Morgunblaðið - 27.04.2006, Síða 62
62 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
EIN af þeim sveitum sem kemur fram á Vor-
blóti, nýrri tónlistarhátíð sem Hr. Örlygur
(Iceland Airwaves) stendur að, er skoska
salsasveitin Salsa Celtica. Já, eins og nafnið
ber með sér blandar þessi ellefu manna sveit
saman keltneskri tónlist og suður-amerískri
salsatónlist – með þetta líka góðum árangri.
Vinsældir sveitarinnar hafa stigmagnast ár frá
ári og má segja að hún hafi endanlega slegið í
gegn með plötunni El Agua De La Vida árið
2003. Tónleikar sveitarinnar hafa fengið tvo
þumla upp alls staðar þar sem hún hefur kom-
ið við, stuðið er allsvakalegt og stefnumót
þessara tveggja tónlistarstefna eins vel heppn-
að og hugsast getur.
Allir til Kúbu
Leiðtogi sveitarinnar Toby Shippey var vel
slakur á kantinum er blaðamaður bjallaði í
hann enda grútþunnur að eigin sögn. Þessir
Skotar, hugsaði maður ósjálfrátt. Shippey var
viðræðugóður og kurteis þrátt fyrir allt-
umlykjandi timburmenn og góðum anda blés í
gegnum símtólið.
Shippey segir í upphafi frá því að sveitin hafi
komið til Íslands áður, þá árið 1999. Lék hún
þá á opnunarhátíð Nordisk Panorama-
kvikmyndahátíðarinnar. Hann vill lítið gera úr
þeirri heimsókn en ég spyr hann hins vegar
hvort að það sé rétt, að tónlistarsenan í Ed-
inborg, þar sem sveitin var stofnuð, hafi hjálp-
að til við að koma sveitinni á koppinn.
„Já, það er mikið af börum þar með „opn-
um“ kvöldum þar sem menn geta komið saman
og djammað að vild. Þannig varð nú þessi sveit
til. Við hittumst á hverju þriðjudagskvöldi á
lítilli krá sem heitir Black Bow’s. Fleiri tónlist-
armenn slógust í hópinn, m.a. vegna þess að
þeir fengum frían bjór fyrir vikið. Og svo vatt
þetta bara upp á sig.“
– En hvernig kom þessi hugmynd upp, að
blanda skoskri/írskri tónlist saman við suður-
ameríska?
„Þetta byrjaði einfaldlega þannig að við
komum úr svo ólíkum áttum og allir með mjög
ólíkan bakgrunn. Við hófum svo að leika sam-
an rómanska (latin) tónlist og þetta þróaðist í
þessa átt. Þetta bara „gerðist“, það var aldrei
nein stórkostleg áætlun að baki þessu.“
– Og svo slóguð þið í gegn með El Agua De
La Vida?
„Já … henni farnaðist afskaplega vel og
opnaði mörg lönd fyrir okkur. Nú hafa víst
komið út tvær safnplötur með okkur í Kólumb-
íu. Manni finnst það alveg ótrúlegt! Við byrj-
uðum á einhverjum pöbb og erum nú búnir að
spila út um allan heim eða því sem næst.“
– Snemma á ferlinum fóruð til Kúbu og
dvölduð þar í einhvern tíma …
„Já … það var c.a. ’96, frekar fljótt eftir að
bandið varð orðið til. Við skröpuðum saman
peningum og flugum út án þess að hafa gert
neinar ráðstafanir með gistingu, tónleika eða
neitt slíkt. Það fyrsta sem við gerðum var að
spyrja hvar við gætum keypt batá, sem er kúb-
versk tromma (upprunalega frá Nígeríu). Jú,
einhver benti okkur á hvar hægt væri að nálg-
ast hana og við enduðum á því að spila tólf tíma
á dag í Havana, á húsþökum, á börum og meira
að segja á trúarhátíðum. Þessi ferð heppnaðist
frábærlega.“
Ný plata snúin
– Segðu mér aðeins frá nýju plötunni ykkar,
El Camino, sem út kom í síðasta mánuði.
„Hún hefur gengið rosalega vel og viðbrögð
verið góð. Bæði hafa dómar verið góðir og svo
hefur hún verið ofarlega á heimstón-
listarlistum. Ég er mjög sáttur með hana, við
erum að fara í nýjar áttir og tókum hana t.d.
upp nánast beint. Vorum snöggir að þessu. Við
fengum slatta af gestum frá hinum og þessum
áttum, tónlistarmenn frá Shetlandseyjum,
Kólumbíu, Kúbu og svo syngur Eliza Carthy
með okkur (ein helsta þjóðlagasöngkona Eng-
lendinga í dag og dóttir gítarleikarans snjalla
Martins Carthy og söngkonunnar Normu
Waterson). Það tekur samt á taugarnar að
gera svona plötu, þar sem svona blanda getur
alveg misheppnast herfilega. En ég er per-
sónulega mjög sáttur við útkomuna.“
– Er erfitt að koma krafti sveitarinnar til
skila inn á plötu?
„Já, það getur verið svolítið snúið. Þarna
ertu að vinna með lög sem þú hefur ekkert náð
að tilkeyra. Orkan sem næst í hljóðverinu er
gjörólík þeirri sem næst uppi á sviði. Við unn-
um hana með frábærum upptökumanni, Cal-
um Malcolm (Blue Nile, Fish, Moya Brennan,
Runrig, Prefab Sprout, Simple Minds…).“
– Hefur þú lent upp á kant við hrein-
stefnumenn, í salsatónlist eða þeirri kelt-
nesku?
„Nei, í rauninni ekki. Það er ekkert sem
heitir „hreint“ hvað tónlist viðkemur. Salsa er
blanda af hinu og þessu, keltnesk tónlist, rokk-
tónlist. Öll þessi form eru bræðingur af öðrum
stefnum og eru sem betur fer í stöðugri þróun.
Þetta er lifandi fyrirbæri, rétt eins og tungu-
málið. Ekkert af þessu er greypt í stein. Tón-
listin okkar virkar, það er það sem skiptir máli
á endanum.“
Tónlist | Salsa Celtica leikur á heimstónlistarhátíðinni Vorblóti
Hrein tónlist er ekki til
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Salsa Celtica leikur á lokadegi hátíðarinnar,
sunnudaginn 30. apríl. Tónleikarnir fara fram
á NASA en nánari upplýsingar er hægt að
nálgast á vefsíðu hátíðarinnar.
www.riteofspring.is
www.salsaceltica.com
Salsa Celtica: „Þetta byrjaði einfaldlega þannig að við komum úr svo ólíkum áttum og allir með mjög ólíkan bakgrunn.“
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
N ý t t í b í ó
Sýnd með íslensku og ensku tali
eee
V.J.V Topp5.is
eee
H.J. Mbl
eee
J.Þ.B. Blaðið
The Hills Have Eyes kl. 10.25 B.i. 16 ára
When a Stranger Calls SÍÐASTA SÝN. kl. 10 B.i. 16 ára
Ice Age 2 m/ensku tali kl. 6 og 8
Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 6
Þeir heppnu
deyja fyrstir...
HROTTALEGASTA MYND ÁRSINS
Stranglega bönnuð
innan 16 ára - dyraverðir við salinn!
Óhugnanlegasta
mynd ársins !!!
Hvað sem
þú gerir
ekki
svara í
símann
Fór beint á
toppinn í USA
The Hills Have Eyes kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
The Hills Have Eyes Lúxus kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
When a Stranger Calls kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Ice Age 2 m/ensku tali kl. 4, 6, 8 og 10
Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 4 og 6
Date Movie kl. 4, 6 og 10 B.i. 14 ára
Vinsælasta myndin á Íslandi í dag
Mögnuð endurgerð af
Wes Craven
klassíkinni frá 1977
eee
„Mun betri og harðari en frummyndin“
Ó.Ö.H. - DV
eee
„The Hills Have Eyes er grimm og andstyggileg en hún
hrífur mann með sér mestallan sýningartímann“
SV - MBL
„...Prýðileg skemmtun fyrir þá sem
kunna að meta ýktan viðbjóð“
ÞÞ - FBL
eee
LIB - Topp5.is
Fyrirtækið Eastman Kodak sem framleiðirmeðal annars kvikmyndafilmur, valdi
stuttmynd Erlu B. Skúladóttur til að vera eina
af fimm fulltrúum þeirra á Cannes-kvik-
myndahátíðinni, sem
fram fer dagana 17.
til 28. maí í Frakk-
landi.
Eastman Kodak
stendur fyrir sér-
stakri dagskrá á
Cannes-kvik-
myndahátíðinni und-
ir yfirskriftinni
„Upprennandi kvik-
myndagerðarfólk“,
þar sem Bjargvætt-
ur verður sýnd
ásamt fjórum öðrum
kvikmyndum. Leikstjórar allra myndanna
verða viðstaddir hátíðina.
Bjargvættur hefur verið valin til sýninga á
meira en 50 kvikmyndahátíðum um allan heim
og hefur unnið til 25 verðlauna.
Þá hefur Ingvari Þórðarsyni kvikmynda-
framleiðanda og athafnaskáldi verið boðið til
hátíðarinnar en þar er um að ræða sérstaka
kynningu EFP (European Film Productions)
á upprennandi kvikmyndaframleiðendum
hvaðanæva að úr heiminum og nefnist
„Producers on the Move“. Ingvar verður í hópi
tuttugu og tveggja framleiðenda sem kynntir
verða í bak og fyrir meðan á hátíðinni stendur
og þar hafa þeir einnig tækifæri á að kynna
eldri verkefni sín sem og þau sem þeir vinna að
um þessar mundir.
Fólk folk@mbl.is
Töframaðurinn David Copperfield lék áræningja,sem hugðust ræna hann eftir
sýningu hans á sunnudag, með töfrabragði.
Copperfield var að ganga með tveimur aðstoð-
arkonum sínum að rútu sinni þegar bíll með
fjórum unglingum staðnæmdist skyndilega
fyrir framan þau. Tveir unglinganna stukku
vopnaðir út úr bílnum
og heimtuðu eigur
töframannsins og að-
stoðarkvennanna.
Báðar konurnar
létu af hendi samtals
800 dali og önnur
þeirra afhenti auk
þess vegabréf sitt,
flugmiða og farsíma.
Þegar kom að Copp-
erfield neitaði hann
hinsvegar að láta
nokkuð af hendi.
Sjálfur segir hann að hann hafi snúið vös-
unum sínum öfugt til að sýna þjófunum að þeir
væru tómir. Það voru vasarnir hinsvegar ekki
því töframaðurinn var með vegabréfið sitt,
veski og farsíma í þessum sömu vösum.
„Við getum kallað þetta öfugsnúinn vasa-
þjófnað,“ sagði Copperfield við dagblaðið The
Palm Beach Post.
Copperfield náði bílnúmerinu á meðan önn-
ur aðstoðarkonan hans hringdi í neyðarlínuna.
Unglingarnir voru handteknir skömmu síð-
ar og ákærðir fyrir vopnað rán. Þá fengu að-
stoðarkonurnar eigur sínar tilbaka.