Morgunblaðið - 27.04.2006, Side 68
Hagnaður eftir skatta
19,1 milljarður króna
HAGNAÐUR Straums-Burðar-
áss Fjárfestingabanka á fyrsta
ársfjórðungi 2006 eftir skatta var
19,1 milljarður króna, sem er
317% hækkun miðað við fyrsta
ársfjórðung 2005 en þá var hagn-
aðurinn 4,6% milljarðar króna.
Hreinar rekstrartekjur hækkuðu
um 337% og námu 24,2 milljörð-
um kr. en voru 5,5 milljarðar á
sama tímabili 2005. Arðsemi eigin
fjár var 17,2% á fyrsta ársfjórð-
ungi 2006 sem jafngildir 89% arð-
semi eigin fjár á ársgrundvelli.
Hlutfall rekstrarkostnaðar af
tekjum nam 3,1% á fyrsta árs-
fjórðungi en var 3,9% 2005.
Heildareignir 330 milljarðar
Heildareignir bankans námu
rúmum 330 milljörðum króna en
voru 109 milljarðar kr. í lok
fyrsta ársfjórðungs 2005 og hafa
því vaxið um 202%.
Að sögn Þórðar Más Jóhann-
essonar, forstjóra Straums-Burð-
aráss, er hér um að ræða met-
afkomu og hefur mjög góður
árangur náðst á öllum tekjusvið-
um bankans. Þau tekjusvið sem
skila þóknana- og vaxtatekjum
hafa verið efld sérstaklega.
Hrein lækkun á hlutabréfaeign
bankans nam 68 milljörðum kr. á
fyrsta ársfjórðungi og hefur inn-
lend hlutabréfaeign minnkað úr
45% í byrjun árs í 26% í lok
fyrsta ársfjórðungs. Lánasafn
bankans tvöfaldaðist að stærð úr
48,9 milljörðum króna í upphafi
árs í 92,7 milljarða í lok fyrsta
ársfjórðungs.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
Metafkoma hjá Straumi-Burðarási á fyrsta ársfjórðungi
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
Fagleg
og lögleg
þjónusta í boði
Löggild menntun snyrtifræðinga
tryggir þér fagmennsku í snyrtingu
og förðun og rétta og örugga húð-
meðferð. Þú finnur snyrti-
fræðinga í Félagi íslenskra
snyrtifræðinga um land allt.
Sjá nánar á Meistarinn.is.
TÖLVUTEIKNIMYNDIN Cars
verður forsýnd í Kringlubíói í
kvöld, en um er að ræða fyrstu
stafrænu bíósýninguna hér á
landi. Stafrænar myndir eru ekki
sýndar af filmum heldur af hörð-
um diskum, og eru bæði hljóð- og
myndgæði mun meiri en áður hef-
ur þekkst í kvikmyndahúsum hér
á landi. Um sérstaka boðssýningu
er að ræða, en Björn Á. Árnason,
framkvæmdastjóri Sambíóanna,
segir að stutt sé í að almenningi
gefist kostur á að sjá kvikmyndir í
stafrænum gæðum í kvikmynda-
húsum hér á landi. Cars verður
ekki heimsfrumsýnd fyrr en í
júní. | 65
Fyrsta stafræna
kvikmyndasýningin
ÆTLA má að gengishagnaður
Landsbankans af hlutabréfum sínum
í sænska fjárfestingarbankanum
Carnegie geti numið allt að 11–12
milljörðum íslenskra króna. Í tilkynn-
ingu frá Landsbankanum í gær kem-
ur fram að bankinn hyggst selja
19,8% hlut sinn í Carnegie, sem hann
eignaðist í tengslum við samruna
Landsbankans við Burðarás, sem til-
kynntur var 2. ágúst 2005. Frá þeim
tíma hefur gengi hlutabréfanna í
Carnegie í kauphöllinni í Stokkhólmi
nærri tvöfaldast. Þá fékk Landsbank-
inn rúman milljarð í arðgreiðslu fyrr
á þessu ári af eign sinni í Carnegie.
Forsvarsmenn Landsbankans
vildu í gær ekki tjá sig um fyrirhug-
aða sölu á hlut bankans í Carnegie.
Í tilkynningu frá bankanum segir
hins vegar að fyrirhuguð sala hluta-
bréfanna sé í samræmi við stefnu
Landsbankans um virka stýringu á
hlutabréfastöðum og áherslu á sam-
þættingu alþjóðlegrar starfsemi
bankans. Þá segir að hlutabréfin
verði seld til alþjóðlegra fagfjárfesta
með tilboðsfyrirkomulagi.
Gæti hagnast um 11–12
milljarða á Carnegie
Landsbankinn | B1
kom í ljós að þarna voru á ferð nemendur Melaskóla
að taka þátt í umhverfisátaki Reykjavíkurborgar, en
Melaskóli tekur þátt í því verkefni.
ÞESSIR hressu krakkar voru önnum kafnir við að
tína rusl á Ægisíðunni í gær þegar ljósmyndara
Morgunblaðsins bar að garði. Við nánari athugun
Morgunblaðið/Ásdís
Taka til hendinni og tína rusl
GENGISLÆKKUN íslenzku krónunnar
hefur í för með sér verulega launahækkun
sjómanna. Frystitogarinn Arnar HU1 var
að koma í land með ríflega 580 tonn af
frystum afurðum, sem svara til 1.070 tonna
af fiski upp úr sjó. Verðmæti aflans var
145,5 milljónir króna. Hefði þessi sami túr
verið farinn í febrúar, þegar gengi dollars-
ins var 61 til 62 krónur, hefði verðmæti
aflans verið um 25 milljónum króna lægra
eða 119,8 milljónir króna.
Hásetahlutur úr þessum túr var
1.559.793 krónur, en túrinn stóð í 35 daga.
Miðað við gengið í febrúar hefði hluturinn
þá orðið 1.283.923 krónur eða hvorki meira
né minna en ríflega 275.000 krónum lægri.
Þetta var annar bezti túr Arnars sé tekið
tillit til aflaverðmætis og hefur skipið aldrei
landað jafnmiklu af afurðum eftir eina
veiðiferð án millilöndunar. Skipið hóf veiðar
á Eldeyjarbanka, en hélt sig síðan fyrir
suðaustan, meðal annars á Mýragrunni og í
Berufjarðarál. Aflinn var blandaður en at-
hygli vekur að uppistaðan var ufsi, tæp 700
tonn upp úr sjó. Verð á ufsa hefur hækkað
gífurlega að undanförnu og er nú komið í
um 100 krónur á kíló upp úr sjó. Aðeins
fengust 150 tonn af þorski í þessari veiði-
ferð, en annars var mest af gullkarfa, 147
tonn, og 83 tonn af ýsu.
Allur ufsi seldur fyrirfram
Óskar Þór Kristinsson, netamaður á
Arnari, er að vonum ánægður með þessa
miklu breytingu. „Gengið hefur verið kol-
vitlaust skráð í langan tíma og því hafa
tekjur okkar sjómanna verið lágar að sama
skapi. Það hefur ekki verið nein innistæða
fyrir þessu háa gengi krónunnar og lækk-
unin nú er bara eðlileg leiðrétting á rangri
gengisskráningu,“ segir Óskar.
Hann segir að það sé fleira en gengis-
skráningin sem bæti hag sjómanna. Verð á
afurðum hafi farið hækkandi og muni menn
til dæmis vart eftir slíku verði á ufsa. Eft-
irspurn sé einnig mikil og sem dæmi um
það hafi allur ufsinn verið seldur fyrirfram.
Skipstjóri í þessari veiðiferð var Guðjón
Guðmundsson.
Útgerð og sjómenn njóta nú mikillar
launahækkunar í kjölfar lækkandi gengis
krónunnar. Frystitogarinn Arnar kom í
land með 145 milljónir í aflaverðmæti.
Háseta-
hluturinn
hækkaði um
275.000 kr.
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
DRÖG að nýjum samstarfssamn-
ingi Landspítala – háskólasjúkra-
húss (LSH) og læknadeildar Há-
skóla Íslands voru samþykkt á
aukafundi deildarinnar sem boðað-
ur var vegna málsins á þriðjudag
eftir að samningsdrögin voru felld
með afgerandi hætti á fundi henn-
ar í síðustu viku. Kristján Erlends-
son, varadeildarforseti læknadeild-
ar og framkvæmdastjóri kennslu,
vísinda og þróunar hjá LSH, segir
að góð sátt hefði verið um málið á
fundinum. Þar hefði verið farið yfir
breytt samningsdrög og málið ver-
ið samþykkt.
Kynntur á ársfundi LSH
Samningurinn væri flókinn en
ágreiningur um hann hefði snúist
um aðstöðu, fjármögnun og starfs-
mannamál. „Þetta eru tvær mjög
flóknar stofnanir og við bætist að
báðar njóta starfskrafta starfs-
manna hinnar. Þetta er því flókið
hvað varðar uppsetningu, stjórnun
og fleira,“ segir Kristján. Báðar
stofnanirnar þurfi meira fé en í
„breyttum samningsdrögum er
tekið aðeins nákvæmar á því
hvernig við sjáum þessi mál fyrir
okkur, bæði inn á við og út á við,“
segir Kristján.
Efni samningsins verður kynnt
og hann undirritaður á ársfundi
Landspítala – háskólasjúkrahúss í
dag.
Aukafundur
læknadeildar HÍ
Breytt
samnings-
drög sam-
þykkt
BYGGJA þarf um 370 til 380 hjúkr-
unarrými til þess að þörfinni fyrir
þau verði mætt með eðlilegum
hætti, að því er fram kom í máli
Sivjar Friðleifsdóttur, heilbrigðis-
ráðherra, í svari við fyrirspurn
Björgvins G. Sigurðssonar, þing-
manns Samfylkingar, um hjúkrun-
arheimili og öldrunarþjónustu á Al-
þingi í gær.
Ráðherra sagði að gróflega áætl-
að kostaði um 15 milljónir króna að
byggja hvert rými en búið væri að
byggja rými fyrir um 52 milljarða
króna. „Að reka eitt rými kostar
gróflega áætlað um 5,5 milljónir
króna á ári. Þannig að það kostar
um 16 milljarða á ári að reka þau
hjúkrunarrými sem þegar hafa ver-
ið byggð og eru í notkun,“ sagði Siv.
Ráðherra sagði að undanfarið
hefði hún látið skoða það í heilbrigð-
isráðuneytinu hvað brýnast væri að
gera í þessum málum.
„Allir vilja fá hjúkrunarrými og
það er með ólíkindum hvað mörg
sveitarfélög eru að biðja um hjúkr-
unarrými nú í aðdraganda kosn-
inga,“ sagði Siv.
Hún sagðist áætla að það myndi
kosta um 5,6 milljarða króna að
byggja rýmin á næstu árum og um 2
milljarða króna á ári að reka þau.
Þörf á 380 hjúkrunarrýmum