tón- list. Þau kunnu svo sannarlega að taka á móti fólki. Leiðir okkar Kristjáns lágu aft- ur saman níu árum síðar þegar ég spilaði með Breiðabliki. Þá var það hluti af lokaverkefni hans við E-þjálfunarstig Knattspyrnusam- bands Íslands að fylgjast með æf- ingum og leikjum okkar. Þarna upplifði ég aftur metnað hans í þjálfuninni því E-stigið var á þeim tíma hæsta gráða sem hægt var að ná í þjálfunarnámi á Íslandi. Það var sannarlega gaman að hitta Kristján aftur. Hann hafði ekkert breyst. Húmorinn var á sínum stað og hann hvatti okkur til dáða. Knattspyrnuhreyfingin er einum reynslumiklum þjálfara fátækari en mestur er missir Gullu og son- anna Skúla og Ólafs. Ég færi þeim mínar innilegustu samúðarkveðjur. Arnaldur Loftsson. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og systir, STEFANÍA INGIBJÖRG SNÆVARR, sem lést fimmtudaginn 20. apríl, verður jarðsungin frá Seljakirkju fimmtudaginn 27. apríl kl. 15.00. Guðmundur Lárus Guðmundsson, Árni Snævarr Guðmundsson, Sesselja Guðmundsdóttir, Orri Haraldsson, Sesselja Snævarr, Sigrún Snævarr og barnabörn. Elsku afi, Kjartan Aðalsteinn Jónsson, andaðist á sjúkrahúsinu á Ísafirði 27. mars sl. Hann var einn yndislegasti maður sem við þekkt- um. Við minnumst afa með hlýju og þakklæti og það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar við hugsum um hann, er brosið hans. Afi var alltaf brosandi og þegar hann brosti, þá brosti hann með augunum eins og öll systkinin frá Eyrardal. Eyrardalur í Súðavík var hans heimili og þaðan eigum við honum að þakka margar ljúfar minningar úr sveitinni. Það var gott að vera saman í kyrrðinni í sveitinni hjá afa og ömmu. Þau lögðu alltaf mikið upp úr góðu samtali og skemmtilegum fé- lagsskap. Við fundum alltaf mikla ró í kringum hann sem fékk okkur til að gleyma öllu amstri og stressi hvers- dagslífsins. Það fylgdi honum afa já- kvæð útgeislun sem hafði góð áhrif á fólkið sem umgekkst hann. Eitt skýrasta einkenni persónuleika afa KJARTAN AÐAL- STEINN JÓNSSON ✝ Kjartan Aðal-steinn Jónsson fæddist á Galta- hrygg í Heydal í Mjóafirði í Ísa- fjarðardjúpi 29. janúar 1917. Hann andaðist á öldrun- ardeild Sjúkra- hússins á Ísafirði aðfaranótt 27. mars síðastliðins og var útför hans gerð frá Súðavík- urkirkju 8. apríl. er vafalaust dugnaður hans, þolinmæðin og einlægnin. Fjölmörg börn dvöldu sumar- langt í Eyrardal, flest komu ár eftir ár og hlökkuðu ávallt til að koma aftur. Öll börn fóru þaðan ríkari og betri manneskjur en þau komu. Við munum alla okkar ævi búa að því gildismati, viðhorf- um og viðmóti sem við fengum þar. Afi er alltaf hjá okk- ur og æskuminningarnar sem við eigum um hann eru eins og gull í hjarta okkar og verða þar alltaf. Við vitum að núna er hann kominn til pabba og Helenar og unir sér vel í þeim félagsskap. Viljum við þakka afa fyrir þær dýrmætu minningar sem hann skilur eftir. Hann hefur sannarlega getað litið yfir farinn veg með gleði og stolti. Ég heyri ljúfan lækjarnið, sé ljósar fífur í haga, máltæki mótuð að fornum sið. Minning um sumardaga. Góðmennskan og brosið bjarta, blíðlegt faðmlag og koss á kinn. Sorgin stingur í litlu hjarta, ég sakna þín elsku afi minn. Dásamlegur engill dvelur hjá mér, dvelur í mínu hjarta. Glaður hann gengur á móti þér í Guðsríkinu bjarta. (R.H.) Inga Dóra, Heiða og Rannveig Hrólfsdætur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.